Morgunblaðið - 27.02.2021, Page 40

Morgunblaðið - 27.02.2021, Page 40
Eitt ogannað Eitt ogannað 40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Lengjubikar karla Afturelding – Grindavík .......................... 0:2 Fram – FH................................................ 2:2 Víkingur R. – Kórdrengir........................ 3:1 Fylkir – Þróttur R.................................... 4:3 Pólland Warta Poznan – Lech Poznan................ 1:2  Aron Jóhannsson lék fyrstu 89 mínút- urnar með Lech Poznan og skoraði 1 mark. Holland Go Ahead Eagles – Jong PSV ................ 1:0  Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður á 60. mínútu hjá PSV. Þýskaland Darmstadt – Karlsruher......................... 0:1  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstadt. Danmörk Vejle – Horsens........................................ 0:0  Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á sem varamaður á 84. mínútu hjá Horsens. B-deild: Helsingör – Fredericia ........................... 1:0  Elías Rafn Ólafsson varði mark Fre- dericia í leiknum. England B-deild: Derby – Nottingham Forest ................... 1:1  Grill 66 deild karla Hörður – Kría ....................................... 28:28 Selfoss U – Fram U.............................. 27:22 Valur U – Vængir Júpíters.................. 35:32 HK – Fjölnir ......................................... 31:21 Haukar U – Víkingur ........................... 22:25 Staða efstu liða: Víkingur 11 10 0 1 300:260 20 HK 11 9 0 2 326:234 18 Valur U 11 8 0 3 330:317 16 Fjölnir 11 6 2 3 316:297 14 Grill 66 deild kvenna Víkingur – HK U .................................. 25:26 Staða efstu liða: Fram U 10 8 0 2 300:244 16 Afturelding 9 7 0 2 223:190 14 Valur U 9 6 0 3 260:225 12 Grótta 10 6 0 4 246:238 12 Þýskaland Leverkusen – Buxtehuder ................. 20:20  Hildigunnur Einarsdóttir lék ekki með Leverkusen. B-deild: Dormagen – Bietigheim ..................... 33:27  Aron Rafn Eðvarðsson varði 8 skot í marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið. Fürstenfeldbruck – Gummersbach... 32:25  Elliði Snær Viðarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Danmörk Kolding – Aarhus ................................ 32:27  Ágúst Elí Björgvinsson varði 3 skot í marki Kolding. Ribe-Esbjerg – GOG............................ 28:28  Daníel Þór Ingason skoraði 6 mörk fyrir Ribe Esbjerg og Rúnar Kárason 4.  Viktor Gísli Hallgrímsson varði 20 skot í marki GOG. Spánn Nava – Barcelona ................................ 21:45  Aron Pálmarsson lék ekki með Barce- lona. Frakkland B-deild: Nice – Dijon.......................................... 30:21  Grétar Ari Guðjónsson varði 14 skot í marki Nice. Nancy – Massy Essonne...................... 31:30  Elvar Ásgeirsson skoraði 6 mörk fyrir Nancy og sigurmarkið.   1. deild karla Selfoss – Vestri ................................... 104:92 Álftanes – Breiðablik ........................... 95:86 Hamar – Skallagrímur......................... 93:95 Hrunamenn – Sindri ............................ 94:89 Staðan: Hamar 9 6 3 875:796 12 Breiðablik 9 6 3 857:784 12 Álftanes 10 6 4 912:840 12 Sindri 10 6 4 917:899 12 Vestri 10 5 5 866:919 10 Skallagrímur 10 5 5 856:847 10 Fjölnir 8 3 5 672:706 6 Hrunamenn 10 3 7 850:969 6 Selfoss 10 3 7 780:825 6 NBA-deildin Philadelphia – Dallas ......................... 111:97 Brooklyn – Orlando............................ 129:92 New York – Sacramento.................. 140:121 Memphis – LA Clippers..................... 122:94 Denver – Washington ...................... 110:112 Milwaukee – New Orleans............... 