Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 36
✝ Rúnar KarlJónsson fædd-
ist 22. apríl árið
1962 á Breiðabóls-
stað í Miðdala-
hreppi. Hann lést á
hjúkrunarheimil-
inu Brákarhlíð
Borgarnesi 26. jan-
úar 2021. Faðir
hans var Jón Svan-
berg Karlsson, f.
11. júní 1931 á Fitj-
um í Staðardal, Staðarsókn á
Ströndum, d. 3. október 2002 í
Reykjavík. Móðir hans er Kristín
Guðmundsdóttir, f. 8. mars 1941
í Dalasýslu, hennar sambýlis-
maður er Örn Reykdal Ingólfs-
son, f. 16. ágúst 1937. Bræður
Rúnars eru Guðmundur Jóns-
son, f. 16. september 1963, Agn-
ar Jónsson, f. 30. júní 1966, eig-
inkona hans er Sigríður Pála
Konráðsdóttir, f. 12. janúar
1967. Agnar eignaðist þrjár dæt-
ur úr fyrri hjónaböndum og eru
þær Anna Kristín, f. 24. júní
1993, Harpa Hrönn, f. 14. júlí
1996, Aníta Arna, f. 4. ágúst
2001, d. 7. ágúst 2001.Barna-
börn Agnars eru Agnar Bragi, f.
14. febrúar 2016, og Sóley Arna,
f. 28. ágúst 2018. Þriðji bróðir
Rúnars er Kjartan Jónsson, f.
20. mars 1974, eiginkona hans er
Ragnhildur Ösp Sigurðardóttir,
f. 6. febrúar 1972, börn þeirra
eru Anton Hugi, f. 30. desember
1999, Aníta Eik, f. 12. maí 2004,
og Viktor Nökkvi, f. 10. mars
2008. Einnig átti
Rúnar systur sem
var f. 6. maí 1972, d.
7. maí 1972.
Eiginkona Rún-
ars er Kristín Erla
Guðmundsdóttir, f.
30. september 1967
í Reykjavík, og eiga
þau saman þrjú
börn. Svanberg
Már, vélvirki, f. 29.
júní 1986, sambýlis-
kona hans er Vigdís Ósk Viggós-
dóttir, sjúkraliði f. 13. mars
1989, eiga þau saman þrjá syni:
Rúnar Daða, f. 23. september
2011, og tvíburana Heimi Má og
Hafstein Inga, f. 21. ágúst 2013.
Dóttir Rúnars Karls og Krist-
ínar Erlu er Erla Rún, leikskóla-
kennari, f. 26. ágúst 1991, sam-
býlismaður hennar er Adam
Orri Vilhjálmsson, húsasmiður,
f. 17. apríl 1989, eiga þau saman
tvö börn, sem heita Fríða Krist-
ín, f. 13. maí 2016, og Elís Karl,
f. 15. október 2018. Yngstur er
Kristinn Freyr, f. 8. júní 1996,
sambýliskona hans er Steinunn
Þorvaldsdóttir, háskólanemi, f.
25. júlí 1994.
Rúnar ólst upp á Breiðabóls-
stað í Miðdalahreppi og var í
grunnskóla á Laugum í Sælings-
dal. Eftir grunnskóla lá leið
hans í fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi, hann færði
sig síðan yfir í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í Keflavík og kláraði
þar rafvirkjun árið 1985. Hann
fór aftur í nám og útskrifaðist
með meistarapróf í rafvirkjun
árið 2009, starfaði alla sína tíð
sem rafvirki við fjölbreytt verk-
efni.
Þegar Rúnar var 22 ára að
aldri kynntist hann eiginkonu
sinni Kristínu Erlu sem var þá
17 ára gömul. Þau byrjuðu sinn
búskap í Keflavík, fluttu síðan
heim í Búðardal, þar bjuggu þau
í 5 ár, fluttu þá í Borgarnes þar
sem að þau bjuggu saman alla
þeirra tíð, þau giftu sig 11. júní
2009.
Rúnar stundaði hesta-
mennsku alla sína tíð og hafði
mikinn áhuga á hrossarækt.
Hann var virkur félagsmaður í
hestamannafélaginu Glað á
meðan hann bjó vestur í Dölum,
eftir að hann fluttist í Borg-
arfjörðinn var hann virkur fé-
lagsmaður í hestamannafélag-
inu Skugga og starfaði þar öll
þau ár sem hann var í félaginu.
