Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Snorri Másson snorrim@mbl.is Golfstraumurinn hefur ekki verið veikari í meira en öld, ef marka má nýja rannsókn þýskra, breskra og írskra vísindamanna. Ef fram fer sem horfir og straumurinn, sem er talinn veðurfarslegur grundvöllur þess að Ísland sé byggilegt, heldur áfram að veikjast eða bregst alveg, getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þegar samverkandi áhrifum bráðnandi Grænlandsjökuls er bland- að í málið er ljóst samkvæmt vísinda- mönnum sem Morgunblaðið ræddi við að illt kann að vera í efni fyrir Ís- land. Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur segir það áhyggjuefni til lengri tíma litið að Golfstraumurinn sé að veikjast, enda sé meðalhitinn hér á Ís- landi nátengdur yfirborðshita sjávar. Hann segir afar ósennilegt að hita- og seltufæribandið hingað norður eftir bresti mjög skyndilega en bendir á að nýjar rannsóknir sýni að veiking þess hafi hafist fyrr en áður var talið og því ekki alfarið loftslagsbreytingum af mannavöldum um að kenna. Versta atburðarásin Loftslagsbreytingar af mannavöld- um leiða þó eftir sem áður til þess að Grænlandsjökull bráðni æ óðar, eins og Júlíus Sólnes, verkfræðingur og fyrsti umhverfisráðherra Íslands, bendir á í samtali við Morgunblaðið. Bráðnun jökulsins leggur svo mikið kalt ferskvatn af mörkum til hafsins að það gæti endanlega gengið fram af Golfstraumnum, þar sem hann teygir sig til Íslands. „Það sem ég hef velt fyrir mér er hvort þessi kaldi straum- ur sem ísbráðnunin sendir suður geti drepið heitu kvíslarnar úr Golf- straumnum sem við njótum hér. Ef svo fer verður ekki gaman að búa á Íslandi, skal ég segja þér,“ segir Júl- íus. Í því sambandi vísar hann til greinar James Hansen loftslagsfræð- ings frá 2016, þar sem því er spáð að meðalhitinn á Íslandi geti fallið um 8 gráður ef atburðarásin verður á þessa leið. Sjálfur hefur Júlíus skrifað fjöl- margt um loftslagsmál og gaf síðast út bókina Global Warming: Cause, Effect, Mitigation á Bandaríkjamark- aði árið 2018. Einar Sveinbjörnsson telur að haf- straumakerfið hingað norður eftir sé í meira jafnvægi en svo að mikil hætta sé á að ferskvatn frá Grænlandsjökli raski því. Það geti samt valdið frekari röskun. „Það væri þó svona versta at- burðarás sem við getum hugsað okk- ur. Menn þekkja það að straumakerf- ið á sér annars konar jafnvægis- ástand, þannig að það getur legið öðruvísi. Varmaflutningurinn hefur þó verið í þessu farinu í árþúsundir og talið er að það þurfi nokkuð mikið til að það hrökkvi í annan gír,“ segir Ein- ar. Júlíus bendir á að flestir vísinda- menn telji að á kuldatímabilinu Yngra Dryas (fyrir um 12.000 árum) hafi bakslag orðið í yljandi áhrifum Golf- straumsins á veðurfar í Evrópu vegna þess að of mikill ís hafi bráðnað í hafið og þar með truflað Golfstrauminn það mikið að hann hafi nánast stöðvast. Dæmin eru þannig fyrir hendi um þessa verstu sviðsmynd og þróunin nú er ör: Að sögn vísindamannanna í rannsókninni sem getið er að ofan benda veðurlíkön til þess að hnattræn hlýnun gæti veikt Golfstrauminn um 34-45% til viðbótar fram til næstu aldamóta, 2100. Mælingum ábótavant Einar segir að óháð því hvaða ályktanir sé unnt að draga af þessum nýju rannsóknum, sé þetta í tilfelli Ís- lendinga fyrst og fremst áminning um að þeir leggi sitt af mörkum til frekari rannsókna á þróuninni, ekki síst grunnmælinga. „Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég las um þetta var: Af hverju bætum við ekki verulega í mæliprógrammið okkar, ef við viljum leggja eitthvað raunverulegt og ein- stakt af mörkum í loftslagsmálunum? Við erum á miðju átakasvæði haf- straumanna. Bæta þyrfti rauntíma- vöktun og öflun gagna til rannsókna á heimsvísu, til dæmis með Argo-dufl- um fyrir norðan og vestan land sem mæla hafstrauma, hita og seltu í snið- um. Í og við Grímsey mætti koma fyr- ir mælibúnaði sem vaktaði varma- flæði á milli sjávar á lofthjúps, en það eru mikilvæg gögn ásamt fjarkönnun sem við höfum þegar. Okkur er ekk- ert að vanbúnaði að hefjast handa nú þegar. Áður þurfti dýra rannsókna- leiðangra á sérbúnum skipum, en tækninni við mælingar neðansjávar hefur fleygt fram á síðustu árum,“ segir Einar. Morgunblaðið/RAX Snjór