Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 30
30 MESSUR Á MORGUN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
✝ SigurbjörnBjörnsson fædd-
ist 2. júlí 1939 á
Hámundarstöðum í
Vopnafirði. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sundabúð
á Vopnafirði 16.
febrúar 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Að-
alheiður Stefáns-
dóttir húsmóðir, f.
20. des. 1914 að Háreksstöðum á
Jökuldalsheiði, d. 14. ágúst
1995, og Björn Elíesersson
verkamaður, f. 25. ágúst 1915 að
Stekk í Vopnafirði, d. 16. jan.
1970.
Systkini Sigurbjörns eru Ant-
onía Margrét, f. 1935, d. 2008,
Elías, f. 1937, d. 2016, Stefán, f.
1941, d. 2009, Alexandra Ásta, f.
1945, Hámundur Jón, f. 1946,
Þorbjörg, f. 1948, Þorgerður, f.
1950, og Aðalbjörn, f. 1955.
Sigurbjörn kvæntist 17. júní
1962 Birnu Björns, verkakonu
frá Seyðisfirði, f. 25. sept. 1942,
d. 9. apríl 2013. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Margrét Unnur
Björnsdóttir og Hjálmar Jacob-
sen. Fósturforeldrar Birnu voru
Grímlaug Margrét Guðjónsdótt-
ir og Björn Björnsson, amma
hennar og afi í móðurætt.
en vann síðan á vertíðum í Vest-
mannaeyjum og á Hornafirði.
Árið 1959 fór hann á vertíð á
Eskifirði og fluttist þangað árið
eftir. Þar kynntist hann Birnu
konu sinni og þar byggðu þau
sér heimili.
Á sjómannsferli sínum var
Sigurbjörn meðal annars háseti
á Guðrúnu Þorkelsdóttur og
Jóni Kjartanssyni frá Eskifirði
og í mörg ár á Eldborginni frá
Hafnarfirði. Árið 1978 fluttu
Sigurbjörn og Birna til Vopna-
fjarðar og hann hóf útgerð með
Stefáni bróður sínum, á Mána,
sem stóð allt til ársins 2009.
Sigurbjörn var í forystu í
verkalýðsbaráttu um áratuga-
skeið. Hann hóf afskipti sín af
verkalýðsmálum á Eskifirði þar
sem hann var formaður sjó-
mannafélagsins. Hann var í
stjórn Verkalýðsfélags Vopna-
fjarðar frá 1981 til 2001, lengst
af formaður, þar til félagið sam-
einaðist fleiri verkalýðsfélögum
á Austurlandi undir nafni AFLs
– Starfsgreinafélags Austur-
lands. Sigurbjörn sat í fyrstu
stjórn AFLs. Á verkalýðsferli
sínum sat hann líka í stjórn Al-
þýðusambands Austurlands og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
á Vopnafirði, sat í stjórn útgerð-
arfélagsins Tanga hf., stjórn
verkamannabústaða, úthlut-
unarnefnd atvinnuleysisbóta og
hafnarnefnd, þar sem hann var
lengi formaður.
Sigurbjörn verður jarðsung-
inn frá Vopnafjarðarkirkju 27.
febrúar 2021 klukkan 14.
Sigurbjörn og
Birna eignuðust
þrjú börn sem öll
búa á Vopnafirði:
1) Unnur Mar-
grét, f. 6. jan.
1962, maki Þor-
steinn Sigurður
Sigurðsson, dóttir
þeirra er Sigur-
björg Margrét, f.
2002. Dóttir Unn-
ar er Birna Krist-
ín Guðnadóttir, f. 1985. 2) Björn
Heiðar, f. 8. maí 1965, maki
Margrét Gunnarsdóttir, synir
þeirra eru Elías, f. 1983, sem á
fjögur börn, maki Viktoría Blön-
dal, og Bjarki, f. 1991. 3) Eygló,
f. 15. júní 1969, dóttir hennar er
Elísa Hrönn Róbertsdóttir, f.
2005.
Tvær dætur Sigurbjörns fyrir
hjónaband eru: 1) Unnur Ósk
Kristjónsdóttir, f. 11. feb. 1959,
býr á Eyrarbakka, börn hennar
eru Drífa Pálína og Egill. 2) Að-
alheiður, f. 28. apríl 1961.
