Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Jón Sigurðsson Nordal Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Jóhann Ólafsson Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra kynnti í gær tilslakanir á sam- komutakmörkunum vegna kórónu- veirufaraldursins sem gilda munu í þrjár vikur, frá 8. febrúar til 1. mars. Þakka má góðu gengi Íslendinga í baráttunni við faraldurinn þessar snemmbúnu breytingar, en til stóð að núgildandi reglugerð myndi gilda til 17. febrúar. Tilslakanirnar eru byggð- ar, að vanda, á minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis og eru nokkuð varfærnar. Tveggja metra nálægðartakmörk verða enn í gildi, sem og grímuskylda í almennings- samgöngum, verslunum og þar sem ekki er hægt að halda viðunandi bili milli manna. Þá verða almennar fjöldatakmarkanir áfram 20 manns. „Þetta eru varfærin skref sem eru í samræmi við þá staðreynd að okkur gengur mjög vel hérna innanlands, en líka þá staðreynd að faraldurinn er á mikilli siglingu alls staðar í kringum okkur,“ segir heilbrigðisráðherra um tilslakanirnar. Rýmri undanþágur Meðal breytinga eru rýmri undan- þágur frá fjöldatakmörkunum en áð- ur hafa verið. Fjöldatakmörk gesta í sviðslistum verða aukin úr 100 í 150 manns og trú- og lífsskoðunarfélög- um verður heimilt að halda athafnir, þar með taldar útfarir, með mest 150 manns. Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verður 150 manns með hliðsjón af fermetrafjölda og sama gildir um gesti á söfnum. Þá verður heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna búningsaðstöðu að nýju og æfingar í tækjasal verða leyfðar, að því gefnu að ekki séu fleiri en 20 manns í hverju rými. Hámarks- fjöldi verður allt að 50% af leyfilegum fjölda líkamsræktarstöðvanna. Áfram þarf að skrá þátttöku fyrir fram. Leyft að opna bari og krár á ný Með tilkomu breytinganna mega krár, barir og skemmtistaðir hafa op- ið, en þó ekki lengur en til kl. 22. Sama gildir um spilakassa og spilasali. Veit- ingar skulu afgreiddar til gesta í sæti og ekki má hleypa nýjum gestum inn eftir kl. 21. Þá leggur sóttvarnalæknir til að viðvörunarlitakóða vegna veirufar- aldurins á Íslandi verði breytt úr app- elsínugulum, sem stendur fyrir „aukna hættu“, í gulan, sem hvetur fólk til að „vera á verði“. Ráðherra bárust ekki tillögur um hertar sótt- varnaaðgerðir á landamærum Ís- lands, þrátt fyrir þá fullyrðingu sótt- varnalæknis að mesta ógnin stafi af landamærunum þar sem flest virk smit greinist þar í samanburði við smittölur innanlands. Rekstraraðilar misánægðir Ágústa Johnson, framkvæmda- stjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hreyfingar, segir tilslakanirnar vera miklar gleðifréttir. „Þetta hefur frá- bær áhrif á þá þjónustu sem við get- um boðið,“ segir hún. Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, segir það gott að allur vafi sé nú tek- inn af því hvort æfa megi í tækjasöl- um líkamsræktarstöðva, en að það muni langmestu að geta opnað bún- ingsklefana á ný. Þau höfðu bæði gert sér vonir um að fleiri mættu koma saman, en dvelja ekki við það í bili. Ekki eru þó allir á einu máli um ágæti tilslakana ráðherra. „Við bareigend- ur erum enn mjög ósáttir með þá meðferð sem við höfum fengið og telj- um að það hafi verið brotið á jafn- ræðisreglu,“ segir Björn Árnason sem rekur Skúla Craft Bar. Hann segist þó ánægður með að geta loks- ins haft opið aftur og að fá starfsfólk