Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 ✝ María KristínSiggeirsdóttir fæddist á Fá- skrúðsfirði 9. ágúst 1942. Hún lést á Landspít- alanum 22. janúar 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- geir Stefánsson, f. 6. janúar 1906, d. 25. nóvember 1970, og Helga Finnbogadóttir, f. 13. mars 1912, d. 26. nóv- ember 1985. Systkini: Aðal- björg, f. 1931, d. 1953. Karl Guðjón, f. 1933, d. 1977. Stefán Finnbogi, f. 1938. Drengur, f. 1941, d. 1941. Jóhanna, f. 1950. Auðbjörg, f. 1952 (dóttir Að- albjargar). 3) Draupnir Rúnar Draupn- isson, f. 9. júní 1976. María ólst upp í Miðhúsi á Fáskrúðsfirði og eftir grunnskóla stundaði hún nám í Húsmæðraskólanum á Laugarvatni. Á yngri árum vann hún við fiskvinnslu en starfaði sem talsímavörður hjá Landsímanum frá 1961 til 1971 er hún gifti sig og flutti í Nes- kaupstað. Þar starfaði hún við heimilisstörf, fiskvinnslu og í eldhúsi Fjórðungssjúkrahúss- ins um tíma. Eftir að María missti eiginmann sinn árið 1987 bjó hún áfram í Neskaup- stað til ársins 2014 er hún flutti að Hraunvangi 1 í Hafnarfirði þar sem hún bjó til dauðadags. Útför Maríu fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 30. janúar 2021, og hefst at- höfnin klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni. Stytt slóð: tinyurl.com/e89ga7pj Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat María giftist Freysteini Draupni Marteinssyni, f. 20. september 1940, d. 2. október 1987. Synir hennar eru: 1) Siggeir Þor- steinsson, f. 26 júlí 1963, faðir Þor- steinn Einarsson. Synir hans eru Sindri, f. 1986, Kári, f. 1989, Atli Steinar, f. 1992, og Arnór, f. 1998. Móðir þeirra er Björk Inga Arnórsdóttir. 2) Ástvaldur Draupnisson, f. 26. apríl 1974, giftur Susanne Lund Draupnisson, f. 14. júlí 1978. Synir þeirra eru Mads, f. 1997, Emil, f. 2004, Jakob, f. 2007, og Óskar, f. 2010. Elsku mamma mín, ég mun sakna þess að spjalla saman oft á dag eins og við gerðum alla daga alla tíð og fara saman á rúntinn sem við elskuðum. Þú kenndir mér svo mikið í gegnum ævina og gerðir mig að þeim manni sem ég er í dag. Ólst mig upp við að gera allt með stæl sem maður tæki sér fyrir hendur eða sleppa því og varstu alltaf dugleg að segja að manni væru allir vegir færir. Stundirnar sem við áttum voru ómetanlegar enda vorum við alltaf mjög náin og fátt var skemmtilegra en að lenda á góðu spjalli og þú varst enda- laus uppspretta af fróðleik og sögum og mundir gjörsamlega allt og varst svo áhugasöm um fólk. Þú hafðir svo mikið að gefa og varst alltaf til staðar fyrir alla og gerðir alltaf allt sem í þínu valdi stóð til að vera góð við alla og gera fólki í kringum þig glaðan dag enda sogaðist fólk gjörsamlega að þér og voru Lækjamót heima í Nes- kaupstað alltaf eins og fé- lagsmiðstöð þar sem allir voru velkomnir og gátu rætt allt milli himins og jarðar. Þú varst einstök manneskja, sérstaklega lífsglöð og stór- glæsileg og alltaf með þitt hlýja bros á vör og varst aldrei að velta fyrir þér einhverjum óþarfa smáatriðum. Minningarnar hellast yfir og þar sem ég er yngstur af okkur bræðrum og pabbi deyr þegar ég er 11 ára þá vorum við oft á tíðum tvö í heimili og dekraðir þú svoleiðis við prinsinn. Ótelj- andi smurbrauðstertur, vöfflur, pönnukökur, plokkfiskur og annað gúmmelaði var græjað fyrir mig hvenær sem mig langaði í og var alltaf svo gam- an hjá okkur. Þú áttir stundum held ég erfitt með að skilja alla æv- intýraþrána í mér en fylgdist alltaf áhugasöm með og