Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Reykjavíkurmót kvenna
Úrslitaleikur:
Valur – Fylkir .......................................... 2:0
Diljá Ýr Zomers 56., Elín Metta Jensen 83.
Fótbolti.net-mót karla
Úrslitaleikur:
Breiðablik – ÍA......................................... 5:1
Gísli Eyjólfsson 6., Thomas Mikkelsen 9.,
Brynjólfur Andersen Willumsson 13., 37.,
56. – Ingi Þór Sigurðsson.
Leikur um þriðja sæti:
HK – FH .................................................... 2:3
Ólafur Örn Eyjólfsson 15., Stefan Ljubicic
40. – Jónatan Ingi Jónsson 51., Steven Len-
non 69., Einar Örn Harðarson 90.
Holland
B-deild:
Volendam – Excelsior ............................. 0:2
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Roda – Jong PSV ..................................... 5:1
Kristófer Ingi Kristinsson var allan tím-
ann á varamannabekk PSV.
Belgía
B-deild:
Royal Union St. Gilloise – Lierse........... 2:1
Aron Sigurðarson kom inn á sem vara-
maður á 78. mínútu hjá Royal Union.
England
B-deild:
Swansea – Norwich .................................. 2:0
Þýskaland
Hertha Berlín – Bayern München.......... 0:1
Dominos-deild karla
ÍR – Grindavík ...................................... 98:76
KR – Keflavík ....................................... 74:98
Staðan:
Keflavík 8 7 1 735:649 14
Stjarnan 8 6 2 766:692 12
Þór Þ. 8 5 3 796:712 10
Grindavík 8 5 3 710:728 10
ÍR 8 5 3 719:706 10
Njarðvík 8 4 4 699:702 8
Tindastóll 8 4 4 753:738 8
KR 8 4 4 720:755 8
Valur 8 3 5 650:682 6
Höttur 8 2 6 709:760 4
Þór Ak. 8 2 6 711:775 4
Haukar 8 1 7 664:733 2
1. deild karla
Hamar – Vestri ................................... 102:86
Sindri – Álftanes................................... 61:68
Selfoss – Breiðablik.............................. 64:80
Hrunamenn – Fjölnir......................... 81:100
Staðan:
Álftanes 7 5 2 617:569 10
Breiðablik 6 5 1 584:510 10
Hamar 5 4 1 488:450 8
Sindri 6 3 3 519:494 6
Vestri 7 3 4 622:666 6
Skallagrímur 6 2 4 516:512 4
Fjölnir 5 2 3 445:462 4
Hrunamenn 6 2 4 505:583 4
Selfoss 6 1 5 450:500 2
1. deild kvenna
Ármann – Njarðvík .............................. 60:89
Spánn
B-deild:
Real Canoe – Real Murcia .................. 69:64
Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 10
stig, tók 3 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á
29 mínútum hjá Real Canoe.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV................... L14
Ásvellir: Haukar – Valur........................ L17
Kaplakriki: FH – Stjarnan .................... L18
Kórinn: HK – Fram ................................ S17
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hertz-höllin: Grótta – Valur ............. S13.30
Ásvellir: Haukar – Fram ................... S15.30
KA-heimilið: KA – ÍR ............................. S16
Hleðsluhöll: Selfoss – Þór Ak............ S16.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
IG-höllin: Þór Þ. – Höttur ................. S17.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Njarðvík ......... S17.15
Ásvellir: Haukar – Valur ................... S19.15
Blue-höllin: Keflavík – Tindastóll..... S19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla, úrslitaleikur:
Würth-völlur: Fylkir – Valur................. L15
REYKJAVÍKURLEIKAR
Badminton unglinga, TBR, 9-18 laugardag
og sunnudag.
Dans, Kórnum, 8.30 til 21.00 í dag.
Frjálsíþróttir, Laugardalshöll, 13 til 16.30 í
dag.
Rafíþróttir, 10-21 í dag og 12-18 á morgun.
Sund í Laugardalslaug 9-18 í dag og á
morgun.
Nánar um leikana á rig.is og á síðu Reykja-
víkurleikanna á mbl.is/sport.
Í KVÖLD!
vík þyrstir í fyrsta Íslandsmeist-
aratitilinn frá árinu 2008.
ÍR vann slappa Grindvíkinga
Í Breiðholtinu hafði ÍR betur
gegn Grindavík, 98:76. Eru liðin nú
bæði með tíu stig, eins og Þór frá
Þorlákshöfn, í 3.-5. sæti deild-
arinnar. Eftir flotta byrjun hefur
Grindavík tapað þremur af síðustu
fjórum leikjum sínum á meðan ÍR
hefur unnið þrjá af síðustu fimm.
Everage Richardson átti sterkan
leik fyrir ÍR og skoraði 23 stig, tók
ellefu fráköst og gaf átta stoðsend-
ingar og var með 36 framlags-
punkta. Richardson er á sínu fyrsta
tímabili í efstu deild eftir þrjú tíma-
bil í 1. deild, fyrst með Gnúpverjum
og síðan Hamri. Borche Ilievski á
hrós skilið fyrir að mæta ávallt til
leiks með sterkt lið hjá ÍR þrátt fyr-
ir að liðið missi lykilmenn. Hann er
góður í að finna réttu leikmennina
og er Richardson gott dæmi um það.