í Keflavík Óblítt veðurfar þekkja Íslendingar af eigin raun en geta líklega fæstir séð fyrir sér hve miklu verra það væri án Golfstraumsins. Straumurinn skiptir öllu  Blikur á lofti um styrk Golfstraumsins, sem skiptir öllu fyrir Ísland  Bráðnun Grænlandsjökuls gerir illt verra  Gætum lagt meira af mörkum til rannsókna GRÆNLAND AFRÍKA Norður- AMERÍKA EVRÓPA ASÍA Norður- Atlantshaf SARGASSO Þanghafið „Kald i veggu rinn” Irminger gre inin Labrador straum ur Flo rid a s tra um ur Nor ska gre inin Ves tur -Græ nlan dsst raum urAustur-Græ nlandsstraum ur Karíbahafsstraumur Antilles straumur Norður-Miðbaugsstraumu rinn Ka na rís tr au m ur Gvæj Norð ur-Atlantshafs hringrásin Golf straum urinn Einar Sveinbjörnsson Júlíus Sólnes Tugir hreindýra drepast þegar þau verða fyrir bíl á Austurlandi á hverju ári. Þannig voru skráðir 27 árekstrar á síðasta ári og það sem af er þessu eru dýrin orðin tólf. Hefur þetta verið viðvarandi ástand í lang- an tíma, að sögn Skarphéðins G. Þórissonar, líffræðings hjá Nátt- úrustofu Austurlands. Það er ekki til marks um aukningu þótt fólk verði meira vart við viðvaranir um hrein- dýr á vegum í fjölmiðlum. Á 20 ára tímabili frá árinu 1999 urðu 340 hreindýr fyrir bíl, sam- kvæmt skráningu Náttúrustofu Austurlands. Fram kemur í skýrslu sem Náttúrustofan gaf út á árinu 2018 að flestar ákeyrslur verði í skammdeginu þegar hreindýr sækja á láglendi til fæðuöflunar og eru þar af leiðandi nær vegum á sama tíma og skilyrði eru almennt verri til aksturs í hálku, myrkri og vetr- arfærð. Skapar þetta einnig hættu fyrir vegfarendur og veldur eigna- tjóni. Árekstrar að sumarlagi eru fá- tíðir þótt umferðarþungi sé þá mun meiri en á vetrum, enda halda dýrin sig þá meira til fjalla. Algengast í Lóni Á þeim tíma sem skýrslan nær til urðu flest dýrin fyrir bíl á vegkafl- anum milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs, einkum í Lóni. Til að draga úr árekstrum er mik- ilvægt að skilja hvar og hvenær þeir verða og merkja staðina vel, bæði með skiltum og á upplýsingavef Vegagerðarinnar. Náttúrustofan og Vegagerðin reyna að vara vegfar- endur við, eftir því sem upplýsingar berast. Skarphéðinn bendir á að menn hætti að taka eftir merkingum ef þeir aka sama veginn oft en sjái aldrei hreindýr. Því bendir hann á þann möguleika á að setja upp blikk- andi ljós á þekktum hættuköflum þegar vitað er að hreindýr halda sig við veginn. helgi@mbl.is Ekið á tugi hreindýra á hverju ári  Áhersla lögð á að vara vegfarendur við Morgunblaðið/Eggert Berufjörður Hreindýr halda sig oft við vegina í skammdeginu. Margt var um manninn á vettvangi næturlífsins í miðbæ Reykjavíkur um helgina, sem var fyrsta helgin eftir að sóttvarnatilslakanir tóku gildi á miðvikudaginn. Nú máttu 50 vera saman í hverju hólfi og sömu- leiðis var afgreiðslutími lengdur til ellefu. Þessar heimildir voru víðast hvar gernýttar og sást það tilfinn- anlega á fullum bílastæðum í mið- bænum. Á Akureyri fóru hlutirnir ekki alls kostar eins friðsamlega fram, en þar greip lögregla til lokunar á veitingastað sem var enn með gesti inni eftir klukkan ellefu um kvöld- ið. Öðrum veitingastað var lokað vegna útrunnins veitingaleyfis. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu fór í reglubundið eftirlit með veitingahúsum í miðborginni og í dagbók lögreglunnar sagði að skerpa hefði þurft á nokkrum reglum. Á meðal þeirra reglna er sú skylda að þjóna gestum til borðs, en ekki leyfa þeim að panta við barinn. Eitt kórónuveirusmit greindist innanlands um helgina og viðkom- andi var í sóttkví. Fram kom að smitið tengdist landamærasmiti sem kom að utan. Þá greindist eitt smit á landamærunum. Síðast greindist smit utan sóttkvíar inn- anlands 1. febrúar og þá höfðu liðið tólf dagar frá smiti utan sóttkvíar. Aðeins sautján eru í sóttkví á Ís- landi og 14 í einangrun vegna smits. Nýgengi innanlands miðað við hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikur nemur 0,3 og hefur ekki verið minna síðan 22. júlí. snorrim@mbl.is Veitingastaðir og barir höfðu varla undan  Fyrsta helgin eftir tilslakanir  Veiran liggur í láginni Morgunblaðið/Eggert Opið til 23 Veitingastaðir og barir fengu aukið svigrúm í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.