Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 ✝ Vífill Frið-þjófsson, skip- stjóri og sjómaður, fæddist á Seyð- isfirði 14. maí 1942. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Austurlands, Seyð- isfirði, 11. febrúar 2021. Foreldrar Vífils voru Dagný Einarsdóttir, f. 16. janúar 1901, d. 6. júlí 1968, og Friðþjófur Þór- arinsson, f. 12. ágúst 1898, d. 22. nóvember 1984. Systkini Vífils: Hallsteinn Friðþjófsson, f. 4.5. 1940, d. 26.4. 2018, og drengur Frið- þjófsson, f. 4.5. 1940, d. 5.5. 1940. Systkini Vífils sammæðra eru 8: Guðlaug Einarsdóttir, f. 28.10. 1921, d. 28.11. 1999, Rósa Einarsdóttir, f. 18.10. 1922, d. 5.6. 2005, Garðar Einarsson, f. 23.5. 1925, d. 20.8. 1995, Birna Einarsdóttir, f. 28.6. 1926, d. Vífill ólst upp á Vestdalseyri við Seyðisfjörð. Hann bjó alla sína tíð á Seyðisfirði og byrj- aður ungur til sjós. Hann stofn- aði útgerð með bræðrum sínum Hallsteini og Aðalsteini. Þeir festu kaup á bátnum Litla-Nesi. Vífill veiktist og fékk heilablóð- fall sem gerði að verkum að hann varð að hætta vinnu árið 1985. Heilsan hafði mikil áhrif á persónuleika hans og hægt að segja að veikindin hafi haft já- kvæð áhrif á hann félagslega. Hann flutti inn á Hjúkrunar- heimilið Fossahlíð þar sem hann bjó þar til fyrir u.þ.b. 17 árum, en þá fékk hann annað áfall sem gerði það að verkum að hann var með fasta búsetu á Heilbrigðisstofnun Seyðisfjarð- ar allt til dánardags. Útför Vífils verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 27. febrúar 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/pdjaztuz/. Virkan hlekk á streymið má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/. 17.11. 1987, Sig- urveig Einars- dóttir, f. 18.9. 1927, d. 10.7. 2011. Að- alsteinn Einarsson, f. 9.6. 1929, d. 5.4. 2010, Ingi Ein- arsson, f. 23.11. 1930, d. 7.5. 2010, og Einína Aðal- björg Einarsdóttir, f. 13.4. 1932, d. 22.6. 2004. Vífill átti eina dóttur, Ingu Gerði Vífilsdóttur, f. 25.7. 1963, maki Heimir H. Eðvarðsson, f. 23.1. 1964, börn þeirra eru Eð- varð Þór Heimisson, f. 6.4. 2000, Andri Hafsteinn Heim- isson, f. 10.2. 1991, Ingi Björn Harðarson, f. 10.1. 1994. Ingi Björn er í sambúð með Bryndísi Guðmundsdóttur, f. 22.10. 1991 og eiga þau eitt barn, Ísabellu Sól, f. 8.1. 2020, fyrir átti Bryn- dís Emmu Fletcher, f. 12.2. 2014. Kynni okkar Vífils hófust, fyrir alvöru, er við rerum saman á Engey árið 1967. Þar sem ég var, 10 ára gamall, á sjó með pabba ásamt mörgum öðrum góðum Seyðfirðingum. Vífill var traustur og ráðagóður vinnufélagi sem féll aldrei verk úr hendi. Með okkur tókust ævilöng vinabönd sem aldrei féll skuggi á. Við sem þekktum Vífil vitum að hann varð aldrei samur eftir alvarleg veikindi árið 1985. Hann var þó áfram hvers manns hug- ljúfi og aldrei var haldin veisla innan fjölskyldunnar þar sem Víf- ill var ekki mættur fyrstur manna. Best þótti honum auðvit- að ef við fengum tækifæri til að skála í köldum bjór. Við fórum einnig í styttri ferðalög saman. Keyrðum um mestallt Austur- land og víðar. Vífill var mikill og góður fjöl- skylduvinur. Hann var afar góður vinur foreldra minna en þau þrjú tóku ófá spilin saman á Gilsbakk- anum. Um árabil leið varla sú vika á sjónum þar sem ég heyrði ekki í Vífli þar sem við ræddum landsins gagn og nauðsynjar. Eft- ir að Vífill flutti á Suðurgötuna skipta heimsóknir mínar þangað hundruðum. Alltaf var gott að hitta hann, spjalla og eiga góða stund saman. Vífill var gestrisinn með eindæmum og tók yfirleitt ekki annað í mál en að bjóða manni upp á bjór. Eftir því sem á leið dró úr lífskraftinum en alltaf var samt brosið, hláturinn og húmorinn skammt undan, allt til enda. Um leið og ég óska vinum mín- um góðrar ferðar á ný mið send- um við fjölskyldan Ingu Gerði og fjölskyldu hugheilar