129:125   SPÁNN Kristján Jónsson kris@mbl.is Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, segist um tíma í vetur hafa verið efins um hvort hlutverk leikstjórnanda hjá spænska stórliðinu Valencia væri heppilegt fyrir sig. Nú segist hann sjá hlut- verkið í öðru og betra ljósi. „Mér hefur gengið þokkalega en ég er í nýju hlutverki á vellinum. Það er svolítið skrítið fyrir mig að vera ekki stigahæstur eða með flestar stoðsendingar eins og oft hefur verið í gegnum ferilinn. Ég var fenginn hingað til að sinna allt öðruvísi hlut- verki. Ég var fenginn til að stjórna liðinu en á að búa eitthvað til þegar illa gengur. Á þá að geta gert eitt- hvað óútreiknanlegt. Hjá Valencia finnst mönnum geggjað ef ég skora 6 stig og gef 6 stoðsendingar. Þá er það geggjuð frammistaða sem er al- veg nýtt fyrir mér,“ útskýrir Martin og viðurkennir að hann hafi átt erfitt með að venjast breyttum leikstíl til að byrja með. „Það pirraði mig rosalega í byrjun tímabilsins að vera ekki að gera allt og að skora ekki meira. En ég er bú- inn að þroskast inn í þetta hlutverk og held að ég hafi þroskast mikið sem leikmaður. Þegar ég horfi á töl- urnar hjá mér, þá kemur í ljós að ég er að skjóta boltanum mjög vel. Ég hef átt marga góða leiki þótt ég sé ekki að skora 20 stig og gefa 10-15 stoðsendingar í leik. Ég hef hins veg- ar verið nokkuð stöðugur og hef spil- að jafn mikið og hinn leikstjórnand- inn Sam Van Rossom. Þriðji leikstjórnandinn meiddist en hann og Van Rossom hafa verið hjá félaginu í sex og níu ár. Þeir þekkja allt inn og út og ég vissi því að það yrði erfitt fyrir mig að koma mér inn í hlutina.“ Euroleague í forgangi Martin stendur í ströngu um þess- ar mundir á miðju keppnistímabili. Valencia er í mikilli baráttu um að ná einu af átta efstu sætunum í Euro- league. „Það má kannski segja að seinni hluti tímabilsins sé hafinn í spænsku deildinni. Við erum búnir með þrjá leiki í seinni umferðinni að ég held. Í Euroleague eigum við níu leiki eftir og segja má að gamanið sé að byrja. Við erum í þvílíkri baráttu um að komast í átta liða úrslitakeppnina í Euroleague. Þar er þvílíkur grautur og hver einasti leikur skiptir rosa- lega miklu máli núna. Það má kannski segja að við þyrftum að vinna sex eða sjö af síðustu níu leikj- unum til að vera öruggir,“ segir Martin en í herbúðum Valencia er nú lögð mikil áhersla á Evrópukeppn- ina. „Við funduðum í síðustu viku þar sem meðal annars var farið yfir til hvers er ætlast af okkur á þessu tímabili. Ég veit að hjá félaginu er lögð mikil áhersla á að við náum í úr- slitakeppnina í Euroleague. Mér skilst að það sé nauðsynlegt til að tryggja sæti liðsins í keppninni á næsta keppnistíambili. Þar eru auð- vitað miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi. Á sama tíma er þvílík upp- bygging í körfuboltanum í Valencia og menn eru að leggja mikla fjár- muni í þá uppbyggingu. Maður finn- ur að til þess er ætlast að liðið sé í Euroleague.“ Hvað varðar væntingarnar til Val- encia í baráttunni um spænska meistaratitilinn segir Martin að þær séu til staðar en um þessar mundir sé umfjöllunin á þá leið að Barcelona sé sigurstranglegast. Úrslitin ráðast í úrslitarimmu í júní eftir átta liða úr- slitakeppni sem er áþekk þeirri sem notast er við á Íslandsmótinu. „Það er erfitt að segja til um okkar möguleika. Á tímabilinu höfum við unnið Barcelona tvisvar, Real Madr- íd tvisvar en einnig Baskonia [núver- andi meistara]. Akkúrat þessa stund- ina er talað um Barcelona sem sigurstranglegasta liðið en liðið varð bikarmeistari um daginn. Við erum eitt þessara fjögurra liða sem geta barist um sigurinn og við förum klár- lega inn í úrslitakeppnina með það að markmiði að verða meistarar. Val- encia afrekaði það síðast árið 2017 og við erum enn með leikmenn úr því liði sem kunna þetta. Við viljum vinna og annað yrði vonbrigði.“ Á að stjórna leik liðsins Forráðamenn Valencia sóttu ekki Martin til Alba Berlín að ástæðu- lausu. Þótt liðið sé nú með þrjá fram- bærilega leikmenn sem geta spilað stöðu leikstjórnanda þá hefur Martin fengið þau skilaboð að honum sé ætl- að að taka við keflinu. „Ég fékk að vita að litið væri á mig Þroskast inn í nýtt hlutverk  Til mikils er ætlast af Martin  Skrítið að vera ekki stigahæstur Evrópuleikur Martin Hermannsson með bolt- ann í leik gegn ASVEL Lyon-Villeur- banne frá Frakklandi í Euroleague. Framarar, sem leika í 1. deild, neit- uðu að gefast upp gegn úrvalsdeild- arliði FH er liðin mættust á Fram- velli í Safamýri í 2. riðli í Lengjubikar karla í fótbolta í gær- kvöldi. Lokatölur urðu 2:2 eftir að FH komst í 2:0 með mörkum Péturs Viðarssonar og Baldurs Loga Guð- laugssonar um miðjan seinni hálf- leik. Alex Freyr Elísson og Þórir Guðjónsson jöfnuðu á síðasta kort- erinu og tryggðu Fram sterkt stig. Bæði lið eru með fjögur stig eftir þrjá leiki. Fylkir vann Þrótt frá Reykjavík í miklum markaleik í Árbæ, 4:3. Nikulás Val Gunnarsson skoraði tvö marka Fylkismanna, Hákon Ingi Jónsson eitt og eitt markanna var sjálfsmark. Baldur Hannes Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og eitt markið var sjálfsmark. Halldór Jón Sigurður Þórðarson, Helgi Guðjónsson og Nikolaj Han- sen gerðu mörk Víkings í Reykja- vík í 3:1-sigri á Kórdrengjum á Vík- ingsvelli og Grindavík vann Aftureldingu í Mosfellsbæ, 2:0. Morgunblaðið/Eggert Mark Þórir Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Framara gegn FH í gær. Fram gafst ekki upp  Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með Burn- ley er liðið leikur við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun. Jóhann meiddist gegn Ful- ham á dögunum og lék ekki gegn West Brom í síðasta leik. Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg, en Jóhann hefur misst mikið úr á tímabilinu vegna meiðsla.  Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðs- son og þjálfarinn Hannes Jón Jónsson yfirgefa þýska handknattleiksfélagið Bietigheim eftir tímabilið. Konstantin Poltrum leysir Aron af hólmi og Iker Romero tekur við stjórn liðsins af Hannesi. Aron Rafn, sem á 84 A- landsleiki að baki, hefur verið orðaður við uppeldisfélagið sitt Hauka.  Knattspyrnumaðurinn ungi Andri Fannar Baldursson verður ekki með ítalska liðinu Bologna í næstu leikjum þess í A-deildinni. Félagið skýrði frá því í gær að hann ætti við vöðvatogn- un að stríða og þyrfti tvær til þrjár vik- ur til að jafna sig. Hann myndi ekki vera í hópnum í leikjum gegn Lazio, Cagliari og Napoli á næstu vikum en gæti mögulega komið inn á ný þegar Bologna mætir Sampdoria 14. mars eða gegn Crotone 20. mars. Andri er aðeins 19 ára gamall og hefur leikið fimm leiki með Bologna á leiktíðinni.  Knattspyrnudeild Vals og Almarr Ormarsson hafa komist að sam- komulagi um að Almarr leiki með félag- inu næstu tvö árin. Almarr hefur verið fyrirliði KA síðustu ár og hefur leikið 231 leik í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 39 mörk. Þá hefur hann leikið 69 leiki í B-deild og gert níu mörk og skorað 13 mörk í 45 bikarleikjum.  Dalvíkingurinn Heiðar Helguson, fyrrverandi landsliðsmaður í knatt- spyrnu, er kominn í þjálfarateymi hjá Kórdrengjum sem leika í 1. deild Ís- landsmótsins í knattpyrnu í sumar.  Knattspyrnumaðurinn Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði Fjölnis, verður frá keppni næstu 3-4 mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með Fjölni á dögunum. Hans er í gipsi og missir væntanlega af byrjun tíma- bilsins, en Fjölnir leikur í 1. deild á næstu leiktíð eftir fall úr efstu deild síðasta sumar.  Körfuknattleikskonan Sólrún Inga Gísladóttir var valin í úrvalslið Sun- deildarinnar í bandaríska háskólabolt- anum, en tímabilinu lauk í vikunni. Sól- rún, sem lék með Haukum áður en hún hélt til Georgíu í Bandaríkjunum í há- skóla, hefur verið í úrvalsliði deild- arinnar öll fjögur tímabilin sem hún hefur leikið með Georgia Mariners.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.