sitt til vinnu. Björn er í hópi bareig- enda sem hyggjast höfða skaðabóta- mál vegna fyrri sóttvarnareglna sem neyddu vínveitingastaði til að stöðva rekstur svo mánuðum skipti. Hann vonast til að málareksturinn muni tryggja „samræmi í reglum um bari, kaffihús og veitingastaði, líkt og er í löndunum í kringum okkur“. Kynna varfærnar tilslakanir  Breytingarnar „í samræmi við þá staðreynd að okkur gengur mjög vel hérna innanlands,“ að sögn ráðherra  Rýmri undanþágur frá fjöldatakmörkunum  Heimilt að opna bari og skemmtistaði á ný Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir ræddi við blaðamenn um tilslakanir að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Tilslakanir á samkomutakmörkunum vegna kóróna veiru frá 8. febrúar Heilsu- og líkamsræktar- stöðvar mega opna búnings- aðstöðu að nýju Áfram hámark 20 í hóptíma og allir séu áfram fyrirfram- skráðir í tíma Al menn ar fjölda tak- mark an ir verða áfram 20 man ns eins og nú er Verslanir 5 viðskipta vinir á hverja 10m² að hámarki sem eru tvöfalt fl eiri en nú Hámark 150 viðskipta- vinir í rými, í stað 100 nú Nándarregla verður áfram tveir metrar Skemmtistaðir og krár mega opna á ný Veitingastaðir þar sem áfengisveitingar eru leyfðar, þar með talin veitingahús, kaffi hús, krár og skemmtistaðir, skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 22.00 Sama gildir um spilasali og spilakassa Veitingar skulu aðeins afgreiddar gestum í sæti Ekki er heimilt að hleypa inn nýjum gestum eftir kl. 21.00 Söfn, sviðslist ir, bíó sýn ing ar og aðrir menn ing ar viðburðir Heimilt er að taka á móti 150 gestum í stað 100 nú 2m Dómsmálaráðherra höfðu í gær ekki borist tillögur frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni um hert- ar sóttvarnaaðgerðir á landamær- um, enda þótt sóttvarnalæknir hafi boðað að með nýjum sóttvarnalög- um sé lagður lagagrundvöllur fyrir slíku. Þórólfur sagði á upplýsingafundi almannavarna í vikunni að til greina kæmi að herða ráðstafanir á landamærum enn frekar, en nú ber öllum sem hingað koma að fara í tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra staðfesti gær við mbl.is að engar tillögur um breytingar á þessu sviði hafi borist henni frá sótt- varnalækni. Breytingar á sóttvarnalögum voru samþykktar einróma á Al- þingi á fimmtu- dag. Var breyt- ingunum ætlað að skýra ákvæði laganna um op- inberar sóttvarn- aráðstafanir, m.a. á grundvelli fenginnar reynslu af yfirstandandi heimsfaraldri kórónuveiru. Þórólfur sagði við mbl.is í gær, að mikilvægasta breytingin, sem gerð hafi verið á lögunum, sé sú að nú sé hægt að beita ákveðnum ráð- stöfunum til að setja fólk í sóttkví jafnvel þó að ekki væri um stað- festa sýkingu að ræða, heldur að- eins grun um smit. Einnig hafi sá möguleiki verið nefndur að vísa fólki úr landi ef það neitar að gangast undir reglurnar sem hér eru í gildi. Þórólfur sagði á fimmtudag að í ljósi góðrar stöðu í faraldrinum hér á landi stafaði mesta ógnin af landamærunum; þar greindust flest virk smit í samanburði við smittölur innanlands. Þá nefndi hann hætt- una af bresku afbrigði veirunnar, sem leikur nú margar nágranna- þjóðir grátt, enda talið meira smit- andi en hefðbundin afbrigði kór- ónuveiru. karitas@mbl.is Tillögur um hertar aðgerðir á landamærum liggja ekki fyrir Þórólfur Guðnason  Breyting á sóttvarnalögum samþykkt á Alþingi í vikunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.