Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Ef allt fer að óskum ferheimsbikarmót FIDEfram á eyjunni Mön íoktóber nk. og einn ís- lenskur skákmaður fær þátt- tökurétt. SÍ hefur ákveðið að efna til keppni um sætið sem nefnist Ís- landsbikarinn og verður með útslátt- arfyrirkomulagi. Keppnin hefst þann 6. mars nk. Þeir átta skákmenn sem hafa gefið kost á sér til þátttöku eru Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Guðmundur Kjart- ansson, Margeir Pétursson, Helgi Áss Grétarsson, Bragi Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson. Tefld- ar verða tvær kappskákir með venjulegum umhugsunartíma og ef jafnt verður taka við skákir með styttri umhugsunartíma. Áskorendamótið heldur áfram – HM-einvígið verður í Dubai FIDE hefur ákveðið að áskor- endamótið, sem frestað var í miðjum klíðum vegna Covid-faraldursins, skuli vera til lykta leitt á sama stað í Yekaterinburg í Rússlandi og hefst seinni hlutinn þann 19. apríl nk. Átta keppendur hófu leikinn og eftir fyrri helminginn var staðan þessi: 1.-2. Nepomniachtchi og Vachier- Lagrave 4 ½ v. (af 7) 3. – 6. Caruana, Giri, Grischuk og Wang Hao 3½ v. 7. – 8. Ding Liren og Alekseenko 2½. v. Líklegast er að annar efstu manna öðlist réttinn til að skora á heims- meistarann en allir keppendur eiga enn þá möguleika. Heimsmeistaraeinvígið fer svo fram í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og hefst þann 24. nóvember nk. Þrándur í götu Færeyingurinn Þrándur í götu hefur víða komið við en á þeim skák- mótum sem Magnús Carlsen tekur þátt þessa dagana birtist hann iðu- lega í líki Wesley So. Þessi pollrólegi Filippseyingur sem fluttist til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum hefur á stuttu tímabili í tvígang „stolið“ sigrinum frá Magnúsi á net- skákmótum og einnig má minna á stórsigur hans í úrslitaeinvígi þeirra á HM í „Fischer random“. Á Euro- rapid-mótinu á dögunum sem er hluti nýrrar mótaraðar á netinu komust þeir báðir í gegnum und- anrásir og síðan í úrslitaeinvígið. Magnús komst yfir fyrri daginn, 2:1, en í fjórðu skákinni jafnaði So metin og vann síðan einvígi þeirra seinni daginn, 2½ : 1½. Það verður fróðlegt að sjá viðureignir þeirra á næstunni en Magnús virðist í einhverri lægð þessa daga: Opera Euro rapid 2021, 4. skák: Wesley So – Magnús Carlsen Ítalskur leikur 1 e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d4 exd4 6. e5 d5 7. Bb5 Re4 8. cxd4 Bb6 So hefur valið eldgamalt afbrigði ítalska leiksleiksins sem löngum hef- ur verið talið bitlaust. En það er lengi von á einum. 9. Rc3 O-O 10. Be3 Bg4 11. h3 Bh5 12. Dc2 Bg6 13. Db3 Re7 14. O-O c6 15. Bd3 Rf5 16. Dc2 Rxc3 17. bxc3 Rxe3?! „Vélarnar“ vilja bíða með þennan leik og kjósa frekar 17. .. Dd7. 18. fxe3 Bxd3 19. Dxd3 f6 20. c4 Bc7? Nú byrjar að halla undan fæti. Best var 20. … dxc4 21. Dxc4+ Dd5 o.s.frv. 21. cxd5 Dxd5 22. exf6 22. … gxf6 Auðvitað vissi hann um veik- inguna en 22. .. Hxf6 23. e4 og 24. e5 leit heldur ekki vel út. 23. e4 Dd7 24. Had1 Had8 25. Rh4 Kh8 26. Rf5 c5 27. d5 Be5 28. Hb1 b6 29. Dc4 Hfe8 30. Kh1 Bd4 31. Hf4 31. … Hxe4 Reynir að losa um sig en dugar skammt. Kóngsstaðan er allt of veik. 32. Hxe4 Dxf5 33. Hbe1 Hxd5 34. Hg4 h5 35. He8+ Kh7 36. He7+ Kh8 37. Dc1! - Hnitmiðaður leikur. Svartur gafst upp. Keppt um „Íslands- bikarinn“ og sæti á heimsbikarmóti FIDE Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Hve lengi ætlar rík- isstjórnin að láta meiri- hlutann í Reykjavík teyma sig á asnaeyr- unum? Nú hefur samgöngu- ráðherra