Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
Eins og fætur toga Íslandsmeistaramót 15-22 ára í frjálsum íþróttum fór fram í Laugardalshöll um helgina. Tæpir 200
keppendur frá fjórtán félögum voru skráðir til leiks. Vegna sóttvarnaráðstafana voru áhorfendur hvergi sjáanlegir.
Eggert
Heimsfaraldurinn hefur
reynt mikið á allt alþjóða-
samstarf og ljóst að sameig-
inlegt átak þarf til að komast
yfir krísuna. Á það jafnt við
um bóluefni, bata í ferða-
þjónustu og forsendur fyrir
landamæraviðskiptum. Nor-
rænt samstarf hefur löngum
verið afar mikilvægt í lönd-
unum okkar og það mun
sýna sig enn betur þegar
heimsfaraldrinum lýkur,
skrifa Bjarni Benediktsson,
Erna Solberg, Søren Pape
Poulsen, Ulf Kristersson og
Petteri Orpo.
Norðurlöndin munu halda
sterkri stöðu sinni í alþjóða-
samkeppni þegar hjólin fara
að snúast á ný eftir að
heimsfaraldrinum lýkur. Þá
verða löndin að vera vel í
stakk búin til að bregðast
sameiginlega við nýjum
áskorunum. Á undanförnu
ári höfum við séð hvernig
einstaklingar og fyrirtæki
hafa orðið fyrir barðinu á
landamærahindrunum og
ferðatakmörkunum sem
komu í kjölfar heimsfarald-
ursins. Á næstu árum verður
mikilvægara en nokkru sinni
að setja norrænt samstarf í
algjöran forgang. Ferðir til
vinnu og viðskipti yfir landa-
mæri eiga að vera eðlilegur
þáttur í daglegu lífi fólks í
löndunum. Þess vegna verð-
um við að ná tökum á heims-
faraldrinum og tryggja bólu-
efni fyrir almenning.
Norrænt samstarf er ekki
aðeins mikilvægt fyrir okkur
íbúa Norðurlanda, heldur
lítur Evrópa og umheim-
urinn allur til okkar og sam-
starfs landanna á ýmsum
sviðum. Við viljum standa
vörð um sterka stöðu Norð-
urlanda til framtíðar og
bendum hér á þrjár stoðir til
að hleypa nýju lífi í norræna
samvinnu.
1. Norrænt samstarf um
atvinnusköpun og hagvöxt
Aukin alþjóðleg sam-
keppni krefst sífellt meiri
aðlögunarhæfni og skýrrar
áherslu á nýsköpun og sam-
keppnisfærni í norrænu
samstarfi. Öflugir innviðir á
Norðurlöndum með ferða-
frelsi í forgrunni eru mik-
rafvæðast. Norrænt sam-
starf um rannsóknir og inn-
viði er mikilvægur þáttur í
að hraða þeirri þróun.
Loftslagsmálin eru mála-
flokkur þar sem Norð-
urlöndin geta haldið öðrum
Evrópulöndum við efnið, til
dæmis þegar kemur að
kolefnisgeymslu. Norræn
aðildarríki Evrópu-
sambandsins verða að beita
sér fyrir því að kröfur verði
hertar í viðskiptum með los-
unarheimildir innan ESB, að
loftslagsmarkmiðunum
verði fylgt markvisst eftir og
að loftslagsávinningur
viðreisnarsjóðsins verði sem
mestur. Flokkuninni verður
að haga á þá leið að jarð-
efnalaus orkuframleiðsla og
skógrækt falli undir sjálf-
bærar fjárfestingar.
3. Norðurlönd sem veita
öryggi
Bæta verður samhæfingu
á neyðarviðbúnaði og birgð-
um fyrir mögulegar krísur
framtíðar og verður það
mikilvægt viðfangsefni í
dýpkuðu norrænu samstarfi.
Skilvirkni í samstarfi verður
einnig að einkenna sam-
skipti yfirvalda landanna.
Þá er norrænt samstarf í
varnarmálum mikilvægur
vettvangur til að skapa lang-
tímaöryggi á svæðinu. Nor-
ræn samvinna og ekki síst
samstarf Norðurlanda við
Eystrasaltsríkin er mik-
ilvægt á tímum þegar nýjar
áskoranir í öryggismálum
blasa við á norðurslóðum og
í Eystrasalti. Hlutverk og
viðvera NATO í okkar hluta
álfunnar er mikilvægasta
skrefið til að tryggja frið,
stöðugleika og velmegun í
löndunum. Samstarf um mál
sem varða fjölþátta- og net-
ógnir þarf að dýpka.
Ekki má líta fram hjá getu
Norðurlandanna til að taka
þátt í gerð alþjóðlegra við-
miða og staðla sem byggjast
á gildum og hagsmunum
landanna. Þá getu mætti
nýta enn betur með fleiri
samnorrænum aðgerðum í
samskiptum við erlend ríki.
Við berum öll ábyrgð á að
efla réttarríkið, lýðræði og
mannréttindi.
