Morgunblaðið - 27.02.2021, Page 1
Covid í 365 daga
Skrekkur í 30 ár
Í dag er ár síðan fyrsta tilfelli
kórónuveirunnar greindist á
Íslandi. Morgunblaðið leit yfir
farinn veg og ræddi við lækni
um veiruna, bóluefni og eftir-
köst og tvær konur sem fengu
veiruna og glíma enn við veikindi.
Einnig var skyggnst bak við
tjöldin hjá hjúkrunarfræðingi rakningarteymisins og ljós-myndara Landspítalans. 12
28. FEBRÚAR 2021SUNNUDAGUR
Lífið er skemmtilegt
Netapótek Lyfjavers–Apótekið heim
Skrekkur hefur afar jákvæð áhrif á ungmenni, en keppnin fer fram nú í mars. 18
Gefur áfram kost á sér
Kári Árnason myndi aldrei segja nei við landsliðið og hefur áhuga á að koma að stefnumótun hjá KSÍ. 8
Sigrún Ágústsdóttir ræktar sál
og líkama og leggur áherslu á
samveru og góðar stundir. 22
L A U G A R D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 49. tölublað 109. árgangur
Á AÐ GETA GERT
EITTHVAÐ ÓÚT-
REIKNANLEGT
ÁBYRGÐ Á FUGL-
UM HEIMSINS
SAMEIGINLEG
ÍSLENSKU FUGLARNIR OG ÞJÓÐTRÚIN 42MARTIN Á SPÁNI 40-41
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Á morgun, 28. febrúar, er eitt ár síðan
fyrsti Íslendingurinn greindist með
kórónuveiruna sem þá hafði skotið
upp kollinum víða um heim. Á þessum
tímamótum er fróðlegt að horfa til
baka og skoða áhrif veirunnar og
hvaða lærdóm má draga af árinu.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
er rætt við fimm manns sem veiran
hafði meiri áhrif á en okkur flest.
Már Kristjánsson, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Landspítalans,
segir árið hafa verið lærdómsríkt.
„Sumt fólk sem smitast getur farið
mjög illa út úr veikindunum, eins og
gögnin sýna. Fimmti hver sem smit-
aðist af kórónuveirunni varð illa veik-
ur og af þeim var fjórðungur fárveik-
ur eða lést,“ segir Már og segir
bóluefnið hafa komið mun fyrr en
hann hafði átt von á.
Setti líf fólks á hvolf
Hjúkrunarfræðingurinn Helga
Sverrisdóttir hefur verið hluti af
rakningarteyminu frá upphafi og eru
þau ófá símtölin sem Helga hefur átt.
Sum símtölin tóku á.
„Ég skal alveg viðurkenna til dæm-
is að þegar ég þurfti að setja hár-
greiðslukonu í sóttkví alla vikuna fyr-
ir jól þá var ég alveg að fara að gráta.
Ég var að setja líf fólks gjörsamlega á
hvolf og það var ekkert auðvelt. En
ekkert af þessu hefur verið auðvelt.“
Með beinverki í tæpt ár
Inga María Leifsdóttir er ein
þeirra sem fengu Covid og er enn að
jafna sig, nú ári síðar.
„Ég var daglega með beinverki í að
minnsta kosti tíu mánuði, sérstaklega
í útlimum, sem var auðvitað mjög lýj-
andi. Ég hélt alltaf að þeir hlytu að
vera að fara að hverfa, en það leið og
beið,“ segir Inga María.
Heilt ár með veirunni
Íslendingar hafa lifað með kórónuveirunni í eitt ár Bóluefni kom fyrr en
yfirlæknir smitsjúkdómadeildar átti von á Margir upplifa slæm eftirköst
Ár frá fyrsta smiti
» Staðfest smit frá upphafi
eru 6.049 talsins.
» 45.916 hafa lokið sóttkví.
» 277.150 sýni hafa verið tekin
innanlands.
» 327 manns voru lagðir inn á
spítala.
» 53 lentu á gjörgæslu.
» 29 hafa látist á Íslandi af
völdum Covid-19.
MSunnudagsblaðið »12-15
Íslandsstofa undirbýr markaðs-
sókn í Bretlandi á næstunni vegna
bættra horfa í ferðaþjónustu.
Nánar tiltekið er horft til áforma
bresku ríkisstjórnarinnar um að
slaka á hömlum vegna kórónu-
veirufaraldursins en Bretar eru
komnir lengra á veg í bólusetningu
en flestar aðrar þjóðir.
Ferðamálastofa og Íslandsbanki
spá allt að einni milljón erlendra
ferðamanna á þessu ári. »22
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þota Icelandair Vonir hafa glæðst.
Íslandsstofa sækir
fram í Bretlandi
Fjöldi kröftugra skjálfta reið yfir
suðvesturhorn landsins í gær. Sá
öflugasti þeirra varð á ellefta tím-
anum í gærkvöldi og mældist um 4,9
að styrkleika. Líklegast þykir nú að
gos komi upp við Trölladyngju,
verði af því á annað borð.
Náttúruvárvöktun Veðurstofu Ís-
lands hefur verið efld til muna frá
því að jarðskjálftahrina á Reykja-
nesskaganum hófst á miðvikudags-
morgun.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkur, segir íbúa bæjarins til-
tölulega rólega miðað við aðstæður.
Tveir fjarfundir voru haldnir með
vísindamönnum í gær og aftur verð-
ur fundað í hádeginu í dag.
„Við þurfum að vera við öllu bú-
in,“ segir Salóme Jórunn Bern-
harðsdóttir jarðeðlisfræðingur.
Fylgst sé grannt með skjálftum, en
einnig kvikuútstreymi og landrisi
með tilliti til hættu á eldgosi sem lík-
ast til verði í nánustu framtíð. Mæla-
kerfi skilar upplýsingum um jarð-
skjálftana til Veðurstofunnar fljótt
og vel, en það er svo vísindamanna
draga ályktanir. »2 og 4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mörg þús-
und jarð-
skjálftar
Reykjanesskaginn
nötrar Vaktin efld
Vísindi Bryndís Ýr Gísladóttir náttúruvársérfræðingur við störf í gær þar sem hún fór yfir niðurstöður jarðskjálftamælinga. Upplýsingarnar berast nánast
á rauntíma til Veðurstofunnar, en stærsti skjálftinn sem reið yfir í gær var um 4,9 að stærð og ekki er hægt að útiloka að eldgos verði á þessum slóðum.
T-Cross
Brúar bilið á milli jeppa og fólksbíls
Verð frá 3.950.000 kr.
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/volkswagensalur