Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Strákar standahöllum fæti ííslensku
skólakerfi. Á það
hefur margsinnis
verið bent og Ísland
sker sig heldur ekki
úr að þessu leyti.
Þessi vandi veldur
víða áhyggjum og leita menn
svara við því hvað valdi og reyna
um leið að átta sig á hvað sé til
bragðs.
Í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins hafa þessi mál verið
tekin fyrir í blaðinu nú um
helgina og fyrir viku og verður
þeirri umfjöllun haldið áfram í
næsta blaði. Þar kom fram að
árið 1975 hefði kynjahlutfall
þeirra, sem luku stúdentsprófi á
Íslandi, verið jafnt, en árið 2018
var hlutfall kvenna orðið 60%.
Breytingin er enn meira afger-
andi í háskólanámi. Árið 1973
voru 76% þeirra sem luku námi
karlar, árið 1985 var hlutfallið
jafnt og nú er hlutfall karla, sem
ljúka háskólanámi, 36%.
Lykilvandi í grunnskólum er
hvað lesskilningi er ábótavant,
sérstaklega hjá drengjum. Sam-
kvæmt alþjóðlegu PISA-
könnuninni, sem lögð var fyrir
15 ára nemendur árið 2018 hafði
hlutfall nemenda á Íslandi sem
ekki ná grunnhæfni í lesskiln-
ingi hækkað úr 22% í 26% milli
kannana. Hjá drengjum var
hlutfallið komið upp í 34% úr
29%. Það er skuggalega há tala.
Finnar hafa verið einna at-
kvæðamestir í að leita lausna á
þessum vanda um leið og þeir
hafa verið duglegir að efla hjá
sér skólakerfið og gera það skil-
virkara. Þar í landi standa ung-
lingar sig einna best í PISA-
könnuninni. Finnskir drengir
eru þar ofar stúlkum á Íslandi í
lesskilningi, en samt eru þeir
langt á eftir finnskum stúlkum,
eins og kom fram í viðtali við
Hermund Sigmundsson, pró-
fessor í lífeðlisfræðilegri sál-
arfræði við Háskólann í Reykja-
vík og Norska tækni- og
vísindaháskólann í Þrándheimi,
í Sunnudagsblaðinu fyrir viku.
Hermundur hefur farið ræki-
lega ofan í saumana á þessum
málum og þráfaldlega bent á
leiðir til úrbóta. Hann vill auka
hreyfingu og leggja áherslu á
valgreinar til að kveikja ástríðu
og hjálpa nemendum að tengja
við námið. Þetta sé sérstaklega
mikilvægt fyrir drengi. Það
þurfi að hjálpa börnum og ung-
lingum að finna fjölina sína og
því fyrr sem það gerist því
betra.
Í umfjölluninni var athyglis-
vert innlegg frá Tryggva
Hjaltasyni, formanni Hugverka-
ráðs og starfsmanni tölvuleikja-
fyrirtækisins CCP. Hann bendir
á að enginn iðnaður verji jafn
miklum tíma og peningum í að
skilja hegðun og áhugasvið
drengja og tölvuleikjaframleið-
endur. Þeirra markmið sé að
kenna þeim á flóknar vörur
þannig að þeir njóti þess að læra
og virkja drifkraft
þeirra. Tryggvi
segir að vitaskuld
sé ekki hægt að yf-
irfæra þetta beint,
en hins vegar megi
nýta sér þessa
þekkingu og
reynslu. Þar vegi
tilgangur þungt: „Ef þú hefur
skýran tilgang fyrir því af
hverju þú ert að læra og taka
þátt í þessum nýja heimi þá
margfaldast líkurnar á því að þú
sért tilbúinn að leggja á þig
fórnir og njótir þess að læra,“
segir Tryggvi í viðtalinu.
Í blaðinu fyrir viku var meg-
ináherslan á skólana, en í
Sunnudagsblaðinu nú um
helgina er fjallað um mikilvægi
foreldra og að gott samstarf sé
milli þeirra og skólanna. „For-
eldrar eru fyrstu og mikilvæg-
ustu kennarar barna og hafa úr-
slitaáhrif á líðan þeirra og
námsárangur,“ segir Ólafur
Grétar Gunnarsson, fjölskyldu-
og hjónaráðgjafi, sem hefur velt
vanda drengja í íslenska skóla-
kerfinu mikið fyrir sér.
