Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Á sama tíma og frjósemi kvenna
lækkar í löndum Evrópu hefur
meðalaldur frumbyrja, mæðra sem
eignast sitt fyrsta barn, farið jafnt
og þétt hækkandi á umliðnum árum
og áratugum.
Hér á landi var meðalaldur
kvenna sem áttu sitt fyrsta barn
undir 22 árum frá byrjun sjöunda
áratugarins og fram yfir 1980 skv.
upplýsingum Hagstofunnar. Eftir
miðjan níunda áratuginn hefur
meðalaldurinn farið hækkandi, var
27,8 ár árið 2017 og tveimur árum
síðar voru konur á Íslandi að með-
altali 28,7 ára þegar þær eignuðust
sitt fyrsta barn samkvæmt nýjum
samanburði Eurostat, Hagstofu
Evrópusambandsins.
Í mörgum löndum Evrópu bíða
konur þó mun lengur með að eign-
ast börn en hér á landi. Í löndum
Evrópusambandsins var meðal-
aldur frumbyrja hærri en hér á
landi eða 29,4 ár á árinu 2019.
Aldur frumbyrja hefur hækkað í
öllum aðildarlöndum ESB á umliðn-
um árum. Stærsta breytingin átti
sér stað í Eistlandi þar sem barn-
eignaaldurinn hækkaði um heilt ár
á fjórum árum. Nokkur lönd skera
sig úr. Á árinu 2019 eignuðust
mæður að jafnaði sitt fyrsta barn
þegar þær voru orðnar 31 árs gaml-
ar á Ítalíu, Spáni og í Lúxemborg.
Lægsti meðalaldur frumbyrja í
samanburði Eurostat eru Aserbaíd-
sjan 23,9 ár og Armenía 24,8 ár. Í
aðeins tveimur löndum innan Evr-
ópusambandsins sem samanburður
Eurostat nær yfir var meðalaldur
frumbyrja undir 27 árum á árinu
2019 en það var í Búlgaríu (26,3 ár)
og Rúmeníu (26,9 ár).
Á Norðurlöndunum eru mæður
að meðaltali elstar í Noregi og Dan-
mörku þegar þær eignast fyrsta
barnið og orðnar 29,7 ára að með-
altali og Svíþjóð er á svipuðum stað
á listanum þar sem meðalaldur
frumbyrja var 29,5 ár á árinu 2019.
Meðalaldur kvenna sem eignuðust
sitt fyrsta barn árið 2019
Heimild: Eurostat
Hæsti meðalaldur (ár)
1. Ítalía
2. Spánn
3. Lúxemborg
Norðurlönd og ESB-meðaltal (ár)
11. Noregur
13. Danmörk
14. Svíþjóð
ESB-meðaltal
16. Finnland
23. Ísland
Lægsti meðalaldur (ár)
39. Úkraína
40. Armenía
41. Aserbaídsjan
31,3
31,1
31,1
29,7
29,7
29,5
29,4
29,4
28,7
25,4
24,8
23,9
28,7
29,7
29,5
29,4
28,8
31,1
29,8 27,6
26,4
< 27 ára
27 til 28 ára
28 til 29 ára
29 til 30 ára
30 ára +
Evrópskar konur
bíða með barneignirnarFebrúarmánuður, sem senn er lið-inn, hefur verið höfuðborgarbúum
hagstæður.
Febrúar virðist ætla að verða á
meðal þeirra 20 hlýjustu í Reykja-
vík, gæti náð upp í 10. sæti af 150
mældum árum. Svipað má segja
með vetrarmánuðina þrjá, hiti
þeirra er nú í kringum 20. sætið,
segir Trausti Jónsson veðurfræð-
ingur.
Alhvítu dagarnir í Reykjavík í
febrúar séu orðnir þrír. Það þýðir
að vetrarfjöldinn er orðinn sex, seg-
ir Trausti. Fæst er vitað um 10 al-
hvíta daga á vetri í Reykjavík,
1976-77. „Við eigum því enn fræði-
legan möguleika á að slá eða jafna
það met - en þá mega dagarnir ekki
vera nema fjórir úr þessu til vors,“
bætir Trausti við.
Meðalfjöldi alhvítra daga í mars
til maí er 16. Verði snjóalög í með-
altali í mars og apríl verða alhvítir
dagar vetrarins því um 23. Á þess-
ari öld hafa alhvítir dagar að vetri
fæstir orðið 16, það var 2009 til
2010. Heldur meiri líkur séu á að
við höldum okkur neðan þeirrar
tölu.
Mesti fjöldi alhvítra daga í mars
til maí eru 44 (1990). Það hefur einu
sinni gerst að snjó hefur ekki fest
frá 1. mars til vors (1965) og þrisv-
ar hefur aðeins einn alhvítur dagur
komið eftir 1. mars, síðast 1974.
„Það hefur farið vel með veður hér
suðvestanlands í vetur,“ segir
Trausti.
Tíðarfarsyfirlit Veðurstofunnar
fyrir febrúar er væntanlegt eftir
helgina. sisi@mbl.is
Hlýr febrúar
að kveðja
Febrúar með 20 hlýjustu í borginni
Morgunblaðið/Eggert
Hlýindi Febrúarmánuður hefur verið góður í höfuðborginni og nokkur
tækifæri gefist til að fá sér kaffisopa utan dyra og njóta blíðunnar.
Niðurstöður tilboða í byggingu
Kársnesskóla voru kynnt á fundi
bæjarráðs Kópavogs í fyrradag.
Lægsta tilboð átti ítalska fyrirtækið
Rizzani de Eccher og var það 3,20
milljarðar, en kostnaðaráætlun var
upp á tæplega 3,7 milljarða.
Ístak átti næstlægsta tilboð, tæp-
lega 3,24 milljarða, og þá komu Ís-
lenskir aðalverktakar með tilboð upp
á rúmlega 3,28 milljarða.
Sjö tilboð bárust í verkið. Fram
kemur í fundargerð að verið sé að yf-
irfara tilboðin og að niðurstaðan
verði lögð fyrir bæjarráð Kópavogs.
Bygging nýs Kársnesskóla er ætl-
uð fyrir leikskóla og yngri deildir
grunnskóla, þ.e. börn á aldrinum
eins til níu ára. Fyrirhugað er að
hefja þar kennslu haustið 2023. Nýi
skólinn verður 5.750 fermetrar á 1-3
hæðum á steyptum sökkli og botn-
plötu. Skólinn verður reistur úr
KLT-timbureiningum.
Kársnesskóli við Skólagerði var
rýmdur vegna rakaskemmda og
myglu í febrúar 2017 og rifinn í lok
árs 2018.
Tölvumynd/Batteríið
Kársnesskóli Tölvumynd af nýjum Kársnesskóla. Stefnt er að því að taka
skólann í notkun haustið 2023, en hann verður byggður úr timbureiningum.
Tilboð í Kársnes-
skóla undir áætlun
Lægsta tilboðið var 3,2 milljarðar