Sigurbjörn ólst upp á Há-
mundarstöðum fyrstu árin en
fluttist sex ára með foreldrum
sínum í Vopnafjarðarkauptún
þar sem þau bjuggu alla tíð síð-
an, lengst af í Ásgarði. Sigur-
björn stundaði sjómennsku í um
hálfa öld, fyrst frá Vopnafirði
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum nú liði í dag!
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
(Eugène Pottier/Sveinbjörn
Sigurjónsson)
Sigurbjörn eða Bubbi bróðir er
fallinn frá á 82. aldursári, eftir
harða baráttu við krabbamein.
Fjögur af níu okkar systkina frá
Ásgarði eru nú látin.
Bubbi var sjómaður, hafði
marga fjöruna sopið og ölduna
stigið. Hann hóf sjómennsku á trill-
um kornungur á Vopnafirði, sigldi
seinna á stærri skipum, en stund-
aði að lokum trilluútgerð í þrjá ára-
tugi með Stefáni bróður okkar.
Bubbi fór ungur á vetrarvertíðir til
Hornafjarðar og Vestmannaeyja
og settist síðan að á Eskifirði og
stofnaði þar heimili með Birnu
Björns. Þar var hann á helstu skip-
um Eskfirðinga, en metnaður hans
stóð til að komast á bestu skipin og
því sótti hann um og fékk pláss á
stærsta skipi íslenska flotans, Eld-
borginni frá Hafnarfirði, og var þar
í 11 ár. Hann flutti síðan til Vopna-
fjarðar 1978 og hóf trilluútgerðina
með Stefáni bróður.
Bubbi var hugsandi maður, eld-
klár og hafði áhuga á að velta fyrir
sér hinum ýmsu málefnum. Hann
var líka mikill og góður verkmaður,
starfaði meðal annars í nokkurn
tíma við múrverk á Eskifirði og
kunni ráð við flestu við smíðar og
handverk.
Hann varð fljótt verkalýðssinni
og sósíalisti, enda var ekki ríki-
dæmi á uppeldisheimilinu, og hann
fann og sá óréttlætið alls staðar í
samfélaginu. Bakgrunnurinn hefur
sjálfsagt mótað hann í þá átt að
vilja taka þátt í að berjast fyrir
bættum kjörum láglaunafólks. Það
gerði hann líka af miklum krafti og
vann gott starf við stjórn Verka-
lýðsfélags Vopnafjarðar, þar sem
hann var formaður í 17 ár.
Bubbi hafði mikil áhrif á mig frá
unga aldri, ég leit upp til hans, leit-
aði oft ráða hjá honum og var stolt-
ur af sjómanninum og síðar verka-
lýðsleiðtoganum. Þegar við vorum
báðir sestir að á Vopnafirði minnist
ég margra góðra stunda okkar
bræðra á heimili þeirra Birnu og á
æskuheimilinu í Ásgarði, þar sem
við ræddum verkalýðsmál og
stjórnmál — þar vorum við alla tíð
samherjar, í Alþýðubandalaginu
og síðan við sameiningu vinstri-
manna í Samfylkingunni. Við átt-
um líka gott samstarf í málefnum
Vopnafjarðar, þar sem Bubbi var
formaður hafnarnefndar í mörg ár
og ég í hreppsnefnd. En það voru
ekki bara samfélagsmálin sem
sameinuðu okkur bræður. Við gát-
um líka rætt fótboltann, þar sem
Bubbi var mikill Einherjamaður
og mætti á alla heimaleiki félags-
ins, og svo ræddum við enska bolt-
ann, báðir dyggir stuðningsmenn
Manchester United.
Seinni árin fækkaði samveru-
stundum, en við hittumst oft á
heimili systra okkar af ýmsu til-
efni. Alltaf var jafn gaman að
spjalla við þennan mikla höfðingja
um alvöru lífsins, en ekki síður að
gleðjast með honum, enda hafði
hann skemmtilegan húmor.
Við sem stóðum Bubba næst
vissum að kallið gæti komið skjótt,
en samt bítur sorgin. Við systkinin
frá Ásgarði, sem eftir lifum, og fjöl-
skyldur söknum tryggs bróður,
mágs og frænda. Mestur er þó
missirinn fyrir börn Bubba og
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Megi minning um góðan mann
verða ykkur styrkur.
Aðalbjörn Björnsson.
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.
(Halldór Laxness)
Það er komið að vetrarlokum
Bubba frænda. Nú fær hann notið
maísólar um tíma og eilífð; sólar
sem hann barðist fyrir að allir
fengju að njóta. Bubbi, föðurbróðir
minn, – leiðtoginn sjálfur – var sá
þriðji elsti í hópi systkinanna níu
frá Ásgarði. Þau systkini eru mér
svo kær enda hafa þau verið okkur
feðgum svo góð. Bubbi var eins og
systkini hans; blíður og hláturmild-
ur en ákveðinn þegar ástæða var
til.
Bubbi og Birna, kona hans,
bjuggu á Vopnafirði alla mína
æsku. Til þeirra var stundum farið
í heimsókn og eins hittist fólk
reglulega í afmælis- og fermingar-
veislum, fjölskylduboðum og grill-
veislum. Árið 2007 eyddum við
tveimur vikum með Bubba og
Birnu og fleiri Ásgarðssystkinum, í
sólinni á Tenerife. Afmælið hans
Bubba er mér minnisstætt.
Bubbi gerði út bátinn Mána með
Stebba bróður sínum frá því ég
man eftir mér og fram til 2009. Það
var ævintýri að fara á sjó með
Bubba og Stebba. Ég var ætíð
montinn af Bubba og Stebba þeg-
ar ég var yngri. Ég var stoltur af
því að bræður pabba míns ættu
trilluútgerð.
Maður heyrði oft sögur af
Bubba, hversu ógnaröflugur hann
hefði verið þegar hann var yngri
og hversu víða hann hefði siglt.
Hann bar þess merki að vera
sigldur. Meira að segja í orðsins
fyllstu merkingu því hann hafði
nælt sér í húðflúr á handlegginn í
einni siglingunni við meginlandið.
Á þetta húðflúr starði maður oft
gapandi á yngri árum. Þá hafði
maður ekki hugmynd um öll æv-
intýri Bubba. Hann hafði unnið
sitt ævistarf.
Þegar ég varð eldri kynntist ég
Bubba enn betur. Við pabbi heim-
sóttum hann stundum, buðum
honum í mat eða hittum hann hjá
einhverjum af systrum þeirra. Þá
var pólitíkin yfirleitt rædd og ekki
var komið að tómum kofunum hjá
Sigurbirni. Hann, eins og systk-
inin öll frá Ásgarði, ólst upp í fá-
tækt og þekkti mikilvægi þess að
samfélagið kæmi lítilmagnanum
til aðstoðar. Síðustu ár Bubba
fékk ég vel að kynnast hans rót-
tæku hlið – sem rímaði að öllu leyti
við skoðanir mínar og Ásgarðs-
systkina. Bubbi var gegnheill jafn-
aðarmaður og sýndi það í verki
sem verkalýðsleiðtogi á Vopna-
firði um árabil.
Fyrir mér var Bubbi frændi
hetja á öllum vígstöðvum; verka-
maður, sjómaður og leiðtogi laun-
þega. Af honum lærði ég margt og
er hann ein ástæða þess að ég finn
kjark til að starfa í pólitík, tala
gegn óréttlæti heimsins og berja í
borðið – eins og leiðtoginn gerði
svo oft.
Elsku frændum mínum og
frænkum, börnum hans, og barna-
börnum færi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur. Bubba verður
sárt saknað. Ég mun geyma minn-
ingu um ljúfan frænda og róttæk-
an jafnaðarmann í hjarta mínu um
ókomna tíð. Hans arfleifð mun
bergmála við hvert spor mitt und-
ir rauðum fána, í kröfugöngum lífs
míns. Bubbi var nefnilega meira
en hetja; hann var verkalýðsmað-
ur!
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd,
því Internasjónalinn
mun tengja strönd við strönd!
