Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
„LÍKIST ÞÉR NÓGU MIKIÐ.” „HANN VILL FIMM ÞÚSUND Í VÐBÓT… par af níum og drollu.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kúra!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG FÉKK PÓST MERKTAN
JÓNAS ÁRDAL
ÞAÐ VAR PÖNTUNARLISTI
MEÐ HÖNNUNARJAKKAFÖTUM
OG DÝRUM GRÆJUM
HVÍ FÆ ÉG ALDREI
SVOLEIÐIS PÓST?
AF ÞVÍ AÐ JÓNAS
ER SVALARI EN ÞÚ
ÉG MUN TAPA 10 KÍLÓUM Á VIKU
Á ÞESSUM VATNSKÚR!
ÞAÐ ERU ÁTTA HUNDRUÐ MÍLUR AF VATNI Á
MILLI MÍN OG NÆSTU KÖKUSNEIÐAR!
LÁNADEILD
VÍNBÚÐ
verið nokkurs konar andleg terapía
fyrir mig og gefið mér ákveðinn til-
gang.“
Helstu áhugamál Guðfinnu eru
sund, útivist, tónlist og skógrækt.
„Ég á mér athvarf í Gnjúpverja-
hreppi þar sem ég hef verið ötul við
skógræktina.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðfinnu var Egill
Egilsson eðlisfræðingur, f. 25.10.
1942, d. 13.12. 2009. Foreldrar hans
voru hjónin Egill Áskelsson, f. 28.2.
1907, d. 25.1. 1975, og Sigurbjörg
Guðmundsdóttir, f. 22.8. 1905, d.
10.12. 1973. Þau bjuggu lengst af í
Hléskógum í Höfðahverfi, S-Þing.,
en síðar í Reykjavík.
Börn Guðfinnu og Egils eru 1)
Hildur Björg, f. 26.3. 1976, jóga-
kennari og starfsmaður í félags-
þjónustu. Börn hennar eru Egill, f.
14.12. 2010, og Emil, f. 25.9. 2015; 2
og 3) tvíburarnir Bessi, f. 28.11.
1980, félagsliði á geðsviði LSH, og
Ari, f. 28.11. 1980, námsmaður. Þau
eru öll búsett í Reykjavík.
Systkini Guðfinnu eru Helen
Brynjarsdóttir, samfeðra, f. 10.5.
1938, búsett í Reykjavík; Anna Ing-
er, f. 13.3. 1942, kvensjúkdómalækn-
ir, bús. í Svíþjóð; Matthías, f. 24.5.
1952, líffræðingur, bús. í Reykjavík,
og Margrét Hlíf, f. 8.7. 1958, félags-
ráðgjafi, bús. í Noregi.
Foreldrar Guðfinnu voru hjónin
Brynjar Eydal, f. 22.10. 1912, d. 9.10.
1995, iðnverkamaður, og Brynhildur
Eydal, f. 7.10. 1919, d. 27.9. 2010,
húsfreyja. Þau bjuggu lengst af á
Akureyri í Þingvallastræti 32.
Guðfinna Inga
Eydal
Ragnhildur Ólafsdóttir
húsfreyja á Hreimsstöðum
og síðar á Bóndastöðum í
Hjaltastaðaþinghá
Guðmundur Hallason
bóndi á Hreimsstöðum í
Hjaltastaðaþinghá
Anna Andrea Guðmundsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Ingimar Stefánsson
verkamaður á Húsavík
Brynhildur
Ingimarsdóttir Eydal
húsfreyja áAkureyri
Guðrún Jónasdóttir
ljósmóðir í Fótaskinni
Stefán Guðmundsson
bóndi í Fótaskinni íAðaldal,
S-Þing.
Margrét Sigurðardóttir
húsfreyja á Víðastöðum í
Hjaltastaðaþinghá,N-Múl.
Jón Eiríksson
bóndi á Víðastöðum
Guðfinna Jónsdóttir
húsfreyja áAkureyri
Ingimar Eydal Jónatansson
kennari og ritstjóri áAkureyri
Sigríður Jóhannsdóttir
húsfreyja í Skriðu
Jónatan Jónsson
bóndi í Skriðu í Eyjafirði
Úr frændgarði Guðfinnu Eydal
Brynjar Víkingur
Ingimarsson Eydal
iðnverkamaður áAkureyri
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Vel hann synda kann í kafi.
Í kuldaflíkum gæðaskinn.
Mörgum sannur gleðigjafi.
Á gafli húsa þennan finn.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Bjórinn syndir best í kafi.
Bjór er gæðaskinn.
Bjór er blendinn gleðigjafi.
Bjór á gafli finn.
Helgi Þorláksson leysir gátuna
þannig:
Bjór í ánum byggja kann,
bjór í flíkum stundum fann,
góður bjórinn gleður mann,
gaflabjórinn, munu hann.
Guðrún B. svarar:
Býsna vel bjórinn syndir.
Bjórskinnið yljar vel.
Glas af bjór gleði kyndir.
Gaflhlað er bjór, þilskel.
Þannig birtist lausnin Helga R.
Einarssyni:
Bjórinn buslar í kafi.
Bjórinn er gæðaskinn.
Bjórinn er gleðigjafi.
Á gafli bjórinn finn.
Hér er svar frá dyggum lesanda
Vísnahorns:
Bifur [=bjór] syndir best í straum.
Af bjórum er hér stafli.
Bjórinn rennur í beiskum flaum.
Bjór er efst á gafli.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Bjórinn synda kann í kafi.
Í kuldaflíkur bjór má nýta.
Bjór er sannur gleðigjafi.
Á gafli húsa bjór má líta.
Þá er limra:
Í bjórinn hún blandaði skudda,
því blaut úr hófi var Gudda
og koníakk
á knæpu drakk
og giftist Grími í sudda.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Þó myrkur byrgi sjónarsvið
og sífellt vindur emji,
ekki verður á því bið,
að ég gátu semji:
Brýnsla þessi athöfn er.
Aðeins lítið pennastrik.
Oft í réttum fram hann fer.
Á framkvæmdinni talsvert hik.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Betri er þunnur
bjór en þurr botn