Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 30. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.96 Sterlingspund 175.98 Kanadadalur 100.19 Dönsk króna 20.973 Norsk króna 14.82 Sænsk króna 15.387 Svissn. franki 144.67 Japanskt jen 1.2354 SDR 185.54 Evra 155.97 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.2967 Hrávöruverð Gull 1839.65 ($/únsa) Ál 2003.5 ($/tonn) LME Hráolía 55.41 ($/fatið) Brent ● Tryggingafélagið VÍS gerir ráð fyrir því í afkomuspá sem það sendi frá sér í gær að hagnaður ársins 2021 fyrir skatta verði tæplega 2,6 milljarðar króna. Þá spáir VÍS því að samsett hlut- fall ársins verði 96,8%. Í afkomuspánni er einnig gert ráð fyrir að tjóna- og endurtryggingahlutfall verði 75,4%, kostnaðarhlutfall verði 21,4% og ávöxtun fjáreigna 6,1%. Tilgreint er í spánni að fjárfest- ingastefna VÍS miði að því að samsetn- ing eigna hámarki ávöxtun miðað við þann áhættuvilja sem settur hefur ver- ið. „VÍS hefur skilgreint áhættuvilja fé- lagsins út frá gjaldþolshlutfalli sem er á bilinu 1,35 – 1,70.,“ segir í spánni. VÍS segist munu tilkynna ef frávik frá væntum hagnaði ársins verði meira en 300 milljónir króna, og félagið mun uppfæra spána ársfjórðungslega, birta í afkomutilkynningum og kynna í fjár- festakynningum félagsins. Gengi VÍS í kauphöllinni hækkaði í gær um 2,95% og er 13,95 kr. á hlut. VÍS býst við 2,6 millj- arða hagnaði árið 2021 Spá Samsett hlutfall verður 96,8%. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Mikill meirihluti kröfuhafa VHE ehf. samþykkti framlagðan nauðasamning félagsins á fundi sem haldinn var 13. janúar síðastliðinn. Mun héraðs- dómur taka afstöðu til samningsins og úrskurða um hann 2. febrúar. Miðað við samninginn sem nú liggur fyrir munu kröfuhafar verða af mörgum milljörðum en VHE hefur átt í rekstrarerfiðleikum um langt árabil. Líkt og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu miðar nauðasamningurinn að því að helmingur samningskrafna á hendur félaginu verði afskrifað- ur og að verulegur greiðslufrestur verði gefinn á því sem út af stendur. Þannig munu kröfuhafar hafa fallist á að 20% eftirstæðra krafna verði greidd innan 8 vikna frá samþykkt samningsins og að 80% verði svo greidd með útgáfu verðtryggðs skuldabréfs til 7 ára sem beri enga vexti og að fyrsta afborgun af bréfinu verði 24 mánuðum eftir að nauðasamningur kemst á. Meðfylgjandi tafla sýnir þá kröfuhafa VHE sem lýstu hærri kröfu en sem nam 10 milljónum króna. Kröfuhafar voru þó vel á annað hundrað og heildar- fjárhæð lýstra krafna 4.768.314.809 krónur. Lang- stærsti kröfuhafi félagsins er Landsbankinn sem lengi hefur verið með félagið í gjörgæslu vegna fyrrnefndra rekstrarerfiðleika.Hin sérstaka staða Landsbankans í nauðasamningsumleitunum vekur óneitanlega athygli og uppgjör milli bankans og VHE er gert að sérstöku umfjöllunarefni í samn- ingnum sem að lokum var samþykktur. Þar kemur fram að heildarkröfur bankans á hendur félaginu hafi numið um 4.827 milljónum króna þegar það fór í greiðslustöðvun um miðjan aprílmánuð í fyrra. Landsbankinn í flókinni fléttu Þær kröfur voru hins vegar ekki allar samnings- kröfur og átti bankinn veðtryggingu „fyrir öllum sínum kröfum“ eins og það er orðað í nauðasamn- ingnum. Hins vegar hefur VHE á greiðslustöðv- unartímabilinu ráðist í umfangsmikla eignasölu á dótturfélögum sínum, m.a. Landvélum og Fálkan- um, Varma og vélaverki og VHE Austur. Hefur andvirði þeirrar sölu gengið til skuldauppgjörs við Landsbankann og kemur fram í nauðasamningn- um að það hafi lækkað kröfur Landsbankans á hendur VHE um 550 milljónir og skuldir gagnvart allri samstæðu VHE um 1.420 milljónir. Sökum þess er það hluti af samkomulaginu að líta skuli svo á að óuppgerðar samningskröfur nemi 2.327 millj- ónum króna. Að öllu óbreyttu hefði það þýtt að helmingur of- annefndrar kröfu, þ.e. 1.163,5 milljónir hefðu verið afskrifaðar, 233 milljónir hefðu komið til greiðslu innan tveggja mánaða og skuldabréf að fjárhæð 930,5 milljónir hefði verið afhent bankanum. Það hefur hins vegar, án frekari skýringa í samningn- um, orðið að samkomulagi milli bankans og VHE að Landsbankinn fái greiddar 200 milljónir tveim- ur mánuðum eftir samþykkt nauðasamnings og 17 milljónir 40 mánuðum eftir samþykkt hans. Verður