samúðar- kveðjur, minningin um traustan og góðan félaga lifir. Sveinbjörn Orri. Samskipti okkar Vífils byrjuðu ekki fyrr en ég var orðin rúmlega tvítug og hann fór að heimsækja mig suður til Reykjavíkur. Fyrir þann tíma hafði ég lítil samskipti haft nema á afmælum og jólum. Það sem mér er minnisstæðast er að þegar hann kom þá var alltaf mikið fjör og stutt í hlátur. Strák- arnir mínir hlökkuðu alltaf til þar sem það komu oftar en ekki upp spaugilegar hliðar. Við fórum í margar eftirminnilegar sumarbú- staðaferðir. Í minningunni var þetta góður tími en allt of stuttur þar sem Vífill fékk annað áfall og varð rúmliggjandi upp frá því. Blessuð sé minning þín. Inga Gerður Vífilsdóttir og fjölskylda. Vífill Friðþjófsson Elsku afi minn, sumarið 2019 er mér svo minnis- stætt, þá fórum við nefnilega saman með pabba og félögum ykkar í frábæran veiði- túr. Við tveir gistum saman í herbergi og það var svo gaman að sjá hvað þú naust þess að vera í þessum veiðitúr þrátt fyr- ir veikindi þín. Ég mun sakna þess að keyra bryggjurúntinn með þér og að fara í sund. Eig- inlega fórum við alltaf saman í sund þegar ég var hjá ykkur. Það er skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn og ég mun sakna þess ótrúlega að fá þig ekki til okkar til Hamborgar á sumrin og yfir jólin. Takk fyrir allt afi minn. Þinn Tómas (Tommi). Elsku afi Tommi, besti afi í heimi eins og við kölluðum þig oft. Ég á óteljandi fallegar minningar og var svo heppin að fá að eyða svona miklum tíma með þér. Ég elskaði að koma upp á Skaga til ykkar ömmu, helst með Akraborginni og að vera eins lengi og mögulegt var. Við höfðum alltaf nóg fyrir stafni, fórum endalaust á rúntinn, nið- ur á Langasand og á hverjum degi í sund, eins og þú gerðir daglega. Þú bauðst mér oft með á skrifstofuna þína í Sementverk- smiðjunni þar sem ég var kölluð Tómasína og mátti prófa öll tæki og tól. Mér þótti svo vænt um að geta séð skorsteininn af Sementverksmiðjunni frá Vest- urbænum þegar við bjuggum þar. Svona fannst mér ég alltaf geta séð þig og sagði stolt frá strompinum hans afa. Mér þótti ótrúlega vænt um þennan ljóta Tómas Jóhannes Runólfsson ✝ Tómas Jóhann-es Runólfsson fæddist 6. apríl 1941. Hann lést 19. febrúar 2021. Útför Tómasar fór fram 26. febr- úar 2021. skorstein. Þú varst alltaf til í öll ævintýri með mér. Þegar mig dreymdi um að komast í útilegu tjaldaðir þú fyrir mig í garðinum. Fórst með mig upp í Byggðarsafn Þar sem við sigldum á kútternum út um allan heim. Þú kenndir mér svo margt og sagð- ir mér alls konar sögur þegar við rúntuðum um bæinn. Ég hef alltaf litið upp til þín elsku afi, þú varst með stórt hjarta, alltaf svo yfirvegaður og gafst okkur öllum mikið öryggi. Ég var og er svo stolt að eiga besta afa í heimi. Þú varst alltaf rosalega flott- ur og vel klæddur. Við elsk- uðum að fara með þér í búð- arrölt og alltaf uppfylltir þú alls konar tískudrauma okkar. Ekk- ert skrítið að við mæðgurnar opnuðum fatabúð í Hamborg og auðvitað varst þú til í að smíða mátunarklefana fyrir okkur. Eftir að við fluttum út hittumst við fjölskyldan oft og reglulega og nutum þess að fá að eyða svona miklum tíma saman. Það var alltaf svo gott að fá ykkur ömmu í heimsókn og við héldum fast í okkar hefðir. Við lifðum í voninni að fá ykkur loksins bráðum út til okkar, þú baðst mig um að telja tröppurnar upp í nýju íbúðina sem við ætluðum að flytja í núna um helgina af því þú ætlaðir að koma í heim- sókn. Síðasta ár var erfitt, ég vildi að við hefðum getað eytt meiri tíma saman og þú kynnst Ara Fridrik betur. Þín mun verða svo sárt saknað. Hvíldu í friði elsku afi, þú munt alltaf eiga stórt pláss í hjarta mínu. Þín Kristrún Sara. Elsku Tommi. Það er óskap- lega sárt að skrifa þessi orð. Þú ert eini bróðir pabba og eina