Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 28

Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 ALLA LAUGARDAGA MILLI 10 OG 14 Skúli Guðjónsson fæddist 30. janúar á Ljótunnarstöðum í Hrútafirði, Strand. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Guð- mundsson, f. 1867, d. 1954, og Björg Andrésdóttir, f. 1866, d. 1929. Skúli ólst upp á Ljótunnar- stöðum, var við nám í Sam- vinnuskólanum 1927-28 og tók við búi foreldra sinna 1936 og bjó þar til 1973. Hann missti sjónina 1946 en gekk þó sjálfur að hirðingu á sauðfé og kúm. Hann var þjóðþekktur maður á sinni tíð fyrir útvarpserindi og blaðaskrif. Þegar hann varð blindur hamlaði það skrifum hans um hríð en svo lærði hann á ritvél og gaf út sínar fyrstu bækur eftir það. Eftir hann liggja a.m.k. sex bækur og safn ritgerða, meðal þeirra er Bréf úr myrkri frá 1961. Skúli var vegaverkstjóri í Bæjarhreppi 1943-46, formað- ur Sjúkrasamlags Bæjar- hrepps 1943-46, sat í búnaðar- ráði 1945, formaður Verkalýðsfélags Hrútfirðinga 1934-36 og formaður ung- mennafélagsins í Bæjarhreppi í nokkur ár. Hann sat í flokk- stjórn Sósíalistaflokksins. Eiginkona Skúla var Þuríður Guðjónsdóttir, f. 1908, d. 1963. Þau eignuðust fjögur börn. Skúli lést 20. júní 1986 á Hvammstanga. Merkir Íslendingar Skúli Guðjónsson Fyrsta stjórn- arskráin íslenska 1874 var í grunninn sam- hljóða dönsku stjórn- arskránni. Ný stjórn- arskrá tók svo gildi við sambandslögin 1918, – og stjórnarskrá kon- ungsríkisins Íslands 1920. Ný stjórnarskrá var svo samþykkt við lýðveldisstofnun 1944, byggð á þeim fyrri. En hvernig hafa þessar stjórn- arskrár breyst í lýðræðisátt? Frá 1944 hefur íslenska stjórn- arskráin tekið nokkrum breytingum: fyrst 1959; síðan 1968, 1984, 1991, 1995, 1999 og 2013. Um breytingar á stjórnarskránni segir í 79. gr.: „Tillögur, hvort sem eru til breytinga eða viðauka á stjórn- arskrá þessari, má bera upp bæði á reglulegu Alþingi og auka Alþingi. Nái tillagan samþykki Alþingis 1) skal rjúfa Alþingi þá þegar og stofna til al- mennra kosninga að nýju. Samþykki [Alþingi] 1) ályktunina óbreytta, skal hún staðfest af forseta lýðveldisins, og er hún þá gild stjórnskipunarlög.“ Samkvæmt orðanna hljóðan þarf þjóðin ekki að koma beint að breyt- ingu stjórnarskrárinnar, heldur ein- ungis meirihluti Alþingis fyrir og eftir almennar kosningar. Hvenær þarf að vísa málum til þjóðarinnar? Stjórnarskráin gerir ráð fyrir þjóð- aratkvæðagreiðslum í þremur grein- um; 11. gr. , 26 gr. og 79. gr. 1. og 2. mgr. Í 81. gr. segir: „Stjórnarskip- unarlög þessi öðlast gildi, þegar Al- þingi gerir um það ályktun, enda hafi meiri hluti allra kosningarbærra manna í landinu með leynilegri at- kvæðagreiðslu samþykkt þau.“ 81. gr. má skilja sem áréttingu á 79. gr. um að kosningar á milli sam- þykkta Alþingis á breytingum á stjórnarskránni skuli sérstaklega bornar upp við þjóðina samhliða al- mennum alþingiskosningum. En hef- ur það verið svo? Þjóðaratkvæða- greiðsla hefur farið fram sjö sinnum á Íslandi: 1908, 1916, 1933, 1918, 1944, 2010 og 2011. Í íslensku stjórn- arskránni er fjallað um fullveldisskerðingu í 21. gr. Þar segir: „Forseti lýðveldisins gerir samn- inga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða land- helgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkisins, nema sam- þykki Alþingis komi til.