Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 ✝ FriðrikBjörnsson fæddist í Reykja- vík 1. janúar 1943. Hann lést 16. febr- úar 2021á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi. Foreldrar hans voru Ása Friðriks- dóttir, f. 1. desem- ber 1920, d. 20. febrúar 2003 og Björn Arnórsson, f. 16. júní 1915, d. 27. mars 1961. Fljót- lega eftir fæðingu Friðriks skildi leiðir þeirra Ásu og Björns. Ása giftist Ólafi Ein- arssyni, f. 6. september 1912, d. 19. mars 1986 og var Ólafur uppeldisfaðir Friðriks. Systk- ini Friðriks sammæðra eru Þórhildur Ólafsdóttir, f. 18. ágúst 1946, Einar Ólafsson, f. 1. des 1947 og Ingileif Ólafs- dóttir, f. 19. janúar 1954, d. 26. ágúst 1999. Systkini Frið- riks samfeðra eru Mekkinó Björnsson, f. 18. apríl 1950 og Árni Björnsson, f. 23. febrúar 1951. Að lokinni hefðbundinni skólagöngu fór Friðrik í Versl- riksdóttir, f. 10. janúar 1981, í sambúð með Steinari Óla Jóns- syni, f. 4. júní 1982, börn þeirra eru Heiðar Máni, f. 2. janúar 2018 og Herdís Björk, f. 21. apríl 2019. Friðrik starfaði hjá Heklu hf. í um það bil 10 ár og eftir það lá leið hans til Heildversl- unar Sverris Þóroddssonar. Árið 1981 hóf hann ásamt Her- dísi konu sinni eigin atvinnu- rekstur, þar sem þau störfuðu saman hlið við hlið, samfellt í 25 ár. Þau ráku og áttu heild- verslunina Frico ehf. til margra ára en söðluðu svo um og hófu gistihúsarekstur á Suðurgötu 22 frá árinu 1997 allt til ársins 2006. Eftir að formlegum rekstri lauk sinnti Friðrik ýmsum gæluverkefnum auk þess sem hann naut þess að ferðast, spila golf og eyða tíma í sum- arbústað fjölskyldunnar í Grímsnesinu. Friðrik kynntist eftirlifandi vinkonu sinni, Kristínu Hinriksdóttur, f. 24 mars 1951, árið 2009 og voru þau veigamikill partur af lífi hvort annars í rúm ellefu ár eða allt til dánardags Friðriks. Útför Friðriks verður gerð frá Lindakirkju í dag, 1. mars 2021, kl. 13 og verður streymt frá athöfninni á https://www.lindakirkja.is Virkan hlekk má finna á https://www.mbl.is/andlat unarskóla Íslands þaðan sem hann útskrifaðist 1963. Þaðan lá leiðin til starfa hjá Heklu hf., þar sem hann kynntist eiginkonu sinni, Herdísi Björgu Gunngeirs- dóttur, f. 26.9. 1947, d. 28.10. 2008, og giftu þau sig í Árbæj- arkirkju 15. júlí 1967. Börn þeirra eru: 1) Gunngeir, f. 16. apríl 1968, kona hans er Edda Björg Sigmarsdóttir, f. 26. ágúst 1972, börn þeirra eru Elísa Björg, f. 7. október 1995, Aron Andri, f. 9. júlí 1997 og Valdís Ósk, f. 11. febrúar 2002. 2) Ásgeir, f. 14. maí. Börn hans eru Friðrik Máni, f. 2. mars 1997, barnsmóðir Hild- ur Guðbjörnsdóttir, f. 1. mars 1972, Kristín Theodóra, f. 25. maí 2005, barnsmóðir Guðrún Steingrímsdóttir, f. 6. mars 1976, Kirsten Helga, f. 23. jan- úar 2008 og Herdís Hlín, f. 19. febrúar, 2010, barnsmóðir Helga Lára Ólafsdóttir, f. 23. febrúar 1980. 3) Sigurrós Frið- Það er skrítið að fylgjast með kyrrðinni út um gluggann. Horfa á fuglana koma sér mak- indalega fyrir á greinum trjánna, finna ylinn frá geislum sólarinnar sem skína inn um rúðuna og heyra óminn frá um- ferðinni í fjarska. Þegar per- sónuleg veröld manns umpólast skyndilega og manni finnst tím- inn standa í stað þá missir lífið ekki úr takt. Það ríkir enn þá sama kyrrð og daginn sem þú kvaddir, elsku pabbi, en fjar- vera þín er áþreifanleg, hávær og köld. Þú varst máttarstólpinn minn. Við pössuðum upp á hvort annað, hvort á sinn hátt og við upplifðum ýmsar hæðir og lægðir lífsins saman. Sólin skein hvað