Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Jón Sigurðsson Nordal
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Jóhann Ólafsson
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð-
herra kynnti í gær tilslakanir á sam-
komutakmörkunum vegna kórónu-
veirufaraldursins sem gilda munu í
þrjár vikur, frá 8. febrúar til 1. mars.
Þakka má góðu gengi Íslendinga í
baráttunni við faraldurinn þessar
snemmbúnu breytingar, en til stóð að
núgildandi reglugerð myndi gilda til
17. febrúar. Tilslakanirnar eru byggð-
ar, að vanda, á minnisblaði Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis og eru
nokkuð varfærnar. Tveggja metra
nálægðartakmörk verða enn í gildi,
sem og grímuskylda í almennings-
samgöngum, verslunum og þar sem
ekki er hægt að halda viðunandi bili
milli manna. Þá verða almennar
fjöldatakmarkanir áfram 20 manns.
„Þetta eru varfærin skref sem eru í
samræmi við þá staðreynd að okkur
gengur mjög vel hérna innanlands, en
líka þá staðreynd að faraldurinn er á
mikilli siglingu alls staðar í kringum
okkur,“ segir heilbrigðisráðherra um
tilslakanirnar.
Rýmri undanþágur
Meðal breytinga eru rýmri undan-
þágur frá fjöldatakmörkunum en áð-
ur hafa verið. Fjöldatakmörk gesta í
sviðslistum verða aukin úr 100 í 150
manns og trú- og lífsskoðunarfélög-
um verður heimilt að halda athafnir,
þar með taldar útfarir, með mest 150
manns. Hámarksfjöldi viðskiptavina í
verslunum verður 150 manns með
hliðsjón af fermetrafjölda og sama
gildir um gesti á söfnum. Þá verður
heilsu- og líkamsræktarstöðvum
heimilt að opna búningsaðstöðu að
nýju og æfingar í tækjasal verða
leyfðar, að því gefnu að ekki séu fleiri
en 20 manns í hverju rými. Hámarks-
fjöldi verður allt að 50% af leyfilegum
fjölda líkamsræktarstöðvanna. Áfram
þarf að skrá þátttöku fyrir fram.
Leyft að opna bari og krár á ný
Með tilkomu breytinganna mega
krár, barir og skemmtistaðir hafa op-
ið, en þó ekki lengur en til kl. 22. Sama
gildir um spilakassa og spilasali. Veit-
ingar skulu afgreiddar til gesta í sæti
og ekki má hleypa nýjum gestum inn
eftir kl. 21.
Þá leggur sóttvarnalæknir til að
viðvörunarlitakóða vegna veirufar-
aldurins á Íslandi verði breytt úr app-
elsínugulum, sem stendur fyrir
„aukna hættu“, í gulan, sem hvetur
fólk til að „vera á verði“. Ráðherra
bárust ekki tillögur um hertar sótt-
varnaaðgerðir á landamærum Ís-
lands, þrátt fyrir þá fullyrðingu sótt-
varnalæknis að mesta ógnin stafi af
landamærunum þar sem flest virk
smit greinist þar í samanburði við
smittölur innanlands.
Rekstraraðilar misánægðir
Ágústa Johnson, framkvæmda-
stjóri líkamsræktarstöðvarinnar
Hreyfingar, segir tilslakanirnar vera
miklar gleðifréttir. „Þetta hefur frá-
bær áhrif á þá þjónustu sem við get-
um boðið,“ segir hún. Þröstur Jón
Sigurðsson, eigandi Sporthússins,
segir það gott að allur vafi sé nú tek-
inn af því hvort æfa megi í tækjasöl-
um líkamsræktarstöðva, en að það
muni langmestu að geta opnað bún-
ingsklefana á ný. Þau höfðu bæði gert
sér vonir um að fleiri mættu koma
saman, en dvelja ekki við það í bili.
Ekki eru þó allir á einu máli um ágæti
tilslakana ráðherra. „Við bareigend-
ur erum enn mjög ósáttir með þá
meðferð sem við höfum fengið og telj-
um að það hafi verið brotið á jafn-
ræðisreglu,“ segir Björn Árnason
sem rekur Skúla Craft Bar. Hann
segist þó ánægður með að geta loks-
ins haft opið aftur og að fá starfsfólk
sitt til vinnu. Björn er í hópi bareig-
enda sem hyggjast höfða skaðabóta-
mál vegna fyrri sóttvarnareglna sem
neyddu vínveitingastaði til að stöðva
rekstur svo mánuðum skipti. Hann
vonast til að málareksturinn muni
tryggja „samræmi í reglum um bari,
kaffihús og veitingastaði, líkt og er í
löndunum í kringum okkur“.
