Morgunblaðið - 27.02.2021, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
✝ Sigrún fæddistí Reykjavík 6.
febrúar 1941. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
15. febrúar 2021.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir, f. 1913,
d. 1997, og Marinó
Ólafsson
verslunarmaður, f.
1912, d. 1985. Systkini Sigrún-
ar voru Lovísa Margrét, f.
1937, gift Njáli Þorsteinssyni
og Jón Örn, f. 1946, kvæntur
Sigríði Dagbjörtu Sæmunds-
dóttur.
Sigrún giftist 5.10. 1962
Guðlaugi Gauta Jónssyni arki-
tekt, f. 27.4. 1941. Þau skildu.
Reykjavíkur. Hún lauk skyldu-
námi í Melaskóla, útskrifaðist
úr Kvennaskólanum 1958 og
stundaði vetrarlangt enskunám
í Cambridge í framhaldi af því.
Eftir nám var hún var flug-
freyja um nokkurra ára skeið
og gegndi síðan fjölbreyttum
skrifstofustörfum þar til hún
gerðist læknaritari á Landspít-
alanum. Það má segja að Sig-
rún hafi lengst af háð baráttu
um heilsufar sitt og árið 1992
var hún greind sem öryrki og
stundaði ekki reglulega vinnu
eftir það.
Sigrún var annálaður fag-
urkeri og allt í kringum hana
var einkar fallegt og smart.
Það átti við föt, liti, húsbúnað
allan og hvað eina. Hún var
lestrarhestur á fagurbókmennt-
ir og hlustaði mikið á klassíska
tónlist, ekki síst óperusöng þar
sem hún átti sér jafnan eftir-
lætissöngvara. Þessa var hún
hætt að geta notið síðasta árið.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Synir þeirra eru:
1) Jón Gauti, ráð-
gjafi á geðdeild í
Osló, f. 5.6. 1961.
Fyrri kona hans
var Guðrún Bryn-
dís Guðmunds-
dóttir læknir, f.
20.7. 1963. Börn
þeirra eru: Sigrún
Elfa og Brynjólfur
Gauti. Seinni kona
hans er Vibeke
Seim geðhjúkrunarfræðingur,
f. 4.7. 1970. Börn þeirra eru:
Johannes Gauti og Anna. 2)
Kári Gauti læknir, f. 4.1. 1980.
Kona hans er Jórunn Odds-
dóttir, f. 31.5. 1986, hjúkr-
unarfræðingur. Þeirra börn
eru Ísold og Oddur Gauti.
Sigrún ólst upp í vesturbæ
Sigrún Ólöf Marinósdóttir var
eftirtektarverð ung stúlka. Hún
var glæsileg í allri framgöngu,
fremur hávaxin og andlitsfallið
suðrænt, ávallt fallega og smekk-
lega klædd. Hún vakti athygli
ungra manna, talaði hressilega
við þá og hló þá stundum svo eft-
ir var tekið. Hún kom inn í vina-
hóp nokkurra unglingsstráka,
sem áttu eftir að halda saman í
marga áratugi. Öllum þótti þeim
vænt um Sigrúnu.
Lífið kom að okkur eftir ýms-
um leiðum. Fyrstu kynni okkar
Sigrúnar voru þau, að hún bauð
mér á Kvennaskólaball, sem
haldið var í gamla Sjálfstæðis-
húsinu við Austurvöll. Ég var
stoltur fylgdarmaður glæsilegrar
konu. Nokkrum árum síðar gift-
ist hún einum af mínum bestu
vinum, Guðlaugi Gauta Jónssyni,
sem síðar varð arkitekt. Þau
hurfu til Achen í Þýskalandi og
voru þar í nokkur ár. Á meðan
Gauti var við nám lærði Sigrún
til læknaritara. Eftir heimkomu
starfaði hún um tíma á auglýs-
ingastofu gömlu gufunnar, RÚV,
og síðar sem læknaritari.