skærast þegar nýjar sálir sameinuðust fjölskyldunni en kuldinn gerði líka vart sig þig þegar við kvöddum þá sem voru okkur kærir og nísti inn að beini þegar við misstum mömmu fyrir tæpum þrettán árum. Við héldumst þétt í hend- ur í gegnum sorgina sem fylgdi og hún færði okkur nær hvort öðru. Hún varpaði líka ljósi á marga af þínum bestu eiginleik- um. Allt það góða sem mamma var og gerði tókst þú nú að þér og þú gekkst greiðlega til verka. Þú hélst utan um okkur, bauðst okkur reglulega í vöfflu- kaffi, kjötsúpu og lambalæri, bakaðir óteljandi hafra- mjölskökur og hélst heimilinu óaðfinnanlegu. Þótt við höfum oft gert góðlátlegt grín að snyrtimennskunni og ofurná- kvæmninni sem voru þitt að- alsmerki þá var það í hrein- skilni sagt aðdáunarvert. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú vel og þú ætlaðist til þess sama af öðrum. Ekkert verkefni var of stórt fyrir þig og þú færðist aldrei of mikið í fang. Þú varst einstaklega ósérhlíf- inn og þoldir illa óvönduð verk, leti eða seinagang. Þú lást aldr- ei á skoðunum þínum en þú varst líka maður orða þinna og ég gat alltaf, alltaf leitað til þín. Það er leitun að traustari manni en þér og að hafa þig með sér í liði var ómetanlegur fjársjóður. En þú varst líka svo miklu meira en þessi samviskusami dugnaðarforkur. Þú varst pabb- inn sem breiddi yfir mig á kvöldin, kenndi mér að hjóla, fór með mig á skauta og skíði, í ísbíltúra og til útlanda og eftir að ég flutti að heiman bauðstu mér reglulega í mat, í göngu- túr, dansaðir og hlóst með börnunum mínum, samgladdist yfir litlum sigrum og gast hleg- ið að sjálfum þér. Ég er eilíf- lega þakklát fyrir að börnin okkar Steinars, Heiðar og Her- dís, hafi borið gæfu til að hafa fengið að kynnast afa sínum þótt þau kynni hafi orðið allt of stutt. Demanturinn þeirra er nú týndur og er þeirra missir mik- ill. Ég mun sakna þín að eilífu, elsku pabbi minn, og nú þegar ég kveð þig, kveð ég stóran hluta barnæsku minnar, á sama tíma sem ég syrgi framtíðarsýn með þig mér við hlið. Ég hef nú fylgt þér að bryggjunni og þar skilja leiðir okkar. Ég hélt í hönd þína og strauk hár þitt meðan þú gekkst um borð í skipið sem nú hefur siglt úr minni augsýn en þegar þú legg- ur að landi í nýrri höfn veit ég að þín bíður þar myndarlegur hópur sem fagnar komu þinni. Ég bið þig að faðma mömmu og ömmu þéttingsfast frá mér og skila ástarkveðjum inn í eilífð- ina. Takk fyrir allt sem þú varst og allt sem þú gafst. Þín dóttir, Sigurrós Friðriksdóttir. Það er vorhret á glugga þeg- ar ég rita þessar línur í þeim tilgangi að minnast æskufélaga míns sem og kærs vinar í 70 ár. Er ekki raunveruleiki finnst mér. Að geta ekki gripið sím- ann og hringt í gamlan vin og gantast er ekki núið í mínum huga. Við strákarnir í Her- skólakampnum sem höfðum svo mikið að gera að sólarhringur- inn dugði ekki til. Við sem stofnuðum Leynifélagið Nátt- fara sem dó eiginlega á stofn- fundi en gerði samt sem áður það mikinn usla í hverfinu að við þorðum varla að líta framan í nokkurn mann. Þú sem sendir mig í sveit fyrir þig, vegna þess að þú varst búinn að ráða þig í byggingarvinnu inni í Álfheim- um, þar sem þú fengir miklu hærra kaup þar en í sveitinni. Við kynntumst í Laugarnes- skólanum 1954 og urðum síðan bekkjarbræður í Víkingsheim- ilinu sem var upphafið á Réttó. Árin okkar í handboltanum á Hálogalandi sem átti hug okkar allan um tíma undir stjórn Árna Njáls. Ég minnist líka hversu formfastur þú varst alla tíð. Uppi í súðarherberginu þínu varstu með bókhaldsbók. Þú varst ekki kátur þegar ég greip hana og las þar: „1 fl. Pólo kr. X, 1 stk. bíómiði kr. X. Lánaði Örra bíómiða kr. X, strætis- vagnamiði á Hálogaland kr. X.