Morgunblaðið - 01.03.2021, Side 20

Morgunblaðið - 01.03.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 ✝ Árni MagnúsEmilsson fædd- ist í Vest- mannaeyjum 14. apríl 1943. Hann lést á Landspít- alanum 17. febrúar 2021. Foreldrar Árna: Emil Jóhann Magn- ússon, f. 25.7. 1921, d. 8.2. 2001, kaup- maður á Þórshöfn og í Grundarfirði, og Ágústa Kristín Árnadóttir, f. 6.8. 1921, d. 27.10. 2014, húsfreyja. Systkini Árna: Aðalheiður Rósa (látin), Aagot (látin), Gísli Már Gíslason, Hrund (látin), Ágústa Hrund og Emil. Eiginkona Árna er Þórunn Björg Sigurðardóttir, f. 1.7. 1943, tónmenntakennari. Hún er dóttir Sigurðar Árnasonar, f. 14.7. 1900, d. 10.9. 2000, bónda á Sámsstöðum í Fljótshlíð, og Hildar Árnason, f. 25.5. 1913, d. 23.1. 2003, húsfreyju. Börn Árna og Þórunnar eru: 1. Orri, f. 1964, maki Anna Rún Ingvarsdóttir. Hún á Jóhönnu Hrund og Þórunni Þöll Ein- arsdætur. 2. Arna, f. 1966, hún á Victoriu Varela með Javier Va- rela. 3. Ágústa Rós, f. 1977, maki Svavar Jósefsson. Þau eiga Grundarfirði 1979-82, útibús- stjóri Búnaðarbankans í Grund- arfirði 1982-87, útibússtjóri Búnaðarbankans í Garðabæ 1987-2002, útibússtjóri aðal- banka Kaupþings í Austurstræti 2002-2004 og við Landsbankann 2004-2010. Árni var, ásamt Sturlu Böðvarssyni, ritstjóri fjögurra binda rits, Ísland – at- vinnuhættir og menning 2010. Árni æfði og keppti í knatt- spyrnu, körfubolta og öðrum íþróttagreinum á vegum UMFG, var mikill áhugamaður um skák og var nokkur ár gjaldkeri Skáksambands Íslands, stóð fyr- ir ýmsum skákmótum og frægu skákmóti í Grundarfirði í tilefni af 200 ára verslunarsögu Grund- arfjarðar. Hann er upphafs- maður að Friðriksmótinu sem haldið hefur verið á vegum Landsbankans frá 70 ára afmæli Friðriks Ólafssonar skákmeist- ara. Einn af stofnendum Félags ungra sjálfstæðismanna á Vest- urlandi og fyrsti formaður þess. Sat í sveitarstjórn Grundar- fjarðar frá 1974-1987 og einnig í fulltrúa- og kjördæmisráði flokksins á Vesturlandi. Starfaði í Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar og sótti landsfundi um áratuga skeið. Sat í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og var for- maður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Hann var formaður byggingarnefndar Fjölbrauta- skólans í Garðabæ. Útför Árna fer fram frá Ví- dalínskirkju í Garðabæ í dag, 1. mars 2021, klukkan 13. Sölku og Hrafn Styrkár, en fyrir átti Ágústa Rós Úlf með Árna Fjöln- issyni. Árni ólst upp á Þórshöfn frá þriggja ára aldri til 1952. Þá flutti fjöl- skyldan í Grund- arfjörð þar sem fað- ir hans varð framkvæmdastjóri hjá Sigurði Ágústssyni, útgerð- ar- og alþingismanni. Árið 1987 flutti Árni í Garðabæ. Árni var í barnaskólum Þórs- hafnar og Grundarfjarðar, stundaði nám við Héraðsskólann í Skógum og lauk þaðan lands- prófi, við MR í einn vetur, þá við lýðháskóla í Lófóten í Norður- Noregi og við Íþróttakenn- araskóla Íslands á Laugarvatni og lauk þaðan íþróttakenn- araprófi 1962. Árni var í sveit á Langanesi til 14 ára aldurs og næstu sjö sumur á síldarbátum frá Grundarfirði. Árni kenndi við Barnaskóla Grundarfjarðar frá 1963, sinnti verslunarstörfum hjá föður sín- um í Verslunarfélaginu Grund, var sveitarstjóri Grundarfjarðar 1970-79, framkvæmdastjóri