Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkur samþykkti á fundi sínum á
miðvikudaginn að auglýsa breytt
deiliskipulag vegna afmörkunar
nýrrar lóðar fyrir smáhýsi í austur-
hluta Laugardals, nálægt Suður-
landsbraut. Málið fer nú til endan-
legrar afgreiðslu í borgarráði.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um leitast velferðarsvið Reykjavík-
urborgar eftir að koma fyrir smá-
hýsum á völdum stöðum í borginni
sem búsetuúrræði fyrir skjólstæð-
inga sína. Hafa áformin mætt and-
spyrnu frá þeim sem koma til með að
búa í nágrenni smáhýsanna.
Til stendur að koma fyrir fimm
smáhýsum í Laugardal. Þegar deili-
skpulag var auglýst í fyrra bárust 69
athugasemdir og í langflestum
þeirra var áformunum mótmælt.
Sem dæmi má nefna athugasemd
Íþróttabandalags Reykjavíkur. Seg-
ir þar að það sé skoðun stjórnar ÍBR
að Laugardalurinn skuli notaður til
íþróttastarfs og annarrar starsemi
sem þar er fyrir. Fyrirhuguð breyt-
ing á deiluskipulagi sé að mati
stjórnarinnar ekki til þess fallin að
bæta ímynd Laugardalsins sem úti-
vistarsvæði fyrir íbúa borgarinnar.
Hætt sé við að mörgum af yngri kyn-
slóðinni muni finnst óþægilegt ná-
vígið við tilvonandi íbúa þessa svæðis
og muni jafnvel veigra sér við að
vera ein á ferð um dalinn.
Íþróttafélögin mótfallin
Í sama streng taka fulltrúar Þrótt-
ar, Ármanns, Skautafélags Reykja-
víkur, TBR og borðtennisdeildar
Víkings, sem eru með starfsemi í
Laugardal. Innan þeirra vébanda
eru þúsundir iðkenda, bæði börn og
fullorðnir. Að auki bárust tugir at-
hugasemda frá almennum borgurum
sem búa í nágrenninu.
Verkefnisstjóri skipulagsfulltrúa
svarar athugasemdunum. Bendir
hann m.a. á að aðeins einn íbúi verði í
hverju húsi. Forstöðumaður verði
yfir smáhýsunum, tryggi íbúunum
stuðning og tryggi góða umgengni.
Fulltrúar meirihlutans í ráðinu,
Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata,
lögðu fram bókun við afgreiðslu
málsins. Segja þeir að umrædd smá-
hýsi séu hluti af hugmyndafræðinni
„Húsnæði fyrst“ á vegum velferðar-
sviðs og hugsuð til að hjálpa fólki
sem hefur verið í heimilisleysi og
hefur miklar þjónustuþarfir. Hafa
beri í huga að þótt þessi hús séu
tímabundin í staðsetningu sinni þá
séu þau heimili fólks, ekki dvalar-
heimili eða lokuð stofnun, og þurfa
að vera nálægt þeirri þjónustu og
samfélagsinnviðum sem borgarbúar
þurfa að nýta. Ekki sé auðvelt að ná
sátt um staðsetningu þeirra í íbúða-
byggð eða blandaðri byggð og því
þurfi að leita á staði sem eru í ná-
munda við sömu innviði á öðrum
skipulagssvæðum.
„Fulltrúar meirihlutans telja að
nálægð við útivistarsvæði, almenn-
ingssamgöngur og samfélagsinnviði
muni hafa jákvæð áhrif á þau sem
þar munu koma til með að búa og
vona að hverfið taki vel á móti þeim,“
segir enn fremur í bókuninni.
Fimm smáhýsi verða
sett upp í Laugardal
Alls bárust 69 athugasemdir Langflestar neikvæðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smáhýsin Fyrstu húsin fyrir heimilislausa voru tekin í notkun í Gufunesi haustið 2020. Fleiri hús verða sett upp.
Guðni Th. Jóhannesson forseti og
Eliza Reid forsetafrú tóku sl.
fimmtudag á móti nýjum sendi-
herra Kanada hér á landi, Jeann-
ette Menzies, með athöfn á Bessa-
stöðum. Menzies kom með
trúnaðarbréf sitt og afhenti
Guðna.
Á vef forseta Íslands segir að
við þetta tilefni hafi verið rætt um
gott samstarf ríkjanna, sameig-
inlega hagsmuni og sjónarmið,
ekki síst á sviði mannréttinda,
kynjajafnréttis og loftslagsmála.
Þá var rætt um málefni norður-
slóða og stöðu þeirra í heimi al-
þjóðastjórnmála. Loks var rætt um
Vestur-Íslendinga, arfleifð þeirra
og þennan þráð sem tengir Ísland
og Kanada svo traustum böndum,
eins og segir á vef forseta.
Menzies sendiherra er fædd og
uppalin í Winnipeg og þekkir vel
til sögu Íslendinga í Vesturheimi.
Hún tekur við af Anne-Tamara
Lorre, sem hafði verið sendiherra
á Íslandi frá haustmánuðum 2016.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Nýr sendiherra Kanada á Íslandi
Dómsmálaráðherra hefur skipað
Símon Sigvaldason dómstjóra í
embætti dómara við Landsrétt frá
1. mars. Hann var af dómnefnd
metinn hæfastur þriggja umsækj-
enda um stöðuna.
Símon lauk embættisprófi frá
lagadeild Háskóla Íslands árið 1989
og hefur jafnframt lagt stund á
nám við lagadeild Kaupmannahafn-
arháskóla og Penn State-háskóla í
Bandaríkjunum.
Símon var um
tíma skrif-
stofustjóri
Hæstaréttar en
frá 2004 verið
dómari við Hér-
aðsdóm Reykja-
víkur, þar af
dómstjóri frá
árinu 2017.
Símon skipaður dómari í Landsrétti
Símon
Sigvaldason
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
TRAUST
Í 80 ÁR
VATNSVARÐAR FLÍKUR Í MIKLU ÚRVALI
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ
SENDING