bankinn því af 16 milljónum vegna þess hluta upp- gjörsins. Þá er hins vegar ekki öll sagan sögð því enn fremur er kveðið á um að bankinn fellur frá því sem eftir stendur samkvæmt fyrrnefndum útreikningi eða 2.110 milljónum króna. Sendi Morgunblaðið Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, fyrirspurn um þessa útfærslu uppgjörsins og hvernig hún gæti sam- rýmst hagsmunum bankans í málinu. Svar bankans var að honum sé ekki unnt að tjá sig um viðskipta- málefni einstakra viðskiptavina. Ljóst er að kröfuhafar sem nú hafa gengið að nauðasamningi við VHE taka mikla áhættu og al- gjör óvissa er uppi um hverjar endurheimtur af þeim helmingi lýstra krafna sem þeir eiga enn heimtingu á. Veltur það m.a. á því hvort núverandi eigendum VHE og öðrum fjárfestum takist að leggja nýtt fjármagn inn í félagið. Ekki er fjallað um í nauðasamningnum hver sú fjárhæð þurfi að vera en ljóst er að VHE þarf að greiða 400 milljónir til samningskröfuhafa innan 8 vikna eftir að nauða- samningur kemst á auk verulegra fjárhæða til for- gangskröfuhafa sem lýst hafa nærri 460 milljóna kröfu á hendur fyrirtækinu. Eigendur forða sér undan refsidómi Athygli vekur að Skatturinn, fyrir hönd ríkis- sjóðs, hefur lýst einna hæstri kröfu á hendur VHE eða sem nemur 450,9 milljónum króna. Lögfræð- ingar sem Morgunblaðið hefur rætt við segja að þessar kröfur lúti sömu lögmálum og aðrar samn- ingskröfur í nauðasamningi. Hins vegar kunni hluti þessarar fjárhæðar að vera vegna vanskila á vörslusköttum sem geti bakað stjórnendum VHE refsiábyrgð, innheimtist þeir ekki að fullu. Af nauðasamningnum má sjá að þannig er í pottinn búið. Þar segir í niðurlagi: „Þá þarf að hafa í huga að auk þessara greiðslna [nýs hlutafjár] þarf a.m.k. hluti eigenda persónulega að greiða skattaskuldir vegna félaga í VHE-samstæðunni.“ Íþróttafélögin bera skarðan hlut frá borði Það eru ekki aðeins fyrirtæki tengd iðnaði sem lýst hafa kröfum á hendur VHE. Þannig má í kröfuhafaskránni finna tvær kröfur frá íþrótta- félaginu Hetti á Egilsstöðum að fjárhæð 1.377.735 kr. og frá Íþróttafélagi Reykjavíkur að fjárhæð 278.317 kr. Tapar milljörðum á VHE  Krafa Landsbankans nam 4,8 milljörðum  Afskrifar stærstan hluta veðkrafna sinna á hendur VHE  Fær söluandvirði eigna í sinn hlut  Ríkissjóður sér á bak 225 milljónum vegna vangoldinna opinberra gjalda  Íþróttafélög meðal kröfuhafa Stærstu kröfuhafar VHE ehf. Krafa (kr.) Landsbankinn ehf. 2.881.000.000 Þrotabú KI2020 ehf.* 500.050.000 Skatturinn 450.910.753 Steypustöðin ehf. 163.451.084 Húsasmiðjan ehf. 57.068.366 Nordbo Enterprises ehf. 51.266.022 Olíuverzlun Íslands 46.340.823 Guðmundur Arason ehf. 43.822.433 Landvélar ehf. 37.742.253 Pípulagnaverktakar ehf. 35.341.729 Bitter ehf. 34.163.522 Gluggavinir ehf. 33.865.236 Smíðar og sláttur ehf. 27.702.595 Hvassavík ehf. 22.833.146 Jong ehf. 20.649.099 Lostæti-Austurlyst ehf. 19.546.976 BM Vallá ehf. 18.898.877 Héðinn ehf. 16.412.006 HBH Byggir ehf. 16.160.874 Tæki.is ehf. 15.526.376 Fagurverk ehf. 15.352.922 Bergis ehf. 14.451.099 Grjótavík ehf. 13.100.000 Áltak ehf. 12.121.358 Formus ehf. 10.855.487 Morgunblaðið/Eggert VHE Unnar Steinn Hjaltason á langstærstan hlut í félaginu og hefur haft tögl og hagldir þar lengi. Marel hefur gengið frá kaupum á 40% hlut í norska fyrirtækinu Stranda Prolog sem framleiðir há- tæknilausnir fyrir laxaiðnað, að því er segir í tilkynningu frá Marel. Fyrirtækin tvö hafa einnig gert með sér samkomulag um stefnu- mótandi samstarf um þróun nýrra lausna fyrir laxaiðnaðinn. Jafnframt kemur fram í tilkynn- ingunni að kaupin verði framkvæmd með kaupum á útistandandi hlutum og hlutafjárhækkun sem verði nýtt til að styðja við frekari vöxt Stranda Prolog. Í tilkynningunni segir einnig að Stranda Prolog hafi verið stofnað sem fjölskyldufyrirtæki árið 1946 og sé nú í fararbroddi í þróun hátækni- lausna fyrir laxaiðnað. Jafnframt framleiði félagið lausnir fyrir fisk- eldi. Stranda Prolog sé með 25 millj- ónir evra í árstekjur og um hundrað starfsmenn sem staðsettir eru í Kristiansund í Noregi. Ljósmynd/Marel Stórfyrirtæki Höfuðstöðvar Marels eru í Austurhrauni í Garðabæ. Marel kaupir hlut í norsku fyrirtæki  Þróar lausnir fyrir vinnslu á laxi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.