Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 41
Eitt
ogannað
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – Stjarnan ..................... L13.30
Origo-höll: Valur – ÍBV.......................... L15
KA-heimilið: KA/Þór – FH.................... L16
Ásvellir: Haukar – Fram ....................... L17
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Eyjar: ÍBV – ÍR ................................. S13.30
Framhús: Fram – KA............................. S15
Höllin Ak.: Þór – Afturelding................. S16
Hleðsluhöll: Selfoss – Stjarnan......... S19.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – Selfoss....... S13.30
Framhús: Fram U – Afturelding........... S19
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellirinn: ÍR – KR................... S20.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Origo-höll: Valur – KR........................... L19
Borgarnes: Skallagrímur – Keflavík..... S16
1. deild kvenna:
Sauðárkr.: Tindastóll – Fjölnir b .......... L16
MG-höllin: Stjarnan – Grindavík .......... L16
Njarðt.gryfjan: Njarðvík – Hamar/Þór L16
Kennaraháskóli: Ármann – Vestri ........ L16
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Vivaldi-völlur: Grótta – Stjarnan .......... L14
Boginn: KA – HK ................................... L17
Boginn: Þór – KR .............................. L19.15
Origo-völlur: Valur – Víkingur Ó........... S13
Egilshöll: Leiknir R. – Fjölnir ............... S16
Reykjaneshöll: Keflavík – Selfoss ......... S18
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Fífan: Breiðablik – Fylkir................. L10.30
Samsungv.: Stjarnan – Tindastóll......... L12
Skessan: FH – Þór/KA .......................... L15
Jáverksvöllur: Selfoss – KR................... S14
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót 15-22 ára heldur áfram í
Laugardalshöll í dag kl. 10 til 17.30 og lýk-
ur á morgun þegar keppt er kl. 9.30 til 16.
UM HELGINA!
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir setti í
gærkvöldi nýtt Íslandsmet í 60
metra hlaupi kvenna innanhúss er
hún hljóp vegalengdina á 7,46 sek-
úndum á Meistaramóti Íslands 15-
22 ára í Laugardalshöll. Bætti hún
metið sem hún deildi með Tiönu
Ósk Whitworth um 0,01 sekúndu.
Guðbjörg á nú ein Íslandsmet í 100
og 200 metra hlaupum utanhúss og
60 metra hlaupi innanhúss. Silja
Úlfarsdóttir á enn metið í 200
metra hlaupi innanhúss.
Kristján Viggó Sigfinnsson, efni-
legasti hástökkvari landsins, vann
öruggan sigur í hástökki pilta 18-19
ára. Hann var þó nokkuð frá sínu
besta, þar sem hann á hæst 2,15
metra, en hæsta stökkið hans í gær
var sléttir tveir metrar.
Í kvennaflokki var Eva María
Baldursdóttir nálægt sínum besta
árangri en hún stökk hæst 1,76
metra, sem er tveimur sentimetrum
frá hennar besta árangri í grein-
inni. Hún reyndi þrívegis við 1,82
metra, en það tókst ekki að þessu
sinni.
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsmet Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sátt með nýja Íslandsmetið í gær.
Á Íslandsmetið ein
Mikil óvissa er hjá mörgum íþróttaliðum í Evrópu vegna heimsfaraldurs-
ins og þeirra efnahagslegu áhrifa sem honum hafa fylgt. Martin Her-
mannsson er með samning við Valencia út tímabilið 2023 sem hægt er að
endurskoða sumarið 2022. Martin er í góðum málum þrátt fyrir ástandið
því bakland félagsins er afar traust. Eigandinn Juan Roig var í þriðja sæti
síðast þegar listi var tekinn saman yfir efnaðasta fólk á Spáni. Roig er
eigandi Mercadonna-verslunarkeðjunnar og mjög áhugasamur um körfu-
boltaliðið. Situr á fremsta bekk á heimaleikjum að sögn Martins og lætur
sig sjaldan vanta. Geysilega mikið flakk fylgir þátttökunni í Euroleague.
Þegar Martin spjallaði við Morgunblaðið í vikunni var hann á leið í níu
daga ferðalag daginn eftir til Rússlands, Andorra, Tyrklands og Ísrael.
Hann segist þakklátur fyrir að vera hjá félagi sem hefur efni á að fljúga
með leikmenn í einkaflugvél á alla þessa Evrópuleiki. Með því séu ferða-
lögin mun einfaldari viðfangs á tímum veirunnar.
„Ég gæti varla verið á betri stað akkúrat núna, bæði hvað varðar borg-
ina og félagið. Metnaðurinn er mikill og nú er til dæmis verið að byggja
glæsilega höll í Valencia sem verður eingöngu fyrir körfuboltann. Hún
verður rosaleg og verður tekin í notkun á næsta ári,“ sagði Martin.
