Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Breytingar verða væntanlega við innflutning á dýraafurðum til Bret- lands 1. apríl næstkomandi, en þá fellur niður undanþága varðandi heilbrigðisvottorð. Þetta tekur með- al annars til sjávarafurða og þarf vottorð með öllum sendingum frá 1. apríl. Undanþágan hefur gilt fyrir inn- flutning frá ríkjum innan EES á meðan heilbrigðisvottorð hafa þurft að fylgja innflutningi frá öllum öðr- um ríkjum. Bretar munu fella þessa undanþágu niður þann 1. apríl og krefjast þá heilbrigðisvottorða með öllum innflutningi frá ríkjum innan EES, þ.m.t. Íslandi. Bretar munu síðan taka upp landamæraeftirlit með dýrafurðum frá 1. júlí nk. þar sem slíkur inn- flutningur mun þurfa að fara um sérstakar landamærastöðvar, sam- kvæmt upplýsingum frá utanríkis- ráðuneytinu. Veruleg aukning Umrædd vottorðaskylda mun hafa áhrif á útflutning frá Íslandi að því leyti að tilkynna þarf um inn- flutning til Bretlands fyrir fram. Þarf Matvælastofnun að gefa út heil- brigðisvottorð með hverri sendingu. Við það mun útgáfa heilbrigðisvott- orða með sendingum frá Íslandi aukast verulega frá því sem var, þar sem ekki þurfti áður að gefa út vott- orð með sendingum til Bretlands sem EES-ríkis. Atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið og Matvæla- stofnun bera ábyrgð á útgáfu vott- orða með sendingum. „Frá 1. janúar hefur verið í gildi bráðabirgðafríverslunarsamningur við Bretland. Markaðsaðgangskjör íslensks útflutnings til Bretlands breyttust því ekki um áramót. Stjórnvöld hafa fylgst vel með inn- flutningi til Bretlands frá Íslandi sem hefur almennt gengið vel. Ís- lenskar vörur fara einungis að litlu leyti um flutningsleiðina um Ermar- sund þar sem helst hafa verið tafir í flutningum og afgreiðslu,“ segir m.a. í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn um útflutning til Bret- lands eftir að Bretar fóru endanlega úr Evrópusambandinu um áramót. Breytingar skapa óvissu Í vefútgáfu Aftenposten í Noregi kom nýlega fram að að útflutningur til Bretlands frá áramótum hefði gengið betur en óttast hafi verið. Krafa um heilbrigðisvottorð með öll- um sendingum á fiski og öðrum mat- vælum frá 1. apríl skapi hins vegar óvissu og sömuleiðis landamæra- eftirlitið frá 1. júlí. Þessar kröfur geti, að mati tals- manns samtaka í veiðum og eldi í Noregi, Sjømat Norge, leitt til meiri áskorana og erfiðleika í viðskiptum en Brexit hafi gert hingað til. Talað er um viðskiptahindranir í þessu sambandi og sérstaklega geti verið erfitt að uppfylla ný skilyrði við út- flutning á hvítfiski. Vilja vottorð með öllum sendingum  Bretar herða regl- ur og fella niður und- anþágu við innflutn- ing á fiski 1. apríl AFP Aukin skriffinnska Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í heimsókn á fiskmarkaði í Grimsby í kosningabaráttunni í desember 2019. Breytingar við innflutning á fiski til Bretlands munu ef að líkum lætur auka skriffinnsku við útgáfu heilbrigðisvottorða. Landamæraeftirlit verður síðan tekið upp 1. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.