Morgunblaðið - 27.02.2021, Page 22

Morgunblaðið - 27.02.2021, Page 22
● „Við bjuggumst við að þetta yrði samþykkt. Sér- staklega í ljósi þess að eins og við horf- um á málið er einn af kostum þessa vænta samruna að hann gerir okkur kleift að keppa með öflugri hætti við bankana. Þetta eykur því samkeppni,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku, í tilefni af samþykktum FME og SKE. Fram kom í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar í gærkvöldi að Sam- keppniseftirlitið (SKE) hefði samþykkt samruna Kviku og TM. Jafnframt til- kynnti Fjármálaeftirlitið (FME) Kviku þá niðurstöðu sína að eftirlitið teldi félagið hæft til að fara með eignarhald á virk- um eignarhlut í TM tryggingum hf., TM líftryggingum hf. og Íslenskri endur- tryggingu hf. Marinó Örn segir að nú geti félögin boðað til hluthafafunda. Það verði gert strax í næstu viku. Hann vænti þess að félögin geti sameinast fyrir lok mars. Sameiningin verði um garð gengin í mars Marinó Örn Tryggvason 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Enn sé þó talsverð óvissa um þró- un mála. „Það var mjög jákvætt að sjá við- brögðin við tilkynningunni frá Boris Johnson. Við höfum þannig orðið vör við mikla aukningu í leitarfyrir- spurnum á netinu eftir áfangastöð- um og þar á meðal Íslandi,“ segir Sigríður Dögg og tekur fram að enn eigi margt eftir að skýrast varðandi fyrirkomulagið á landamærum. Þar með talið gagnvart komum Breta. Ísland fylgi reglum Schengen um opnun landamæra gagnvart þriðja ríki. Vonast sé til að þegar smitstuð- ullinn lækki í Bretlandi muni landið komast á lista yfir örugg ríki. Hefur jafnað árstíðasveifluna „Bretland er gríðarlega mikilvæg- ur markaður fyrir okkur, sérstak- lega til að jafna árstíðasveifluna sem hefur verið markmið fyrir áfanga- staðinn undanfarin ár. Bretar hafa komið hingað á veturna en við eigum eftir að sjá hvernig ferðamynstrið verður í sumar. Hvort þeir velji heit- ari lönd og fari í sólina, en Ísland er venjulega áfangastaður utan háann- ar hjá Bretum,“ segir Sigríður Dögg. „Við hjá Íslandsstofu erum byrjuð að viða að okkur gögnum. Við höfum verið með markaðsaðgerðir síðan faraldurinn hófst sem hafa snúist um að viðhalda áhuga á áfangastaðnum Íslandi. Við erum að reyna að vera á tánum þegar aðstæður skapast fyrir markaðsaðgerðir í Bretlandi. Síðan erum við með í undirbúningi um- fangsmeiri markaðsaðgerðir og her- ferðir sem við viljum setja af stað þegar við sjáum fyrir víst að bókanir eru að fara af stað. Við erum ekki að horfa fram á það fyrr en í maí, með öllum þeim fyrirvörum um tímasetn- ingar sem þarf að gera við þessa að- stæður,“ segir Sigríður Dögg. Óráðstafað sé um 70% af þeim eina og hálfa milljarði sem stjórnvöld ákváðu að verja til átaksins „Ísland – saman í sókn“ sem felur í sér mót- vægisaðgerðir fyrir ferðaþjónustuna í kórónuveirufaraldrinum. En Ís- landsstofa sér um framkvæmdina. Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir áætl- að í þjóðhagsspá bankans að hingað komi 400 þúsund til ein milljón er- lendra ferðamanna á ári (sjá graf). Grunnsviðsmyndin hljóði upp á 700 þúsund ferðamenn. Þeir muni nær allir koma á síðari hluta ársins. Stígandi á síðari hluta ársins „Frá og með júlí verður fjöldinn mögulega 40% af því sem hann var í júlí 2019. Það samsvarar um 100 þús- und erlendum ferðamönnum. Síðan gerum við ráð fyrir stígandi í komum ferðamanna og að fjöldinn í desem- ber verði 2⁄3 af fjöldanum í desember 2019,“ segir Jón Bjarki. En um 125 þúsund brottfarir er- lendra ferðamanna voru frá Kefla- víkurflugvelli í desember. Skarphéðinn Steinarsson ferða- málastjóri segir Ferðamálastofu áætla að hingað komi 600 þúsund til ein milljón erlendra ferðamanna í ár. Forsendan fyrir því að hingað komi ein milljón erlendra ferða- manna í ár sé að markaðurinn taki við sér í júní og að fjöldi ferðamanna í júlí og ágúst verði hátt hlutfall af fjöldanum þessa mánuði 2019. En þá mánuði 2019 voru 230 og 250 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli. Kannanir bendi til að faraldurinn muni ekki breyta ferðahegðun til langframa. Því sé líklegra að Bretar komi með haustinu en í sumar. „Almennt gera menn hér og ann- ars staðar í Evrópu ráð fyrir að haustið geti orðið gott,“ segir Skarp- héðinn. Tilbúin fyrir sókn á Bretlandi  Íslandsstofa undirbýr markaðsátak í Bretlandi  Horft til fyrirhugaðra tilslakana á landamærunum  Ferðamálastofa reiknar með allt að milljón erlendra ferðamanna  Íslandsbanki sömuleiðis í háspá 2019 2020 2021 2022 Spá um fjölda erlendra ferðamanna Skv. spá Íslandsbanka og Ferðamálastofu, þúsundir á mánuði Spá Íslandsbanka Bjartari spá, alls tæp 1 milljón árið 2021 Grunnspá, alls um 700 þús. árið 2021 Dekkri spá, alls um 400 þús. árið 2021 Spá Ferðamálastofu 600 þús. til 1 milljón á seinni hluta ársins 2021 Heimild: Þjóðhagsspá