Morgunblaðið - 01.03.2021, Side 15
Smiðir höfðu aðeins nýhafið störf við
að yfirhala bar í spænsku borginni Se-
villa þegar þeir gerðu óvænta uppgötv-
un. Byggingin reyndist hýsa átta
hundruð ára gamalt tyrkneskt baðhús,
svonefnt hammam, sem var full-
komlega á sig komið og veggir þess
þaktir fögrum málverkum.
Eftir einungis nokkur hamarshögg í
veggi barsins, sem stendur í hjarta
borgarinnar, kom í ljós stjörnulaga
þakgluggi sem leiddi smiðina áfram á
sporið.
Uppgötvunin var „algjörlega
óvænt“, segir Alvaro Jimenez, forn-
leifafræðingur sem hefur eftirlit með
öllum viðgerðum og yfirhalningum
bygginga í nágrenni dómkirkju borg-
arinnar.
Þakglugginn sem smiðirnir sáu
reyndist vera einn af samtals áttatíu
og átta slíkum, á þaki þessa bars sem
tekur nafn sitt af Giröldunni, La Gir-
alda, sem eitt sinn var turnspíra stórr-
ar mosku en gegnir nú hlutverki
klukkuturns dómkirkjunnar.
Og meira átti eftir að fylgja. Verka-
menn sviptu smám saman hulunni af
fallegum málverkum á veggjum sal-
arins, sem er samtals 200 fermetrar að
stærð, auk herbergja sem áður hýstu
heit, volg og köld böð baðhússins.
Baðhúsið, ásamt listaverkum, högg-
myndum og innréttingum, hafði varð-
veist fullkomlega í yfir átta hundruð
ár.
Bjargaði því sem hann fann
Jimenez segir að meðal annars megi
þakka arkitekt að nafni Vicente Tra-
ver, sem í upphafi 20. aldar ákvað að
fela baðhúsið vandlega þegar hann
kom fyrir tveimur hæðum til viðbótar í
húsinu.
„Við héldum að arkitektinn hefði
eyðilagt það en okkur er ljóst núna að
hann bjargaði því,“ segir fornleifa-
fræðingurinn. „Hann bjargaði því sem
hann fann og varðveitti það fyrir fram-
tíðina.“
Almóhadar lögðu undir sig Sevilla
árið 1147 og var borgin önnur höf-
uðborga í veldi þeirra, ásamt Marra-
kesh í Marokkó.
„Dómkirkjan í Sevilla var byggð á
því sem eftir var af Aljama-moskunni,
en bygging hennar hófst árið 1172 og
var hún vígð árið 1198 þegar lokið var
við bænaturninn, La Giralda,“ segir
Jimenez. „Böðin eru staðsett í suður-
hluta borgarinnar, sem Almóhadarnir
breyttu í pólitíska, trúarlega og efna-
hagslega miðju veldis síns.“
Barinn mun opna bráðlega að nýju
en verður nú eins konar lifandi safn.
Hefur honum verið gjörbreytt til að
endurspegla betur sögu hússins og
gefa færi á að skoða íslömsk listaverk
og arkitektúr, rétt eins og íbúar borg-
arinnar gerðu fyrir átta öldum.
Fundu baðhús á bak við barveggi
AFP
Sevilla Barinn stendur í hjarta borgarinnar, nærri dómkirkjunni. Áður
réðu þarna ríkjum Almóhadar sem komu norður yfir hafið frá Afríku.
Drykkir Barborðið á Giröldu, sem dregur nafn sitt af klukkuturni dómkirkju borgarinnar, sem áður var bænaturn.
Skraut Loft baðhússins er skreytt
88 útskornum þakgluggum.
Lagnir Verkamenn skoða gamlar pípulagnir baðhússins á bak við veggi
barsins. Aðeins nokkur hamarshögg höfðu verið slegin þegar það kom í ljós.
Átta hundruð ára gamalt tyrkneskt baðhús á Spáni Framsýnn arkitekt í upphafi tuttugustu aldar
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
• Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að
mikið álag sé á lifrinni.
• Lifrin er allt í senn; vinnslustöð, geymsla og
dreifingarmiðstöð því allt sem við látum í
okkur eða á, fer í vinnsluferli í lifrinni.
• Lifrin sinnir yfir 100mismunandi störfum í
líkamanum og tengist hún beint eða óbeint
allri líkamsstarfseminni.
• Active Liver inniheldur kólín sem stuðlar
að viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar og
eðlilegum efnaskiptum. Auk þess inniheldur
það ekstrakt frá mjólkurþistil, túrmerik,
þistilhjörtum og svörtum pipar.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
Léttu lifrinni lífið
Minnst átján létust í átökum milli
mótmælenda og lögreglu í Mjanmar í
gær. Um er að ræða mannskæðasta
dag mótmælanna frá upphafi, en þau
hófust í kjölfar valdaráns mjan-
marska hersins 1. febrúar.
Mótmælendur létust í borgunum
Yangon, Dawei og Mandalay. Lög-
regla er sögð hafa beitt skotvopnum,
táragasi og gúmmíkúlum gegn mót-
mælendum. Mótmælin hafa að
stærstum hluta til verið friðsöm
þangað til á laugardag þegar lög-
regla tók að beita auknu valdi. Á
meðal þeirra sem hafa verið hand-
teknir er leiðtogi stjórnarinnar sem
var hrakin frá völdum, Aung San Suu
Kyi.
Myndbrotum af mótmælunum í
gær var deilt víða á samfélagsmiðlum
og sýndu þau mótmælendur flýja lög-
reglu sem eltir marga hverja uppi,
uppsetningu heimatilbúinna veg-
tálma og blóðuga mótmælendur leita
sér læknisaðstoðar. Til viðbótar við
þá sem látnir eru, eru tugir slasaðir
eftir harkaleg átök. Skotvopnum var
beitt í fjölda tilfella, samkvæmt BBC.
AFP
Blóðug mótmæli Herinn lét sverfa til stáls í Mjanmar um helgina.
Blóðugasti dagur mót-
mælanna í Mjanmar
Mánuður liðinn frá valdaráni hersins