Kynna varfærnar tilslakanir
Breytingarnar „í samræmi við þá staðreynd að okkur gengur mjög vel hérna innanlands,“ að sögn
ráðherra Rýmri undanþágur frá fjöldatakmörkunum Heimilt að opna bari og skemmtistaði á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir ræddi við blaðamenn um tilslakanir að loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
Tilslakanir á samkomutakmörkunum vegna kóróna veiru frá 8. febrúar
Heilsu- og
líkamsræktar-
stöðvar
mega opna búnings-
aðstöðu að nýju
Áfram hámark 20 í
hóptíma og allir séu
áfram fyrirfram-
skráðir í tíma
Al menn ar fjölda tak-
mark an ir verða áfram
20 man ns eins og nú er
Verslanir
5 viðskipta vinir á hverja 10m²
að hámarki sem eru
tvöfalt fl eiri en nú
Hámark 150 viðskipta-
vinir í rými, í stað
100 nú
Nándarregla verður
áfram tveir metrar
Skemmtistaðir og
krár mega opna á ný
Veitingastaðir þar sem áfengisveitingar eru leyfðar, þar
með talin veitingahús, kaffi hús, krár og skemmtistaðir,
skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 22.00
Sama gildir um spilasali
og spilakassa
Veitingar skulu aðeins
afgreiddar gestum í
sæti
Ekki er heimilt að
hleypa inn nýjum
gestum eftir kl. 21.00
Söfn, sviðslist ir, bíó sýn ing ar og aðrir menn ing ar viðburðir
Heimilt er að taka á móti 150 gestum í stað 100 nú
2m
Dómsmálaráðherra höfðu í gær
ekki borist tillögur frá Þórólfi
Guðnasyni sóttvarnalækni um hert-
ar sóttvarnaaðgerðir á landamær-
um, enda þótt sóttvarnalæknir hafi
boðað að með nýjum sóttvarnalög-
um sé lagður lagagrundvöllur fyrir
slíku.
Þórólfur sagði á upplýsingafundi
almannavarna í vikunni að til
greina kæmi að herða ráðstafanir á
landamærum enn frekar, en nú ber
öllum sem hingað koma að fara í
tvöfalda skimun með fimm daga
sóttkví á milli.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra staðfesti gær
við mbl.is að engar tillögur um
breytingar á þessu sviði hafi borist
henni frá sótt-
varnalækni.
Breytingar á
sóttvarnalögum
voru samþykktar
einróma á Al-
þingi á fimmtu-
dag. Var breyt-
ingunum ætlað
að skýra ákvæði
laganna um op-
inberar sóttvarn-
aráðstafanir, m.a. á grundvelli
fenginnar reynslu af yfirstandandi
heimsfaraldri kórónuveiru.
Þórólfur sagði við mbl.is í gær,
að mikilvægasta breytingin, sem
gerð hafi verið á lögunum, sé sú að
nú sé hægt að beita ákveðnum ráð-
stöfunum til að setja fólk í sóttkví
jafnvel þó að ekki væri um stað-
festa sýkingu að ræða, heldur að-
eins grun um smit.
Einnig hafi sá möguleiki verið
nefndur að vísa fólki úr landi ef það
neitar að gangast undir reglurnar
sem hér eru í gildi.
Þórólfur sagði á fimmtudag að í
ljósi góðrar stöðu í faraldrinum hér
á landi stafaði mesta ógnin af
landamærunum; þar greindust flest
virk smit í samanburði við smittölur
innanlands. Þá nefndi hann hætt-
una af bresku afbrigði veirunnar,
sem leikur nú margar nágranna-
þjóðir grátt, enda talið meira smit-
andi en hefðbundin afbrigði kór-
ónuveiru. karitas@mbl.is
Tillögur um hertar aðgerðir á
landamærum liggja ekki fyrir
Þórólfur
Guðnason
Breyting á sóttvarnalögum samþykkt á Alþingi í vikunni