Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 11
Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt afnota- samning um lóðina Kleppsmýrarveg 11 í Laugarnesi. Fram kemur í greinargerð eigna- skrifstofu borgarinnar að um sé að ræða 1.569 fermetra lóð sem er í eigu Faxaflóahafna. Samkvæmt deiliskipu- lagi er gert ráð fyrir allt að þremur smáhýsum (ca. 35 m2 hvert) á lóðinni. Smáhýsin verða nýtt sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga velferðarsviðs. Reykjavíkurborg tekur lóðina á leigu til næstu fimm ára og greiðir krónur 926.851 á ári fyrir afnotin. Nú þegar er búið að koma fyrir fimm smáhýsum í Gufunesi. Gert er ráð fyrir að koma fyrir 15 smáhýsum til viðbótar á völdum stöðum í borginni á þessu ári, segir í greinargerð eignaskrifstofunn- ar. Þessi áform um smáhýsi í borginni hafa verið umdeild eins og margoft hef- ur komið fram í fréttum. Það á einnig við um smáhýsin fyrirhuguðu við Kleppsmýrarveg. Eignarhaldsfélagið Sigtún hefur í bréfi til borgarinnar haft uppi mótmæli. Bendir bréfritari á að nú þegar sé mikill bílastæðavandi á þessum slóðum og bíl- um sé lagt við gangstéttarkantsteina meðfram umferðargötum (Köllunar- klettsvegi og Héðinsgötu), inni á einka- lóðum og hverju því svæði sem hægt sé að koma bíl fyrir. Fyrirhuguð bygg- ingalóð, sem ætluð sé undir smáhýsin, sé eina svæðið í hverfinu sem skilgreint sé sem almennt bílastæði (28 bílastæði). „Nú þegar er stórhætta á þessu svæði fyrir jafnt gangandi og akandi vegfar- endur og er svæðið á engan hátt tilbúið til búsetu,“ segir m.a. í bréfi Sigtúns. Þingvangur ehf., eigandi þriggja lóða á svæðinu, mótmælir einnig. Ljóst sé að smáhýsin feli í sér íbúðarnot sem eigi ekkert skylt við bráðabirgðaúrræði. Aform um smáhýsi geti leitt til verð- mætarýrnunar á lóðum Þingvangs. Ítrekar Þingvangur mótmæli og sömuleiðis er ítrekað boð um að sér- tæku búsetuúrræði verði komið fyrir tímabundið á annarri lóð í eigu fyrir- tækisins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Smáhýsin Fyrstu húsin fyrir heimilislausa voru tekin í notkun í Gufunesi haustið 2020. Fleiri hús verða sett upp. Þrjú smáhýsi verða sett upp í Laugarnesi  Borgin leigir lóð af Faxaflóahöfnum Mótmælt að bíla- stæði sé tekið undir húsin  Eina bílastæðið á öllu svæðinu Skipholti 29b • S. 551 4422 TRAUST Í 80 ÁR BUXUR- BUXUR GARDEUR DINA2 OG GERRY WEBER DE-LUXE ÚTSALAN OFURTILBOÐ 60%-70% AFSLÁTTUR Skoðið laxdal.is Námskeið/Andlitsnudd Kennsla í andlitsnuddi (sjálfsnudd). Áhrifaríkt sjálfsnudd sem lífgar ekki aðeins upp húðina og styrkir, heldur hefur það einnig slakandi og endurnærandi áhrif á líkama og sál. Innifalið: Kennsla í andlitsnuddi, lífræn illmkjarnaolía fyrir andlit, fróðleikur, listasýning og léttar veitingar. Námskeiðið er fyrir litla hópa, og áhugasama einstaklinga sem vilja koma saman, staldra við og njóta þess að vera til. Kristín Þórarinsdóttir, námskeiðshaldari Kristín er svæðanuddari, sérfræðingur í heilsugæsluhjúkrun og gæðastjóri Námskeiðin eru frá kl.17:00-21:00 Bókanir og upplýsingar um næstu námskeið í síma 896 1135 / stinasigga@gmail.com Staðsetning: Skorradalur Öllum sóttvarnarreglum fylgt. Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝ SENDING Opið 11-14 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook . . Str. S-XXL • 4 litir Peysur r 6 99 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Kjarasamningar sjómanna í Sjó- mannasambandi Íslands hafa verið lausir í rúmt ár. Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri SSÍ, segir að við- ræður við Samtök fyrirtækja í sjávar- útvegi séu í gangi og ef ekki fari að þokast í samkomulagsátt líði að því að deilunni verði vísað til ríkissáttasemj- ara. Nokkurrar óþreyju sé farið að gæta hjá félagsmönnum. Hólmgeir segir að kröfugerð sam- bandsins hafi legið fyrir í febrúar í fyrra og aðilar hafi hist nokkrum sinnum til að fara yfir málin. Hann segir að hægt hafi gengið og kórónu- faraldurinn og óvissa samfara honum eigi þátt í því að rólegt hafi verið yfir viðræðum. Enn sé ekki farið að reyna á hvar eða hvort menn strandi í þess- um viðræðum. Hluti af vinnunni sé að fara yfir bókanir sem gerðar voru við samn- ingsgerð að loknu verkfalli í febrúar 2017. Með þeim hafi m.a. verið ætl- unin að einfalda samningana og gera þá aðgengilegri fyrir þá sem eiga að vinna eftir þeim. Sum þessara atriða séu flókin og krefjist vinnu, en um önnur geti orðið ágreiningur. „Menn eru farnir að hotta á okkur að klára málin og á einhverjum tímapunkti verður að spýta í lófana. Menn reyna sitt besta, en ef það dugar ekki fer málið í ákveðinn feril,“ segir Hólm- geir. Mál fyrir Félagsdómi Málflutningur var fyrir Fé- lagsdómi 2. febrúar vegna ágrein- ings um einn lið kjarasamningsins. Þar er kveðið á um að þegar afli er seldur til skylds aðila sé skiptaverð 0,5% hærra en þegar afli er seldur óskyldum aðila. Hólmgeir segir að SFS haldi því fram að um tímabund- ið ákvæði hafi verið að ræða sem hefði átt að falla út 1. desember 2019. Sjómannasambandið haldi því hins vegar fram að ákvæðið sé enn hluti kjarasamnings. Viðtekin venja sé að ef nýr samningur sé ekki gerður áð- ur en síðastgildandi samningur rennur út þá gildi eldri samningur. SFS dregur lappirnar Fjallað var um stöðuna í kjaravið- ræðunum í pistli á heimasíðu Fram- sýnar á Húsavík í lok janúar þar sem sagt var frá aðalfundi sjómannadeild- ar félagsins. Þar segir að SFS hafi dregið lappirnar með því að ganga ekki að sanngjörnum kröfum sjó- manna. „Viðræður við útgerðarmenn hafa vægast sagt gengið mjög illa og því lítið að frétta. Allar tillögur frá samtökum sjómanna til SFS varðandi það að liðka til í samningamálum hafa verið slegnar út af borðinu nánast án þess að þær væru skoðaðar frekar,“ segir í pistlinum. Um málið sem nú er fyrir Félags- dómi segir að steininn hafi tekið úr þegar SFS hafi ákveðið einhliða að hluti kjarasamnings gildi ekki lengur og falli út úr samningnum. „Slík vinnubrögð hafa ekki verið viðhöfð áð- ur í sögu kjarasamninga sjómanna á Íslandi, það er að annar samningsað- ilinn taki út grein úr kjarasamningi þar sem hún hentar honum ekki leng- ur,“ segir á heimasíðunni. Viðræður ganga hægt og óþreyju er farið að gæta  Samningar Sjómannasambandsins og SFS lausir í rúmt ár Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.