“ Samkvæmt orðanna hljóðan getur Alþingi samþykkt með einföldum meirihluta fullveldisskerðingu. Fyrsta stjórnarskrá Dana var sam- þykkt 1849, endurskoðuð 1866, 1915, 1920 og 1953. Danska stjórnarskráin hefur skýr ákvæði um þjóð- aratkvæðagreiðslur. Í 42. gr. segir að þriðjungur þingmanna geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu um nýsam- þykkt lög meirihlutans (lög um fjár- lög/fjármálagerninga undanþegin) og einungis þarf meirihluta í 30% kosn- ingaþátttöku til að fella lögin. Í 88. gr. er fjallað um hvernig skuli staðið að breytingum á stjórn- arskránni, aðferðin er sú sama og í ís- lensku stjórnarskránni, þ.e. sam- þykki þings, kosningar og samþykki nýkjörins þings, en svo segir „Ef ný- kjörið þing samþykkir frumvarpið óbreytt, verður innan hálfs árs eftir endanlega samþykkt að leggja breyt- ingarnar undir dóm kjósenda… Sam- þykki meirihluti þeirra, sem atkvæði greiða og minnst fjörutíu hundraðs- hlutar atkvæðisbærra manna, ákvörðun þingsins og staðfesti kon- ungur ákvörðunina, fær hún gildi sem stjórnskipunarlög.“ Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa farið fram 19 sinnum í Danmörku: Fyrst 1916, 1920, aftur 1920, 1939, 1953, 1961, 1963, 1969, 1971, 1972, 1978, 1986, 1992, 1993, 1998, 2000, 2009, 2014 og 2015. Af síðustu tíu þjóðaratkvæða- greiðslum hafa níu þeirra verið um fullveldisafsal í tengslum við aðild Dana að ESB. Í dönsku stjórnarskránni er kveðið á um framsal á fullveldi í 20. grein í tveimur málsgreinum: „1. mgr. Ákvarðanir, sem sam- kvæmt stjórnarskrá þessari falla undir stjórnvöld ríkisins, má með lög- um framselja alþjóðlegum stofn- unum, sem settar eru á stofn með gagnkvæmum samningum við önnur ríki til að stuðla að alþjóðlegri lög- skipan og samvinnu. 2. mgr. Til að lagafrumvarp sam- kvæmt 1. mgr. öðlist gildi þarf meiri- hluta, fimm sjöttu þingmanna. Náist slíkur meirihluti ekki, en þó nægur atkvæðafjöldi til að samþykkja venju- legt lagafrumvarp, og styðji rík- isstjórnin frumvarpið eftir sem áður, skal bera það undir atkvæði kjósenda til samþykktar eða synjunar sam- kvæmt reglunum um þjóðaratkvæða- greiðslur í 42. gr.“ Niðurstaðan af þessum sam- anburði á upprunalegu sömu stjórn- arskránni er sú, að ákvæði um þjóð- aratkvæðagreiðslur og fullveldisafsal eru mun skýrari og ríkari í þeirri dönsku en þeirri íslensku. Ákvæði 20 gr. og 42. gr. dönsku stjórnarskrár- innar segja skýrt um hvernig og hve- nær á að vísa málum til þjóðarinnar. Þessi ákvæði í stjórnarskrá eru í raun eina tækið fyrir almenning til að andæfa því að æðsta ríkisvaldið sé flutt úr landinu. Það er mikilvægt að allt vald sé temprað og sæti aðhaldi innanlands. Þrígreining ríkisvaldsins á að þjóna því hlutverki, en í ljósi reynslunnar er mikilvægt að aukinn meirihluta þings þurfi í fullveld- isafsali og almenningur geti haft loka- ákvörðun í mikilvægum málum sem varða hagsmuni hans, þ.e. að æðsta ríkisvaldið sem almenningur kaus í almennum kosningum gefi það ekki frá sér til erlendra aðila. Ef breyta á stjórnarskránni væri það fyrsta að taka upp ákvæði 20. gr. og 42. gr. í systurskrá íslensku stjórn- arskrárinnar. Þjóðaratkvæði og fullveldisákvæði í íslensku og dönsku stjórnarskránni Eftir Sigurbjörn Svavarsson Sigurbjörn Svavarsson »Ef breyta á stjórn- arskránni, væri það fyrsta að taka upp ákvæði 20 gr. og 42 gr. í systurskrá íslensku stjórnarskrárinnar. Höfundur er áhugamaður um lýðræðið. Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið nokkur umræða um intersex en fremur ein- hæf að mínu áliti og nánast verið skoð- anaeinokun. Haldið hefur verið fram að lítil þekking/fræðsla sé að- gengileg hér á landi. Það getur ekki talist rétt. Ég hef tvisvar skrifað um þessi mál. Fyrst árið 2009 í Morgunblaðinu með fyrirsögninni „Kynferði íþróttamanna“ og aftur 2018 með fyrirsögninni „Intersex“. Þessar greinar eru aðgengilegar í greinasafni Mbl. Tilefni fyrri greinar var keppni Caster Semenya á Heimsmeist- aramótinu í frjálsíþróttum í Berlín 2009. Ég var á mótinu og undanfar- andi þingi sem fulltrúi FRÍ og fylgd- ist með keppninni og viðbrögðum. Seinni greinin var skrifuð eftir ein- hliða umræðu í RÚV. Álitamál um kynferði íþróttamanna hafa lengi verið þekkt í íþróttahreyf- ingunni. Í tólf ára setu minni í lækna- nefnd Alþjóðafrjálsíþróttasambands- ins voru rifjuð upp atvik þegar misræmi var á litningagreiningu og útliti einstaklings. Ég veitti umsögn um álitamál. Atburðarásin vegna Caster Semenya var óvenjuleg svo vægt sé til orða tekið. Íþróttakonur sem kepptu með Cas- ter Semenya mótmæltu þátttöku hennar og töldu hana ekki geta verið konu vegna útlits hennar og var það flestum skiljanlegt. Hófst mikil um- ræða í fjölmiðlum og fræðiritum um allan heim og sérfræðingar skýrðu þau mörgu afbrigði sem gætu orðið í kynþróun einstaklings. Í greinum mínum leitaðist ég við að endursegja þessi atriði og varpa frek- ara ljósi á þessu flóknu og viðkvæmu mál. Þær virðast þó hafa verið of flóknar til að alþingismenn, sem þurfa nokkra mánuði til að ákveða um hverja viku í fæðingarorlofi, gætu kynnt sér. Frumgreining kynferðis ein- staklings fer að sjálfsögðu fram eftir fæðingu. Ef kynfæri eru eðlileg þótt undirliggjandi litninga- eða horm- ónaafbrigði séu til staðar getur sá ein- staklingur vaxið og lifað sínu lífi at- hugasemdalaust þar til ástæða gæti komið til athugunar t.d. vegna íþróttaárangurs eða ófrjósemi. Séu kynfæri barns af- brigðileg, geta verið veruleg og allt að tvö- föld, hefur verið reynt í samráði við foreldra að greina nánar líklega kynþróun og aðgerðir hafa verið gerðar á ytri kynfærum í samræmi við það. Fullyrða má að slíkar aðgerðir hafi tekist vel og gert einstaklingnum kleift að lifa at- hugasemdalaust í sínu umhverfi utan sviðsljóss fjölmiða eða almennings. Þessir einstaklingar hafa ekki ástæðu til koma fram. Vissulega er það vel þekkt að end- anlegt kynval einstaklingsins hefur orðið mótsett við ætlaða þróun og ein- staklingurinn talið sig til kyns mót- sett við aðgerðir. Einstaklingar sem telja sig þannig hafa orðið fyrir mistökum hafa orðið atkvæðamiklir utanlands sem hér- lendis og talið að engar aðgerðir ætti að gera fyrr en einstaklingurinn hefði vit á til samþykkis og vals. Engin tímamörk hafa verið skilgreind og börnum því ætlað að fara gegnum bernskuár með veruleg frávik frá venjulegum kynfærum. Er líklegt að slík börn komist hjá athugasemdum stríðni og einelti? Ákafahópur, sem ekki hefur liðið vegna afbrigðilegs útlits kynfæra og ekki þurft slíkar aðgerðir, hefur náð eyrum ráðamanna með furðulegustu rökum og lagt til lögbann við hvers konar leiðréttingaraðgerðum, jafnvel á galla þvagrás drengja. Ég get sagt frá því ýkjulaust að mér eldri strákar í minni æskubyggð höfðu í flimtingum að ákveðinn ein- staklingur hefði tvöföld kynfæri og sögðu hann á klámfenginn hátt geta stundað kynlíf með sjálfum sér. Það á ekki að vera „kriminelt“ fyrir foreldra eftir vandlega íhugun og ráð- gjöf að vilja forða barni sínu frá slíku umtali. Eftir Birgi Guðjónsson Birgir Guðjónsson » Það á ekki að vera „kriminelt“ fyrir for- eldra að forða börnum sínum frá einelti vegna frávika á útliti kynfæra. Höfundur er læknir, MACP, FRCP, AGAF, FASGE og hefur starfað um árabil í íþróttahreyfingunni. Intersex-afbrigði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.