fisk- vinnslufyrirtækisins Sæfangs í Ég sé þá fyrir mér, afa leiða hann pabba, fjögurra ára kút upp í Staðarsel á Langanesi, fjarri al- faraleið, þar sem hann dvaldi sumarlangt í torfbæ hjá barn- lausum hjónum, Vigfúsi og Ragn- heiði, sem elskuðu hann eins og það barn sem þau þráðu að eign- ast. Næsta ár fluttu þau í Sætún og einnig þar var pabbi hjá þeim, næstu sjö sumurin. Fyrstu árin voru engar vélar og ekkert raf- magn, en þeim mun meiri gesta- gangur og gleði. Þegar hann var tólf ára flutti fjölskyldan til Grundarfjarðar. Fjórtán ára munstraði hann sig á síldarbát og fylgdi síldinni eftir umhverfis landið, inn á alla firði og vinirnir flugust á sumrin löng, fiskuðu og þénuðu. Fyrir fyrstu sumarhýruna keypti hann ísskáp handa mömmu sinni. Pabbi þreyttist seint á að segja okkur frá æskuárum sínum sem honum þótti svo vænt um og sveipaði ævintýraljóma. Þau mótuðu hann, frjálsræðið algert, uppátækin endalaus og hann fann til sín. Hann tapaði aldrei þeirri gleði sem einkennir æsk- una, fágæt blanda af glettnum íþróttastrák og spökum öldungi var hann. Það var kært með þeim feðg- um, afa og pabba. Ræðuskörung- urinn hélt bókum að pabba og þeir mátuðu sig hvor við annan í innblásnum og fjörugum sam- ræðum, undirbúningi pólitískra skylminga og við krakkarnir hlustuðum hugfangin á. Pabbi las mikið og þekkt var dálæti hans á Halldóri Laxness, sem hann vitn- aði í öllum stundum. Bjartur var hans maður og Gerpla sú bók sem best hefur verið skrifuð á ís- lenska tungu. En bókasafnið var stórt og hann naut þess að segja frá og kunni þá list að greina frá atburðum eða skoðunum með svo hárfínu og ljóðrænu orðavali að aðeins þurfti eina hendingu til. Stutt var í glensið og bílfarma af sögum.Hann þekkti ættir allra og mundi allt. Í pabba sameinuðust í heppi- legum hlutföllum, keppnisskap íþróttamannsins og þor sjó- mannsins, áhuginn fyrir fólki, bókmenntum og listum og minn- ingin um elskuríka æsku. Ekkert yfirskyggði annað. Hann var fjöl- hæfur og fjölmenntaður, glaður, jákvæður og mildur og átti auð- velt með að hrífa fólk, en gat líka verið harður og fylginn sér. Ég man ekki eftir miklu upp- eldi af pabba hálfu. Hann var enda þeirrar skoðunar að affar- sælast væri að hver flygi eins og hann væri fiðraður, en við áttum margar samverustundir. Í öllu hans vafstri sem sveitarstjóri í Grundarfirði fylgdumst við með þeirri miklu uppbyggingu sem átti sér stað í þorpinu og sem hann beitti sér fyrir af svo mikl- um áhuga og þrótti og harðfylgni ef með þurfti. Heimili okkar var hótel og veitingastaður til margra ára. Fæða og hýsa þurfti fjölda verkfræðinga, arkitekta og aðra sem að uppbyggingunni komu, enda engin gistihús önnur í boði. Margt var skeggrætt við eldhúsborðið og okkur systkin- unum fannst ekkert eðlilegra en að fá að fylgjast með. Þannig var það alla tíð að margt var rætt, byggt, farið og skoðað og stundum veitt. Nú græt ég föður minn rétt eins og Akkiles harmaði Patró- klos fóstbróður sinn forðum. Vin- ur minn er horfinn á braut og skarð hans verður ekki fyllt. Guð blessi minningu Árna Magnúsar Emilssonar, pabba míns. Orri Árnason. Á eftir söknuði kemur þakk- læti upp í huga mér í dag er pabbi verður jarðsunginn. Þakklæti fyrir að hafa átt slíkan föður í heil 43 ár. Ég velti því oft fyrir mér hvernig pabbi fór að því að vera eins og hann var. Afburðamaður sem ég gat leitað til með allt og réð mér ávallt heilt. Háskóla- gráður þvældust ekki fyrir hon- um en samt var hann víðmennt- aður, ríkur í anda, kjarkaður og kom ávallt að kjarna málsins. Þegar nánar á málið er horft þá liggur svarið í augum uppi. Hann umgekkst gott fólk. Lík- lega var það hans dýrmætasti lærdómur. Fjögurra ára gamall var hann sendur til bændahjóna til sumardvalar vegna veikinda móður hans. Í burstabæ þar sem fyrst var hvorki rafmagn né vélar var pabba sinnt af slíkri alúð að hann dvaldi þar á hverju sumri til fjórtán ára aldurs og lærði góð gildi. Við tóku sjö sumur á síld- veiðum. Aftur vann hann með sómafólki við aðstæður sem 14 ára unglingar gætu vart ímyndað sér í dag. Vinnudagar langir, rými fyrir hvíld lítið en samveru- stundir þeim mun betri. Pabbi vann ungur við verslunarfélagið Grund sem faðir hans rak í Grundarfirði. Þeir voru vinir sem unnu náið saman. Afi var skarp- greindur ræðumaður, leiftrandi húmoristi og víðlesinn dugnaðar- forkur sem átti ógrynni bóka. Amma nostraði við heimili og fjölskyldu af mikilli reisn. Það var ekki ónýtt fyrir föður minn að njóta leiðsagnar slíks fólks og mótast af því umhverfi sem hér hefur verið nefnt. Pabbi hafði sterkar skoðanir, var rökfastur og ákveðinn en á sama tíma mildur og skilnings- ríkur, sem er einstök blanda. Hann var örlátur á tíma sinn þeg- ar fólk þurfti hjálp. Oft bauð hann fram aðstoð áður en mér hafði hugkvæmst að nefna nokk- uð og ég veit að margir hafa notið góðs af hjálpsemi hans. Hann naut þess er öðrum gekk vel og hafði metnað fyrir því að sam- félag hans dafnaði. Íslensk tunga lék í höndum hans. Tilsvör hafði hann á reiðum höndum og studdi með vísan í bókmenntir. Og það sem hann gat skemmt okkur með sögum! Þegar hann gerði sig líklegan til að taka til máls í margmenni vissi fólk að von væri á góðu. Það birti til þar sem hann kom og hann setti brag á það sem hann snerti. Glettni og gleði var allsráðandi. Minningar streyma fram um þá góðu samfylgd sem við áttum. Ég man bílferðirnar fyrir vestan þegar keyrt var í óveðrum yfir fjöll og firnindi. Engum treysti ég betur til að koma okkur upp úr sköflum og niður ísilagðar brekk- ur. Ég man öll ferðalögin okkar innanlands og utan og þá var nú gaman. Minnist þess að þvælast um sem barn með pabba að hitta fólk og redda málum. Óteljandi samverustundir eru nú dýrmæt- ar minningar. Hans gæfuspor var að hitta mömmu og það yljar þeg- ar ég hugsa til þess hve pabbi tal- aði fallega um hana í mín eyru. Undir lokin var hún það fyrsta og síðasta sem hann nefndi þegar við hittumst. Ég sé hann fyrir mér á fögru sumarkvöldi fara glettinn með vísu í húsinu sem hann byggði með bravúr, Sætún í Grundar- firði, og kríurnar taka undir. Nú er pabbi farinn í langferð sem við öll þurfum einhvern tím- ann að halda í en ég get huggað mig við það að hann kveið henni ekki. Hann bjó yfir styrk og yf- irvegun sem var engu líkt. Við sjáumst síðar, elsku pabbi minn, en þangað til lifir minningin um þig í hjarta mínu. Takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Ágústa Rós. Þakklæti er mér efst í huga í dag þegar ég kveð tengdaföður minn og