Íslandsbanka og Ferðamálastofa 250 200 150 100 50 0 Rauntölur BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íslandsstofa undirbýr að hefja mark- aðssetningu í Bretlandi þegar réttar aðstæður skapast. Tilefnið er ekki síst yfirlýsing Bor- is Johnsons, forsætisráðherra Bret- lands, síðastliðinn mánudag um að takmarkanir á al- þjóðaflugi verði í gildi til 17. maí. Er ákvörðunin hluti af áformum um að draga úr hömlum vegna faraldursins í áföngum. Við þetta bæt- ist að Bretar eru komnir einna lengst í bólusetn- ingu en um 30% Breta hafa fengið sprautu, sem er um sexfalt hærra hlutfall en á Íslandi. Hefur haft jákvæð áhrif ytra Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu, útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, seg- ir yfirlýsinguna hafa haft áhrif ytra. Hér heima sé jafnframt horft til þess að íslensk stjórnvöld hafi boðað varfærin skref til afléttingar á landa- mærunum frá og með 1. maí. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir 27. febrúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.36 Sterlingspund 177.43 Kanadadalur 100.47 Dönsk króna 20.616 Norsk króna 14.993 Sænsk króna 15.23 Svissn. franki 138.4 Japanskt jen 1.1815 SDR 181.38 Evra 153.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.6484 Hrávöruverð Gull 1792.1 ($/únsa) Ál 2223.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.2 ($/fatið) Brent Kristinn Elvar Arnarson, for- stjóri PREMIS, segir sameiningu félagsins við Fjöl- net fela í sér sóknarfæri. Áætlað er að velta sameinaðs félags verði á annan milljarð króna í ár en þau starfa í upplýsingatækni og hafa starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík. Samhliða sameiningunni auglýsir félagið fjögur stöðugildi. Hægt að vera á landsbyggðinni Kristinn Elvar segir þróun fjar- vinnu styrkja reksturinn. „Netið og rekstur tölvukerfa hafa tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og er nú ekkert því til fyrir- stöðu að vera með öflugan rekstur á slíkri þjónustu á landsbyggðinni. Við hjá PREMIS erum virkilega ánægð með að fá jafn öfluga starf- semi til liðs við okkur og raunin er hjá Fjölneti. Við teljum mikil tæki- færi felast í starfsemi þeirra á Sauð- árkróki og munum án efa nota þetta tækifæri til að efla starfsemi PREMIS þar og í nærliggjandi sveitarfélögum,“ segir Kristinn. „Við hjá PREMIS erum sér- staklega spennt fyrir því að fá þessa tengingu við Skagafjörðinn enda eru margir okkar starfsmanna útivistar- fólk. Þau sjá fyrir sér að geta komist á hestbak og í náttúruna í Skaga- firði,“ segir hann. baldura@mbl.is Fjarvinna styrkir félögin Kristinn Elvar Arnarson  PREMIS og Fjöl- net hafa sameinast STUTT Snorri Másson snorrim@mbl.is Farþegar sem lentu á Keflavíkur- flugvelli með flugi frá Varsjá í nótt áttu þess kost að kaupa sér far með flugrútu heim til Reykjavíkur. Það er breyting frá því sem verið hef- ur frá 16. janúar, þar sem rútuferð- ir hafa legið niðri. Orsök þess var sú að Kynnisferðir töldu ekki grund- völl fyrir því að bjóða upp á ferðir á meðan aðeins var leyfilegt að helmingur hámarks- fjölda farþega sæti í rútunni í einu. Að sögn Björns Ragnarssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, hafði samtal við Samgöngustofu þau áhrif að reglugerðin var rýmkuð, þannig að nú er hægt að fylla rút- urnar af farþegum úr sömu vél. Sérferð fyrir hvert flug Björn gleðst yfir því að hægt sé að bjóða upp á ferðir með rútunni á ný, enda hafi borið á því undanfarið að fólk, sem er lögum samkvæmt í sóttkví, hafi þurft að reiða sig á far heim af flugvellinum með fólki sem það má ekki komast í návígi við vegna sóttkvíarinnar. Rútan leysi þann vanda. „Þar lögðum við til að bjóða upp á sérferðir fyrir hvert flug, þannig að farþegarnir munu þegar hafa verið saman í vélinni. Því er að- allega lögð áhersla á að gæta sótt- varna gagnvart bílstjóranum, sem verður einangraður frá farþegun- um,“ segir Björn. Engar ferðir á flugvöllinn Kynnisferðir hafa ekki átt sjö dag- ana sæla í heimsfaraldrinum. Skemmst er frá því að segja að í haust hætti félagið akstri til og frá Keflavík þegar hertar sóttvarna- aðgerðir skullu á en hófu aftur akst- ur í nóvember. Hann stóð til miðs janúar. Enn er ekki grundvöllur fyrir ferðum til Keflavíkur frá Reykjavík enda segir Björn ekki eins brýna þörf á þeirri þjónustu, þar sem fólk sem er að koma frá Reykja- vík er samkvæmt skilgreiningu ekki í sóttkví. Um sex til átta bílstjórar annast aksturinn til Reykjavíkur og má gera ráð fyrir nokkrum ferðum á dag, allt eftir fjölda flugvéla sem lendir á vellinum. Verðið er 3.499 krónur og samkeppnin lítil. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Heimsfaraldur Fjöldi rúta hefur staðið kyrr frá því í vor. Rútuferðir borga sig á ný  Sú fyrsta frá 16. janúar var farin í nótt Björn Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.