Bakland félagsins afar traust
VINNUVEITANDI MARTINS EINN SÁ EFNAÐASTI Á SPÁNI
sem fjárfestingu og sem arftaka
þessara leikmanna. Mér hefur liðið
betur síðustu tvo mánuði og hef lært
að sætta mig við annað hlutverk. Ég
held að það sjáist á spilamennskunni
hjá mér. Ef maður skoðar bestu liðin
í Evrópu þá er sjaldgæft að menn
skori meira en 12 til 13 stig að með-
altali og spila að jafnaði 20 mínútur í
leik. Í þessu leikjaálagi sem við erum
í er gott fyrir skrokkinn að maður
spili ekki meira en það í hverjum leik.
Ég er í þannig liði að með mér eru
tólf landsliðsmenn frá ýmsum lönd-
um sem geta skorað. Mitt hlutverk er
að virkja þá í sókninni og hafa þá
ánægða. Ég kem með boltann fram
völlinn og er því mikið með boltann
en þeir þurfa að fá að taka sín skot.
Mér finnst þetta virkilega gaman.
Umboðsmaður minn hefur reyndar
talað um í tvö til þrjú ár að ég væri
fullkominn í þessu hlutverki,“ segir
Martin en eitt kemur honum þó á
óvart.
„Spánverjarnir eru hrifnir af varn-
arleiknum hjá mér og mér finnst
heillandi að þeir setja mig oft á móti
bestu mönnunum í liði andstæðing-
anna. Þegar ég kom sögðust þeir
hafa legið yfir leikjum með mér og
sögðust hrifnir af því hversu góður
ég væri í vörn. Það eru nú eiginlega
ný tíðindi fyrir mér. Þannig séð. Hef
alla vega aldrei litið þannig á mig en
þetta gefur mér mjög mikið því
heima á Íslandi stimpla mig líklega
flestir sem sóknarmann. Líklega hef
ég alltaf haft það í mér að geta verið
góður í vörn en hef lagt minni
áherslu á það, bæði í yngri flokkum
og í upphafi atvinnumannaferilsins.
Ég hélt að stig og stoðsendingar
væru það eina sem liðin myndu taka
eftir hjá bakvörðum. Maður er farinn
að sjá að vörnin skiptir meira máli ef
eitthvað er og ef maður vill spila í
þessum gæðaflokki þá þarf maður að
spila almennilega vörn. Ég hef eig-
inlega uppgötvað nýja hlið á mér sem
leikmaður og það er skemmtilegt að
geta sýnt þessa hlið.“
Hæfni Hilmars kom á óvart
Hafnfirðingurinn efnilegi Hilmar
Smári Henningsson er einnig með
samning við Valencia. Er á öðru ári
hjá félaginu og leikur með varaliðinu.
Getur Martin lagt mat á hvernig
Hilmari Smára gengur að sanna sig?
„Hann æfði með aðalliðinu fyrstu
tvær eða þrjár vikurnar á undirbún-
ingstímabilinu og heillaði mig mjög
mikið. Ég hafði hvorki spilað á móti
honum né með honum og hafði því
lítið séð hann spila. Hann var svolítið
óskrifað blað fyrir mér en það kom
mér virkilega á óvart hversu vel hann
stóð sig. Hann er ófeiminn og lét ekki
vaða yfir sig. Ég hef því miður ekki
getað séð leik hjá honum enn þá í
vetur en heyri hjá mönnum í félaginu
að hann sé að standa sig mjög vel.
Menn eru sammála um að Hilmar
eigi framtíð fyrir sér í góðu liði á
Spáni og ég hlakka til að fylgjast bet-
ur með honum og spila með honum í
landsliðinu. Utan vallar hafa sam-
skiptin verið miklu minni en maður
hefði viljað. Hér er allt lokað og lítið
um að vera. Hilmar hefur bara
nokkrum sinnum komið í mat sem er
eiginlega galið því hann er í nokkurra
mínútna göngufæri frá okkur,“ segir
Martin og hlær en fyrsti Íslending-
urinn sem var hjá Valencia var Jón
Arnór Stefánsson.
Magnað orðspor Jóns Arnórs
Martin segir orðspor Jóns í körfu-
boltaheiminum í Evrópu vera merki-
legt. „Maður finnur vel hjá þeim sem
voru í liðinu, og í kringum liðið, þegar
Jón Arnór var hjá Valencia að hann
nýtur mikillar virðingar. Þeir kalla
mig oft Stefánsson í gríni. Ég er með
sama klippara og Jón var með. Hann
dýrkar Jón eins og líklega flestir
gera sem verið hafa í kringum hann.
Þegar ég feta í fótspor Jóns Arnórs
þá er gaman að finna hversu góður
hann var og hversu stórt nafn hann
er í íþróttinni. Maður áttaði sig aldrei
á því vegna þess að maður sá enga
leiki með honum heima á Íslandi þeg-
ar hann lék með félagsliðum í Evr-
ópu. Svo kemur maður út í atvinnu-
mennskuna og kemst að því að það
kannast allir við hann úti um alla
Evrópu. Við Íslendingar áttum okk-
ur ekki á því hversu góður Jón var
þegar hann var upp á sitt besta. Að
sama skapi áttum við Íslendingar
okkur ekki á umfanginu á körfubolt-
anum í Evrópu. Hversu góðir leik-
mennirnir eru í Euroleague, hversu
margir lifa fyrir þessa deild og
hversu miklir peningar eru í spilinu,“
segir Martin í samtali við Morgun-
blaðið.