Mikil áhersla hefur verið lögð
á að leiðrétta slagsíðu og mis-
munun gagnvart konum og hef-
ur mikið unnist í þeim efnum
þótt enn sé verk að vinna. Til-
gangurinn er vitaskuld að ná
jafnvægi, en ekki að pendúllinn
sveiflist þannig að til verði ný
slagsíða.
Í lok janúar birtist frétt um
að konur hjá Strætó væru með
16,4% hærri laun heldur en
karlar að meðaltali hjá fyrir-
tækinu. Kom fram að ástæðan
væri sú að hjá Strætó væru kon-
ur í meirihluta í í sérhæfðari
stjórnunar- og sérfræðistörfum.
Þegar breytur á borð við mennt-
un og ábyrgð í starfi hefðu verið
teknar út væri óútskýrður
launamunur aðeins 0,3% konum
í hag. Kynjaskipting hjá Strætó
er 80% karlar og 20% konur.
Konur sinna hins vegar sér-
fræði- og stjórnunarstörfum í
67% tilvika hjá fyrirtækinu, en
karlar í 33% tilvika. Þetta eru
nokkurn veginn sömu hlutföll og
eru milli kvenna og karla sem
nú ljúka háskólanámi.
Skekkjan í skólakerfinu getur
orðið afdrifarík. Miklu púðri er
eytt í menntun og það er grát-
legt að hún nýtist ekki til að
tryggja að sem flestir nái að
njóta sín og nýta hæfileika sína
til fulls. Það gengur ekki að
kerfið sé þannig uppbyggt að
annað kynið njóti sín betur en
hitt. Allt of margir átta sig ekki
á því hvar hæfileikar þeirra
liggja fyrr en seint og um síðir
og eiga þá að baki mörg ár þar
sem þeir hafa þurft að glíma við
vanmetakennd og erfiðleika
vegna þess að þeir náðu sér ekki
á strik í skólanum. Þessi
skekkja getur líka haft graf-
alvarlegar afleiðingar fyrir sam-
félagið allt. Það er ekki nóg að
vita af vandanum, það þarf að
bregðast markvisst við og það
er mikið í húfi.
Drengir njóta sín
ekki í íslenska skóla-
kerfinu og það getur
haft alvarlegar
afleiðingar}
Skekkja í skólakerfinu
Í
nýrri úttekt um heilsu út frá jafn-
réttis- og kynjasjónarmiðum kemur
fram að konur virðast búa við lakara
heilsufar og minni lífsgæði en karlar
og að ástæður þess megi rekja að
hluta til félagslegrar og efnahagslegrar stöðu
þeirra í samfélaginu. Í úttektinni eru gerðar
ýmsar tillögur til úrbóta þar sem áhersla er
lögð á að auka heilsufarslegan jöfnuð og stuðla
að jöfnu aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu.
Í fyrra fól ég Finnborgu S. Steinþórsdóttur,
doktor í kynjafræði, að vinna fyrir heilbrigðis-
ráðuneytið úttekt þar sem heilsufar kynjanna
er kortlagt út frá kynja- og jafnréttissjónar-
miðum og lagt mat á það hvort heilbrigðis-
þjónustan mæti ólíkum þörfum kynjanna. Að
mínu mati var bæði tímabært og mikilvægt að
leggjast í slíka vinnu, og það er fagnaðarefni að úttektin
liggur nú fyrir. Rúm 20 ár eru frá útgáfu skýrslu um
heilsufar kvenna sem nefnd heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra árin 1995 til 2000 vann. Í þeirri skýrslu var
fjallað um heilsufar kvenna í alþjóðlegu samhengi og stöðu
heilsufars kvenna hér á landi.
Úttekt Finnborgar byggist á fyrirliggjandi gögnum frá
ýmsum stofnunum og starfsemi, rannsóknum og skýrslum
sem varpa ljósi á heilsu og heilbrigðisþjónustu hér á landi.