Við hjónin, Hrefna og ég, átt-
um margar góðar stundir með
Sigrúnu og Gauta. Það voru
gæðastundir. Sigún kenndi okk-
ur að meta þýskan mat og tón-
list. Hún kynnti okkur fyrir
söngkonunni Hildegard Knef og
bragðgóðum þýskum laukrétti,
zwiebelkuche. Sjálf var hún mik-
ill menningarneytandi og voru
góðar bækur hennar mesta yndi.
Þar á eftir kom tónlistin. Hún
var sannkallaður lestrarhestur,
spændi í sig bækur á miklum
hraða, kynnti sér ævi þekktra
rithöfunda og var fróð á þessum
vettvangi menningarinnar.
Okkar bestu og skemmtileg-
ustu ferðir voru ekki til útlanda,
heldur út í litla eyju á Breiða-
firði, Bíldsey, sem vinur okkar
Árni Helgason í Stykkishólmi
átti. Við gerðum við hann samn-
ing um að fá að dvelja í eynni
gegn því, að við máluðum húsið
þar að utan. Í þessari eyju
bjuggu forfeður mínir um tíma
og síðar Sigurður Breiðfjörð
rímnaskáld. Andlegi félagsskap-
urinn var því í góðu lagi. Þarna
leið okkur vel, hvort sem var á
gönguferðum um eyna eða sitj-
andi utandyra á lognværum
kvöldum. Öll sáum við framtíðina
í nokkrum hillingum og allar
áhyggjur hurfu í ölduna, sem
stöðugt gældi við grjót og sand í
fjörunni, og svæfði okkur hvert
kvöld.
Um miðjan aldur fór heilsa
Sigrúnar mjög versnandi og hún
glímdi stöðugt við erfiða sjúk-
dóma. Sigrún og Gauti slitu sam-
vistir, en ég er ekki frá því, að
samband þeirra hafi aldrei verið
hlýrra og innilegra en hin síðari
árin. Gauti sinnti fyrrum eigin-
konu sinni af natni og kærleika.
Hann fær mörg prik fyrir það.
Synir þeirra, Jón Gauti og Kári,
voru móður sinni góðir. Þeir hafa
verið búsettir erlendis og í Co-
vid-umsátrinu voru ferðir á milli
landa ekki auðveldar.
Nú er löngu stríði lokið. Við
hjón þökkum Sigrúnu fyrir að
ganga með okkur drjúgan spöl
eftir lífsins holótta vegi. Þeir tín-
ast nú burtu gömlu vinirnir:
Stutt er lífið,
lítið eitt af von, sem deyr,
dálítið af draumum
–og síðan ekki söguna meir.
(Magnús Ásgeirsson þýddi)
Árni Gunnarsson og
Hrefna Filippusdóttir.
Sigrún Ólöf
Marinósdóttir
✝ KormákurJónsson fædd-
ist á Akureyri 13.
júní 1954. Hann lést
á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 12. febr-
úar 2021. Foreldrar
hans voru Jón
Gunnlaugur Stef-
ánsson, f. 20. janúar
1926, d. 7. desem-
ber 1956, og Áslaug
Kristjánsdóttir, f.
14. september 1927. Hún lifir son
sinn.
Systkini Kormáks í föðurætt
eru:
Stefán Karl, f. 18. september
1946. Hans kona Filippía Stein-
maí 1951. Hans kona Pálína Dag-
björt Björnsdóttir. Þau skildu.
Narfi Björgvinsson, f. 27. des-
ember 1959. Hans kona Hanna
Hauksdóttir.
Teitur Björgvinsson, f. 26. júlí
1961. Hans kona Theodóra
Kristjánsdóttir.
Einnig átti Kormákur fjögur
uppeldissystkini, Grím, Þórhildi,
Erling og Hrein Vilhjálmsbörn.
Þórhildur og Erlingur eru látin.
Útför Kormáks fer fram frá
Einarsstaðakirkju á morgun,
sunnudaginn 28. febrúar 2021,
klukkan 14.
Athöfninni verður streymt á
Facebooksíðu kirkjunnar. Slóð á
streymið:
https://fb.me/e/1Y9WrE1qg/.