AFP
Ég dáist að Gylfa Þór Sigurðssyni
fyrir að fara ítrekað á vítapunkt-
inn þegar mikið liggur við þótt
hann hafi brennt af mörgum vít-
um á ferlinum. Til þess þarf and-
legan styrk því það getur verið
svo auðvelt fyrir neikvæðar hugs-
anir að hreiðra um sig. Honum
tekst að skila boltanum í netið við
krefjandi aðstæður eins og í
grannaslag Liverpool og Everton
og þrautreyndur stjóri treystir
honum fyrir vítaspyrnunum.
Ef til vill lítur Gylfi á þetta eins og
vítaskyttur gera í handboltanum.
Þar er ljóst að ekki verður farið í
gegnum ferilinn án þess að
brenna af vítum. Gylfi er einnig
snjall kylfingur og veit að næsta
högg skiptir öllu máli. Ekki síð-
asta eða þarnæsta högg.
Margir kannast við að hafa ver-
ið með í einhvers konar hópspjalli
á netinu á tímum veirunnar. Ég
hafði orð á þessu við félaga mína
á dögunum. Til tals kom að senni-
lega þýddi lítið fyrir mig að tala
um kjark. Nú tali allir um að
íþróttamenn séu með pung ef
þeir eru hugrakkir.
„Merkilegt að heyra karlmenn
tengja pung við hugrekki. Þessi
viðkvæmi húðpoki sem þolir ekk-
ert,“ sagði fulltrúi líffræðinga í
hópnum. Þessi skilaboð tók annar
á lofti, sem sjálfur hefur verið
landsliðseinvaldur. „Ef menn eru
með stóran pung þá eru þeir bara
viðkvæmari fyrir höggum.“
Loks lét sá þriðji í sér heyra en
hann les gjarnan yfir okkur þegar
hann er úfinn í skapi. „Sammála.
Húðsepi sem er ekkert annað en
hönnunarmistök. Að drösla líf-
færum með sér í poka er ekkert
nema lélegur bakþanki. Design af-
terthought.“
Við svo búið lutum við höfði og
minntumst þess þegar Phil Babb,
leikmaður Liverpool, reyndi að
færa til mark á Anfield með húð-
pokanum. Það gekk ekki vel.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Manchester United mætir AC Milan,
Arsenal mætir Olympiacos og Totten-
ham mætir Dinamo Zagreb í 16 liða úr-
slitum Evrópudeildarinnar í fótbolta
en dregið var til þeirra í gær.
Björn Bergmann Sigurðarson og
félagar í Molde sem slógu Hoffenheim
óvænt út í 32 liða úrslitunum drógust
gegn Granada frá Spáni. Þá leikur Ajax
við Young Boys, Dynamo Kiev við Vill-
arreal, Roma við Shakhtar Donetsk og
Slavia Prag við Rangers.
Jordan Henderson, fyrirliði Liver-
pool og landsliðsmaður Englands í
knattspyrnu, verður frá keppni fram í
apríl eftir að hafa gengist undir aðgerð
vegna nárameiðsla.
Kvennalið Grindavíkur í knatt-
spyrnu hefur fengið til sín 25 ára
bandarískan markvörð, Kelly Lyn
O’Brien. Hún lék síðast með albanska
meistaraliðinu Vllaznia.
Körfuboltamaðurinn Malik Beasley,
sem leikur með Minnesota Timberwol-
ves í bandarísku NBA-deildinni, er
kominn í 12 leikja bann. Hann var
ákærður fyrir að hafa haft í hótunum
við ónafngreindan einstakling en því
máli lauk með sáttargjörð. NBA-
deildin sætti sig hins vegar ekki við
slíka framkomu hjá leikmanni.
Alfredo Quintana, markvörður
Porto og portúgalska landsliðsins í
handknattleik, er látinn, aðeins 32 ára
að aldri, en hann fékk hjartastopp á
æfingu um síðustu helgi. Quintana lék
með Porto í ellefu ár og varði mark
Portúgals gegn Íslandi í þremur leikj-
um þjóðanna í janúar en hann var í
stóru hlutverki með liðinu á heims-
meistaramótinu í Egyptalandi.
Alfreð Finnbogason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, missir af fimmta
leik Augsburg í röð á morgun vegna
meiðsla þegar lið hans mætir Mainz.
Oddur Gretarsson landsliðsmaður í
handknattleik hefur framlengt samn-
ing sinn við þýska félagið Balingen til
vorsins 2022, eða út næsta tímabil.
Hann hefur leikið með liðinu frá 2018.
Leó Snær Pétursson, hornamaður
handknattleiksliðs Stjörnunnar, hefur
framlengt samning sinn um þrjú ár og
er því samningsbundinn Garðabæj-
arfélaginu til 2024.
Bandaríski körfuboltamaðurinn
Flenard Whitfield sem lét mikið að sér
kveða með Skallagrími 2016-17 og
Haukum 2019-2020 er kominn til liðs
við Tindastól og gæti spilað sinn
fyrsta leik á mánudag þegar Sauð-
krækingar mæta Stjörnunni.