Öflugt samstarf landanna
á komandi árum mun skipta
sköpum fyrir velgengni
svæðisins í heild. Afnema
verður hindranir sem mynd-
ast hafa milli landanna og
efla samheldni á svæðinu.
Við verðum að standa vörð
um hagsmuni og gildi land-
anna. Við, leiðtogar hóf-
samra hægriflokka á Norð-
urlöndum, tökum þessum
verkefnum af mikilli alvöru.
Greinin birtist einnig í Berl-
ingske tidende í Danmörku, Da-
gens industri í Svíþjóð, NRK í
Noregi og Hufvudstadsbladet í
Finnlandi.
Eftir Bjarna Benedikts-
son, Ernu Solberg,
Søren Pape Poulsen,
Ulf Kristersson og
Petteri Orpo
»Norðurlöndin
munu halda
sterkri stöðu sinni
í alþjóðasam-
keppni þegar hjól-
in fara að snúast á
ný eftir að heims-
faraldrinum lýkur.
Bjarni Benediktsson, Erna Solberg, Søren Pape Poulsen, Ulf Kristersson og Petteri Orpo .
Bjarni Benediktsson er for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Erna Solberg er forsætis-
ráðherra Noregs og formað-
ur Hægriflokksins. Søren
Pape Poulsen er formaður
Íhaldsflokksins í Danmörku.
Ulf Kristersson er formaður
Moderaterna í Svíþjóð. Pet-
teri Orpo er formaður Ko-
koomus í Finnlandi.
Norrænt samstarf um öryggis-
mál aldrei mikilvægara
ilvægir fyrir allan hagvöxt,
ekki síst á landamærasvæð-
um.
Efnahagslegt frelsi og
umbætur til að auka sam-
keppnishæfni er það sem við
stefnum að, ekki síst eftir að
heimsfaraldri lýkur. Þá er
algjört lykilatriði að löndin
verði áfram aðlaðandi fyrir
fjárfestingar í nýrri tækni.
Ábyrg fjármálstefna, hátt
atvinnustig og samkeppn-
isfært atvinnulíf eru sameig-
inleg markmið landanna.
Mikilvægt sameiginlegt
verkefni er að varðveita
samkeppnisfærni, þróun og
gagnsæi á innri markaði
Evrópusambandsins. Nor-
ræn aðildarríki Evrópusam-
bandsins verða að láta að sér
kveða í málum sem varða
mótun fjármálastefnu og
frjáls viðskipti.
2. Norðurlöndin leiðandi í
grænum umskiptum
Ætli Norðurlöndin að
halda leiðandi stöðu sinni
verðum við einnig í framtíð-
inni að geta framleitt hreina
raforku fyrir hagkerfi og
samfélög sem eru óðum að
Framtíðin er
björt. Heimsfar-
aldur af völdum
Covid-19 virðist í
rénun og hefur
nýjum tilfellum á
heimsvísu fækkað
um 50% á sl. 30
dögum. Meira að
segja í Bandaríkj-
unum hefur til-
fellum fækkað um
75% síðan hápunktinum var náð.
Dauðsföllum hefur ekki fækkað
eins mikið, en líklegt er að þeim
fækki hratt á næstu vikum. Ef-
laust hafa bólusetningar eitt-
hvað um þetta að segja en jafn-
framt virðist stór hluti sumra
þjóða hafa smitast af Covid-19,
sem hægir á faraldrinum. Það er
t.d. talið að a.m.k. 100 milljónir
Bandaríkjamanna hafi smitast.
Faraldurinn virðist nánast yf-
irstaðinn á Indlandi þrátt fyrir
að bólusetningar séu rétt að
byrja þar. Faraldurinn gæti því
stöðvast að mestu náttúrulega í
sumum löndum (sbr. Indland),
með samblandi af bólusetn-
ingum og náttúrulegu ónæmi
(sbr. Bandaríkin) og að mestu
með bólusetningum eins og t.d. á
Íslandi. Ekki er vitað hversu
lengi náttúrulegt ónæmi gegn
Covid-19 endist, en það er vitað
að endursýkingar eru mjög fá-
tíðar (innan við 1%) og einnig
hefur t.d. fundist ónæmissvar
við spænsku veikinni hjá ein-
staklingum sem fengu þá pest
mörgum áratugum fyrr. Óvissa
ríkir um virkni bóluefna gegn
stökkbreyttum afbrigðum en
hingað til virðist hún nokkuð
góð.
Fyrri skammtur
gefur góða vernd
Nú berast líka þær góðu frétt-
ir að fyrri skammtur Pfizer-
bóluefnis virðist gefa nálægt 85-
90% vernd gegn Covid-19.