Einnig er hægt að nálgast
virkan hlekk á:
https://www.mbl.is/andlat/.
unn Jónsdóttir.
Anna Marý, f. 4.
júlí 1948. Hennar
maður Jón Ragn-
arsson.
Þorsteinn, f. 31.
maí 1952. Látinn.
Sólveig Björk, f.
17. janúar 1954.
Hennar maður Stef-
án Björnsson.
Bræður Kor-
máks í móðurætt
eru:
Kristján Sigurbjarnarson, f.
11. janúar 1950, d. 24. apríl 2011.
Hans kona Ólöf S. Valdimars-
dóttir.
Valtýr Sigurbjarnarson, f. 22.
Harmafregn barst mér á
föstudagsmorgni 12. febrúar sl.
Frænka mín, Guðný Grímsdóttir,
hafði hringt í mig deginum áður
og tilkynnt mér að Kormákur,
Maggi bróðir, hefði slasað sig.
Ég var þá fyrir sunnan og tók
fyrstu ferð norður. Hann lést um
nóttina en ég gat samt verið til
staðar að morgni, heimsótt aldr-
aða móður og sagt henni andlát
sonar.
Nú leitar hugurinn heim í
Kinn. Þar ól ég mína æsku heima
í Hlíð þar sem ég fékk ástríkt
uppeldi. Maggi bróðir ólst upp á
Rauðá. Um hann á ég góðar
bernskuminningar, enda Rauð-
árfólk nokkuð sérstakt. Þangað
var nú aldeilis gaman að koma.
Spilað á fiðlu, harmonikku og
orgel. Smíðaðir rokkar, já næst-
um allt sem hægt er að smíða.
Rauðárfólki er snilligáfa í blóð
borin. Villi gamli mikill völundur
og það erfðu börnin. Músíkin
meðfædd, einnig úr móðurætt-
inni. Þetta voru uppeldisaðstæð-
ur Magga bróður. Hann naut
þeirra og drakk í sig allt hið
góða, vandvirkni og handverk,
enda einstaklega góður smiður.
Þarna ríkti vinátta, ró og friður
og Grímur á Rauðá sagði mér að
sér og bróður mínum hefði aldrei
orðið sundurorða. Það finnst mér
góður vitnisburður um þá báða.
Kormákur lærði til smiðs og
búnaðarstarfa. Hann vann lengst
af sem smiður hjá Snæbirni
Kristjánssyni og síðar hjá Krist-
jáni syni hans, sem voru með
verkstæði við Laugar í Reykja-
dal. Áður hafði hann m.a. verið í
vinnumennsku í Kálfsskinni á
Árskógsströnd, bæði við smíðar
og landbúnaðarstörf. Einnig
vann hann í Sigtúnum í Eyja-
fjarðarsveit. Öllu fólkinu á þess-
um stöðum bar hann vel söguna
og mat það mikils. Fyrir allt það
ber að þakka.
Þá lagði bróðir einnig í víking.
Fór til Noregs og vann þar ýmis
störf, m.a. á búi með íslenska
hesta þar sem hann naut sín vel
og eigandi býlisins kom með hon-
um til Íslands til að kaupa hross.
Mér er minnisstæður kvöldverð-
ur á þáverandi heimili mínu í
Kópavogi. Að sjálfsögðu lamba-
kjöt í matinn. Maggi hefði nú
trúlega frekar viljað ærket en
það var ekki til. Mikil var gleðin,
margt rætt og skrautleg tungu-
málasamræða.
Kormákur kvæntist sinni
konu, Hólmfríði Jónsdóttur frá
Fagraneskoti, 11. nóvember
2001. Þau byggðu sér einstak-
lega fallegt heimili við Hólaveg á
Laugum. Þeim varð ekki barna
auðið. Hólmfríður lést eftir erfið
veikindi 21. janúar 2006. Árið
2009 kynntist bróðir minn góðri
konu, Marsibil Kristjánsdóttur,
og flutti hún til hans á Hólaveg-
inn þar sem þau bjuggu saman til
ársins 2018. Þau áttu ljúf ár sam-
an, m.a. í árlegri dvöl í hjólhýsi í
Vaglaskógi. Þar trúi ég að liðið
hafi margar góðar stundir við
birkisins angan og blómanna ilm.
