Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 27.02.2021, Qupperneq 45
» A Song Called Hate, heimildarmynd um þátttöku Hatara í Eurovision í Ísrael árið 2019, var forsýnd í Há- skólabíói í fyrrakvöld. Í henni er fylgst með ferðalagi Hatara-hóps- ins frá upphafi til enda og hvernig honum tókst að brjótast í gegn með boðskap sinn og hvernig ferðalagið breytti listamönnunum. Heimildarmyndin A Song Called Hate var forsýnd í fyrrakvöld í Háskólabíói Prúðbúnar Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Guðrún Stefánsdóttir voru meðal gesta. Hátíðarstund Anna Hildur Hildibrandsdóttir, leikstjóri myndarinnar, ávarpaði gesti fyrir sýningu. Myndin hefur hlotið góðar viðtökur víða. Hress Hjónin og myndlistarmennirnir Ragn- ar Kjartansson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Tihlökkun Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og eiginkona hans Helga Snæbjörnsdóttir. Alla leið Már Jóhann Löve og Inga Lísa Hansen vöktu athygli fyrir metnaðarfullan klæðaburð. Grímuklædd Baldur Þórhallsson, Felix Bergsson og Eliza Reid forsetafrú. Hatari Einar Stefánsson, Klemens Hannigan og Matthías Tryggvi Haralds- son mættu að sjálfsögðu á forsýningu en þó ekki í Hatara-gervum. Morgunblaðið/Eggert Vígaleg Sigríður Dagbjartsdóttir, Lilja Rut Bjarnadóttir, Guðmundur Þór Jónsson og Alfreð Jónsson voru Hatara-leg. MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Málverkið „Scène de rue à Montmartre“ eftir Vincent van Gogh verður boðið upp hjá uppboðshúsinu Christie’s í París 25. mars. Verkið er metið á fimm til átta milljónir evra sem samsvarar 771-1.233 milljónum íslenskra króna. Málverkið, sem þykir eitt það mikilvægasta sem listamaðurinn málaði í París og kennt er við Montmartre-tímabilið hans, hefur verið í einkaeigu sömu frönsku fjölskyldunnar í meira en hundrað ár og hefur ekki verið sýnt opinberlega frá því það var málað vorið 1887. AFP Sjaldséð verk eftir van Gogh boðið upp Traversing the Void nefnist kammerópera eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við texta eftir Jose- phine Truman sem flutt verður á öðrum tónleikum Kammermúsík- klúbbsins á yfirstandandi starfsári. Tónleikarnir verða í Norðurljósum Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 16. Flytjendur eru Hallveig Rúnars- dóttir sópran og kammerhópurinn Camerarctica, en hann skipa fiðlu- leikararnir Hildigunnur Halldórs- dóttir og Bryndís Pálsdóttir, Svava Bernharðsdóttir á víólu, Sigurður Halldórsson á selló, Eydís Franz- dóttir á óbó og Ármann Helgason á klarínett. „Við Jo kynntumst þegar ég var á tónlistarhátíð í Ástralíu að fylgja verki eftir mig. Við héldum sam- bandi og nokkrum árum síðar kviknaði hugmyndin um að vinna saman að tónverki. Verkið var unn- ið samhliða, hún henti í mig textum og ég sendi á hana hugmyndir að tónefni,“ segir Hildigunnur þegar hún rifjar upp tilurð kammeróper- unnar. Bendir hún á að texti Truman fjalli um „mannkynið sem er að eyðileggja heiminn eins og við þekkjum hann. Tónlistin endur- speglar textann, undirstrikar hann stundum en beinist stundum í gagn- stæða átt,“ segir Hildigunnur. Hún fékk styrk frá Tónskáldasjóði RÚV og Josephine Truman frá The Aust- ralia Council of the Arts við samn- ingu verksins. Kammerópera Hallveig Rúnarsdóttir og Camerarctica á æfingu í Norðurljósum Hörpu. Óperan Traversing the Void flutt í Hörpu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.