Seinni skammturinn hækkar
þessa tölu upp í 95%. Moderna-
bóluefnið gefur 80% vörn eftir
fyrsta skammt. Seinni skammt-
urinn eykur því virkni ekki mik-
ið. Jafnframt er mikilvægt að
hafa í huga að þeir fáu sem sýkj-
ast eftir fyrri bólusetningu fá yf-
irleitt væg einkenni og eru al-
varleg veikindi afar sjaldgæf í
þessum hópi. Nú er ekki vitað
hversu lengi bóluefnin verja
okkur og á það við bæði ef við
fáum einn skammt eða tvo. Hins
vegar eru vísbendingar um að
jafnvel sé betra að bíða lengur
með seinni skammt bóluefnis til
að fá langtímavernd, eins og
sýndi sig t.d. í bólusetningum
við HPV-sýkingu. Við vitum
samt vissulega ekki hvað er best
að gera til að hámarka lang-
tímavernd bóluefna gegn Co-
vid-19 en ólíklegt er að það
minnki langtímavirkni að seinka
seinni skammti um tvo mánuði.
Bretar tóku djarfa
ákvörðun
Bretar tóku þá ákvörðun að
seinka gjöf seinni skammts
bóluefna og gefa hann þremur
mánuðum seinna. Þetta er gert
til þess að hægt sé að bólusetja
sem flesta á sem skemmstum
tíma og þannig hámarka vernd
bóluefna fyrir samfélagið í heild.
Svo virðist sem Bretar hafi veðj-
að á réttan hest og hefur nýsmit-
um í Bretlandi fækkað um 80%
síðan 10. janúar, þrátt fyrir hið
„bráðsmitandi“ breska afbrigði.
Þegar niðurstöður rannsókna
gefa til kynna mjög góða vernd
eftir einn skammt bóluefnis þá
er siðferðilega erfitt að réttlæta
að láta hluta fólks vera al-
gjörlega óvarið á
meðan aðrir fikra
sig úr 90% í 95%
vernd. Þetta á sér-
staklega við í lönd-
um þar sem farald-
urinn er útbreiddur
og margir deyja af
hans völdum á degi
hverjum.
Staðan á Íslandi
Við búum svo
vel að eiga heima
á strjálbýlasta landi Evrópu og
að vera eyja lengst norður í hafi.
Við erum líka vel upplýst þjóð
og lítið og samheldið samfélag.
Það hefur því gengið nokkuð vel
að takast á við faraldurinn hér,
þ.e.a.s. að því leyti að takmarka
smit og afleiðingar þeirra. Hins
vegar hafa afleiðingar af aðgerð-
um gegn faraldrinum verið al-
varlegar og þær eru sennilega
ekki komnar að fullu fram enn.
Þar má nefna seinkun nauðsyn-
legra skurðaðgerða og skimunar
við krabbameinum, aukið ofbeldi
gegn börnum, aukið heimilis-
ofbeldi og aukna drykkju áfeng-
is og vandamál því tengd. Ísland
er háðara ferðamannastraumi
en löndin í kringum okkur og nú
er svo komið að við erum með
mesta atvinnuleysi á Norð-
urlöndum. Það er vel þekkt að
atvinnuleysi leiðir af sér dauðs-
föll og fleiri hörmungar. Rík-
issjóður starfar í ósjálfbæru um-
hverfi og safnar skuldum, sem
mun koma niður á nauðsynlegri
þjónustu og velferð á komandi
árum. Þetta alvarlega ástand á
Íslandi skapast að mestu vegna
aðgerða gegn Covid-19 en leggst
misjafnlega illa á samfélagið.
Þeir sem eru í fílabeinsturni
akademíunnar og/eða í þægilegu
starfi hjá ríkinu hafa það bara
nokkuð gott. Það eru þessir að-
ilar sem hafa mestan aðgang að
fjölmiðlum og stýra því um-
ræðunni.
Áskorun til stjórnvalda
Af ofantöldu er ljóst að nauð-
synlegt er að stytta faraldurinn
og aðgerðir gegn honum eins og
kostur er. Hver vika skiptir
máli. Í ljósi nýjustu gagna er
ekki siðferðislega verjandi að
halda áfram með bólusetningar
eins og stefnt var að. Við eigum
að fara að dæmi Breta og lengja
bilið milli bólusetninga um þrjá
mánuði. Þannig er hægt að klára
fyrri bólusetningu landsmanna
mun fyrr en ella, minnka hratt
hömlur innanlands og gefa tón-
inn fyrir gott ferðamannasumar
en þar eru gífurlegir hagsmunir
í húfi. Mikill ferðavilji er til stað-
ar og bólusettum fjölgar hratt.
Þessi leið mun líka minnka að
einhverju leyti allan þann óbeina
skaða sem aðgerðir gegn Co-
vid-19 valda og koma lífinu í eðli-
legt horf með vorinu. Ágætu
stjórnmálamenn, ég skora á
ykkur á íhuga vandlega þennan
kost og sýna þá djörfung sem
þarf til að taka réttu ákvörð-
unina.
Flýtum enda-
lokum kófsins
Eftir Jón Ívar
Einarsson
Jón Ívar Einarsson
»Nýjar upplýs-
ingar um virkni
Covid-19-bóluefna
kalla á ferska nálgun.
Mikilvægt er að
stjórnvöld íhugi að
breyta um stefnu til
að flýta opnun
landsins.
Höfundur er prófessor við
læknadeild Harvard-háskóla.
jeinarsson@bwh.harvard.edu