Þar kemur fram að samspil launaðrar og ólaunaðrar vinnu
hefur mikil áhrif á lífsgæði og heilsu kvenna. Bent er á
mikla atvinnuþátttöku hér á landi. Árið 2019 voru um 85%
kvenna og 92% karla á aldrinum 25-64 ára virk á
vinnumarkaði en mun hærra hlutfall kvenna
(30%) er í hlutastarfi en karlar (7%). Konur verja
mun meiri tíma en karlar í ólaunaða vinnu sem
tengist heimilishaldi og umönnun. Bent er á að
umönnunarábyrgð sé mikil á Íslandi, sérstaklega
meðal kvenna. Í samanburði við önnur Evr-
ópulönd er Ísland með hæst hlutfall fólks sem
veitir veikum, fötluðum eða öldruðu skyldfólki
reglulega umönnun. Fæðingarorlofstaka foreldra
er ein birtingarmynd kynjaðrar umönnunar-
ábyrgðar, en konur nýta frekar sameiginlegan
rétt foreldra til fæðingarorlofs og eru líklegri til
að vera frá vinnumarkaði til að brúa bilið á milli
fæðingarorlofs og dagvistunar.
Fyrir liggur að fjárhagsleg staða fólks hefur
áhrif á aðgengi að heilbrigðisþjónustu og þá sér-
staklega kvenna. Aðrir samverkandi þættir, s.s. menntun,
stétt og uppruni, hafa margfeldisáhrif á félagslega og efna-
hagslega stöðu fólks og vísbendingar eru um að jaðarsettir
hópar búi við lakari heilsu og verra aðgengi að heilbrigðis-
þjónustu hér á landi.
Kynjaðir áhrifaþættir hafa áhrif á heilsu og líðan kynj-
anna, og úttekt Finnborgar veitir okkur dýrmæta þekk-
ingu um það málefni. Með því að taka markviss skref í þá
átt að stuðla að úrbótum á þessu sviði bætum við heilsu og
líðan og síðast en ekki síst aukum við jafnrétti kynjanna.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Heilsa út frá kynja- og
jafnréttissjónarmiðum
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Búrma, sem einnig er þekktsem Mjanmar, er líklegaeitt besta dæmi um þver-stæðu alþjóðastjórnmála
þar sem aðgerðir hinna frjálsu lýð-
ræðisríkja til stuðnings lýðræð-
issinnum og mannréttindum hafa
beinlínis orðið til þess að Búrma halli
sér í sífellt auknum mæli í átt að al-
ræðisríkinu Kína, sem nú hefur komið
sér í lykilstöðu gagnvart her Búrma,
sem fyrir fáeinum dögum tók völdin í
landinu á ný.
Herstjórnin í Búrma hafði frá
valdatöku sinni 1962 fram að lýðræð-
isumbótum á 21. öld unnið að því að
halda landinu lokuðu og staðið gegn of
djúpu efnahagssamtarfi við erlend
ríki. Hefur herinn talið það ógna full-
veldi ríkisins að verða of háð erlend-
um öflum. Áhrif Kína í landinu urðu
hins vegar sífellt meiri þar sem
Búrma varð sífellt einangraðra á al-
þjóðavettvangi vegna viðskipta-
þvingana og annarra aðgerða Vest-
urlanda sem miðuðu af því að styðja
lýðræðisumbætur í landinu.
Þetta breyttist þegar aðgerðum
Vesturlanda var aflétt á síðasta ára-
tug í kjölfar töluverðra breytinga á
stjórnarfari Búrma sem hófust við
samþykkt nýrrar stjórnarskrár 2008.
Thein Sein, síðasti leiðtogi herfor-
ingjastjórnarinnar, var búinn að opna
landið og leyfði til að mynda andmæl-
um almennings að stöðva fram-
kvæmdir við Myitsone-vatnsaflsvirkj-
unina í eigu kínversks
ríkisorkufyrirtæki árið 2011, en
ásælni kínverskra fyrirtækja í auð-
lindir Búrma höfðu hlotið töluverða
gagnrýni.
Með velvild hersins
Kosningar fóru fram 2010 en Aung
San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðissinna,
fékk ekki að bjóða sig fram til þings
fyrr en 2012 og náði hún kjöri í emb-
ætti forseta árið 2016. Ekki má þó
telja að herinn hafi með öllu gefið frá
sér völdin þar sem herinn skipaði
áfram meðal annars stóran hluta
þingmanna óháð niðurstöðum kosn-
inga og var honum veitt neitunarvald
að því er varðar breytingar á stjórn-
arskrá landsins. Suu Kyi var með öðr-
um orðum gert að stýra landi í átt að
aukinni velmegnun og lýðræðis-
umbótum, á sama tíma og hún þurfti
að tryggja að allar ákvarðanir fengju
blessun yfirmanna hersins til að við-
halda stöðugleika og tryggja að í land-
inu væri stjórn með vott af lýðræðis-
legu umboði.
