Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Góðan skilning á landi, söguog staðháttum máttigreina þegar þátttak-endur á landvarða- námskeiði Umhverfisstofnunar fluttu verkefni sín og erindi á dög- unum. Þetta segir Kristín Ósk Jón- asdóttir umsjónarmaður námskeiðs- ins, sem alls 36 manns taka þátt í. Að undanförnu hafa nemendur fengið góðan bók- legan undirbún- ing um ýmsa þætti er lúta að starfinu, svo sem um jarðfræði, gróður og fugla og svo reglu- vernd nátt- úruverndar. Allt þetta nám hefur verið fjarkennt á netinu en um síð- ustu helgi fóru nemendur svo út á mörkina, hvar þeir sögðu frá stað- háttum á völdum svæðum rétt eins og verður starf þeirra í fyllingu tím- ans. Fjarnám og náttúrutúlkun „Við höfum alltaf fengið mjög efnilega og áhugasama nemendur á námskeiðin og svo er einnig nú,“ segir Kristín Ósk. „Eftir tveggja vikna lotu í fjarnámi hittust þátttak- endur svo loks og fluttu verkefni í náttúrutúlkun sem þeir höfðu unnið áður. Fólk af Norðurlandi mætti í Mývatnssveit, Vestfirðingar að Dynjanda, þátttakendur af Vestur- landi á Malarrif á Snæfellsnesi og af höfuðborgarsvæðinu fór fólk á Þing- velli. Verkefnin voru skemmtilega fram sett og fróðleg. Þátttakendur eru efnilegir landverðir.“ Opnað var fyrir umsóknir á landvarðanámskeið kl. 10 að morgni 4. janúar síðastliðinn og er skemmst frá því að segja að námskeiðið fyllt- ist á fjórum mínútum. „Við höfum aldrei fengið svona sterk viðbrögð. Þarna held ég að komi bæði til mik- ill áhugi á náttúruvernd og umhverf- ismálum en einnig atvinnuástandið. Landvarsla er fjölbreytt starf sem býður upp á marga möguleika,“ seg- ir Kristín Ósk. Kennslu á námskeið- unum sinnir fólk sem hefur langa reynslu af landvörslustörfum, sér- fræðingar Umhverfisstofnunar og eftir atvikum fólk sem þekkir vel til ákveðinna efna. Má þar nefna að Sævar Helgi Bragason stjarnfræð- ingur ræddi á dögunum við þátttak- endur um loftslagsbreytingar þeirra og Jónas Guðmundsson frá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg fjallar um ýmsa öryggisþætti. Þekking og hæfni í fjölbreytt verkefni „Rauði þráðurinn í kennslunni er annars að fólk hafi þekkingu og hæfni til þess að sinna fjölbreyttum verkefnum við vernd lands og nátt- úru. Einnig að geta leyst úr alls konar flækjum sem upp geta kom- ið,“ segir Kristín. Á ári hverju eru tugir fólks ráðnir til starfa við landvörslu í þjóðgörðum og á friðlýstum svæð- um. Sjálf er Kristín Ósk með starfs- stöð á Ísafirði þar sem nýlega var á vegum Umhverfisstofnunar sett upp gestastofa um friðlandið á Horn- ströndum, og þar er að finna ýmsan fróðleik. Sjálf er Kristín svo meðal landvarða sem sinna umsjón, fræðslu og eftirliti í friðlandi Horn- stranda, víðfeðmu og hrikalegu landi sem svo mjög heillar göngu- garpa. Aðsetur landvarða á svæðinu eru á Hesteyri og í Hornvík. Fyrsta fólk fer til starfa á svæðinu í júní- byrjun og vaktin er staðin fram í ágúst. Efnilegir landverðir á námskeiði Læra á landið! Færri komust að en vildu á land- varðanámskeið Umhverfisstofnunar. Náttúruvernd, gróður og dýralíf eru námsefni fólks, sem margt hvert fer svo til starfa í friðlöndum og þjóðgörðum. Ljósmynd/Aðsend Framtíðin Þátttakendur á landvarðanámskeiði Umhverfisstofnunar í vettvangsferð á Þingvöllum um sl. helgi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Friðland Horft frá Hornbjargsvita við Látravík að Fjölunum svonefndu undir Hornbjargi. Hér sést upp í Almenningsskarð og fjærst Kálfatindar. Meirihluti nemenda framhaldsskóla er ánægður með viðbrögð stjórn- enda þeirra við kórónuveirunni, enda þótt meirihlutinn telji að fé- lagslíf skólanna gjaldi mjög fyrir. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar á líðan, námi og að- stæðum framhaldsskólanema sem birt var nú í vikunni. Um 4% nema eiga nú í verulegum erfiðleikum vegna þunglyndis. Unnið er að því að efla stuðning við nemendur, m.a. með því að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Liðlega helmingur, eða 52% nemenda, svöruðu að þeir eða ein- hver nákominn þeim væri í áhættu- hópi vegna Covid-19. Viðlíka stór hópur nemenda sagði að þeim vegnaði betur í stað- en fjarnámi. Tæpur fjórðungur sagði fjarnám henta sér betur en annað. Alls 37% nemenda tilgreindu að fjarnám hefði ekki áhrif á þeirra líðan. Al- gengara er að stúlkum líði vel í fjarnámi. Um 77% svarenda sögðu að tækjabúnaður sem notaður er til fjarkennslu virki vel. Um 87% nem- enda tilgreindu að þeir hefðu viljað að náms- mat á haustönn væri alfarið með símati Rösklega 42% nemenda kváð- ust hafa upplifað fjárhagserfiðleika í faraldrinum, sérstaklega þeir sem búa í leiguhúsnæði eða taka þátt í heimilisrekstri. „Markmið þessarar könnunar var að afla upplýsinga sem nýst geta til að bæta stöðu nemenda í erf- iðum aðstæðum og bæta skóla- starf. Þetta er í fyrsta sinn sem við vinnum könnun sem þessa í sam- starfi við hagsmunasamtök fram- haldsskólanema og það er sérlega gagnlegt að fá sjónarmið nemenda fram með svo skýrum hætti nú þegar við vinnum að því að efla stoðþjónustu í skólanum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menntamála- ráðherra. Framhaldsskólarnir í lagi á tímum kórónuveiru Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mennt Skólarnir þykja hafa staðist áraun. Fjölbrautaskóli Suðurnesja hér. Lilja Alfreðsdóttir Stúlkunum líður vel í fjarnámi „Ég hef mik- inn áhuga á náttúru og útivist og að fara á land- varða- námskeiðið núna hefur gefið mér al- veg nýja sýn á margt í því sambandi,“ segir Kristinn Jón- asson, bæjarstjóri í Snæ- fellsbæ. „Sem strákur sá ég sjónvarpsþætti um landverðina sem gættu fílahjarða í þjóð- görðum Afríku. Eitthvað í starfi þeirra og frásögnum af því höfðaði mjög sterkt til mín og hefur fylgt æ síðan. Því sló ég til þegar þetta námskeið var auglýst og fyrir landsbyggð- armann er kærkomið að þetta megi taka í fjarkennslu yfir net- ið. Einnig að vettvangsfræðsla sé í heimabyggð. Í gegnum störf mín þekki ég síðan vel hvað þjóðgarður getur skapað sam- félögum mörg tækifæri, sbr. starfsemi Þjóðgarðsins Snæ- fellsjökuls hér í bæ.“ Þjóðgarðar eru tækifæri BÆJARSTJÓRI Í NÁMI Kristinn Jónasson Kristín Ósk Jónasdóttir Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Árgerð 2016, eknir 126-131 Þ.km, dísel (178hö), sjálfskiptur (6 gíra). Snarpir og skemmtilegir jepplingar sem koma verulega á óvart. Aukabúnaður m.a: Hraðastillir, hæðarstillanlegt bíls- stjórasæti, bluetooth. Allir á góðum vetrardekkjum. Verð aðeins 1.990.0 Skipti á ódýrari skoðuð! Vantar þig einn, tvo eða þrjá eins? SSANGYONGKORANDO DLX 2,2 Turbo diesel 4x4 Raðnúmer 252158 áwww.BILO.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.