tilkynnt að framkvæmdir við mis- læg gatnamót á Reykjanesbraut við Bú- staðaveg, hættulegustu og slysamestu gatna- mót í Reykjavík, verði ekki hafnar á árinu 2021 eins og samgöngu- sáttmálinn, sem undirritaður var í september 2019 og m.a. samgöngu- ráðherra, fjármálaráðherra og borg- arstjóri undirrituðu við mikil fagn- aðarlæti, heldur verði það ekki fyrr en árið 2025. Engar aðgerðir næstu fjögur ár við þessi hættulegustu gatnamót borgarinnar. Í yfirlýsingu sinni minntist ráð- herra ekki einu orði á borgarlínu og þá tugmilljarða króna sem á að eyða í þá framkvæmd á næstu mánuðum og árum. Þar er verið að leggja í vegferð upp á 150-200 milljarða króna, sem aðallega Reykjavíkurborg, rík- issjóður og bíleigendur bera kostnað af. Það ævintýri virðist eiga að halda áfram athugasemdalaust. Er ekki nóg komið af aðgerðarleysi í mikilvægum samgöngubótum í Reykjavík? Eða er það ætlunin að kostnaður við borgarlínu hafi forgang en aðrar samgöngubætur verði látn- ar mæta afgangi. Borgarlínufarsi meirihlutans á greinilega eftir að halda áfram gagn- rýnislaust af hálfu ríkisins, en stór hluti af kostnaði við þá framkvæmd verður greiddur af ríkinu og flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, auk fyrirhugaðra veggjalda á bifreiðaeig- endur. Ekkert aðhafst í skipulagningu Á tímabilinu 2019- 2021 hafði meirihlutinn í Reykjavik nægan tíma til að gera nauðsynlegar ráðstaf- anir í skipulagi mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut við Bústaðaveg, en aðhafðist nánast ekkert í þeim efn- um. Enda liggur fyrir að núverandi meirihluti í Reykjavík er andvígur mislægum gatnamótum þarna. Þessi afstaða og vinnubrögð meiri- hlutans í samgöngumálum borg- arinnar eru síður en svo með öryggi og hagsmuni tugþúsunda bíleiganda í Reykjavík í huga. Markmið meiri- hlutans virðist vera að gera bíleig- endum eins erfitt fyrir og kostur er. Nauðsynlegt er að samgöngu- ráðherra geri nánari grein fyrir þeirri ákvörðun sinni að fresta fram- kvæmdum við byggingu mislægra gatnamóta á Reykjanesbraut við Bú- staðaveg um fjögur ár. Eftir Örn Þórðarson »Er ekki nóg komið af aðgerðarleysi í mik- ilvægum samgöngu- bótum í Reykjavík ? Örn Þórðarson Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins. Hættuástand fram- lengt um fjögur ár Hannes Kjartansson fæddist 27. febrúar 1917 í Reykjavík og ólst upp í Grjótaþorpinu og síð- an í Þrúðvangi á Laufásvegi. Foreldrar hans voru hjónin Kjartan Gunnlaugsson og Mar- grét Berndsen. Hannes varð stúdent frá MR og hóf nám í verkfræði í Dan- zig, sem nú heitir Gdansk, en hvarf frá námi þegar seinni heimsstyrjöldin hófst. Hann fluttist til Bandaríkjanna og veitti þar forstöðu Elding Trading Co. sem þeir bræður, Hannes og Halldór, voru eig- endur að. Rak Hannes þar umsvifa- mikil viðskipti um margra ára skeið og voru falin margvísleg trúnaðarstörf fyrir Ísland. Hann var umboðsmaður Síld- arútvegsnefndar í Bandaríkj- unum, aðalræðismaður Íslands og formaður Íslendingafélags- ins. Árið 1965 var hann skip- aður sendiherra Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og gegndi hann því starfi til dauðadags. Eiginkona Hannesar var El- ín Jónasdóttir, sem var fædd og uppalin í Bandaríkjunum en íslensk í báðar ættir. Hannes og Elín eignuðust þrjú börn. Hannes lést 11. júní 1972 í New York. Merkir Íslendingar Hannes Kjartansson Morgunblaðið/Chess.24.com Erfiður Wesley So hefur átt í fullu tré við Magnús Carlsen undanfarið. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.