Hann hafði mikinn áhuga á öll-
um íþróttum, á meðan hann var
búsettur vestur í Dölum starfaði
hann í Ungmennafélagi Dala-
manna og Norður-Breiðfirðinga
meðal annars sem formaður fé-
lagsins. Rúnar var einnig trún-
aðarmaður hjá Rafiðnaðarsam-
bandinu.
Útför hans mun fara fram í
Kvennabrekkukirkju í Dölum 6.
febrúar klukkan 14. Vegna
fjöldatakmarkana verða ein-
göngu nánustu aðstandendur og
vinir viðstaddir útförina en at-
höfninni verður streymt á kvik-
borg.is.
Stytt slóð á streymi:
tinyurl.com/iiefgxhv
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Að ég sitji hér og skrifi minn-
ingargrein um vin okkar Rúnar
Karl Jónsson er fyrir mér frek-
ar óraunverulegt. Fyrir örfáum
árum vorum við í fullu fjöri og
enginn hafði neitt annað í huga.
Við Rúnar kynntumst á
fyrstu árum Rúnars og Diddu í
Borgarnesi. Það var hesta-
mennska sem varð til þess að
við fórum að spjalla saman.
Hryssan Von frá Breiðbólstað
átti hug hans allan á þeim tíma
og var hún sýnd í kynbótadómi
um vorið og nú skyldi ræktað.
Hestamennska var hans
helsta áhugamál og reið Rúnar
út af krafti. Landsmótsferðir
voru margar. Setið og pælt í
framtíðarstóðhestsefnum. Hlýj-
ar minningar eigum við um þær
ferðir.
Rúnar hafði gaman af söng
og var virkur í karlakórnum
Söngbræðrum til margra ára.
Í hestaferðum var hann
fremstur í flokki á jörpum gæð-
ingum, samanber Gosa og Eld
hinn rauða. Kraftur og áfram-
hald einkenndi Rúnar í að ég
held öllu sem hann tók sér fyrir
hendur. Ég held að hann hafi
vitað að hann þyrfti að klára
margt á styttri tíma en margur
annar.
Ferðafélagið Í hófi var hesta-
ferðafélag sem Rúnar var með-
limur í ásamt góðu fólki. Þar var
sungið, þar var hlegið, farnar
hóflega langar dagleiðir með
löngum stoppum og ánægjuleg-
um kvöldum. Þar naut Rúnar
sín vel og við hin nutum fé-
lagsskapar hans en hann var
hrókur alls fagnaðar. En einmitt
þegar við héldum að allt yrði
eins og áður og þannig yrði það
fór heilsu Rúnars að hraka. Já,
enginn veit sína ævina fyrr en
öll er. Við hin sitjum eftir og
verðum að halda áfram. Eða
eins og Rúnar hefði gert; horfa
fram á veginn.
Hans verður sárt saknað.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Didda fjölskylda, inni-
legar samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Ásberg og Sigríður Jóna,
Hraunholtum.
Rúnar Karl
Jónsson
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Í dag kveð ég
kæran vin minn
Það er svo skrýt-
ið að sama hve ég
hugsa þá man ég
ekki hvenær ég hitti þig fyrst.
Finnst þú alltaf hafa verið hluti
af mínu lífi, bæði sem eiginmaður
Sillu æskuvinkonu minnar sem
og einn af mínum kærustu og
skemmtilegustu vinum.
Allt sem þú gerðir var af heil-
um hug og heilindum. Ég held ég
muni aldrei þekkja neinn sem
gat orðið vinur allra í salnum á
kortéri og fengið þá til að fylgja
sér. Ég gat alltaf treyst á þig,
bæði í alvöru og í leik. Kunni að
meta að þú varst ekki mikið að
kíkja á klukkuna þegar það var
gaman, kunni að meta einlægt
spjall okkar um núið og framtíð,
kunni að meta kærleikann milli
ykkar Sillu og hve mikill fyrir-
myndarfaðir þú varst.
Ég á óteljandi minningar með
þér kæri vinur. Það eru forrétt-
indi að hafa fengið að eiga vin
eins og þig.
Þá ósjaldan að við sungum …
Fyrirheit enginn á, aðeins von eða þrá.
Tíminn fellur í gleymskunnar dá.
Fyrirheit enginn á, aðeins drauma og
þrá.
Svo á morgun er allt liðið hjá.
Næst þegar ég tek þetta er-
indi mun ég hugsa til þín
Það er erfitt að ímynda sér
framtíð án þín, elsku Stebbi
Stefán
Karlsson
✝ Stefán Karls-son fæddist 17.
september 1979.
Hann lést 19. jan-
úar 2021.
