Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 22
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Útskurður kl.13:00 -
Kaffi kl.14:30 - Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá
okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera
ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari
upplýsingar og skráning í síma 411-2701 & 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opinn
handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14:15-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það
þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600.
Boðinn Myndlist kl. 13:00 í Bjarta sal. Sundlaugin er opin frá 13:30-
16:00.
Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í
Jónshúsi kl. 11:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Zumba í sal í
kjallara Vídalínskirkju kl. 16:30 og 17:15. Áfram skal gæta að
handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra athugið grímuskylda í
Jónshúsi og Smiðju Kirkjuhvoli.
Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8:30 og
9:30. Bingó á miðvikudögum kl. 13:00. Handverk á miðvikudögum kl.
13:00. Píla á fimmtudögum kl. 13:00. Línudans á föstudögum kl. 10:00
og 11:00. Grýmuskilda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt
að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með Kristrúnu kl. 8:50 og 9:50. Minning-
ahópur kl. 10:30. Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00. Stólaleikfimi
13:30. Gönguhópur – lengri ganga kl. 13:30.
Korpúlfa Morgunleikfimi kl 9:45 í Borgum. Gönguhópur leggur af
stað kl. 10 í dag frá Grafarvogskirkju og frá Borgum, einnig gengið
inni í Egilshöll. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11 í Borgum, athugið
þátttökuskráning hámark 20. Skartgripagerð kl. 13 í Borgum og
tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag í umsjón Gylfa.
Hádegsimatur, kaffisala kl. 14:15 -15:30 Heitt á könnunni, grímuskylda
og sóttvarnir
Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri í samráði við leiðbeinendur.
Kaffikrókurinn opinn fyrir íbúa Skólabrautar. Jóga í salnum kl. 10.00
fyrir íbúa á Skólabraut og kl. 11.00 fyrir íbúa utan úr bæ. Handavinna
og samvera í salnum eftir hádegi eingöngu fyrir íbúa Skólabrautar.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
með
morgun-
nu
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021
✝ BrynjólfurHalldór Magn-
ússson fæddist á
Akureyri 9. maí
1960. Hann lést í
faðmi fjölskyldu
sinnar á heimili
þeirra Selá í
Fnjóskadal 15. jan-
úar 2021. For-
eldrar hans voru
Magnús Brynjólfs-
son, f. á Akureyri
5. júní 1923, dáinn 6. desember
1976, og Kristbjörg Halldórs-
dóttir, f. í Hvammi í Hrafnagils-
hreppi 16. mars 1930, dáin 15.
júní 2014.
Systkini Brynjólfs eru 1)
Erna 2) Eva Bryndís, maki Jó-
hannes Árnason 3) Sigrún látin.
4) Rúnar.
Eiginkona Brynjólfs er Hulda
Björg Kristjánsdóttir, f. 7. mars
Binni eða Binni Dóri, hann ólst
upp í innbænum í Lækjargöt-
unni á Akureyri. Hann byrjaði
ungur að vinna og þegar hann
náði aldri tók hann vinnuvéla-
próf og meirapróf, hugurinn
var við jarðvinnu. Hann flutti til
Reykjavíkur og fór að vinna hjá
Reykjavíkurborg, var þar í
nokkur ár. Einnig vann hann
við virkjanir og fleira sem
tengdist jarðvinnu. Þegar
Hulda og Binni fluttu til Ak-
ureyrar fór hann að vinna hjá
FMN og síðan hjá GV. gröfum.
Hann stofnaði síðan sitt eigið
jarðvinnufyrirtæki sem hann
átti alla tíð síðan. Árið 2013
fluttu þau í Selá, nýja húsið sitt
sem þau byggðu í landi Vetur-
liðastaða í Fnjóskadal.
Útför Brynjólfs fer fram í
Akureyrarkirkju í dag, 25. jan-
úar 2021, kl. 13.30, en hann
verður jarðsettur í kirkjugarð-
inum á Hálsi í Fnjóskadal.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/y558y683
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
1970.
Börn þeirra eru
1) Guðrún, f. 30.
maí 1998, maki
Össur Hafþórsson,
f. 18. febrúar 1995,
2) Helgi, f. 28.
október 2000, 3)
Kristján, f. 9. ágúst
2009.