hvattir mig til að elta mína drauma og var ég alltaf duglegur að halda sambandi þótt ég væri í öðrum heimsálfum. Það er búið að vera svo dásamlegt að lesa yfir dagbæk- urnar þínar og sjá það sem þú hefur skrifað þegar ég var að hringja frá framandi löndum; „Draupnir hringdi frá Rúanda í Afríku, fer til Kenía á morgun“ og var þér alltaf umhugað um hvar ég var. Í dag í þessari miklu sorg er ég þakklátastur fyrir hversu mikla samveru og dýrmætar minningar við eigum frá síð- ustu mánuðum og hef ég aldrei verið meira heima á Íslandi en undanfarið og haustið algjör- lega tileinkað þér, sem er svo ómetanlegt núna þegar þú ert farin frá okkur. Einnig þakka ég mikið ógleymanlegu gæðahringferð- ina okkar um Ísland 2019 en þú elskaðir að keyra um fallega landið okkar. Þú skildir víða eftir þig spor elsku mamma og munt lifa áfram í hjörtum okkar enda alltaf svo góð við alla. Það er ómetanlegt í dag að finna alla samúðina og hlýjuna frá fólki sem hringir í okkur og hefur samband og syrgir þig. Ég mun gera allt sem ég get til að þú verðir áfram stolt af mér elsku mamma mín, klett- urinn okkar allra, og þakka þér fyrir allt. Ég elska þig og mun alltaf gera en minning þín mun lifa að eilífu. Þinn elskandi sonur, Draupnir Rúnar. Það er sagt um sumt fólk að það sé ekki allra. Að það eigi bara skap með sumum mann- eskjum en ekki öllum. Mamma var allra. Henni linnti við alla og dæmdi engan. Hún fór í gegnum lífsins ólgu- sjó með stóískri ró og seiglu. Þrátt fyrir áföll lífsins hélt hún sinni reisn og jafnaðargeði allt til leiðarenda. Það er ekki hægt að segja að hún hafi verið strangur uppalandi. Hún treysti okkur sonum sínum til að fara okkar eigin leiðir og ég man ekki til að hún hafi skammað mig þó að ég hafi örugglega oft átt það skilið. Hún stóð við bakið á sínu fólki og hafði mikinn skilning á ef eitthvað bjátaði á einhvers staðar. Hún tók ávallt upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín og hallmælti engum. Hún var mikill mann- og dýravinur og hafði mikla kímnigáfu. Henni tókst að sjá húmorinn í flestu og jafnvel á lokametrunum tókst okkur að hlæja að ein- hverju sem við vorum að ræða á spítalanum. Einn hæfileika hafði hún sem var einstakur og það var hversu minnug hún var. Hún gat rakið löngu liðna atburði og vissi ættir flestra sem hún þekkti eða kannaðist við. Ég er strax farinn að sakna þess að geta ekki hringt og spurt hana út í hluti sem ég veit ekki eða man ekki lengur sjálfur. Ég kveð nú móður mína og þakka henni fyrir samfylgdina og að hafa staðið við bakið á mér og mínum alla tíð og ávallt verið reiðubúin til að leggja sitt af mörkum til að gera lífið betra og skemmtilegra. Ég hugga mig við að nú er hún komin á betri stað og þarf ekki að þjást vegna veikinda sem hrjáð hafa hana undanfarið. Minning hennar mun lifa. Siggeir. Í dag kveðjum við mömmu, tengdamömmu og ömmu. Það er með miklum söknuði og sorg að við kveðjum og erf- itt að hugsa til þess að hún sé farin. Fordómaleysi, óeigingirni, félagslyndi og málsvari þeirra sem minna mega sín eru nokkr- ir af þeim kostum sem fyrst koma upp í hugann þegar hugs- að er til baka. Minnumst þess að hún setti sjálfa sig aldrei í fyrsta sæti og var alltaf að hugsa um aðra. Strákarnir okkar elskuðu ömmu sína sem var mikil húm- oristi og alltaf til í gott spjall og spil. Hún var dugleg með ipadinn og gat þannig tekið þátt í dag- legu lífi okkar í Danmörku þrátt fyrir fjarlægðina. Hún var mikill dýravinur og nutum við þess að