vin, Árna Emilsson. Þakklæti, því það er ekki sjálf- gefið á fullorðinsárum að kynnast mannbætandi fólki sem auðgar líf manns. Ég hitti Árna og Þórunni fyrst fyrir um áratug, í sumarhúsi þeirra við Grundarfjörð, á fyrstu dögum sambands okkar Orra. Þau komu óvænt og ég hafði áhyggjur af að koma ekki nógu vel fyrir. Þær áhyggjur voru óþarfar því ég vissi ekki þá, það sem ég veit nú, að Snolli kunni þá list öðrum fremur að skapa þægi- legt andrúmsloft og leiða inni- haldsríkar umræður um menn og málefni. Úr varð hin notalegasta stund þar sem ættfræði bar á góma og örugglega vísanir í verk Laxness og Íslendingasögurnar líka. Þetta var góð byrjun á farsæl- um viðkynnum okkar Árna. Hann var mikill sagnameistari og litríkar frásagnirnar hans ein- kenndust af glettni og hlýju í garð samferðamanna. Þegar ég kynntist Árna var farið að hægjast um hjá honum eftir fjölbreyttan og farsælan starfsferil. Ég náði þó að kynnast vinnugleði hans og samskipta- hæfni þegar við Orri byggðum okkur hús í félagi við hann. Verkaskipting var góð, Orri sá um hönnunina og ég um peninga- málin, en Árni sinnti mikilvæg- asta verkefninu sem var að hvetja til góðra verka og halda mönnum við efnið. Hann sá til þess að iðnaðarmennirnir fengu kjarngóðan mat í hádeginu, sagði sögur og fór með vísur ásamt því að leggja þeim lið og snattast. Það var alltaf tilhlökkunarefni að koma á verkstað. Hlýjar minningar um elsku Árna lifa áfram í hjörtum okkar sem standa honum nærri. Hann var með allra bestu mönnum. Anna Rún Ingvarsdóttir. Elskulegur mágur minn Árni Magnús Emilsson (Snolli, eins og hann var oftast kallaður) er lát- inn. Hann og Þórunn Björg systir mín kynntust á unglingsárunum á Héraðsskólanum að Skógum. Mér finnst því sem hann hafi alla tíð verið einn af fjölskyldunni okkar, en ég var bara stelpu- krakki þegar þau ákváðu að leggja upp í sameiginlega lífs- göngu. Á sama tímabili og þau kynntust var Árni Þorsteinn bróðir okkar systra einnig nem- andi á Skógum og mynduðust sterk vináttubönd milli þeirra nafna sem héldust alla tíð en auk vináttunnar varð systir Snolla, Aagot, síðar sambýliskona Árna bróður. Kynslóðirnar koma og fara, það er víst lífsins gangur og þeg- ar fólk nær því að verða sjötugt eða þaðan af eldra þá telst það vera orðið eldra fólk sem hefur þörf fyrir hvíld. Þá er oft sagt að fólk setjist í helgan stein. Aldrei sást til Snolla í þeim steini eða í nálægð við hann því Snolli var sí- fellt í ýmsum erindagjörðum, verkefnum og framkvæmdum út um borg og sveit við að rétta fjöl- skyldunni eða vinum sínum hjálparhönd. Það var mjög gam- an að koma í heimsókn til hans og Þórunnar hvort heldur það var í Grundarfirði eða Garðabæ. Margvíslegar umræður fóru þá í gang og oft sagði húsbóndinn mergjaðar sögur af kynlegum kvistum sem annaðhvort voru upprunnir úr bókum eða byggð- arlögum. En það sem einkennt hefur þau hjón sameiginlega um- fram annað er hversu þau hafa alltaf haft það að leiðarljósi í líf- inu að gera öðrum gott. Það væri hægt að telja upp svo óteljandi atriði um ágæti Snolla en í fáum orðum þá koma strax upp í hugann eftirfarandi eigin- leikar og einkenni: Hann var mikið glæsimenni og vandaður og góður maður. Hann var hress og skemmtilegur, fróðleiksfús og bjó yfir mikilli þekkingu á þjóð- legum fróðleik og skáldskap. Hjálpfús og óeigingjarn var hann með eindæmum. Mikill sögumað- ur með góða jarðtengingu. Úr- ræðagóður og sjálfbjarga. Tryggðartröll og meðvitaður um hvað það er sem skiptir höfuð- máli í lífinu. Vinnusamur og mik- ill fjölskyldumaður. Snolli bjó líka yfir ýmsum hæfileikum sem glöddu hann sjálfan sérstaklega í lífinu. Sem dæmi má nefna hversu drátthag- ur maður hann var. Hann málaði og teiknaði flottar myndir á yngri árum. Ég man eftir nokkrum málverkum sem Þórunn hafði fengið að gjöf af aflabátum, sennilega málaðar eftir sumar- vinnu Snolla á síld. Hann stund- aði mikið íþróttir og fótbolta á yngri árum og útskrifaðist sem íþróttakennari frá Laugarvatni. Til Noregs fóru þau Þórunn sam- an þar sem Snolli fór í frekara nám í íþróttafræðum. Hann hafði mikla unun af taflmennsku og fylgdist grannt með og kom víða við í öllu sem við kemur skák. Nú hefur mikið tómarúm myndast hjá öllum þeim sem nán- ir voru Snolla. Við í tengdafjöl- skyldunni munum ætíð minnast hans með innilegu þakklæti og væntumþykju. Við sendum Þór- unni systur okkar, Orra, Örnu og Ágústu Rós, tengdabörnunum og barnabörnum og systkinum Snolla, mökum þeirra og systk- inabörnum innilegar samúðar- kveðjur á þessum tímamótum. Blessuð sé minning Árna M. Emilssonar. Þórdís A. Sigurðardóttir. Okkur langar til að minnast mágs okkar og svila, Árna Emils- sonar, sem alla tíð frá fyrstu kynnum reyndist okkur og allri stórfjölskyldunni einstaklega vel og sú kynni spanna nú um 60 ár. Þegar þau fjölskyldan bjuggu í Grundarfirði var alltaf gott að koma til þeirra. Þau hjónin voru afar gestrisin og tóku ávallt sér- lega vel á móti vinum sínum og vandamönnum. Árni var einstak- lega fróður og skemmtilegur maður, vinmargur og félagslynd- ur. Hvar sem hann kom létti hann iðulega lundina hjá fólki með orðhnyttni sinni og kímni. Fáir skreyta sögur af mönnum og málefnum eins og hann gerði. Eftir að Árni hætti að vinna og um hægðist voru hann og Þórunn samhent í því að hjálpa til við það sem þurfti í stórfjölskyldunni, sama hvort um var að ræða flutn- inga, málningarvinnu eða upp- örvandi samtöl. Árna verður saknað af okkur öllum, en mestur er þó söknuður hjá Þórunni, börnum, tengda- börnum og barnabörnum. Við sendum ykkur öllum samúðar- kveðjur. Minning um góðan mann lifir. Sara og Gunnar. Glaður, áhugasamur og óhræddur, þannig maður var Árni M. Emilsson „Snolli“. Við systkinin sem vorum nokkru yngri en hann litum ætíð upp til hans, hann var leiðtogi í svo mörgu, sérstaklega á sveitar- stjórnarstiginu, þar sem hann leiddi hið unga samfélag okkar Grundarfjörð til öflugrar upp- byggingar. Fáir menn hafa haft áhrif á sitt umhverfi með eins sterkum ummerkjum og Snolli á Grundarfjörð, allt mannlíf og at- vinnusköpun. Snolli studdi alla sem vildu stuðla að uppbyggingu atvinnulífs hvar í flokki sem menn voru. Hann var bakhjarl karls föður okkar, Guðmundar Runólfssonar, er hann lét byggja fyrir sig skuttogarann Runólf SH, og fór ófáar ferðir til Reykja- víkur til að tryggja verkefninu framgang. Hann tók að sér að stýra fiskvinnslu fyrirtækisins á fyrstu árum þess. Hann var einn af örfáum sem barðist fyrir því að fisksölumál Íslendinga yrðu frjáls, sem þau voru