Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. opið alla daga kl. 10–21 25. febrúar - 14. mars Eldsmíðanámskeið var haldið há- tíðlegt í Gömlu smiðjunni á Þing- eyri um helgina. Þar fengu átta nemar að smíða allt frá litlum hníf- um og sylgjum til kertastjaka og hurðarhjara. Námskeiðið er tveir dagar og hefur verið haldið nokkr- um sinnum undanfarin þrjú til fjög- ur ár. Kennarinn var Róbert Daníel Kristjánsson og lærisveinarnir komnir víða að, tveir frá Hólmavík, tveir frá Reykjavík og restin af Vestfjörðum. Elfar Logi Hannesson leikari, sem var viðriðinn námskeiðið, vísar því á bug að tilraun hafi verið gerð til að endurgera Grásíðu, sverðið fræga sem svæðishetjan Gísli Súrs- son hafði not af í ýmsum aðstæðum. Elfar segir að engin vopn hafi verið smíðuð um helgina heldur hafi aðr- ir þættir hins forna handverks ver- ið í fyrirrúmi. Það er flókið, og ekki allra, að beygja járnið undir vilja sinn. snorrim@mbl.is Fornri verkgrein beitt á Þingeyri til smíða margvíslegra gripa Eldsmíðar á slóðum Gísla Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Beisla eldinn Um helgina var loks hægt að halda eldsmíðanámskeið eftir að faraldur kórónuveirunnar kom í veg fyrir slíkt um hríð. Það fór vel af stað. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vinir Vatnsendahvarfs hafa ákveðið að kæra ákvörðun Skipulagsstofnun- ar um að mæla ekki fyrir um nýtt umhverfismat vegna lagningar síð- asta áfanga Arnarnesvegar. Ákvörð- unin er mikil vonbrigði og í raun óskiljanlegt að enginn vilji sé til að endurmeta hvaða áhrif þessi vegur mun hafa á náttúru, umhverfi og nærliggjandi byggð, segir á Face- book-síðu samtakanna. Vegagerðin tilkynnti Skipulags- stofnun um breytingar á áformum um gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar og óskaði eftir mati á því hvort gera þurfi nýtt um- hverfismat. Í stað mislægra gatna- móta er nú gert ráð fyrir brú yfir Breiðholtsbraut og tengingu Arnar- nesvegar við Breiðholtsbraut með ljósastýrðum gatnamótum austan við brautina. Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Því skuli hún ekki háð mati á umhverfis- áhrifum en í gildi er umhverfismat fyrir veg og gatnamót frá árinu 2003. Niðurstaðan var meðal annars rök- studd með því að breytt áform fælu í sér umfangsminni umferðarmann- virki og minna rask en þau áform sem áður voru uppi. Einnig að breytt útfærsla leiddi ekki til aukins ónæðis í Fellahverfi og ekki væri heldur ástæða til að ætla að breytingin muni hafa áhrif á hljóðvist í Seljahverfi eða íbúðabyggð í Kórahverfi. Breytingin muni og draga úr ónæði vegna um- ferðarhávaða á nálægum útivistar- svæðum. Breyttar forsendur Við meðferð málsins hjá Skipu- lagsstofnun vöktu Vinir Vatnsenda- hvarfs og fleiri samtök athygli á því að langt um liðið væri frá því um- hverfismat fyrir Arnarnesveg var gert og töldu þörf á að meta áhrifin að nýju þar sem forsendur væru verulega breyttar frá því matið var gert. Meðal annars mætti vænta meiri umferðar um Arnarnesveg sem hafi áhrif á mengun og hljóðvist í nýj- um íbúðahverfum við Salaskóla og á útivistarsvæðinu á Vatnsendahvarfi. Skipulagsstofnun taldi sig ekki hafa lagaheimild til að ákveða endur- skoðun á umhverfismati nema þegar framkvæmdir hefðu ekki hafist innan tíu ára. Í þessu tilviki hefðu fram- kvæmdir við Arnarnesveg hafist árið 2004. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælti með umhverfismati Helga Kristín Gunnarsdóttir úr hópnum Vinir Vatnsendahvarfs er ósátt við afgreiðslu Skipulagsstofn- unar og segir að álitið verði kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Hún telur að ekki hafi verið tekin almennileg afstaða til þeirra atriða sem bent var á. Segir hún að framkvæmdir hafi í raun ekki hafist á árinu 2004, aðeins hafi verið byrjað að grafa úr hlíðinni og færa til efni. Þarna sé Vegagerðin að nýta sér glufu í lögunum og veltir því fyrir sér hvort það sé siðferðilega rétt. Rétt sé að bera málið undir fleiri og þess vegna sé því skotið til úrskurðar- nefndar. Þá bendir hún á að Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur hafi mælt með nýju umhverfismati en alveg hafi verið litið fram hjá því. Kæra úrskurð um umhverfismat Morgunblaðið/Eggert Arnarnesvegur Vegurinn hefur verið lagður að hluta en lokakaflinn eftir.  Vinir Vatnsendahvarfs eru ósáttir við þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar að láta ekki fara fram nýtt umhverfismat um lagningu lokaáfanga Arnarnesvegar  Stofnunin telur sig ekki hafa heimild til þess Ekki hafa fengist heimildir til að bólusetja flugliða og annað starfsfólk flugfélaga sem á í samskiptum við flugfarþega og fólk erlendis vegna starfa sinna. Formenn félaga flug- freyja og flugmanna styðja óskir Ice- landair um koma þessu fólki framar í bólusetningarröðina. „Mikil áhersla er lögð á að tryggja að smit berist ekki hingað yfir landa- mæri. Þetta starfsfólk er að halda uppi samgöngum við landið og fer út fyrir landamærin og kemst í snert- ingu við fólk um borð í flugvélum og erlendis. Þótt smithætta sé lítil um borð í flugvélum er hún samt einhver og fólkið er lengur í snertingu við farþega en margir aðrir sem koma að komufarþegum,“ segir Jens Þórð- arson, framkvæmdastjóri flug- rekstrarsviðs Icelandair. Hann bætir því við að Icelandair vilji vinna með stjórnvöldum í bar- áttunni gegn kórónuveirufaraldrin- um en telji bólusetningu starfsfólks- ins mikilvægan hlekk í því að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hafi. Ekki í forgangshópum Icelandair hefur fengið synjun hjá embætti landlæknis og heilbrigðis- ráðuneytinu við ósk um bólusetningu framlínustarfsfólks síns. Jens áætlar að um sé að ræða eitthvað á þriðja hundrað manns. Þau svör fengust frá fulltrúa stjórnvalda í gær að flug- liðar væru ekki í forgangshópi, sam- kvæmt reglugerð ráðuneytisins. Ef þeir yrðu færðir fram myndu ein- hverjir aðrir færast aftar í röðina. Einhverjir hópar sem vinna í flug- stöð Leifs Eiríkssonar hafa verið bólusettir en ekki fengust upplýsing- ar í gær um hvaða starfsfólk það er. Flugfreyjufélag Íslands og Félag íslenskra atvinnumanna vilja að fé- lagsmenn þeirra fái bólusetningu sem fyrst, vegna eðlis starfa þeirra. Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélagsins, bendir á að sums staðar erlendis njóti þeir sem vinna við farþegaflutninga forgangs við bólusetningu. helgi@mbl.is Framlínustarfsfólk í flugi fái forgang við bólusetningu  Icelandair telur það lið í að viðhalda góðum árangri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.