(Eugène Pottier/
Sveinbjörn Sigurjónsson þýddi)
Bjartur Aðalbjörnsson.
Sigurbjörn
Björnsson
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. á öðrum sunnudegi í föstu. Sr.
Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar úr kór Árbæjarkirkju
syngja undir stjórn Krisztinu Kalló
Szklenár. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá
Andreu Önnu Arnardóttur og Thelmu
Rós Arnardóttur. Við minnum á grímu-
skylduna fyrir fullorðna og höldum eins
metra regluna í heiðri.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barna-
starf kl. 9.30. Athugið breyttan tíma,
því nú tökum við daginn snemma í Ás-
kirkju og messum framvegis að jafnaði
kl. 9.30, klukkan hálftíu. Jóhanna
María Eyjólfsdóttir djákni leiðir sam-
verustund sunnudagaskólans. Séra
Sigurður Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organ-
isti Bjartur Logi Guðnason.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 17 með fjölskylduvænu sniði. Prest-
ur er Arnór Bjarki Blomsterberg og Dav-
íð Sigurgeirsson leiðir tónlistina.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Steinunn Þor-
bergsdóttir djákni, Steinunn Leifsdóttir
og sr. Magnús Björn Björnsson sjá um
guðsþjónustuna.
BÚSTAÐAKIRKJA |
Barnamessa og sunnudagaskóli
sunnudag kl. 11. Sóley Adda og Jónas
Þórir leiða stundina ásamt prestum.
Guðsþjónusta á sunnudag kl. 13. Ath.
tímann. Kór Bústaðakirkju syngur og
kantor Jónas Þórir er við hljóðfærið.
Messuþjónar aðstoða. Sr. Pálmi Matt-
híasson messar. Munum handþvott og
grímur.
DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11.
Séra Elínborg Sturludóttir prédikar,
Kári Þormar dómorganisti og Dómkór-
inn.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Pétur Ragnhildarson
þjónar og predikar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja undir stjórn Arnhildar Val-
garðsdóttur organista. Meðhjálpari er
Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni. Fermingarbörn
og fjölskyldur þeirra eru hvött til að
mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Grétar Halldór Gunn-
arsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Org-
anisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskólinn er á sama tíma á
neðri hæð kirkjunnar. Umsjón með
honum hafa Ásta Jóhanna Harðardótt-
ir, Hólmfríður Frostadóttir og sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir. Undirleikari er Stef-
án Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir
þjónar ásamt messuþjónum. Ásta Har-
aldsdóttir kantor, annast tónlistina
ásamt Kirkjukór Grensáskirkju. Þriðju-
dagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtu-
dagur: Núvitundarstund kl. 18.15 í
kirkjunni, einnig á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf sunnudag
kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar Jóns-
son. Organisti er Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
safnaðarheimilinu í umsjá sr. Péturs
Ragnhildarsonar og Ástu Guðrúnar.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra að
koma í kirkju. Meðhjálpari Guðný Ara-
dóttir og kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Stefán Már Gunn-
laugsson þjónar fyrir altari og prédikar
og félagar úr Barbörukórnum syngja
undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í Von-
arhöfn í umsjón Bylgju Dísar Gunnars-
dóttur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Messuþjónar aðstoða. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheið-
ur Bjarnadóttir stýra barnastarfinu.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Kordía kór Háteigskirkju leiðir
söng. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sr. Kar-
en Lind Ólafsdóttir leiðir guðsþjónustu
28. febrúar kl. 17. Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir organisti leiðir söng ásamt
félögum úr kór Hjallakirkju.
Ath! Grímuskylda er þar sem minna en
metri er á milli ótengdra aðila.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Kvöld-
smessa 28. febrúar kl. 20. Sólmundur
Friðriksson spilar og syngur. Helga Jak-
obsdóttirog Þórey Eyþórsdóttir eru
messuþjónar. Sr. Erla Guðmundsdóttir
þjónar.
Við vekjum athygli á að kyrrðarstundir
eru hafnar á ný, alla miðvikudaga kl.
12 í kirkjunni.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Sigurður
Jónsson þjónar við messuna, Marta og
Pétur taka vel á móti krökkunum í
sunnudagaskólanum. Félagar úr Fíl-
harmóníunni leiða sönginn undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista.