“ Þetta var sko sannarlega þú. Ég verð að minnast á snyrti- mennið Frikka, þeir kostuðu oft þrek og tár snúningarnir þínir varðandi útlitið, hvort tennurn- ar væru nógu vel burstaðar, hárið í réttum skorðum og negl- urnar nýklipptar. Skórnir ný- burstaðir og brotið í buxunum sómasamlegt. Formfastir voru sunnudagarnir hjá okkur í den, fyrst var farið á fund hjá KFUM á Amtmannsstígnum. Þar var hlustað á sögu og sung- ið t.d. „Áfram Kristsmenn krossmenn“, þá stóðum við strákarnir allir upp og stöpp- uðum í gólfið og sungum hástöf- um. Að því loknu var hlaupið upp í Austurbæjarbíó og horft á Roy Rogers og Trigger, þótt við værum búnir að sjá mynd- ina þrisvar fjórum sinnum. Þeg- ar Roy birtist á skjánum og Trigger prjónaði þá trylltist all- ur salurinn og öskrað var Roy- Roy-Roy! Þetta voru sæludagar bernskunnar. Um leið og ég kveð þig, vinur minn, í för þinni í Sumarlandið okkar, þakka ég þér göngutúrinn sem hefði mátt vera lengri. Frá Einarsstöðum sendum við hjónin samúðar- kveðjur til Gunngeirs, Ásgeirs og Sigurrósar, Friðriksbarna og barnabarna sem og Krist- ínar Hinriksdóttur. Ef dimma kvöldsins deyfir skyn og dvínar ljósið bjarta þá átt þú þennan æskuvin sem eld í þínu hjarta. Ef sérð þú falla heimsins hlyn og harmur eyðir neista þá átt þú þennan æskuvin sem ávallt máttu treysta. Ef þögnin magnar þungan dyn, já, þegar yfir lýkur, átt þú þennan æskuvin sem aldrei frá þér víkur. Þinn æskufélagi og vinur, Örn Byström Jóhannsson (Örri). Tryggasti vinur minn er lát- inn 78 ára. Kynni okkar Frið- riks hófust þegar við vorum 6 ára, þar sem hann gekk kot- roskinn í humátt á eftir vöru- bifreið sem ók löturhægt upp Háaleitisveginn, á palli hennar var íbúðarhús, byrðingarnir dingluðu með hliðunum, því húsið var mun breiðara en pall- urinn. Ég og Hebbi vinur minn stóðum við vegkantinn og fylgdumst spenntir með. „Þetta er húsið mitt,“ sagði Friðrik. Húsið var sett á grunn, efst á hæðinni. Hér bjó Friðrik í tutt- ugu ár eða allt þar til hann hóf sambúð með Herdísi Gunn- geirsdóttur. Við tengdumst strax sterkum vináttuböndum. Það er margs að minnast frá þessum tíma. Við gengum saman í Laugar- nesskólann, hálftíma gangur, fórum ekki hratt yfir, þurftum að ræða hin ýmsu mál og skoða og skynja umhverfið sem var margbreytilegt, lífið í bragga- hverfinu og búskapinn á sveita- býli neðan Suðurlandsbrautar, svo eitthvað sé nefnt. Á veturna nýttum við Háaleitisveginn sem sleðabraut, en þar var ágætis- brekka. Þá var ekki bílaumferð- inni fyrir að fara. Að skyldunáminu loknu urð- um við samferða í Gaggó Réttó og þaðan í Versló, útskrifuð- umst 1963. Þegar komið var í gaggó var það til siðs á þessum árum að stunda sumarvinnu. Friðrik hélt sig við fiskinn framan af. Hann starfaði m.a. í Sænska frystihúsinu og Jupiter og Mars, að lokum réð hann sig sem háseta á gamlan eikarbát sem stundaði síldveiðar. Þeirri vertíð lauk þannig að báturinn sökk í blíðskaparveðri, skráð sem óhapp en ástæðan mun hafa verið aflaleysi ásamt sam- verkandi þáttum. Eftir þetta gerðist Friðrik landkrabbi og réð sig í símavinnuflokk í tvö sumur. Að loknu skólanámi hóf Frið- rik störf hjá Heklu hf. Í mörg ár að lokinni vinnuviku hittumst við reglulega á raftækjavinnu- stofu Heklu, áður en við svifum inn í