Ljóst er að ÍR getur blandað sér í
baráttuna við efstu liðin í vetur. Eft-
ir glæsilegan sigur á Stjörnunni í
síðasta leik var leikurinn í gær skref
aftur á bak fyrir Grindavík, sem er í
lægð eftir góða byrjun.
Keflvíkingar líta
gríðarlega vel út
ÍR sannfærandi gegn Grindavík
Morgunblaðið/Eggert
Frákast Björgvin Hafþór Ríkharðsson og Benoný S. Sigurðsson eigast við.
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Keflavík er með tveggja stiga for-
skot á toppi Dominos-deildar karla í
körfubolta eftir 98:74-sigur á KR á
útivelli í gærkvöldi. Jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleik en KR
réð ekkert við sterka vörn Keflvík-
inga í seinni hálfleik og var sigurinn
að lokum öruggur. Keflavík hefur
leikið afar vel á þessari leiktíð, fyrir
utan toppslaginn gegn Stjörnunni í
síðasta mánuði þar sem liðið fékk
stóran skell. Það er mikið styrk-
leikamerki að svara 40 stiga tapi í
stórleik með því að vinna tvö sterk
lið en Keflavík vann ÍR í síðustu um-
ferð.
Dominykas Milka er engum líkur
en hann virkaði þreytulegur inni á
vellinum. Þrátt fyrir það skoraði
hann 22 stig og tók 19 fráköst. Þá
stýrði Hörður Axel Vilhjálmsson
sóknarleik Keflavíkur glæsilega, en
hann gaf 10 stoðsendingar og skor-
aði auk þess 13 stig. Hörður minnti á
hvers vegna hann er fastamaður í ís-
lenska landsliðinu. Ljóst er að Kefla-
Ástralski markvörðurinn Mat Ryan
mun að öllum líkindum standa á
milli stanganna er Arsenal og
Aston Villa eigast við í ensku úr-
valsdeildinni í fótbolta í dag. Rúnar
Alex Rúnarsson verður á vara-
mannabekknum. Bernd Leno, aðal-
markvörður Arsenal, fékk rautt
spjald gegn Wolves í síðustu um-
ferð og Rúnar Alex leysti hann af
hólmi undir lok leiksins. Ryan hef-
ur hins vegar jafnað sig á meiðslum
í mjöðm og mun því fara í markið
gegn Villa á meðan Leno tekur út
leikbann.
Rúnar fær ekki
tækifærið
AFP
Varamaður Rúnar Alex Rúnarsson
fer aftur á varamannabekkinn.
KR-ingar eru vongóðir um að Kjart-
an Henry Finnbogason muni leika
með KR ef hann flytur heim til Ís-
lands í sumar eins og útlit er fyrir.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að KR hafi átt viðræður við
Kjartan og í herbúðum félagsins sé
búist við því að hann muni leika með
liðinu í sumar. Páll Kristjánsson, for-
maður knattspyrnudeildar KR,
sagðist þó ekki geta tjáð sig um mál-
ið. Kjartan gerði á dögunum samn-
ing við Esbjerg í dönsku B-deildinni
út tímabilið en Ólafur Kristjánsson
er þjálfari liðsins.
Kjartan líklegast
í Vesturbæinn
AFP
Framherji Kjartan Henry Finn-
bogason fer líklegast aftur í KR.
Valur tryggði sér Reykjavíkurmeistaratitil
kvenna í fótbolta með 2:0-sigri á Fylki á Origo-
vellinum á Hlíðarenda í gærkvöldi. Bæði mörk
Vals komu í seinni hálfleik og þau gerðu Diljá Ýr
Zomers á 56. mínútu og Elín Metta Jensen á 83.
mínútu.
Liðin voru einnig í harðri baráttu um Reykja-
víkurmeistaratitilinn á síðasta ári og þá hafði
Fylkir betur og má segja að Valur hafi komið
fram hefndum. Yfirburðir Vals í keppninni hafa
verið miklir síðasta rúma áratug en liðið hefur
orðið Reykjavíkurmeistari tólf sinnum á síðustu
fjórtán árum.
Næst á dagskrá á undirbúningstímabilinu er
Lengjubikarinn, deildabikarinn. Valur mætir
ÍBV 14. febrúar næstkomandi á Origo-vellinum
og tveimur dögum fyrr mætast Fylkir og FH í
Egilshöllinni.
Sömu félög mætast síðan í úrslitaleik
Reykjavíkurmóts karla í dag en sá leikur fer
fram á Würth-velli Fylkis klukkan 15.
Morgunblaðið/Eggert
Meistarar Valur er Reykjavíkurmeistari kvenna árið 2021 eftir sigur á Fylki í gær. Elísa Viðarsdóttir tekur við sigurverðlaunum Valskvenna í gær.
Reykjavíkurmeistarar í 12. sinn á 14 árum