Sonur Brynjólfs
af fyrra hjónabandi
er Magnús Brynj-
ólfsson, f. 10. ágúst 1986, maki
Marion Brynjolfsson, f. 21. maí
1990.
Sonur þeirra er Maxime
Logi, f. 11. júlí 2017.
Foreldrar Huldu Bjargar eru
Kristján, f. 1. janúar 1937, dá-
inn 4. júlí 2014, og Guðríður H.
Arnþórsdóttir, f. 24. sept. 1942,
búsett á Veturliðastöðum.
Brynjólfur var alltaf kallaður
Elsku Binni minn. Í vor ætl-
uðum við að fara í Borgarnes
því að þar kynntumst við fyrir
30 árum. Það var meiri lífsins
lukkan að kynnast þér. Við átt-
um saman dásamleg næstum því
þrjátíu ár. Eignuðumst þrjú
yndisleg börn, Guðrúnu, Helga
og Kristján, fyrir áttir þú Magn-
ús. Þú varst börnum okkar stoð
og stytta, hvattir þau áfram í líf-
inu. Við bjuggum fyrst í Reykja-
vík en fluttum til Akureyrar ’96.
Árið 2006 stofnuðum við jarð-
vinnufyrirtæki. Við fjölskyldan
fórum oft í sveitina okkar fögru
til foreldra minna. Árið 2008
ákváðum við að byggja í sveit-
inni. Byggðum glæsilega húsið
okkar, Selá, sem stendur á fal-
legasta stað í heiminum að mínu
mati. Fluttum inn í júlí 2013.
Fyrsta haustið okkar í Selá kom
skellur, þú elsku vinur greindist
með heilaæxli, við tók erfið með-
ferð því krabbameinið ætlaði
ekki að láta þig í friði. Þrátt fyr-
ir að þessi veikindi væru í gangi
náðir þú að halda starfsorku
ótrúlega lengi, sinna vinnunni,
vinna í húsinu okkar og sinna
okkur fjölskyldunni. Við ferðuð-
umst, fórum saman til Frakk-
lands til Magnúsar og fjölskyldu
og fórum í brúðkaupið þeirra
Magnúsar og Marion haustið
2019. Við vorum svo heppin að
fá barnabarn þegar Magnús og
Marion eignuðust Maxime Loga
sumarið 2017, samband ykkar
tveggja var fallegt, dásamlegt
að fylgjast með því, líka á ykkar
vikulegu skype-fundum á sunnu-
dögum. Ég man sérstaklega eft-
ir því þegar þú fórst einn til
Frakklands 2018, þú fórst einn
með flugi frá Keflavík til París,
tókst lest til Lyon og svo þaðan
til Cambery og ég var skít-
hrædd um að þú myndir enda
ég veit ekki hvar, en þú und-
irbjóst þig vel, og þrátt fyrir að
vera ekki frönskumælandi og
ekkert rosalega fær í ensku
tókst þér að kynnast einhverjum
frakka sem var á sama ferðalagi
og þú og hljóp með þér í gegn-
um lestarstöðvar þegar þið
þurftuð að skipta um lest og allt
gekk upp. Þú varst svolítill fra-
samaður, ef ég hafði einhverjar
efasemdir um eitthvað þá sagðir
þú gjarnan að „það sem aldrei
hefði gerst áður gæti alltaf gerst
aftur“ hvað sem það þýddi nú.
Ef við vorum ósammála um eitt-
hvað þá endaðir þú oft samtalið
með því að segja „ég er ekki
með skalla“ sem þú vissulega
varst með. Við höfðum ekki allt-
af sömu sýn á hlutina, sérstak-
lega þegar kom að vélum, bílum,
gröfum o.þ.h. Því sem mér
fannst vera ónýtt drasl sást þú
verðmæti í og safnaðir að þér
alls konar vélatengdu dóti sem
ég skildi ekkert í, gætir þurft að
nota seinna eða í viðgerðir og
varahluti. Þegar við vorum að
ræða um svona véladót vitnaði
ég stundum í konu sem við vor-
um samferða um tíma og sagði
við þig „ég veit bara ekki hvað
ég geri ef þú deyrð frá mér með
allt draslið í bílskúrnum“ og átti
ég þá við þetta véladót almennt.
