Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
Límtré
• Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré
• Hægvaxið gæðalímtré
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur
farið af stað með söfnunarátak.
Það er ekki smátt í sniðum. Safna á
35 milljónum króna á einu ári til
mikilvægrar tæknilegrar upp-
færslu. Það bráðvantar nefnilega
nýjan snjótroðara, ekki síst í ljósi
þess að vetrarumferð um Kjarna-
skóg verður æ meiri. Gönguskíða-
æði hefur gripið um sig þar, eins
og það hefur einnig gert víðar á
landinu. Gamli snjótroðarinn er að
sögn Sigríðar Hrefnu Pálsdóttur,
formanns skógræktarfélagsins,
löngu kominn til ára sinna. Ekki er
ljóst hve gamall hann er nákvæm-
lega, en mótorinn gæti verið orð-
inn alla vega fjörutíu ára. „Það er
kraftaverk að hann hangi enn þá
saman og við höfum smíðað og
smíðað við hann. En nú þurfum við
að fara að lengja brautir og af-
kasta meiru til að anna þessu,“
segir Sigríður.
Það er ljóst af athugasemdum á
Facebook-síðu skógræktarfélagsins
að þeir sem nýta sér þjónustuna í
Kjarnaskógi eru hæstánægðir með
hana og virðast margir tilbúnir að
leggja söfnuninni lið, enda þjón-
ustan að öðru leyti kostnaðarlaus.
„Mér fyndist fallegast ef okkur tæk-
ist að safna peningunum bara frá
venjulegu fólki sem er að nota skóg-
inn og hefur sagt að það vilji styðja
við okkur,“ segir Sigríður. Söfnunin
á að taka eitt ár og er þegar hafin á
reikningi 0302-26-193000, kt.
600269-4299. snorrim@mbl.is Troðnar slóðir Vélin hefur staðið sína plikt en annar nú illa hlutverki sínu.
Æði kallar á uppfærslu
Þurfa 35 milljónir fyrir nýjan snjótroðara í Kjarnaskóg
Stjórn Landssambands hestamanna
(LH) mun ræða það á stjórnarfundi
næstu daga hvort úrskurði dómstóls
ÍSÍ, um að fella úr gildi úrskurð aga-
nefndar um brot knapa á lögum fé-
lagsins, verði vísað til áfrýjunardóm-
stóls ÍSÍ. Guðni Halldórsson,
formaður LH, telur sjálfur ólíklegt að
málinu verði áfrýjað en segir að
stjórnin eigi eftir að taka sína ákvörð-
un.
Knapinn gerði þau mistök að skrá
sig í tvær greinar á sama hestinum á
Skeiðleikum II sem haldnir voru í júní
á síðasta ári. Löngu síðar fékk hann
tilkynningu um að aganefnd LH væri
með málið til skoðunar. Niðurstaða
aganefndarinnar var að fella niður ár-
angur hennar á umræddu móti. Dóm-
stóll ÍSÍ felldi þann úrskurð úr gildi
meðal annars á þeim forsendum að
reglan sem bannar keppni í tveimur
skeiðgreinum á sama hesti hafi verið
illa kynnt. Þá væri ekki að finna skýra
heimild stjórnar LH til að beina mál-
um til aganefndar né að fella niður
keppnisárangur án sérstakrar kæru,
löngu eftir að móti lauk.
Horfum til framtíðar
Guðni segir að laganefnd sé langt
komin með að fara yfir allt regluverk
sambandsins. Ekki hafi verið vanþörf
á enda lögin stagbætt, ekki nógu skýr
og á köflum stangist reglur á. Þá sé
tölvunefnd að fara yfir og endurbæta
skráningu í Sportfeng og skil á móta-
skýrslum. „Við horfum til framtíðar,
skoðum hvernig við getum lært af
þessu máli og gæta þess að slíkir hlut-
ir geti ekki átt sér stað,“ segir Guðni.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Formaður Guðni Halldórsson er í forystu Landssambands hestamanna.
Unnið að endurskoð-
un alls regluverks LH
Stjórnin tekur afstöðu til áfrýjunar
Stærsta skrefið sem stigið verður
eftir sameiningu sveitarfélaganna í
Austur-Húnavatnssýslu er samein-
ing Blönduósskóla og Húnavalla-
skóla, að sögn Jóns Gíslasonar, for-
manns samstarfsnefndarinnar. Í
minnisblöðum starfshópa á vegum
nefndarinnar sem kynntir verða á
rafrænum íbúafundum næstu daga
kemur fram að rekstrarhagræði er
að því að sameina skólana. Jón segir
að ákveðinn aðlögunartími verði gef-
inn að því að leggja Húnavallaskóla
niður enda þurfi að finna því góða
húsnæði sem er á Húnavöllum nýtt
hlutverk sem kalli á fjölbreytt störf.
Fulltrúar sveitarfélaganna fjög-
urra, Blönduósbæjar, Húnavatns-
hrepps, Skagabyggðar og Skaga-
strandar, hafa undanfarna mánuði
átt í viðræðum um sameiningu. Til-
lögur sameiningarnefndar verða
lagðar fyrir sveitarstjórnir um miðj-
an næsta mánuð og er við það miðað
að íbúarnir gangi til kosninga um
sameiningu 5. júní.
Í þessari viku verða tveir íbúa-
fundir þar sem afrakstur af vinnu
starfshópa um hina ýmsu málaflokka
verður kynntur og íbúum gefinn
kostur á að koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri.
Fundirnir verða rafrænir. Fyrri
fundurinn verður miðvikudaginn 3.
mars kl. 20 til 23 og sá seinni laug-
ardaginn 6. mars kl. 10 til 13.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Flestir íbúar nýs sveitar-
félags yrðu til húsa á Blönduósi.
Sameining grunn-
skóla stærsta málið
Húnavallaskóla fengið nýtt hlutverk