Einsöng syngur Sigurbjörg Telma
Sveinsdóttir, nemi í Söngskólanum.
Kaffisopi að messu lokinni. Minnum á
eldriborgarastarfið alla miðvikudaga
kl. 12.10.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Laugarneskirkju og
Kristján Hrannar Pálsson organisti. Sr.
Hjalti Jón Sverrisson þjónar og prédik-
ar. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ilinu á meðan.
Mán. 1.3. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkjan
opnuð kl. 19.30. Kristin íhugun.
Mið. 3.3. Foreldrasamvera kl. 10-12.
Helgistund í Félagsmiðstöðinni Dal-
braut 18-20 kl. 14.
Fim 4.3. Opið hús í Áskirkju kl. 12.
Helgistund og léttur hádegisverður.
Virðum fjöldatakmarkanir og aðrar
sóttvarnareglur.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20.
Óskar Einarssonar og félagar úr Kór
Lindakirkju leiða lofgjörðina. Sr. Guðni
Már Harðarson þjónar.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr kór Neskirkju syngja og
leiða söng undir stjórn Steingríms
Þórhallssonar organista. Kjartan Hugi
Rúnarsson leikur á saxófón. Prestur
er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Sunnudagaskólinn hefst kl. 11. Krist-
rún og Hrafnhildur Guðmundsdætur
leiða hann og Ari Agnarsson leikur
undir.
Kaffi og samfélag á Torginu að stund-
unum loknum.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tónlistar-
messa, barnarstarf, Maul eftir
messu. Vörumst veiruna notum vit-
vörn (grímuna) svo sem kostur er.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11 með söng og gleði, Biblíusögu og
brúðuleikriti. Ávaxtahressing í lokin
og mynd til að lita.
Guðsþjónusta kl. 13, sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar, Kór Seljakirkju
syngur undir stjórn Tómasar Guðna
Eggertssonar, messukaffi í lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Hvers vegna
horfa Íslendingar til Kúrda? Ögmund-
ur Jónasson, fv. alþingismaður og
ráðherra. Sunnudagaskóli og guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Leiðtogar sjá um sunnu-
dagaskólann. Félagar úr Kammerkór
Seltjarnarneskirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Kaffiveitingar eftir at-
höfn í safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Kór Seyðisfjarðar-
kirkju leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti er Rusa Petriashvili.
Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Meðhjálpari er Jóhann Grétar Einars-
son ásamt fermingarbörnum.
Munum gildandi sóttvarnareglur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Prestur er Egill Hall-
grímsson. Organisti er Jón Bjarna-
son. Vegna fjöldatakmarkana er hægt
að tryggja sér aðgang með því að skrá
sig á síðunni sregill.net.
STÓRUBORGARKIRKJA Gríms-
nesi | Bæna- og kyrrðarstund þriðju-
dagskvöld 2. mars kl. 20.30.
Vegna fjöldatakmarkana er hægt að
tryggja sér aðgang með því að skrá
sig á síðunni sregill.net.
TORFASTAÐAKIRKJA Biskups-
tungum. | Guðsþjónusta sunnudag
kl. 14. Prestur er Egill Hallgrímsson.
Organisti er Jón Bjarnason. Vegna
fjöldatakmarkana er hægt að tryggja
sér aðgang með því að skrá sig á síð-
unni sregill.net.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta
með þátttöku fermingarbarna kl. 11.
Hljómsveitin Sálmari leikur undir
söng og sr. Henning Emil Magnússon
þjónar fyrir altari. Almar Guðmunds-
son fermingarfaðir ávarpar. Sunnu-
dagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10 og
kl. 11 í safnaðarheimili Vídalíns-
kirkju. Matthildur Bjarnadóttir æsku-
lýðsfulltrúi leiðir sunnudagaskóla-
starfið.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Víðistaða-
sóknar syngur undir stjórn Helgu Þór-
dísar Guðmundsdóttur organista og
Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur
þjónar með aðstoð messuþjóna.
Morgunblaðið/Ómar
Stokkseyrarkirkja