ekki langt fram á 9. áratug síðustu aldar. Þar kom hans einharða skoðun um frelsi einstaklingsins og frjálsa verslun fram. Snolli var sjálfstæðismaður. Það var ein- stakt fyrir okkur að fá að fylgjast með Snolla í pólitískum slag, þar hafði hann yfirburði og dró til Sjálfstæðisflokksins fjölda manna bæði í kosningum til Alþingis og ekki síst til sveitarstjórnar þar sem hann hafði fylgi langt út fyrir hin venjulegu flokksbönd. Þannig var í okkar sveit að vinstrið og framsókn þurftu að ganga í eina lúna sæng til að hafa roð í Sjálf- stæðisflokkinn, og dugði sjaldn- ast til. Það var missir fyrir okkur að sjá á eftir Snolla á höfuðborg- arsvæðið en þangað drógu m.a. bankarnir blóma landsbyggðar- innar. En hann hafði óslítandi taug til Grundarfjarðar og byggði sér hér fallegan bústað teiknaðan af Orra syni hans. Þar dvaldi hann löngum og las fagurbók- menntir. Minningin um hinn fróma svein mun lengi lifa meðal Grund- firðinga. Þórunni, börnum þeirra og barnabörnum sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðju. Börn Guðmundar og Ingu, Guðmundur Smári Guðmundsson. Árni Magnús Emilsson bar nöfn afa sinna. Hann var annað barn foreldra sinna og var fædd- ur í Vestmannaeyjum 1943, þar sem foreldrar hans voru fyrstu hjúskaparárin á heimili móður- foreldra hans. Undirritaður (þ.e. Guðmundur föðurbróðir Árna Magnúsar) varð þeirrar gæfu að- njótandi að fá að vera á því rausn- arheimili á vetrarvertíðinni 1941 og verður ávallt þakklátur fyrir það. Þegar Árni Magnús var korna- barn kom föðursystir hans, Guðný Ragnheiður, í heimsókn. Hún ljómaði yfir fegurð barnsins og sagði: mikið er hann snollaleg- ur. Þetta orð finnst ekki í orða- bókum en gælunafnið Snolli fest- ist við drenginn. Þessi efnispiltur óx úr grasi á Þórshöfn og í Grundarfirði, í barnmargri fjölskyldu Emils og Ágústu. Eftir að barnaskóla lauk fór hann að heiman til náms, m.a. suður á land, fyrst í Skógarskóla og síðan í Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Á þessum árum kynntumst við honum vel, því hann gisti oft hjá okkur á leið- inni að heiman og heim úr þessum skólum. Þá var tímafrekara að koma sér á milli staða en nú er. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fá hann í heimsókn, því hann hafði svo góða nærveru, var ávallt glað- ur og reifur, kíminn, skrafhreif- inn og minnti svo mikið á karl föð- ur sinn, sem var sannarlega skemmtilegur frændi. Og ekki minnkaði aðdáun frændsystkin- anna þegar hann sýndi snilli sína og gekk á höndum! Árni Magnús átti glæstan feril bæði í störfum sínum og áhuga- málum og farsælt líf með Þórunni sinni, börnum og barnabörnum. Það var alltaf jafn gaman að hitta hann, hvort sem var á förnum vegi, í heimsóknum eða á ættar- mótum, nú síðast á Laugarvatni sumarið 2019, þar sem hann var einn af skipuleggjendum vel heppnaðs móts. Það er sárt að þurfa nú að kveðja hann Snolla, sem var ímynd hreysti og lífsgleði og við samhryggjumst Þórunni, afkomendum og stórfjölskyld- unni allri af heilum hug. Minning- in um góðan dreng mun lifa með okkur. Guðmundur Magnússon, Anna A. Frímannsdóttir, börn og fjölskyldur. „Mikið er hann snollalegur,“ varð Gunsu frænku okkar að orði Árni Magnús Emilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.