Útförin fór fram
29. janúar 2021.
minn. Hugur minn
er hjá Sillu og
strákunum, sem ég
skal hafa auga með
fyrir þig.
Sé þig í því
næsta, þín vinkona,
Hera.
Það er með mik-
illi sorg í hjarta sem
ég set niður nokkur
orð um kæran vin sem kvaddi
okkur alltof snemma.
Stefán Karlsson, eða Stebbi,
var minn elsti og kærasti vinur.
Ég á ekki minningar úr æsku þar
sem hann var ekki vinur minn og
ég ætlaði mér aldrei að þurfa að
feta lífsins veg án hans. Við ætl-
uðum að vera samferðamenn í
lífinu og deila sigrum okkar og
sorgum.
Stebbi var einn af þessum
mönnum sem fólk hópaðist að.
Hann hreif fólk með sér og fólk
vildi kynnast honum og kalla
hann vin sinn. Þess vegna get ég
ekki verið annað en þakklátur
fyrir þann tíma sem við þó feng-
um og að hann hafi kallað mig
sinn vin. Það er djúpt skarð
höggvið í mína tilveru. Hlaupin
verða ekki eins, hittingarnir
verða ekki eins og vikurnar
verða fátæklegri án símtala frá
Stebba, sem alltaf hafði rúm og
tíma til að hlusta og stappa í
mann stálinu.
Við eiginkonu Stebba, Sillu, og
strákana þeirra þrjá, Kristófer,
Rúnar og Ingimar, vil ég segja
að ég samhryggist einlæglega.
Ykkar missir er mestur.
Hvíl í friði elsku vinur – með
þökk fyrir allt og allt.
Guðmundur Sverrisson.
Okkar ástkæri
GARÐAR ODDGEIRSSON,
Aðalgötu 5, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 15. janúar. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Helga Gunnlaugsdóttir
Oddgeir Fr. Garðarsson
Björg Garðarsdóttir Hilmar Örn Jónasson
Birna Hilmarsdóttir
Eva Oddgeirsdóttir Elías Guðmundsson
Nína Peltomaa
Okkar yndislega
HERDÍS STEINGRÍMSDÓTTIR
sameindalíffræðingur
lést sunnudaginn 24. janúar á Royal Sussex
County-sjúkrahúsinu í Brighton á Englandi.
Útförin verður frá Downs Crematorium
Main Chapel, Brighton, miðvikudaginn 10. febrúar klukkan 14
og verður henni streymt til ættingja og vina.
David Gillard
Daniel Davidsson Maija Hall
Róbert Davidsson Marie Lytken
systkini og fjölskyldur
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
AUÐAR MAGNEU JÓNSDÓTTUR,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Jarðarförin fór fram 21. desember frá
Akureyrarkirkju.
Anna Lúthersdóttir
Guðný Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir Páll Sigurðsson
Unnur Pálsdóttir Jakob Jónasson
Magnús Pálsson Lára M. Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARSIBIL GUÐRÚN ANNA
GUNNARSDÓTTIR,
Heiðarvegi 21, Keflavík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum,
mánudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/marsibil
Sveinn Númi Vilhjálmsson
Guðlaugur Kristinn Jónsson Birna Ísaksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar og amma,
SIGRÍÐUR JÓNATANSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum 31. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 13.
Jónatan Þórðarson
Þórður Þórðarson
Sigríður Þóra Þórðardóttir
Helga Marín Jónatansdóttir
Þórður Jónatansson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGIMAR ERLENDUR SIGURÐSSON
skáld,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
2. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 13.
Huld Ingimarsdóttir
Friðbjörg Ingimarsdóttir Gunnar Hersveinn
Helga Ingimarsdóttir Ævar Einarsson
Þóra Ingimarsdóttir
Sigríður Freyja Ingimarsd. Helgi Grímsson
Sigurður Vífill Ingimarsson Ingibjörg Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn,
BIRGIR LÚÐVÍKSSON,
Sléttuvegi 23,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. febrúar.
Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Brynjólfsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
SIGURÐUR TH. INGVARSSON,
frá Ísafirði,
Sléttuvegi 29, Reykjavík,
lést mánudaginn 1. febrúar.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 12. febrúar
klukkan 15. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með nánustu
ættingjum og vinum.
Arndís Ólafsdóttir
Sigríður Brynja Sigurðard. Hilmar Guðmundsson
Ólafur Sigurðsson Svala Guðmundsdóttir
Anna Ólafía Sigurðardóttir Stefán Hrafnkelsson
Björk Sigurðardóttir
Sigrún Stella Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn