Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
60 ára Þormóður er
Reykvíkingur, ólst upp í
Vogunum en býr í
Garðabæ. Hann er við-
skiptafræðingur frá
CBS í Kaupmannahöfn.
Þormóður er kominn
aftur í auglýsinga-
bransann eftir hlé og er búinn að kaupa
Íslensku auglýsingastofuna ásamt syni
sínum.
Maki: Sirrý Garðarsdóttir, f. 1960, fjöl-
miðlafræðingur.
Börn: Sigrún, f. 1988, Pétur Óli, f. 1988,
Baldvin, f. 1993, og Þormóður, f. 2001.
Foreldrar: Jón Haukur Baldvinsson, f.
1923, d. 1994, loftskeytamaður, og Þóra
Margrét Jónsdóttir, f. 1925, d. 2009,
húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík.
Þormóður
Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fólk reynir að ná athygli þinni og
vill hana alla. Ný nálgun leiðir til sigurs á
hvaða sviði sem er. Þú ert gleðigjafi á öll-
um sviðum.
20. apríl - 20. maí
Naut Maður er manns gaman og þú hefur
mikið að gefa öðrum. Fáðu hjálp til þess
að koma hugmynd þínum í framkvæmd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þér finnist þú hafa alla hluti
á hreinu ertu samt ekki viss um hvaða
skref þú átt að stíga næst. Bíttu á jaxlinn í
nokkra daga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gleymdu ekki að tjá tilfinningar
þínar í garð þeirra, sem standa þér næst.
Einhver leggur snörur sínar fyrir þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er farsælla að velta hlutunum
fyrir sér heldur en að bregðast strax við.
Þú sérð ekki sólina fyrir makanum þessar
vikurnar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður tími til að ræða
vandamálin við náinn vin. Vinur þinn er
blindaður af ást, reyndu að draga hann
niður úr skýjunum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt njóta þess að vera ein/n
með sjálfum/sjálfri þér í dag. Ástarsam-
band stendur á brauðfótum. Þú ert við
stýrið í eigin lífi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér hættir til að lifa lífinu
eins og enginn sé morgundagurinn, stund-
um þarf að hugsa aðeins lengra. Þú ert til
í að synda á móti straumnum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hættu að velta þér upp úr
hlutunum. Ræddu málin við þína nánustu
og sameiginlega getið þið fundið lausn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki allt gull sem glóir
og margt reynist sókn eftir vindi. Hættu
að láta reka á reiðanum og snúðu vörn í
sókn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að hafa gild rök fyrir
því að neita að taka þátt í ákveðnu sam-
starfsverkefni. Einhver segir þér leynd-
armál og þú verður að þegja yfir því,
sama hvað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Maður má aldrei missa sjónar á
takmarkinu, jafnvel þótt eitthvað kunni að
blása á móti. Gerðu líka það sem veitir
þér ánægju.
landi. Margir fangar á Litla-Hrauni
nýttu sér þennan möguleika.“
Guðfinna hefur alltaf haft áhuga á
fyrirbyggjandi aðgerðum tengdum
sálfræðinni. „Að reyna að fyrir-
byggja að upp komi vandi og að
grípa fljótt inn í áður en vandinn
verður alvarlegur. Þess vegna hafa
meðferðar- og ráðgjafarstörf verið
mér hugleikin ásamt því að skrifa
bækur og greinar um sálfræðileg
málefni. Þótt margt hafi breyst til
batnaðar hvað varðar sálfræðiþjón-
niðurstöðurnar. Þeir bönnuðu mér
að tala opinberlega um skýrsluna.
Þannig var nú pólitíkin þá.“
Bréfaskólinn sem var og hét var
með fjarkennslu í sálfræði sem
Guðfinna sinnti í nokkur ár. „Það
var mjög þakklátt starf. Fólk af öllu
landinu hafði mikinn áhuga á þessu
námi. Það sendi inn verkefni sem
voru leiðrétt, send til baka og gefin
einkunn. Námið gaf einingar til
stúdentsprófs og var örugglega
fyrsta fjarkennsla í sálfræði á Ís-
G
uðfinna Eydal fæddist á
Akureyri 27. febrúar
1946 og ólst þar upp hjá
foreldrum þar til um
tvítugt. Hún dvaldi oft
á sumrin á Húsavík hjá afa sínum og
ömmu og öðru frændfólki.
Guðfinna gekk í Barnaskóla Akur-
eyrar og Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar en fór síðan á Héraðsskólann á
Núpi í Dýrafirði og lauk þaðan
landsprófi. „Þar voru margir litríkir
karakterar. Mörg svokölluð vand-
ræðabörn voru send á Núp og svo
voru það við hin „þessi prúðu“.“ Eft-
ir Núp lá leiðin í MA og lauk Guð-
finna stúdentsprófi þaðan 1966.
Að stúdentsprófi loknu lá leiðin til
Reykjavíkur og vann Guðfinna eitt
ár við Atvinnudeild háskólans. „Ætl-
unin var að vinna eitt ár og safna
pening og fara svo til Árósa í sál-
fræði. Ég var staðráðin að fara í sál-
fræði alveg frá fjórða bekk í mennta-
skóla. Ég endaði hins vegar í sál-
fræði í Kaupmannahöfn þar sem ég
hafði kynnst manninum sínum Agli
Egilssyni í millitíðinni. Hann var í
eðlisfræði í Kaupmannahöfn en hafði
tekið sér árs frí til að kenna í MA.
