Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Opel Astra Enjoy ST ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 108þús. km. Verð: 2.090.000 kr.
591062
Verð ................................ 2.090.000 kr.
Greitt m/notuðum ........ 600.000 kr.
Eftirstöðvar ................... 1.190.000 kr.
Afborgun á mánuði ..... 29.305 kr.**
SsangYongTivoli XLVHLX ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 74þús. km. Verð: 2.690.000 kr.
Opel GrandlandXEnjoy ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 60þús. km. Verð: 2.990.000 kr.
446579
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. * Tökum aðeins 1 bíl uppí hvern nýlegan notaðan bíl. **Forsendur: 5 ára lán hjá Lykli. Útborgun 600.000 kr. með notuðum bíl.
Opel Insignia CosmoST ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 60þús. km. Verð: 2.990.000 kr.
7201384X4
Gamli bíllinn þinn gildir að lágmarki sem 600.000 króna innborgun* í nýlegan og öruggan bíl (sérmerktur á plani). Þinn
gamli þarf aðeins að vera með gilda skoðun og í ökufæru ástandi. Ef þú ert ekki með bíl uppí má alltaf ræða aðra díla.Not
að
ur
up
pí
ný
le
ga
n 00.000Við tökum gamlabílinn uppí á
590990
Snjómokstursvélar hafa haft í nógu að snúast
norðanlands og austan eftir fannfergi og snjóflóð
síðustu daga. Á fimmtudag stytti upp og lands-
menn gátu fagnað sólinni á ný. Eins og meðfylgj-
andi gervitunglamynd, sem tekin var í fyrradag,
ber með sér var varla skýjahula yfir landinu.
Eggert Jóhannesson ljósmyndari og Þorgerð-
ur Anna Gunnarsdóttir blaðamaður fóru norður
í dagsferð á fimmtudag og mátti lesa afrakst-
urinn í máli og myndum á mbl.is og í Morg-
unblaðinu í gær. Á Hofsósi hafði hættuástandi
verið aflýst við höfnina þar sem stór og mikil
snjóhengja hafði myndast í brekku ofan við
Vesturfarasetrið og húsakost þess. Voru stór-
virkar vinnuvélar að störfum við að moka snjón-
um út í sjó. Þegar ekið var í gegnum Fljótin var
einnig unnið að snjómokstri en þar kyngdi niður
í vikunni.
Á Siglufirði hófust hreinsunarstörf á skíða-
svæðinu í Skarðsdal eftir að snjóflóð féll þar í
síðustu viku og lagði skíðaskálann og geymslu-
gáma í rúst. Eins og kom fram í blaðinu í gær
stefna Siglfirðingar ótrauðir að því að opna
svæðið sem fyrst aftur.
Mokstur Rúnar Símonarson mokaði frá Vesturfarasetrinu. Á kafi Snjórinn umlykur Vesturfarasetrið á Hofsósi. Fljótin Snjóblásari að störfum við bæinn Brúnastaði.
Morgunblaðið/Eggert
Hofsós Stórvirkar vinnuvélar mokuðu snjóhengjum við Vesturfarasetrið út í sjó og klakahröngl myndaðist í höfninni á Hofsósi.
Skarðsdalur Hreinsunarstarf á skíðasvæðinu eftir snjóflóðið. Siglufjörður Tunglið varpaði bjarma sínum á sléttan hafflötinn.Heiðskírt Falleg gervitunglamynd frá MODIS sl. fimmtudag.
Hreinsað til
eftir flóð og
fannfergi