Morgunblaðið - 01.03.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 01.03.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fátt er mikilvægara en að koma vísindalegri þekkingu í samhengi og bókmenntirnar eru mikilvægur miðill til þess. Á síðustu misserum hef ég talað víða um lönd um lofts- lagsbreytingar og áhrifin sem þeim geta fylgt. Skilningurinn á þessari miklu vá verður sífellt betri og umræðan meiri og mig langaði að taka þátt í þeirri við- leitni þegar ég skrifaði bókina Um tímann og vatnið,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur. Skiljanlegt samhengi og uppfært tímaskyn Ritið Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ, sem kom út á haustdögum 2019, er önnur tveggja bóka sem voru í sl. viku til- efndar sem framlag Íslands til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Hamfarahlýnun and- rúmsloftsins með margvíslegum afleiðingum, sem jafnvel eru þeg- ar fram komnar, eru frásagn- arefni Andra Snæs í bókinni góðu; sem er komin út eða væntanleg í alls 28 útgáfum á 25 tungumálum. Algjört einsdæmi er að ís- lensk bók komi út á svo mörgum tungum aðeins hálfu öðru ári eftir útgáfu. „Þessi bók var um tíu ár í smíðum, svo aðdragandinn var langur,“ segir Andri Snær. „Ýmsir náttúruvísindamenn sem ég ræddi við sögðust hugsi yfir því hvað sjónarmið þeirra og rannsóknir þeirra í loftslagsmálum rötuðu seint ef þá nokkuð inn í umfjöllun fjölmiðla og stefnu stjórnvalda. Þróunin væri jafnvel sögð vera vafamál. Margvísleg gögn sem mér bárust vöktu áhuga minn, en kúnstin liggur alltaf í framsetning- unni og vali á því hvaða leiðir skuli fara. Setja þarf hlutina í skilj- anlegt samhengi og uppfæra tíma- skyn okkar, segir höfundurinn og heldur áfram: „Það að jöklarnir eru að bráðna og yfirborð heimshafanna gæti af þeim sökum á einhverju tímaskeiði hækkað um 1-2 metra ætti að kalla á tafarlaus viðbrögð. Svo virðist sem fólk sem nálgast eða komið er yfir miðjan aldur sé ónæmt fyrir þessum lýsingum, að jöklarnir séu að breytast í haf. Eins því að Golfstraumurinn, það reginafl sem gerir Ísland byggi- legt, kunni að gefa eftir vegna bráðnunar Grænlandsjökuls. Yngra fólk mun spyrja spurningar í þessu sambandi, skilur þessar breytingar í samhengi við sína eig- in ævi og mun krefjast breytinga í atvinnuháttum. Mun ekki hafa lyst á því að taka þátt í hegðun sem grefur undan framtíð þeirra.“ Þurfum stefnu og markmið Kórónuveiran hefur síðasta árið eða svo sett líf okkar í allt annan gír en var. Mengun og út- blástur hefur dregist verulega saman, sem Andri Snær telur þó aðeins vera stundarhlé. Hann ótt- ast að þegar tekist hefur að koma böndum á veiruna, hugsanlega í haust, muni sitthvað leita aftur í sama horfið. Því þurfi stjórnvöld um allan heim að bregðast við með samhentu átaki, samanber að eftir seinni heimsstyrjöldina settu Bandaríkjamenn af stað Marshall- áætlunina, sem gekk út á end- urreisn úr rústum Evrópu eftir langt stríð. „Það þarf að koma allri losun niður í núll eins hratt og hægt er. Neytendur og markaðurinn munu ekki sveigja heiminn í rétta átt. Til þess þarf stefnu og markmið stjórnvalda, eflt vísindastarf, fjöl- þjóðlega samvinnu og fleira.“ Þjóðgarð má útfæra Fyrir Alþingi liggur frum- varp umhverfisráðherra um stofn- un hálendisþjóðgarðs. Margir eru málinu sannarlega fylgjandi, en fólk sem erjar landið, hvort heldur bændur eða ferðagarpar, er margt því mótfallið og ber við að gengið sé á nytja- og ferðarétt um öræfin, sem löng hefð sé fyrir. „Núna virðist þetta mál fast í hrepparíg, því miður. Þá væri vænlegt að horfa til þess hvernig til hefur tekist með Vatnajökuls- þjóðgarð. Ég veit ekki til þess að íbúar eða sveitarfélög vilji spóla til baka, að fenginni reynslunni þar. Það þarf samt auðvitað alltaf að bæta og breyta stjórnsýslu. Efna- hagslegan ávinning af þjóðgarði má meta á ýmsa lund, en stóra málið er að hálendi Íslands og víð- erni þess eru fjársjóður og engin önnur þjóð á sambærilegan. Þann veruleika þurfum við að hafa í huga þegar skelfing fyrstu ára þessarar aldar er rifjuð upp. Tími þegar öðru hverju náttúruundri landsins skyldi fórnað fyrir stór- iðjustefnuna sem þá gekk yfir. Ég tel því allt mæla með stofnun þjóð- garðs, sem er ekki kaþólsk kirkja með óumbreytanlegum lögmálum. Þjóðgarð má alltaf stækka, vernd- aráætlunum má breyta og útfæra betur eftir því sem viðhorf þróast.“ Saga sem hafði áhrif Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs verða afhent í nóv- ember nk., enda þótt tilnefningar hafi verið kynntar nú í febrúar. „Þetta er ánægjulegt en ég er þó rólegur, samanber að bók mín, Tímakistan, var tilefnd til þessara sömu verðlauna fyrir átta árum. Meginmálið er að Tíminn og vatn- ið er bók og saga sem hafði áhrif; skilaði því að margir eiga auðveld- ara en áður með að skilja hvað loftslagsbreytingar geta raun- verulega haft í för með sér. Það finn ég vel bæði á fyrirlestrum og á samtölum á vegi við fólk sem hef- ur kynnt sé loftslagsvána og lætur sig mál varða. Slík samtöl segja mér að rithöfundar geta komið ýmsu til leiðar með skrifum sín- um,“ segir Andri Snær að síðustu. Tíminn og vatnið eftir Andra Snæ Magnason tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rithöfundur Þjóðgarð má alltaf stækka, verndaráætlunum má breyta og útfæra betur eftir því sem viðhorf þróast, segir Andri Snær í viðtalinu. Koma losun niður í núllið VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Frambjóðendur til formannsVR kynna sig Tvö einstaklingsframboð eru til formanns VR: framboð núverandi formanns – Ragnars Þórs Ingólfssonar – og framboð Helgu Guðrúnar Jónasdóttur. Þá eru 11 einstaklingsframboð til stjórnar en alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í varastjórn. Allir VR félagar eru velkomnir. Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR kjörtímabilið 2021–2023 kynna sig og áherslur sínar á kynningarfundi VR á fjarfundarforritinu Zoom, fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.