Morgunblaðið - 16.02.2021, Page 6

Morgunblaðið - 16.02.2021, Page 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is M ini hefur alltaf haft yfir sér einhvern sjarma. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið í Bretlandi árið 1959 og sló í gegn á sjötta ára- tugnum. Vissulega hefur það þótt kostur hversu smár hann var og auðvelt að troða honum í stæði í stórborgum eins og London. Mini hefur haldið sína sérstaka útliti, þótt hann sé auðvitað nútímalegur í takt við nýja tíma og í dag er hann reglulega smart. Frægur í bíómyndum Mini hefur margoft verið notaður í bíómyndum og má nefna að eftir að hann sýndi listir sínar í margfrægri mynd frá 1969, The Italian Job, stimplaði hann sig heldur betur inn í sögubækurnar. Eftirspurnin var mikil og bíllinn rokseldist. Kvik- myndastjarna myndarinnar, Mich- ael Caine, kunni ekki að keyra á þessum tíma og missti því af tæki- færi til að leika sér á upprunalega 1967-módelinu af Mark 1 Austin Mini Cooper S. Hann þurfti að láta sér nægja farþegasætið! Mini hefur verið notaður í fjöldan- um öllum af kvikmyndum og til að mynda átti Mr. Bean einn slíkan, grængulan að lit. Í Bourne Identity frá 1989 má sjá einn eldrauðan og í endurgerð af The Italian Job frá 2003 má sjá Charlize Theron keyra um á rauðum 1997 Rover Mini Cooper MkVII. Enn á ný tók salan á Mini mikinn kipp! Morgunblaðið/Ásdís Margur er knár Gott aðgengi er að framsætum og rýmið innandyra er gott, a.m.k. frammi í. Hönnunin að innan er smart og ber þá mest á hringlaga formum. Mini heldur alltaf útlitinu þótt hann hafi nútímavæðst. Mini Cooper SE er snaggaralegur og smart. Mini Cooper SE er umhverfisvænn smábíll sem hentar vel í innanbæjarsnatt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.