Leiðtogi lýðræðissinna, Suu Kyi,
var því milli steins og sleggju árið
2017 þegar herinn hóf að beita þjóð-
flokk Róhingja ofsóknum og grófu of-
beldi, sem sumir tala um sem þjóð-
armorð. Til að halda í einhverja von
um stöðugleika innan Búrma gat hún
ekki opinberlega gert það sem íbúar
lýðræðisríkja ætluðust til af henni;
mótmæla aðgerðum hersins. Þetta
leiddi til þess að Búrma var á ný beitt
ýmsum þvingunaraðgerðum af hálfu
Vesturlanda.
Líklega ekki stutt af Kína
Hentaði þetta kínverskum yfirvöld-
um ágætlega sem tóku á móti Búrma
með opnum örmum, enda höfðu lýð-
ræðisumbæturnar valdið kínverskum
stjórnvöldum höfuðverk með því að
tefja langtímaáætlanir kínverskra yf-
irvalda. Ummerki um breyttar
áherslur sáust greinilega í síðasta
mánuði en 11. janúar var Wang Yi, ut-
anríkisráðherra Kína, mættur til
Búrma og hét því að styðja ríkið í bar-
áttunni gegn kórónuveirunni og hvatti
mjanmörsk yfirvöld til að hraða upp-
byggingu á „efnahagsgöngum“ Kína
og Búrma, sem eru innviðaverkefni
sem eiga að tengja kínverska hag-
kerfið við Indlandshaf.
Greinendur takast nú á um hvort
valdarán hersins 1. febrúar hafi verið
framkvæmt með velvild kínverskra
yfirvalda og hefur ýtt undir slíkar
kenningar að Kína hafi á þriðjudag
beitt neitunarvaldi í öryggisráðinu
gegn ályktun þar sem meðal annars
er krafist að kjörnir fulltrúar verði
látnir lausir úr haldi hersins. Benda
sumir greinendur einnig á þá hags-
muni sem Kína hefur af því að hafa
vinveitta stjórn í Búrma. Hins vegar
gekk kínverskum yfirvöldum vel að
rækta gott samband við Búrma fyrir
valdatöku hersins einmitt vegna ein-
angrunar ríkisins síðustu ár og er tal-
ið ólíklegt að opinber heimsókn hafi
átt sér stað í janúar ef vitað var hvað
myndi gerast við mánaðamót.
Arkitekt ódæðisverka
Nýlegar yfirlýsingar Joes Bidens,
forseta Bandaríkjanna, um að beita
landið frekari þvingunaraðgerðum
vegna valdaránsins eru líklega ekki
til þess fallnar að grafa undan áhrif-
um Kína. Kínverska ríkið er í þeirri
stöðu að geta aukið áhrif sín sama
hvernig fer og teflir því nú sjálfu sér
fram sem sáttasemjara. Hneykslun,
fordæming, réttlætiskennd og til-
heyrandi aðgerðir vestrænna lýðræð-
isríkja hafa því í raun ekki gert annað
en að styðja við áhrif andlýðræðis-
legra afla.
Eitt er þó ljóst og það er að Róh-
ingjar í flóttamannabúðum í Bangla-
dess sem fögnuðu handtöku Suu Kyi
hafa litla ástæðu til að gleðjast. Leið-
togi nýju herstjórnarinnar, herfor-
inginn Min Aung Hlaing, er sá sem
skipulagði og sá um framkvæmd að-
gerða hersins gegn Róhingjum. Her-
inn hefur allt frá 1982 níðst á þessum
minnihluta en þá voru Róhingjar
sviptir ríkisborgararétti.
Áhrif Kína í Búrma efld
af Vesturlöndum
AFP
Ágreiningur Aung San Suu Kyi, forseti Búrma, og Min Aung Hlaing, yfir-
maður hersins í Búrma, áður en sá síðarnefndi rændi völdum.