deila með henni myndum og atburðum úr sveitinni. Við gætum auðveldlega skrifað margar síður með góð- um minningum en nú kveðjum við. Elsku mamma, tengda- mamma og amma, við þökkum fyrir yndislega tíma saman og stuðning alla tíð. Við munum sakna þín en minning þín og gildi munu lifa. Ástvaldur, Susanne og strákarnir. Elsku góða Mæja, það er komið að kveðjustund. Það er skrítið að hugsa til þess að það verði aldrei aftur „við heyrumst“ eftir langt og gott spjall í símann. Samtölin sem við áttum voru aldrei stutt og gátum við auðveldlega talað í tvo tíma. Draupnir Rúnar er æskuvin- ur minn og þannig varð til góð vinátta milli mín og Maríu. Minningarnar eru margar sem koma upp í hugann. Alltaf var gott að koma á Lækjamót til Mæju. Þar sátum við tím- unum saman, langt fram á nótt, spjölluðum, spiluðum, hlógum, drukkum kaffi, kíktum á rúnt- inn og alltaf var Mæja með. Það var ekkert skemmtilegra en þegar hún dró fram spilin og spáði fyrir okkur. Hún hafði einstaka nærveru, hlýleg, afslöppuð, bjó yfir mik- illi ró og allir gátu verið ná- kvæmlega eins og þeir vildu í kringum hana. Alltaf var stutt í hláturinn og sprellið. Hún hafði gaman af góðum sögum og spaugilegum uppákomum. Það var gaman að hlusta á Mæju segja frá. Hún sagði frá gömlum tímum. Frá því hún var ung á Fáskrúðs- firði, með sitt fína hár, og vann á símstöðinni. Hún átti ennþá greiðuna sem hún túberaði all- ar vinkonurnar með áður en farið var á ball og stundum var hún tekin fram og þá sást að Mæja hafði engu gleymt varð- andi hárgreiðslurnar. Eins hélt hún alla tíð upp á fínu kjólana sem höfðu verðið sérsaumaðir á hana. Hún var glæsileg ung kona. Mæja var með allt á hreinu, fylgdist mjög vel með sínu fólki, fjölskyldu og vinum og hafði einstaklega gaman af að ræða ættfræði. Henni var umhugað um alla. Spurði um líðan fólks og mátti ekkert aumt sjá. Hún var traust, hlustaði, kom með upp- örvandi orð og gerði gott úr öllu. María var stolt af strákunum sínum, ekkert var henni dýr- mætara en þeir. Hún stóð með þeim af heilum hug og kær- leika. Alveg fram á síðustu stundu tók hún hlutunum eins og þeir komu á sinn magnaða hátt. Mæja mín. Takk fyrir allt, takk fyrir alla hlýjuna sem þú hefur alltaf sýnt mér. Ég á margar fallegar og góðar minn- ingar sem ég mun alltaf geyma í hjarta mér. Elsku Draupnir Rúnar, Ást- valdur og Siggeir, Jóhanna og aðrir ástvinir Maríu. Missir ykkar er sár og söknuðurinn mikill. Ég bið þess að allar góðar vættir vaki yfir ykkur á erf- iðum tímum. Minning um fal- lega, sterka og góða konu lifir. Sigrún Þorsteinsdóttir. Elsku Mæja mín, ekki datt mér í hug þegar ég hringdi í þig til að óska þér gleðilegs ný- árs að þú værir á förum. Ég náði þó að tala nokkur orð við þig í vikunni sem þú lést. Það er margs að minnast úr æsku okkar. Dadda og Mæja alltaf eins og samloka enda jafn gamlar og sátu saman í skól- anum. Eitt sinn vorum við þrjár að spila svarta-pétur heima hjá okkur Döddu í Baldurshaga, mér fannst þær hafa svindlað svo þær hlupu út yfir girðingu með fram Pósthúsi sem var hús afa hennar og ömmu, Finnboga og Auðbjargar, og heim í Mið- hús til Helgu og Siggeirs, for- eldra Mæju. Þar með var leikn- um lokið. Ýmislegt fleira væri hægt að rifja upp úr æsku okk- ar á Fáskrúðsfirði. Mæja var trygg vinkonum sínum sem hún vann með á Símstöðinni og okk- ur Döddu systur. Við vorum bræðradætur, því Bergkvist faðir okkar og Siggeir faðir Mæju voru bræður. Mæju var annt um sitt skyldfólk og eiga synir