Þar kynntumst við hjónin.“ Guðfinna
bjó í níu ár í Kaupmannahöfn. Eftir
embættispróf 1975 fór hún í fram-
haldsnám og vann einnig við hjóna-
og skilnaðarráðgjöf í Kaupmanna-
höfn.
Starfsferillinn
Eftir að heim kom 1976 vann
Guðfinna við Sálfræðideild skóla í
ein tvö ár. Næstu árin var mikið að
gera og þá byrjaði Guðfinna að
skrifa í Vikuna um sálfræðileg mál-
efni sem varð vinsælt lesefni.
„Þetta stóð yfir í ein átta ár og fólk
er enn að tala um þessi Vikuskrif
við mig.“ Á svipuðum tíma sinnti
Guðfinna einnig kennslustörfum við
Kennaraháskólann og HÍ og í tvö ár
vann Guðfinna á Heilsuvernd-
arstöðinni með Halldóri heitnum
Hansen yfirlækni. Verkefnið var að
rannsaka geðheilsu fjögurra ára
barna. „Gefin var út vegleg skýrsla
um rannsóknina en henni var í raun
stungið undir stól af því að sumir
borgarstjórnarmeðlimir þoldu ekki
ustu þá vantar enn mikið upp á.
Hinu opinbera hefur ekki fundist
sjálfsagt að niðurgreiða sál-
fræðiþjónustu og þetta hefur verið
mikil þrautaganga.
Þær samstarfskonur til margra
áratuga, Guðfinna og Álfheiður
Steinþórsdóttir, börðust ötullega
fyrir svokallaðri foreldraráðgjöf sem
hafði fest sig í sessi á árunum 1979
-83. „Það urðu mikil vonbrigði þegar
frumvarp um ráðgjöfina var fellt á
Alþingi. Þetta var mikið hugsjóna-
starf. Kannski var það lán í óláni að
svona fór, því upp frá þessu stofn-
uðum við Sálfræðistöðina 1983 sem
var fyrsta einkafyrirtækið sem
stofnað var á sviði sálfræði. Nú eru
margir sjálfstætt starfandi og má
segja að sálfræðingar hafi tekið
völdin í sínar eigin hendur og reki nú
sem betur fer öfluga geðheilbrigð-
isþjónustu við hliðina á opinbera
kerfinu.“ Guðfinna hefur í mörg ár
unnið fyrir dómstóla sem meðdóm-
ari í forsjár- og forsjársviptingar-
málum. Einnig situr hún í úrskurð-
arnefnd velferðarmála.
Guðfinna hefur skrifað margar
bækur um sálfræðileg málefni.
Fyrsta bókin, sem var rituð með
dönskum sálfræðingi, kom út í Dan-
mörku 1979 og fjallaði um börn með
hegðunarvanda hjá fóstur-
fjölskyldum. Á næstu árum þar á
eftir komu út nokkrar bækur sem
Guðfinna og Álfheiður skrifuðu sam-
an. Nútímafólk kom út 1986 og
Barnasálfræðin 1995. Sú bók var til-
nefnd til íslensku bókmenntaverð-
launanna. Næst kom Sálfræði einka-
lífsins 2001, endurútgefin 2010, og Í
blóma lífsins 2003. Loks kom Ást í
blíðu og stríðu 2007. Bók um tvíbura
eftir Guðfinnu kom út 2001.
Eftir skyndidauða eiginmanns
fékk Guðfinna áhuga á að skrifa um
makamissi. Í samstarfi við Önnu
Ingólfsdóttur og Jónu Bolladóttur
kom út bókin Makalaust líf 2012. Í
Bandríkjunum kom út bókin Losing
a spouse 2014 í samstarfi við Önnu.
Hún er einungis seld á Amazon. Enn
er von á bók um sama málefni sem
þær Anna skrifa saman. „Það er
mjög mikið áfall að missa góðan
maka og þetta viðfangsefni hefur
Guðfinna Eydal, sérfræðingur í klínískri sálfræði – 75 ára
Samstarfskonur Álfheiður og Guðfinna reka saman Sálfræðistöðina.
Ákvað snemma að fara í sálfræði
Hjónin Guðfinna og Egill stödd við
Hjálparfoss í Þjórsárdal.
Afmælisbarnið Guðfinna í Skriðu-
fellsskógi í Þjórsárdal.
50 ára Áskell er Akur-
eyringur og ólst upp á
KA-svæðinu og á Mýri
í Bárðardal. Hann er
viðskiptafræðingur frá
Háskólanum á Akur-
eyri og matreiðslu-
maður frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri. Áskell er
framkvæmdastjóri bílaþjónustu hjá Höldi
og situr í stjórn Bílgreinasambandsins.
Maki: Rakel Friðriksdóttir, f. 1977, vott-
aður fjármálaráðgjafi hjá Íslandsbanka.
Börn: Hilma Ösp, f. 2000, Áki, f. 2007,
og Össur, f. 2011.
Foreldrar: Gísli Már Ólafsson, f. 1946, fv.
skrifstofustjóri, og Aðalbjörg Áskels-
dóttir, f. 1950, leikskólakennari. Þau eru
búsett á Akureyri.
Áskell Þór
Gíslason
Til hamingju með daginn
Reykjavík Tristan Máni
Eyþórsson fæddist 12. nóv-
ember 2020 kl. 22.24 á
Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands á Akranesi. Hann
vó 3.176 g og var 48,5 cm
langur. Foreldrar hans eru
Patrycja Líf Adamsdóttir
og Eyþór Agnarsson.
Nýr borgari