Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 SVIÐSLJÓS Guðrún Vala Elísdóttir Borgarnesi Menntaskóli Borgarfjarðar í Borg- arnesi (MB) hóf starfsemi sína í ágúst 2007. Skólinn er einkahlutafélag og eru hluthafar hans um 160 talsins. Upphaflega voru stærstu hluthaf- arnir Sparisjóður Mýrasýslu og Borgarbyggð en nú fer Borgarbyggð með langstærstan hlut. Strax var haf- ist handa við að byggja glæsilegt mennta- og menningarhús, sem ætl- að var til að hýsa skólann ásamt menningarstarfsemi í héraði. Húsið sem fékk heitið Hjálmaklettur er á besta stað í Borgarnesi. Auk hefðbundins starfs framhalds- skóla hefur MB bryddað upp á ýms- um nýjungum. Síðastliðið haust hófu MB og Síminn samstarf undir heitinu „Síminn skapar tækifæri fyrir sitt fólk“. Markmið þessa verkefnis er að styðja starfsfólk Símans til að afla sér frekari menntunar. Starfsfólk Sím- ans sem ekki hefur lokið formlegu námi (stúdentsprófi eða iðnnámi) get- ur nú skráð sig í fjarnám við MB samhliða störfum sínum hjá Síman- um. Samningur Símans og MB felur í sér að þessir nemendur fá aukna at- hygli umsjónaraðila innan skólans ásamt því að Síminn skuldbindur sig til að veita sínu starfsfólki svigrúm svo námið sitji ekki á hakanum. Sautján starfsmenn Símans eru skráðir nemendur MB í gegnum þessa námsleið nú á vordögum. Bragi Þór Svavarsson, skólameist- ari MB, segist í samtali við fréttarit- ara leggja áherslu á að við upphaf námsins sé farið mjög vandlega yfir feril einstaklinga og lagt mat á fyrra nám og reynslu, t.d. er litið til raun- færnimats en með slíku mati geta nemendur fengið einingar vegna reynslu sem þeir hafa öðlast í störf- um sínum. Allir þessir nemendur hafa farið í gegnum raunfærnimat á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Að valdefla nemendur Um áramótin var svo undirritaður samningur við ráðgjafarfyrirtækið KVAN til þriggja ára um menntunar- og þjálfunarverkefnið „Lífsleikni KVAN“. Að sögn Braga felur samstarfið í sér að valdefla nemendur, gera þeim kleift að vinna út frá eigin styrk- leikum, ekki eingöngu í námi heldur einnig í samskiptum. Kynnast hópn- um, kunna að meta fjölbreytileikann og verða betri liðsfélagi og nemandi. Þjálfa viðhorfið í að sjá hversu öfl- ugur viðkomandi er, en á sama tíma geta lyft öðrum upp. Þjálfa heilbrigt sjálfstraust, samkennd og sjálfstæða hugsun sem er nauðsynleg færni í framtíðarverkefnum. Samstarfið beinist einnig að kennurum skólans. Fyrir liggur að á vorönn 2021 muni KVAN koma að lífsleiknikennslu allra nemenda í staðnámi auk þess að halda námskeið með kennurum skól- ans. Næstu tvö ár verður svo KVAN með aðkomu í áfanganum „lífsleikni“ sem er skylduáfangi allra nýnema. Eins er stefnt að námskeiðum á hverju ári fyrir kennara. Bragi segir að MB líti það mjög já- kvæðum augum að koma til móts við fólk sem hefur af einhverjum orsök- um ekki náð að klára nám. Það sé mikilvægt hlutverk menntastofnana að finna leiðir sem henta sem flestum og ekki síður ef það er hægt að gera í samvinnu við atvinnulífið. Nemendum fjölgar Bragi er fjórði skólameistarinn við skólann og hefur nú lokið sínu fyrsta starfsári. Hann segir að allt frá upp- hafi undirbúnings Menntaskóla Borgarfjarðar hafi verið lögð áhersla á að skólinn færi ótroðnar slóðir í starfsháttum og yrði í fremstu röð framhaldsskóla í uppeldi og kennslu. „Það kom í ljós að skólinn varð vin- sæll valkostur nemenda í héraði. Fyrsta skólaárið voru nemendur í kringum 70, en flestir hafa nemendur verið um 170 skólaárið 2010-2011. Segja má að á þessum árum hafi skól- inn verið að sinna uppsafnaðri þörf, því hann sóttu nemendur sem ekki höfðu haft tækifæri til að sækja nám síðustu ár. Að jafnaði hélst svo nem- endafjöldi í kringum 130, en nú í haust og á vorönn eru 155 nemendur skráðir í skólann og hafa ekki verið jafn margir í mörg ár. Ég tel að auk- inn sýnileiki MB ásamt samdrætti á vinnumarkaði sé meðal annars ástæða fjölgunar nemenda,“ segir hann. „Það er ljóst í mínum huga að MB leikur mjög stórt hlutverk í sínu nær- samfélagi og gerði það frá upphafi. Tölur sýna að hlutfall þeirra sem sækja sér framhaldsnám hefur hækkað mikið eftir stofnun skólans.“ Fara ótroðnar slóðir Bragi segir það í raun vera forrétt- indi að hafa tekið við starfi skóla- meistara. „Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem ber hag skól- ans fyrir brjósti. Hópurinn er sam- bland af nýju fólki en einnig starfa hér ennþá aðilar sem stóðu í stafni við stofnun skólans. Innandyra er því til staðar mikil reynsla en einnig mikill kraftur og áhugi fyrir nýjungum. Að fara ótroðnar slóðir er sú menning sem er við lýði innan skólans og því mjög auðvelt að hrinda í framkvæmd hugmyndum og breytingum hvort heldur er í skipulagi náms og kennslu eða námsframboði. Það fyrsta sem ég tók mjög alvarlega eftir að ég hóf störf var að kynna skólann vel í sínu nærumhverfi og utan þess. Skólinn hefur margt fram að færa og er að gera marga hluti frábærlega.“ Á vordögum 2020 stóð MB fyrir netráðstefnunni Menntun fyrir störf framtíðarinnar sem var haldin í sam- vinnu við Sóknaráætlun Vesturlands og steymt á heimasíðu skólans. Á ráðstefnunni var sjónum beint að því hvernig ætlunin er að undirbúa nem- endur, skólakerfið og fyrirtækin fyrir örar breytingar næstu ára, og hvort Covid-19 myndi flýta þessum breyt- ingum. Áhugaverður hópur fyrirles- ara ræddi sína framtíðarsýn, fjöldi manns horfði á og tók þátt í um- ræðum. Byrja klukkan níu „Menntaskóli Borgarfjarðar hefur síðastliðið ár staðið fyrir ýmsum áskorunum sem tengjast Covid-19 en þær áskoranir hafa líka gefið okkur mörg tækifæri,“ segir Bragi og telur þau hafa eflst mjög í tækni við fjar- kennslu í að nýta ýmsa miðla til að eiga samskipti við nemendur. Hann segir að þessar nýju aðferðir séu komnar til að vera. Á þessari önn voru til að mynda gerðar breytingar á stundatöflu og kennslufyrir- komulaginu. Í stað þess að hafa tvær 40 mínútna kennslustundir í einu er ein klukkustundar kennslustund og tvisvar í viku fara nemendur í vinnu- stofur. Við þessar breytingar opn- aðist sá möguleiki að hefja kennslu seinna að deginum eða klukkan níu. Um er að ræða tímabundið til- raunaverkefni, segir Bragi,og verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif þetta muni hafa á líðan og námsárangur nem- enda. Allir vinna lokaverkefni Í skólanum eru alls sex náms- brautir í boði og allar í staðnámi. Þetta eru; opin braut, félagsfræða- braut, náttúrufræðibraut og íþrótta- fræðibraut til stúdentsprófs, fram- haldsskólabraut og starfsbraut. Innan náttúrufræðibrautar geta nemendur valið búfræðisvið og innan íþróttafræðibrautar geta nemendur valið félagsfræðasvið eða náttúru- fræðisvið. Frá upphafi hefur skólinn haft framsækni að leiðarljósi og farið ótroðnar slóðir í kennsluháttum og námsmati. Engin lokapróf eru við skólann, þess í stað er áhersla lögð á verkefnavinnu og smærri próf en námsmatið er í formi leiðsagnarmats. Samstarf við aðrar stofnanir Í MB er lögð áhersla á að eiga í margvíslegu samstarfi við aðrar stofnanir. Í nokkur ár hefur skólinn boðið upp á sérstaka námsbraut, náttúrufræðibraut með búfræðisviði. Á þeirri braut taka nemendur fyrstu tvö árin (4 annir) í MB þar sem meg- ináherslan er á kjarnagreinar til stúdentsprófs og valdar greinar á sviði raungreina. Seinni tvö árin taka nemendur bú- fræðibraut við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Nemendur brautskrást með stúdentspróf frá MB og búfræðipróf frá LBHÍ. Nú hefur enn verið bætt við þetta sam- starf og nemendur geta útskrifast með stúdentspróf og sem garðyrkju- fræðingar frá LBHÍ. Að vera í takt við tímann Spurður um framtíðarsýn skólans segir Bragi hana vera í stuttu máli að stækka og eflast. „Við viljum vera í samstarfi við stofnanir, skóla og fyrirtæki í héraði og utan héraðs. Við viljum einnig þróa okkur, efla sérstöðu skólans, koma til móts við nýjar þarfir í menntun ungs fólks, efla ímynd skól- ans, fjölga nemendum og laða að fjöl- breyttari hóp nemenda. Ég og mitt samstarfsfólk í MB viljum að nem- endur okkar, ungt fólk og okkar framtíð, fái það út úr náminu sem það þarf í nútíma- og framtíðarsamfélagi. Við viljum vera viss um það að þegar nemandi kemur í MB þá fái hann þær áskoranir sem hann þarf. Okkar áskorun er að vera í takt við tímann og að bjóða nám og kennsluhætti í takt við þarfir nútímans og framtíð- arinnar. Ég held að við þurfum að þróa okkar kennsluhætti, námsefni og námslínur hraðar en við gerum núna. Ég vil að skólakerfið okkar að- lagist ekki bara fjórðu iðnbyltingunni hratt heldur ekki síður þörfum og kröfum okkar yngsta fólks,“ segir Bragi að endingu við Morgunblaðið. Skóli sem fer ótroðnar slóðir  Menntaskóli Borgarfjarðar hefur náð að skapa sér sérstöðu  Er í samstarfi við Símann um menntun starfsmanna  Skólinn gerði samning við ráðgjafarfyrirtæki um verkefni í lífsleikni Morgunblaðið/Guðrún Vala Skólameistari Bragi Þór Svavars- son segir skólann standa vel. Borgarnes Nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar hafa góða aðstöðu Marinó Þór Pálmason er formað- ur nemendafélags MB. Hann seg- ir að félagslífið í ár hafi verið öðruvísi en samt mjög gott. „Þrátt fyrir að það hafi verið færri viðburðir og öðruvísi en vanalega hefur mætingin verið virkilega góð. Þátttaka nemenda er það sem heldur félagslífinu gangandi og hún hefur verið frá- bær það sem af er skólaári. Við erum núna að gefa út skólapeys- ur og stefnum á að hafa árshátíð um leið og sóttvarnareglur leyfa. Einnig stefnum við á að hafa marga smærri viðburði líkt og skíðaferð, LAN og fleira,“ segir Marinó. Félagslífið öðruvísi Eins og gefur að skilja hefur félagslífið á Covid-tímum verið allt öðruvísi en vanalega og hef- ur stjórn nemendafélagsins þurft að leita nýrra leiða til að geta haldið viðburði innan þeirra sótt- varnatakmarkana sem gilt hafa. Marinó segir að þau hafi til að mynda haldið bílabíó sem var mjög vel sótt, verið með instagram-stigaleik og haldið pub-quiz í beinni á netinu. „Þetta hefur þrátt fyrir allt verið mjög góð reynsla sem mun nýtast okkur í framtíðinni þar sem það er krefjandi að þurfa að hugsa í lausnum í þessum að- stæðum.“ Nú þegar nemendur mega mæta aftur í skólann telur hann að þeir séu almennt mjög sáttir við það og að fá að umgangast fé- lagana og sinna sínu námi. Hann segir að í haust, þegar kennslan fór meira og minna öll fram á Teams, hafi verið komin mikil þreyta í mannskapinn. Nýjasta breytingin í skólahaldinu að byrja klukkan níu á morgnana fer mjög vel í alla nemendur skólans og hefur Marinó bara heyrt jákvæðar umræður um það. „Þar sem flestar æfingar og annað félagslíf hjá nemendum fer fram seint á kvöldin er það að mínu mati mjög gott að byrja að- eins seinna vegna þess að svefn unglinga er mjög mikilvægur.“ Morgunblaðið/Guðrún Vala Nemendur Marinó Þór Pálmason er formaður nemendafélagsins. Reynsla sem nýtist í framtíðinni  Félagslífið hefur mikið breyst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.