hennar heiður skilinn fyr- ir alla þá væntumþykju sem þeir sýndu henni. Draupnir og Ástvaldur voru ungir drengir þegar pabbi þeirra dó, dugn- aður allra bræðranna var eft- irtektarverður. Jóhanna systir Mæju var henni ætíð mikil stoð og stytta, Mæja var afskaplega ánægð að fá Helgu Maríu dótt- ur hennar í afmælisgjöf eitt ár- ið. Mæja var hæglát kona sem tókst á við margt á taflborði lífsins og hafði oft á tíðum sig- ur. Mæja talaði oft við okkur systur eða við höfðum samband við hana, hún var yndisleg vin- kona. Fallin er frá hvunndagshetja með góðan orðstír. Blessuð sé minning Maríu Kristínar Sig- geirsdóttur. Ég sendi sonum hennar og fjölskyldum þeirra, öðrum ættingjum og vinum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðríður Karen Bergkvistsdóttir. María Kristín Siggeirsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, Hvassaleiti 58 í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík 22. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu takmarkast fjöldi í kirkjunni við 100 manns og eru ættingjar og nánir vinir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Streymt verður frá athöfninni á slóð sem birtist í vefútgáfum og facebooksíðum aðstandenda. Áslaug Haraldsdóttir Stefán Haraldsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Okkar heittelskaða eiginkona, móðir, tengdamóðir, dóttir, systir, mágkona og barnabarn, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Sigga okkar viðskiptafræðingur, Lækjarvaði 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum deild 11E að kvöldi 23. janúar. Útför fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 4. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Siggu er bent á Minningarsjóð Sigríðar 0331-13-905355, kt. 1601665419 V/gjöf til styrktar Landspítala Íslands. Streymi: https://youtu.be/RoU6YEldGpI Bjarni Einarsson Guðmundur Bjarnason Esther Friðriksdóttir Dagur Bjarnason Birta Bjarnadóttir Guðmundur Egilsson Hulda Pétursdóttir Helga Guðmundsdóttir Jón Gunnlaugur Sævarsson Fanney Guðmundsdóttir Svavar Már Gunnarsson Jóhanna Einarsdóttir Hilmar Sæmundsson Sumarliði Gísli Einarsson Sveinbjörn Einarsson Sigríður Skarphéðinsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA SNORRADÓTTIR smurbrauðsdama, Hæðargarði 33, Reykjavík, verður jarðsett frá Bústaðakirkju 3. febrúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á slóðinni https://youtu.be/icW6ZXzuK8A og má finna virkan hlekk á streymi á slóðinni https://www.mbl.is/andlat/ Anna Rósa Sigurgeirsdóttir Halldór Leifsson Snorri Bogason Agnes Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, JENNÝ ANNA BALDURSDÓTTIR, Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði, lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 28. janúar. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einar Vilberg Hjartarson Sara Hrund Einarsdóttir María Greta Einarsdóttir Ari Benóný Malmquist Helga Björk Laxdal Björn Axelsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR K. HJARTARSON bifreiðarstjóri, Fossvegi 8, Selfossi, áður Bakkaseli 24, Reykjavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 28. janúar. Útför verður auglýst síðar. Þ. Harpa Jónsdóttir Hjörtur V.W. Vilhjálmsson Sangwan Wium Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Ingibjörn Jóhannsson Gunnar Örn Vilhjálmsson Jón Vilhjálmsson Súsanna Gunnarsdóttir Kristinn Þ. Vilhjálmsson Anna Lilja Rafnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.