Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
„ÞAÐ ER Í LAGI MEÐ MIG, HALLFRÍÐUR.
ÞETTA ER BARA TRIX TIL AÐ MUNA
NAFNIÐ ÞITT.”
„ATKVÆÐI ÞITT ER ATKVÆÐI TIL
STYRKTAR LITLA MANNINUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að horfa alltaf á
björtu hliðarnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÆLL,
JARÐARBÚI
NÆR ÞESSI
STRENGUR
ALLA LEIÐ TIL
PLÁNETUNNAR
ÞINNAR?
JÁ
REYNDAR
STRENGJA BRÚÐURNAR
ERU AÐ GERA INNRÁS
BJARGAÐU SÁL
ÞINNI Á MEÐAN ENN
ER TÍMI TIL!
NEI, BRÓÐIR ÓLAFUR!
HAPPY HOUR ENDAR
EFTIR FIMM MÍNÚTUR!
HVERS VEGNA ER
ÉG EINU SINNI AÐ
REYNA?
með fjölskyldunni heima hjá dóttur
sinni.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns var Kristbjörg
Jakobsdóttir, f. 16.5. 1926 í Lundi
á Akureyri, d. 5.1. 2009, húsmóðir
og starfsmaður Háskóla Íslands.
Fyrsta heimili Jóns og Krist-
bjargar var á Keflavíkurflugvelli
en svo fluttust þau til Hafnar-
fjarðar þar sem heimili þeirra stóð
jafnan síðan á Sunnuvegi 9. For-
eldrar Kristbjargar voru hjónin
Jakob Karlsson, 17.8. 1885, d. 22.6.
1957, skipaafgreiðslumaður og
bóndi í Lundi á Akureyri, og Krist-
ín Sigurðardóttir, f. 1.11. 1881, d.
30.1. 1957, húsmóðir frá Lundi í
Fnjóskadal.
Dóttir Jóns og Kristbjargar er
Kristín Jónsdóttir, f. 30.12. 1961,
félagsráðgjafi. Maki: Ásbjörn Sig-
þór Snorrason rafeindavirki.
Barnabörn eru Kristbjörg Tinna, f.
1985, Jón, f. 1992, Tindur Orri, f.
1995, og Ylfa Hrönn, f. 1997.
Barnabarnabörn eru Styrmir Ási
Kaiser, f. 2008, og Jón Flóki Páls-
son, f. 2020, synir Kristbjargar
Tinnu. Sambýlismaður hennar er
Páll Kristjánsson lögmaður.
Systkini Jóns voru Þuríður, f.
27.7. 1915, d. 25.9. 1993, húsmóðir
og skrifstofumaður; Birgir, f. 19.5.
1919, d. 1.6. 2010, alþingismaður og
forseti sameinaðs Alþingis; Ásta, f.
10.9. 1919, d. 1.11. 2007, verslunar-
maður; Ingibjörg, f. 19.10, 1921, d.
30.6. 2003, húsmóðir og skrifstofu-
maður; Finnur, f. 29.1. 1923, d.
23.10. 2000, kennari.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Finnur Jónsson, f. 28.9. 1894, d.
30.12. 1951, póstmeistari á Ísafirði,
síðar framkvæmdastjóri, alþingis-
maður og ráðherra, og Auður Sig-
urgeirsdóttir, f. 2.4. 1888, d. 30.6.
1935, húsmóðir. Finnur kvæntist
aftur og var síðari kona hans
Magnea Magnúsdóttir, f. 21.11.
1914, d. 23.6. 2002.
Jón Finnsson
Sigurður Jónsson
bóndi í Miðkoti í Svarfaðardal
Helga Símonardóttir
húsfreyja í Miðkoti
Þuríður Sesselja Sigurðardóttir
húsfreyja á Stóra-Eyrarlandi, Harðbak og Akureyri
Jón Friðfinnsson
bóndi á Stóra-Eyrarlandi í Hrafnagilshr.,
og á Harðbak á Melrakkasléttu, síðar
sjómaður og verkamaður áAkureyri
Finnur Jónsson
framkvæmdastjóri,
alþingismaður og ráðherra
Rósa Guðmundsdóttir
húsfreyja á Vöglum
Friðfinnur Jósefsson
bóndi á Vöglum í Hrafnagilshr., Eyj.
Þórunn Helgadóttir
húsfreyja á Hofi
Magnús Árnason
bóndi á Hofi á Flateyjardal
Þuríður Friðrika Magnúsdóttir
húsfreyja á Hallgilsstöðum og Ytra-Hóli
Sigurgeir Indriðason
bóndi á Hallgilsstöðum og Ytra-Hóli í Fnjóskadal
Jóna Jónsdóttir
húsfreyja á Végeirsstöðum
Indriði Sigurðsson
bóndi á Végeirsstöðum í Fnjóskadal
Úr frændgarði Jóns Finnssonar
Auður Sigurgeirsdóttir
húsfreyja áAkureyri og Ísafirði
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Letiblóð mun leynast hér.
Líka nafn á viði.
Lítill steinn í ljánni er.
Leikur grind í hliði.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Draugur latur drengur er.
Draugur nafn á viði hér.
Draugur steinn er loks í ljá.
Líta draug í hliði má.
Þá er limra:
Hún Lauga gamla á Laugum
kvað lifandis býsn af draugum
fylgja Sveini,
en fylgja Steini
framliðna, sem hún laug um.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Öðlingi og eðla frú,
yngispilti og hnátu,
í vikulok að vanda nú
vil ég senda gátu:
Náskyldur hann okkur er.
Afar mikill þurs er sá.
Versti auli virðist mér.
Í vefstólnum hann finna má.
Í fyrsta tölublaði tímaritsins
Skjaldar er fjallað um Sigurð Pét-
ursson sýslumann (1759-1827), sem
nú er helst minnst fyrir að vera
upphafsmaður leikritunar á Ís-
landi. Hann var kímniskáld gott og
eru Stellurímur helsta verk hans í
bundnu máli. Þar er þessi fallega
staka:
Lömbin svona leika sér
með list um græna haga,
þegar þau vita að ekki er
úlfurinn þeim til baga.
Í ljóðmælum Sigurðar eru þessar
stökur:
Fæ ég ekki að faðma þig?
Flest trúi ég að drengi bagi.
Ástin lætur innan um mig
eins og naut í flagi.
Fæ ég ekki að faðma þig?
Faldablóminn ljósi,
ástin drynur innan um mig
eins og kýr í fjósi.
Þegar Sigurður var í Danmörku
missti hann skatthol ofan á fót sér
og var bagaður alla ævi:
Þó ég fótinn missi minn
mín ei rénar kæti.
Hoppað get ég í himininn
haltur á öðrum fæti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fáir eru draugar dagljósir