Hestamennska var alltaf stór
þáttur í lífi Kormáks, alveg frá
bernskudögum. Marga gæðinga
átti hann og naut þess virkilega
að umgangast þá, bregða sér á
bak og vera kóngur um stund.
Vona að bróðir kær komist fljótt
í hnakkinn á góðum fáki í nýrri
og betri tilveru.
Nú er komið að leiðarlokum.
Þá er gott að geta hugsað til
baka með þakklæti fyrir góðar
samverustundir. Kveð með orð-
um uppáhaldsskáldsins míns:
Flýt þér, vinur, í fegri heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Móður minni sendi ég innileg-
ar samúðarkveðjur og aðstand-
endum öllum mína dýpstu sam-
úð.
Valtýr Sigurbjarnarson.
Kormákur Jónsson
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
SVEINSÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk dvalarheimilisins
Lundar á Hellu fyrir góða og hlýja umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Ólafía Ingólfsdóttir Guðmundur Elíasson
Gróa Ingólfsdóttir
Kristinn Karl Ægisson Hrönn Baldursdóttir
Guðrún B. Ægisdóttir Kjartan Jóhannsson
Friðleifur Valdimar Ægisson
Fjóla Breiðfjörð Ægisdóttir Þorsteinn Þorvaldsson
Guðmundur B. Ægisson Annemarie Ægisson
Björg Elísabet Ægisdóttir Björg Þorkelsdóttir
og fjölskyldur
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinsemd við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
KRISTJÖNU HEIÐBERG
GUÐMUNDSDÓTTUR
skrifstofustjóra,
Fannborg 8.
Bestu þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana í veikindum
hennar.
Björgvin Gylfi Snorrason Guðfinna Alda Skagfjörð
Ásgeir Valur Snorrason Hildur Gunnarsdóttir
Karen Lilja Björgvinsdóttir Christian Guterres
Eva Björk Björgvinsdóttir Anders Ødum
Þorbjörg Ásgeirsdóttir Dagný Ásgeirsdóttir
Anna Lilja Ásgeirsdóttir
Tao, Soul, Matti og Solveig
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
VILLY PEDERSEN,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Nýbýlavegi 46, Kópavogi,
lést laugardaginn 20. febrúar á Hrafnistu
Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn
4. mars klukkan 11.
Vefstreymi frá útför: https://youtu.be/cAThjVCJ9gQ
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð Alzheimersamtakanna.
Ólafur Petersen Ingibjörg Halldórsdóttir
Ragnar Bogi Pedersen Sólveig Sveinsdóttir
Jóna Júlía Petersen
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, elskulegur faðir
okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
STEFÁN ÁRNASON
framhaldsskólakennari,
Markarflöt 41, Garðabæ,
lést af slysförum miðvikudaginn 17. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. mars klukkan
13. Einnig verður athöfninni streymt og hægt er að nálgast
virkan hlekk á
https://www.facebook.com/groups/stefanarnason
Marsibil Ólafsdóttir
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson
Vésteinn Stefánsson Kolbrún Hanna Jónasdóttir
Bryndís Stefánsdóttir Jens Jónsson
barnabörn
Einfríður Árnadóttir Christer Magnusson
Elskuleg kona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALGERÐUR GÍSLADÓTTIR,
Sólmundarhöfða 7, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi föstudaginn 19. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 4. mars
klukkan 13. Athöfninni verður streymt frá vef Akraneskirkju.
www.akraneskirkja.is
Þorvaldur Valgarðsson
Anna Ósk Lúðvíksdóttir Reynir Kristjánsson
Hjörtur Lúðvíksson Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Bjarki Lúðvíksson Rannveig Björk Guðjónsdóttir
Rósa Björk Lúðvíksdóttir Hrafn Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn