Morgunblaðið - 25.01.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021
„VIÐ VORUM BÚIN AÐ SEMJA UM ÞETTA.
ÞÚ GETUR EKKI BARA LABBAÐ ÚT Í
MIÐJU ATRIÐI.”
„herra dómari, 25 ára langur
fangelsisdómur setur starf hans í
bensínsjoppunni í hættu.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta
samverustunda með
fjölskyldunni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ VILT AÐ ÉG
KOMI MEÐ HANN
TIL ÞÍN?
HRÓLFUR, HVERNIG
FÆRÐU MENNINA
TIL AÐ BERJAST MEÐ
ÞÉR?
ÉG KANN ALLA
RÉTTU FRASANA!
OG HANN VEIT NÁKVÆMLEGA HVERSU
HÁTT HANN ÞARF AÐ ÖSKRA ÞÁ!
VILTU
HÁDEGIS-
MAT?
ALLTAF!ALLTAF!
ljós og tölvustýrð ljósa- og hitakerfi
við ræktun örþörunganna í lokuðum
rörakerfum sem þýðir að vatns-, raf-
orku- og landnotkun er í lágmarki.
Fyrirtækið er með starfsstöðvar
eða dótturfyrirtæki í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku, Finnlandi, Tékklandi og
Bandaríkjunum. Hjá því vinna yfir
200 manns.
Glímukóngur
Orri var um árabil formaður glímu-
deildar KR en hann er liðtækur
glímumaður og vann Grettisbeltið ár-
ið 1994. Hann var einnig í sigursælu
Gettu betur-liði Flensborgarskóla ár-
ið 1991 og Útsvarsliði Hafnarfjarðar
2011.
Orri tók fyrst þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir
bæjarstjórnarkosningar árið 1994 og
hefur síðan með hléum verið kjörinn
varabæjarfulltrúi og setið í fjölmörg-
um nefndum og ráðum Hafnarfjarð-
arbæjar. Þá hefur hann gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og var
m.a. formaður Stefnis, félags ungra
Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði auk
þess að vera ritstjóri Hamars, blaðs
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, um
aldamótin. Þá var Orri einnig um ára-
bil fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn HS
veitna. „Ég stefni á að halda áfram í
stjórnmálunum. Þau eru mitt helsta
áhugamál ásamt því að ferðast.“
Fjölskylda
Systkini Orra eru Ingibjörg
Hrefna Björnsdóttir, f. 10.7. 1974,
hjúkrunarfræðingur, búsett í Reykja-
vík, og Sigurbjörn J. Björnsson, f.
1.12. 1975, gæðatryggingarstjóri, bú-
settur í Hafnarfirði.
Foreldrar Orra: Björn R. Lárus-
son, f. 7.11. 1942, d. 6.12. 1999, hús-
gagnasmiður, og Edda Ársælsdóttir,
f. 17.2. 1948, fyrrverandi póst-
afgreiðslumaður og vann ýmis önnur
störf. Þau voru búsett í Reykjavík til
1986 og í Hafnarfirði eftir það.
Skarphéðinn
Orri Björnsson
Sigurlaug Guðmundsdóttir
húsfreyja á Syðri-Þverá
Guðmundur Árnason
bóndi á Syðri-Þverá í
Vesturhópi, V-Hún.
Álfheiður Guðmundsdóttir
verslunarmaður í Hafnarfirði
Ársæll Pálsson
bakari í Hafnarfirði
Edda Ársælsdóttir
fv. póstafgreiðslumaður í
Reykjavík og Hafnarfirði
Vigdís Ástríður Jónsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Páll Jónsson
járnsmiður í Hafnarfirði
Evlalía Ólafsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Björn Guðmundsson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Ingibjörg Björnsdóttir
verslunarmaður og
húsmóðir í Reykjavík
Lárus Harry Eggertsson
sjómaður í Reykjavík
Ríkey Jónsdóttir
húsmóðir á Klukkulandi
Eggert Fjeldsted Lárusson
bóndi á Klukkulandi í Dýrafirði
Úr frændgarði Orra Björnssonar
Björn R. Lárusson
húsgagnasmiður í Reykjavík
og Hafnarfirði
Ingólfur Ómar sendi mér góðanpóst: „Heill og sæll og gleðilegt
ár. Nú er daginn farið að lengja og
sú gula hækkar með hverjum degi
og ekki er hægt að kvarta yfir tíð-
arfarinu það sem af er vetri.“
Eflir gengi sólarsýn
sálarstrengi vekur.
Skuggar þrengjast, dimman dvín
daginn lengja tekur.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir á
Boðnarmiði:
Þinn heili sér hættuna bráða
og hjartað þig hvetur til dáða.
Í taumlausum styr
ertu traustur sem fyr
en tær munu stefnunni ráða.
Guðmundur Halldórsson veit upp
á sína tíu fingur:
Ef illa er með umhverfið farið,
á ófrísku kvenfólki barið,
lýðræði knosað
kolefni losað
er ráðstefna rétta svarið
Ef óvinir öll sín vopn munda
og allt er að fara í hunda
af fjandskap þig ort um
ótíð í kortum
er eina ráðið að funda
Ef fundir þig keyra í klessu
og þú kiknar af ráðstefnupressu
nötrar á taugum
neytir lyfja í haugum
er námskeið svarið við þessu
Jón Gissurarson yrkir og býður
góða nótt:
Hér er einn í rekka röð
er rímna unnir fagi.
Að bregða sér á Boðnarmjöð
er best að næturlagi.
Ólafur Stefánsson slær á kunn-
uglega strengi með athugasemd-
inni: „Þið kannist við kvikindið. Það
gengur alltaf aftur og aftur og aft-
ur“:
Hún brosti roggin hún Rósa,
er reið hún tígrinum Mósa.
En þá sneru úr haga
var snótin í maga,
og brosið um munninn á Mósa.
Kristján Karlsson orti:
„Ég ber yður ekkert á brýn,“
mælti Bjarnhildur, „fyllisvín,
fáviti og hommi
hálfviti og kommi
hreppstjóri og elskan mín.“
Jón Jónsson á Gilsbakka kvað um
1865:
Einlífis á eymdarnóttum
ekkjur tíðum þola bágt,
getnaðar í gluggatóttum
girndaruglan skrækir hátt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ráðstefna er rétta svarið