Þú gerðir það ekki elsku vinur,
við munum finna út úr þessu
með góðra vina hjálp. Ég þakka
öllum þeim sem hafa stutt okkur
fjölskylduna í Selá í gegnum ár-
in, ykkar hjálp er ómetanleg og
vináttan dýrmæt.
Elsku Binni minn, þakka þér
fyrir að fylgja mér, þakka þér
fyrir öll fallegu börnin okkar og
árin okkar saman. Hvíl í friði
elsku vinur. Þín
Hulda.
Í dag kveðjum við Binna okk-
ar.
Það er erfitt að kveðja og
margar minningar sitja eftir
sem gott er að eiga um frábær-
an bróður og frænda. Æsku-
stöðvarnar, innbærinn og gilið
var það sem máli skipti þegar
við vorum börn. Þar var mikið
líf og fjör, mikill fjöldi af börn-
um og margt hægt að gera.
Fjölskyldan átti bát og farið var
á sjóinn þegar tækifæri gafst,
einnig var fjölskyldan með kind-
ur í gilinu. Binni var mikil
aflakló og þótti gaman að veiða
á bryggjunni, einnig fórum við í
Eyjafjarðará í silung og á
hverju sumri var farið í Hrauns-
vatn. Við fórum stundum með
pabba í rjúpur þótt ung værum.
Binni stundaði skíði og skauta,
var í krulluliði, einnig var fugla-
veiði mikið áhugamál. Hann spil-
aði golf og þar áttum við systk-
inin sameiginlegt áhugamál sem
við gátum stundað saman sein-
ustu árin. Þegar Binni var 16
ára lenti hann í umferðarslysi og
var lengi á sjúkrahúsi og með
víraðan fót en hann lét ekki
stöðva sig í þeirri baráttu. Ein-
hvern tímann á því ferli var
hann innilokaður meðan vinirnir
voru á skíðum í gilinu, þá setti
hann út í glugga græjurnar og
hélt uppi fjörinu fyrir nágrennið
og strákana enda var hann mik-
ið fyrir tónlistina.
Hann gafst aldrei upp, hélt
alltaf áfram.
Hans setning var alltaf í veik-
indunum: „Það er ekkert að
mér, ég hef það fínt.“
Elsku Hulda Björg og fjöl-
skylda og Magnús og fjölskylda.
Við sendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Erna og fjölskylda,
Eva Bryndís og fjölskylda,
Rúnar og fjölskylda.
„Hæ frænka, áttu kaffi?“ Hæ
frænka er kveðja sem við allar
frænkurnar hans Binna þekkj-
um vel. Mikið sem ég á eftir að
sakna þess að heyra hann segja
þetta. Þegar ég hugsa til baka
þá var hann líklega allt í senn
föðurímynd, bróðurímynd og
heimsins besti frændi. Ég var
svo heppin að Binni frændi pass-
aði mig mikið þegar ég var lítil
og segi ég stundum að hann hafi
verið sá eini sem skammaði mig
og reyndi að ala mig upp.
Elsku Binni, mikið er ég
þakklát fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig: Þegar þú fórst
með mig á spítalann þegar ég
skar mig á ljósinu í einni af
druslunum þínum á planinu
heima, þær voru nú nokkrar.
Þegar við lituðum á þér hárið
rautt eftir að ég hafði sagt að þú
myndir aldrei þora að leyfa mér
að gera það. Þegar við bjuggum
til stóra snjókarlinn í garðinum í
L7. Þegar þú hélst í höndina á
mér þangað til ég sofnaði þegar
mér leið illa. Minningarnar eru
endalausar sem hafa komið upp
í hugann undanfarið.
Binni var bardagahetja sem
þurfti að taka margar orrustur í
gegnum lífið, hann vann þær all-
ar. Svo kom að þeirri stærstu og
erfiðustu fyrir rúmum sjö árum,
orrustu sem hann barðist við af
miklu afli. Hann sagði alltaf:
„Það er ekkert að mér, ég er
bara góður.“ En því miður hafði
þessi betur og er komið að leið-
arlokum.