helgina. Eftir 10 ára veru hjá Heklu hóf Friðrik störf hjá Sverri Þóroddssyni, heildsala m.m., og var þar í nokkur ár. Samhliða því hóf Friðrik að huga að eigin rekstri og starf- aði sjálfstætt nánast alla tíð eft- ir að hann hætti hjá Sverri. Í fyrstu var það aðallega inn- flutningur, síðar fór hann yfir í gistihúsarekstur, þegar hann keypti sögufrægt hús, Suður- götu 22. Það átti vel við Friðrik að starfa sjálfstætt, hann var hugmyndaríkur, ósérhlífinn. Eftir að við urðum ráðsettir og komnir í foreldrahlutverkið dró allnokkuð úr samgöngum okkar á milli en þó var eitt og annað brallað. Í nokkur ár stunduðum við laxveiði saman í vatnaskilum Brúarár og Hvítár, en þar hef ég löngum haft að- stöðu. Veiðin var upp og ofan, náðum eitt sinn við þriðja mann 12 löxum, meðalþyngdin var 11,5 pund. Friðrik gekk í Oddfellowregl- una 1983 og leiddi hann mig inn í regluna árið 1988. Að frumkvæði Friðriks byrj- uðum við að spila bridge með eldri borgurum í Kópavogi fyrir nokkrum árum og skemmtum okkur vel. Okkur gekk stundum bara þokkalega, enda höfðum við farið á bridgenámskeið hjá Guðmundi Páli. Við urðum að draga okkur í hlé þegar veik- indi Friðriks ágerðust. Eftir það létum við okkur nægja að taka að draga fram taflið af og til. Ég þakka Friðriki fyrir samfylgdina, traustið og öll þau gæfuspor sem fylgdu ráðum hans, það er mér mjög dýrmætt að hafa átt hann sem vin. Við vottum börnum Friðriks og Herdísar, Gunngeiri, Ásgeiri og Sigurrós, afkomendum þeirra og Kristínu Hinriksdótt- ur okkar dýpstu samúð. Hermann Tönsberg og Kristín Arnardóttir. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Ég kvaddi kæran vin minn, Friðrik Björnsson, á fallegum og björtum vetrardegi 16. febr- úar síðastliðinn. Kynni okkar hófust fyrst í Breiðholtinu snemma á áttunda áratug síð- ustu aldar. Ég hafði tekið að mér að standsetja lóðina við myndarlegt hús sem Friðrik og Herdís höfðu reist sér í Þinga- seli. Er mig bar að garði var fjölskyldan að búa sig til brott- farar í sólarlandaferð. Mín beið hins vegar krefjandi og spenn- andi garðyrkjuverkefni. Sam- skipti okkar Friðriks meðan á framkvæmdunum stóð voru bæði mikil og góð og leiddu til ævarandi vináttu. Mannkostir hans leyndu sér ekki, hann var hreinskiptinn, traustur og stutt í grín og glens. Margs er að minnast þegar litið er til baka, enda oft hist, málin rædd og þegar þurfa þótti glösum lyft. Minnisstæðar samverustundir eru t.d. í tengslum við standsetningu á gistiheimilinu Krían við Suður- götu og fjölmargar heimsóknir í sumarbústaðinn í Grímsnesi. Friðrik leiddi mig inn í Odd- fellowregluna fyrir rúmum 20 árum sem styrkti okkar vin- áttubönd enn frekar. Að leiðarlokum vil ég þakka Friðriki fyrir langa og gefandi vináttu. Guð blessi minningu hans. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Gunngeirs, Ásgeirs, Sigurrósar, barnabarnanna og Kristínar. Theodór Hallsson. Friðrik Björnsson Traustur Vals- maður er fallinn frá, Guðmundur Marísson, sem var tíður gestur á Hlíðarenda frá því börnin hans, Kári Marís og Anna María, stigu sín fyrstu skref í yngri flokkum Vals í handbolta fyrir rúmum þremur áratugum. Bæði áttu eftir að gera garðinn frægan með meist- araflokki og var Kári Marís í sérstaklega sigursælum árgangi og landaði fjölda titla með fé- lögum sínum. Guðmundur lét sig aldrei vanta þegar börnin léku handbolta og var orðinn heima- gangur á Hlíðarenda áður en langt um leið. Á yngri árum lék hann sér með Þrótti í fótbolta og síðar í fótbolta með Hjálparsveitinni og Björgunarsveitinni þar sem hann var öflugur liðsmaður. Slíkt segir allt um þann per- Guðmundur Marísson ✝ GuðmundurMarísson fædd- ist 7. ágúst 1945. Hann lést 12. febr- úar 2021. Útför hans fór fram 26. febrúar 2021. sónuleika sem hann hafði að geyma, sí- fellt að hjálpa öðr- um en lét ávallt lítið á sér bera. Guð- mundur var viðloð- andi old-boys hjá Val í fótbolta sam- tímis því sem Kári Marís og Anna María voru í hand- bolta en síðastliðna tvo áratugi mætti hann vikulega á Hlíðarenda og lék sér með gömlum traustum vinum í innanhússfótbolta. Og hann lét sig ekki vanta þótt hann ætti við veikindi að stríða. Tenging Guðmundar við Val nær reyndar til ársins 1970 en það ár var körfuknattleiksdeild Vals stofnuð. Þá gekk Kári bróð- ir hans í félagið og varð fljótt fyrirliði liðsins. Kári flutti síðan norður á Sauðárkrók og stofnaði körfuknattleiksdeild Tindastóls og hefur verið aðaldriffjöðrin þar áratugum saman. Guðmundur var því umvafinn íþróttafólki stóran hluta ævinn- ar. Hann undi sér vel í góðum félagsskap og mætti samvisku- samlega á herrakvöld Vals, ár eftir ár, hógværðin uppmáluð. Við Valsmenn munum sakna þess að sjá félaga okkar ekki lengur á Hlíðarenda og vottum fjölskyldu hans, vinum og vanda- mönnum okkar dýpstu samúð. F.h. Knattspyrnufélagsins Vals, Árni Pétur Jónsson formaður. Guðmundur Marísson, góður vinur og félagi okkar í Knatt- spyrnufélaginu Val, er fallinn frá. Guðmundur var traustur með- limur í æfingahópi okkar eldri drengja, sem hafa stundað fót- boltaæfingar á fimmtudags- kvöldum í gamla salnum í Vals- heimilinu í nokkra áratugi. Hópurinn hefur tekið ýmsum mannabreytingum í gegnum tíð- ina, en Guðmundur var lengi fastur punktur og líklega sá okk- ar sem hafði hvað besta ástund- un. Guðmundur var okkar elstur en hann var um 40 árum eldri en þeir sem yngstir okkar eru í hópnum í dag. Covid hefur auðvitað haft áhrif á knattspyrnuiðkun hóps- ins og hafði hún legið niðri í tæpt ár þegar við hittumst loks á ný í Valsheimilinu þann 21. janúar sl. Það reyndist örlaga- ríkt kvöld og ekki sú byrjun eða endurfundir, sem við hefðum óskað okkur. Guðmundur veikt- ist á miðri æfingunni án nokkurs fyrirboða og var fluttur á spítala þar sem hann dvaldi þar til yfir lauk, þremur vikum síðar. Við félagarnir í Val munum sakna hans frá æfingum og sjá ekki lengur þennan glaðlynda, ljúfa og kurteisa félaga tifa yfir völlinn eins og honum einum var lagið. Hann hafði yndi af því að sprikla með okkur og var það gagnkvæmt. Guðmundur var músíkalskur og mætti oft með geisladiska með upptökum af eigin laga- smíðum á æfingar og naut yngsti sonur minn, sem oft mætti með mér á æfingar áður en hann flutti utan til framhalds- náms, góðs af, en þeir náðu afar vel saman og var þar ekkert til sem hét kynslóðabil, þótt tæp 50 ár væru á milli þeirra. Þetta lýs- ir Guðmundi einkar vel. Börn Guðmundar, þau Kári Marís og Anna María, léku bæði við góðan orðstír með meistara- flokkum Vals í handknattleik og við það má bæta að Kári bróðir Guðmundar var einn af braut- ryðjendum körfuknattleiksiðk- unar í Val á sínum tíma, þannig að Guðmundur var hluti af mik- illi Valsfjölskyldu. Við færum fjölskyldu Guð- mundar okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Guðmundar er sárt saknað en minningin um góðan dreng lifir. Fyrir hönd fimmtudagsfélaga Guðmundar í Knattspyrnufélag- inu Val. Kristján Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.