systkin hans. Fjölskyldur okkar hafa alltaf verið duglegar að hittast og er ég svo þakklát fyr- ir að hafa notið samveru þinnar og Kiddýjar á aðfangadag nú síðastliðinn. Við áttum svo góða stund sem við munum geyma í hjarta okkar um alla eilífð. Að- fangadagur hefur alltaf verið tilhlökkunarefni og á Vallar- brautinni hjá ömmu og afa voru alltaf haldin jól með okkur öll- um. Við minnumst þeirra oft sem hitabeltisstemmningar því það varð ansi heitt í íbúðinni þegar við vorum öll komin þar saman og voru því jólafötin oft- ar en ekki valin með það í huga. Ég og þú áttum í vissu stríði yf- ir Macintosh-dallinum því okkur fannst tveir molar langbestir sem voru appelsínuguli og rauði, sem oftar en ekki eru þeir sem flestir skilja eftir. Ég held samt þegar ég lít til baka að þér hafi ekkert endilega fundist molarnir bestir, þú varst að stríða mér með þessu og það fannst þér ekki leiðinlegt. Skríkjandi barnið og ungling- urinn ég, að ærast yfir namm- inu. Tommi, þú varst í mínum huga alltaf hress, skemmtilegur, stríðinn, orðheppinn og þér fannst gaman að segja sögur. Gaman að rifja upp gamla tíma og hlæja. Ég mun sakna þess að heyra „Þórhildur – ég ætla að segja þér…“ Með árunum hefur þú orðið enn líkari afa Runólfi í fasi og ég man þegar ég hitti þig eitt sinn eftir að hafa ekki séð þig lengi að mér brá örlitíð í fyrstu því mér fannst ég sjá ljóslifandi Afa Runólf – með aðra hönd í vasa og eitthvað að fikta með hinni og hálfvaggandi – kannski hreyfing sem er erfitt að lýsa, en ég sé það fyrir mér þegar ég hugsa um þig og líka afa. Það verður ekkert eins án þín og stórt skarð í okkar litlu fjöl- skyldu verður ei fyllt. Við mun- um öll sakna þín og ylja okkur á góðum minningum. Elsku Tommi – stundum köll- uðum við þig afa Tomma, með von um að nú líði þér vel og amma og afi taki vel á móti þér. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þórhildur og fjölskyldan á B15. Í dag verður jarðsunginn mikill vinur okkar hjóna,Tómas Runólfsson. Tommi eins og hann var oftast kallaður var ótrúlega mörgum kostum búinn. Hann var lærður mublusmiður og völundur í höndunum við hvers konar verkefni, en einnig var hann ótrúlega talnaglöggur maður. Það uppgötvuðu stjórnendur sementsverksmiðjunnar þegar Tommi vann við smíðar í verk- smiðjunni. Þeir réðu hann til starfa á skrifstofunni og vann hann þar síðan allan sinn starfs- aldur og var farsæll og virtur starfsmaður. Vinskapur okkar Tomma hófst í knattspyrnunni í yngri flokkum ÍA. Þar komu fram miklir hæfileikar hans í þeirri íþrótt, meðal annars var hann einn af fyrstu gulldrengj- um Skagans og þótt víðar væri leitað. Hann var einnig hörkugóður skákmaður og bridsspilari. Sem ungir menn urðum við nánari vinir þegar við eignuðumst vin- konur að lífsförunautum. Þá tóku við samverur eins og þær gerast bestar hjá vinafólki. Hjálpast að við íbúðagerð, farið saman í ferðalög innanlands og utan, skemmtanir og veiðiferðir að ógleymdu barnauppeldi. Aldrei bar skugga á þennan vinskap. Það var mikil gæfa fyr- ir Tomma að eignast hana Kristrúnu Guðmundsdóttur fyr- ir eiginkonu og félaga. Hún var hans klettur í blíðu og stríðu. Þau hafa verið samtaka á öllum lífsins leiðum á langri ævi. Þau eignuðust eina dóttur, hana Fríðu Björk. Hún gaf þeim þrjú barnabörn og eitt langafabarn. Þessi hópur var gullið hans Tomma. Það hefur alltaf verið notalegt að heimsækja þau hjón, bæði einstök snyrtimenni og fagurkerar og heimilið í sam- ræmi við það. Það var mikið áfall þegar Tommi veiktist af gigt sem lagðist á lungu hans. Þetta ágerðist og felldi þennan indæla vin okkar að lokum. Söknuður okkar hjóna er mikill, en sárastur er söknuður Krist- rúnar, Fríðu Bjarkar, Bjarna og barna þeirra, Kristrúnar Söru, Heiðrúnar og Tomma yngri. Við biðjum alla góða vætti að gefa ykkur styrk í sorginni. Sendum ykkur samúðar- kveðjur. Þórður og Silja. Okkur var að berast sú harma- fregn að Hafdís Engilbertsdóttir hefði lokið sinni jarðvist og væri nú komin inn í ljósið. Við hittum Hafdísi fyrst þegar við vorum öll í tilhugalífinu og munum við vel þegar Baldvin kynnti okkur fyrir dísinni sinni. Þar var Hafdís mætt hress og kát eins og hennar var vandi og ein- kenndi hana allt hennar líf. Alltaf svo glöð, jákvæð og hvetjandi. Höfðum reyndar heyrt frá Ingu frænku að Baldvin ætti vinkonu sem hefði mikinn áhuga á Víet- namstríðinu. Að hennar sögn voru turtildúfurnar með stöðug funda- höld fyrir lokuðum dyrum í her- bergi Baldvins. Við eigum ótal minningar frá skíða- og skútuferðum víðsvegar um heiminn. Fyrsta skíðaferðin okkar utan landsteinanna var til Anzére í Sviss. Þar höfðum við leigt stórt hús þar sem við gátum troðist inn með barnaskarann okkar. Mikið var hlegið og dansað að loknum farsælum skíðadögum. Fyrsta skútuferðin saman var til Jómfrúaeyja í Karíbahafi. Sigling- arnar urðu fleiri og fórum við nokkrar ferðir bæði í Miðjarðar- og Karíbahafið. Það sem ein- kenndi allar þessar ferðir var gleði, hlátur og ævintýr og var það ekki síst gleðipinnanum henni Hafdís Engilbertsdóttir ✝ Hafdís Eng-ilbertsdóttir fæddist 7. ágúst 1951. Hún lést 3. febrúar 2021. Hafdís var jarð- sungin 19. febrúar 2021. Hafdísi að þakka. Mat- arboðin hjá Hafdísi og Baldvini voru alltaf tilhlökkunarefni, mat- urinn og eftirréttirnir voru frábærir og fal- lega frambornir og umræðurnar inni- haldsríkar og skemmtilegar. Hafdís hefur verið okkur mjög góð og kær vinkona og við álítum okkur heppin að hafa feng- ið að fylgja henni í gegnum lífið og búa til ómetanlegar minningar. Hafdís var alltaf hraust og fór vel með sig en svo bankaði vágestur- inn upp á öllum að óvörum. Hún sýndi hetjudáð með því að hætta lyfjatöku og reyna óhefðbundnar aðferðir sem styrktu hana andlega og gerðu henni auðveldara að tak- ast á við örlögin. Saman stóðu þau Baldvin í gegnum þessi erfiðu verkefni og voru alltaf samstiga. Baldvini, börnum, tengdabörn- um, barnabörnum og systkinum vottum við innilega samúð og megi minningin um Hafdísi lifa. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm og verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjar dóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni og nú ert þú gengin á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Blessuð sé minning þessarar einstöku konu sem gladdi svo marga með yndislegri nærveru sinni. Katrín og Gunnar. Elskulegur frændi okkar, KRISTJÁN INGÓLFSSON frá Miðfelli, Þingvallasveit, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 23. febrúar. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 3. mars klukkan 13. Systkinabörn hins látna Ástkær systir, mágkona og frænka, VIKTORÍA BRYNDÍS VIKTORSDÓTTIR fótaaðgerðafræðingur, Sóltúni 16, lést á Landspitalanum 16. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 4. mars klukkan 13. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Einnig verður athöfninni streymt á https://youtu.be/DLBbZIFM1Rs og hægt verður að nálgast virkan hlekk á mbl.is/andlat Haukur A. Viktorsson Gyða Jóhannsdóttir Jóhann Árni Helgason Þóra Einarsdóttir Jón Ari Helgason Ingibjörg Sæmundsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA HÁKONARDÓTTIR, Birkiteigi 35, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 2. mars klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Innilegar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og D-deildar HSS. Hákon Örn Matthíasson Hildur Guðrún Hákonardóttir Ingibjörg Samúelsdóttir Guðmundur Óli Jónsson Karl Samúelsson Svanfríður Guðrún Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.