Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Breytingar verða væntanlega við
innflutning á dýraafurðum til Bret-
lands 1. apríl næstkomandi, en þá
fellur niður undanþága varðandi
heilbrigðisvottorð. Þetta tekur með-
al annars til sjávarafurða og þarf
vottorð með öllum sendingum frá 1.
apríl.
Undanþágan hefur gilt fyrir inn-
flutning frá ríkjum innan EES á
meðan heilbrigðisvottorð hafa þurft
að fylgja innflutningi frá öllum öðr-
um ríkjum. Bretar munu fella þessa
undanþágu niður þann 1. apríl og
krefjast þá heilbrigðisvottorða með
öllum innflutningi frá ríkjum innan
EES, þ.m.t. Íslandi.
Bretar munu síðan taka upp
landamæraeftirlit með dýrafurðum
frá 1. júlí nk. þar sem slíkur inn-
flutningur mun þurfa að fara um
sérstakar landamærastöðvar, sam-
kvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Veruleg aukning
Umrædd vottorðaskylda mun
hafa áhrif á útflutning frá Íslandi að
því leyti að tilkynna þarf um inn-
flutning til Bretlands fyrir fram.
Þarf Matvælastofnun að gefa út heil-
brigðisvottorð með hverri sendingu.
Við það mun útgáfa heilbrigðisvott-
orða með sendingum frá Íslandi
aukast verulega frá því sem var, þar
sem ekki þurfti áður að gefa út vott-
orð með sendingum til Bretlands
sem EES-ríkis. Atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið og Matvæla-
stofnun bera ábyrgð á útgáfu vott-
orða með sendingum.
„Frá 1. janúar hefur verið í gildi
bráðabirgðafríverslunarsamningur
við Bretland. Markaðsaðgangskjör
íslensks útflutnings til Bretlands
breyttust því ekki um áramót.
Stjórnvöld hafa fylgst vel með inn-
flutningi til Bretlands frá Íslandi
sem hefur almennt gengið vel. Ís-
lenskar vörur fara einungis að litlu
leyti um flutningsleiðina um Ermar-
sund þar sem helst hafa verið tafir í
flutningum og afgreiðslu,“ segir m.a.
í svari utanríkisráðuneytisins við
fyrirspurn um útflutning til Bret-
lands eftir að Bretar fóru endanlega
úr Evrópusambandinu um áramót.
Breytingar skapa óvissu
Í vefútgáfu Aftenposten í Noregi
kom nýlega fram að að útflutningur
til Bretlands frá áramótum hefði
gengið betur en óttast hafi verið.
Krafa um heilbrigðisvottorð með öll-
um sendingum á fiski og öðrum mat-
vælum frá 1. apríl skapi hins vegar
óvissu og sömuleiðis landamæra-
eftirlitið frá 1. júlí.
Þessar kröfur geti, að mati tals-
manns samtaka í veiðum og eldi í
Noregi, Sjømat Norge, leitt til meiri
áskorana og erfiðleika í viðskiptum
en Brexit hafi gert hingað til. Talað
er um viðskiptahindranir í þessu
sambandi og sérstaklega geti verið
erfitt að uppfylla ný skilyrði við út-
flutning á hvítfiski.
Vilja vottorð með öllum sendingum
Bretar herða regl-
ur og fella niður und-
anþágu við innflutn-
ing á fiski 1. apríl
AFP
Aukin skriffinnska Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í heimsókn á fiskmarkaði í Grimsby í kosningabaráttunni í desember 2019. Breytingar við
innflutning á fiski til Bretlands munu ef að líkum lætur auka skriffinnsku við útgáfu heilbrigðisvottorða. Landamæraeftirlit verður síðan tekið upp 1. júlí.