Takk fyrir allt, sjáumst þegar
minn tími kemur og góða ferð
elsku langbesti Binni minn.
Guðný Björg.
Elsku Binni, mikið er ég
þakklát fyrir að þú varðst hluti
af fjölskyldu minni fyrir um 30
árum, þín verður sárt saknað.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Áslaug Kristjánsdóttir.
Sumarið er 1974 og Binni
kominn hingað í Grænuhlíð að
vinna hjá okkur Óskari. Hann er
hér líka sumarið eftir. Það er
svo í febrúar 1976 að Binni er á
leið til vinnu á Akureyri á skelli-
nöðrunni sinni þegar að bíll
keyrir í hliðina á honum. Slasast
hann mikið á fæti, í framhaldi af
því tekur við löng barátta hjá
honum. Illa gekk að fá beinin til
að gróa og þrauta ráðið var að
setja járntein frá hné og niður
að ökkla, sem festur var með
járnteina grind utan á fætinum.
Var þetta erfitt fyrir duglegan
ungling að hafa lítið við að vera.
Um vorið 1977 buðum við Binna
að koma í sveitina sem hann
þáði. Var þetta á margan hátt
minnisstætt sumar. Það kom í
ljós að drengurinn gat gert flest
nema að vera í fjósinu og brosti
breitt ef hann var beðinn að
gera eitthvað. Tók þátt í hey-
skapnum, snéri og rakaði allt á
Ursus, þar sem nóg pláss var
fyrir járngrindina. Um sumarið
voru húsin á jörðinni máluð að
utan. Þar var Binni í essinu
sínu, fór upp á öll þök nema
hlöðuþakið. Ég sem hafði verið
mjög lofthrædd og varla þorað
upp á stól læknaðist og málaði
hlöðuþakið með bónda mínum.
Fyrst eftir að Binni kom voru
hækjurnar notaðar en fengu svo
frí nema þegar hann var beðinn
að skreppa í sjoppuna sem var
hér skammt frá og tengdafor-
eldrar mínir ráku. Helga
tengdamamma gaf honum þá oft
kaffibolla og einu sinni sagði
Binni við hana. „Ég vissi ekki
hvað það var gaman að vinna
fyrr en núna“. Föstudaginn fyrir
verslunarmannahelgi þurfti
Binni að fara til Akureyrar fyrir
hádegi og var þá kominn með
aðra skellinöðru. Það mátti ekki
keyra hann svo hann fer á
skellinöðrunni. Er hann svo að
koma hingað aftur þegar hann
mætir bíl sem hundurinn okkar
eltir og þvælist fyrir hjólinu. Við
það dettur Binni og járngrindin
dregst eftir veginum um þrjá
metra. Við Óskar horfum á
þetta gerast og förum niður á
veg.
Þar hann liggur og segir „nú
verður fóturinn tekinn af mér“.
Við keyrum Binna svo til Ak-
ureyrar og förum heim frekar
döpur. Erum við svo að mjólka
um kvöldið þegar Binni kemur í
fjósið og allt er í lagi, biður hann
okkur um tjaldið til að fara í úti-
legu með vinum sínum í Vagla-
skóg, var tjaldið lánað með mik-
illi ánægju. Fljótlega eftir þetta
var hægt að taka járnið úr fæt-
inum og Binni fékk vinnu á lyft-
ara á Akureyri.
Já, kæri Binni ég veit ekki
hvað mörgum börnum og ung-
lingum ég hef sagt sögurnar af
þér. Við viljum að lokum þakka
þér fyrir öll góðu samskiptin á
þessum tæpu 47 árum og mikið
hefur verið gaman að heimsækja
ykkur Huldu að Selá.
Elsku Hulda, við Óskar send-
um þér, Magnúsi, Guðrúnu,
Helga, Kristjáni og öðrum ætt-
ingjum Binna okkar innilegar
samúðarkveðjur.
Rósa María
Tryggvadóttir.
Brynjólfur Halldór
Magnússon
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar