Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
✝ Rannveig Þor-valdsdóttir
kennari fæddist í
Reykjavík 16. mars
1980. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 20. febr-
úar 2021.
Foreldrar henn-
ar eru Þóra Krist-
insdóttir, f. 1950,
og Þorvaldur Karl
Helgason, f. 1950.
Systkini: Ingibjörg, f. 1973,
maki Vilhjálmur Kvaran, hún á
þrjú börn frá fyrra hjónabandi;
óskírð systir, f. og d. 1975;
Helga, f. 1976, og á hún þrjú
börn; Kristinn, f. 1981, maki
Fríður Skeggjadóttir Þormar
og eiga þau tvö börn.
Rannveig ólst upp í Njarðvík
þar sem faðir hennar var
sóknarprestur. Fjölskyldan
Sogaveg í Reykjavík. Dæturnar
eru nemendur í Breiðagerð-
isskóla.
Að loknu kennaraprófi starf-
aði Rannveig sem stærð-
fræðikennari á unglingastigi
við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði,
eða frá 2004. Hún var um tíma í
stjórn Flatar, samtaka stærð-
fræðikennara, og formaður fé-
lagsins í tvö ár. Rannveig lærði
ung á fiðlu í nokkur ár. Hún
kynntist körfubolta í Njarðvík.
Hún gekk í raðir KR á unglings-
árunum og lék yfir 80 leiki í
efstu deild kvenna í körfuknatt-
leik og var í U-18 ára landsliði
Íslands. Hún varð Íslands-, bik-
ar- og deildarmeistari með KR
1999 og 2001. Hún hafði mikið
yndi af að ferðast um landið
með maka og svo dætrum líka,
ekki síst um hálendi Íslands.
Útförin fer fram frá Hall-
grímskirkju í dag, 1. mars 2021,
klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar, vinir og sam-
starfsfélagar viðstaddir, en
streymt verður frá athöfninni á
https://utfor-rannveig.is.
fluttist á Seltjarn-
arnes þar sem hún
lauk grunnskóla.
Hún lauk stúdents-
prófi frá MR árið
2000 og grunn-
skólakennaraprófi
frá Kennarahá-
skóla Íslands 2004,
með áherslu á
stærðfræði.
Hún giftist 20.
mars 2010 Sverri
Scheving Thorsteinsson, f. 20.
febrúar 1979. Foreldrar hans
eru Málfríður Ingunn Vilhjálms-
dóttir, f. 1951, og Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson, f.
1952. Rannveig og Sverrir eign-
uðust þrjár dætur: Áslaugu, f. 9.
febrúar 2009, Ingibjörgu, f. 5.
maí 2011, og Þóru, f. 11. maí
2014. Þau bjuggu um tíma í
Grafarholti en fluttu svo á
Elskulega systir mín er látin,
söknuðurinn er mikill og sársauk-
inn óbærilegur. Í rúm tvö ár háði
hún erfiða baráttu við þennan
hræðilega sjúkdóm sem sigraði að
lokum. Að fylgjast með henni og
Sverri í þessu erfiða ferli þar sem
hvert áfallið á fætur öðru dundi yf-
ir með þrjár ungar dætur til að
hugsa um er búið að vera aðdáun-
arvert og ofboðslega erfitt. Hún
kvartaði aldrei, sterkari einstak-
lingi hef ég ekki kynnst, svo róleg
og yfirveguð, fullkomið æðruleysi.
Rannveig var sjö árum yngri en
ég, ári eftir að hún fæddist kom
bróðir okkar Kristinn í heiminn og
við orðin fjögur. Stundum var ég
fengin til að passa en oftast var ég
beðin að vera með Rannveigu. Það
var auðsótt, hún var svo þægilegt
og meðfærilegt barn. Svo falleg
með blá augu, mikið dökkt hár,
geislandi bros og dillandi hlátur.
Allir sem sáu hana heilluðust af
henni, hún var alltaf kát.
Rannveig vildi ekkert fremur
en fá að vera með okkur Helgu úti
að leika. Hún var mjög hlýðin og
gerði nánast allt sem við sögðum
henni að gera. Auðvitað nýttum
við okkur það. Hún fékk að koma
út í leiki en þá bara til að vera
staur í teygjó eða snúa bandinu í
snúsnú. Einnig mátti hún teikna
kýlóvöllinn á götuna því hún gerði
það svo vel, afskaplega vandvirk
og skipulögð. Herbergið hennar
var alltaf svo fínt, hver einasti
hlutur átti sinn stað. Þannig hefur
heimili þeirra Sverris verið alla
tíð. Við Helga vorum mjög spennt-
ar að sjá hvernig það færi þegar
hún eignaðist börn og gæti ekki
eytt svona miklum tíma í allt þetta
röð og reglu-dæmi. En þar skjátl-
aðist okkur heldur betur, heimilið
þeirra var óaðfinnanlegt og sömu-
leiðis dæturnar þrjár.
Rannveig hafði alveg einstakt
lag á börnum og unglingum. Ég
eignaðist börnin mín þrjú á tveim-
ur árum, þá var alveg ómetanlegt
að hafa hana. Hún bjó þá hjá
mömmu og pabba og hitti því
börnin mín oft. Hún var þeim svo
mikilvæg, hlý, róleg, yfirveguð en
föst á sínu og kom ábendingum til
þeirra á svo fallegan hátt. Þegar
þau Sverrir fóru að búa fengu
börnin mín oft að fara til þeirra og
gista, það fannst þeim alveg
geggjað. Það er því yndislegt að
sjá þetta halda áfram yfir á næstu
kynslóð. Nú eru það dætur mínar,
Sólveig og Steinunn, sem passa
frænkur sínar og allar hafa gaman
af.
Við vorum duglegar að ferðast
saman, alveg sama hvers konar
ferðalag ég stakk upp á, hún var
alltaf til. Ófrísk að Áslaugu fórum
við með foreldrum okkar og börn-
um mínum til Kaupmannahafnar í
viku. Þegar ég varð fertug var það
Orlando og tókum pabba með,
einnig skelltum við okkur með
dætur mínar til Boston í nokkra
daga. Bústaður með allan skarann
okkar, aldrei vesen, allt svo
áreynslulaust og notalegt.
Söknuðurinn er mikill. Eftir
sitja ótal minningar sem munu
ylja mér alla ævi og ég mun deila
með frænkum mínum til að heiðra
minningu stórkostlegrar móður
þeirra. Ingibjörg amma okkar lést
4. febrúar sl. ég trúi því að hún bíði
með hlýja faðminn sinn til að taka
á móti elsku systur minni. Guð
gefi okkur öllum sem vorum svo
heppin að hafa Rannveigu í okkar
lífi styrk til að takast á við þessa
miklu sorg.
Inga systir.
Við höfum öll hlutverk í lífinu.
Ólík hlutverk í lífi hvert annars.
Ég fékk að hafa það hlutverk að
vera bróðir þinn og það hefur ver-
ið gefandi. Við áttum afskaplega
góða æsku. Vorum vinir og lékum
okkur öllum stundum, hlógum
mikið og gleymdum okkur í leik.
Heima með Barbie-dúkkur, í
byssó í móanum, í skotbolta og í
fótbolta. Með þínum vinum, með
mínum vinum; með okkar vinum.
Þó að ekki muni nema ári á okkur
var ég alltaf litli bróðir þinn. Það
þýddi þó ekki að ég fengi einhvern
afslátt hjá þér, hvorki þá né nokk-
urn tímann. Ég vissi það ekki þá
en veit það nú að þannig var um-
hyggjan hjá þér. Að ýta við okkur
sem þér þótti vænt um, enga vor-
kunn og enga væmni. Það gerir
mér erfitt fyrir núna. Að hugsa til
þín án þess að gefast upp. Það gef-
ur mér hins vegar styrk að sjá
hvernig þú nálgaðist verkefni síð-
ustu mánaða. Raunsæ, ákveðin,
hugrökk og heiðarleg. Ég trúi því
að þú hafir getað horft framan í
dauðann af slíku æðruleysi af því
að þú varst ánægð í eigin skinni.
Glöð með það sem þú hafðir áork-
að – skapað og upplifað.
Fyrir 11 árum fékk ég símtal
frá þér þar sem þú sagðir að Ingi-
björg þín væri á leiðinni, en fékkst
á móti sömu fréttir með Þuríði
Katrínu mína. Það var því heldur
betur hlegið 3 árum síðar þegar ég
hringdi í þig og tilkynnti að Fríður
væri ólétt að Gunnari Helga og þú
gast svarað í sömu mynt, að það
væri von á Þóru. Fjórar yndisleg-
ar maístjörnur sem hafa alltaf náð
svo vel saman. Ólíkar en sam-
rýmdar. Eins og við. Yndislegar
eins og þú.
Ég hélt alltaf að það yrði tími
fyrir næsta kafla í okkar lífi. Við
fengjum önnur hlutverk hvort hjá
öðru. En tíminn er vægðarlaus.
Þú sveigðir ekki út frá því lífi
sem þið Sverrir höfðuð komið
ykkur upp. Þið leyfðuð stelpunum
alltaf að fylgjast með þínum veik-
indum. Ykkar veikindum. Um-
hyggjan þín fólst í því að fela ekki
né forðast heldur að takast á við
lífið í sameiningu eins og það blas-
ir við. Halda ótrauð áfram. Njóta
hversdagsins án eftirsjár. Brosa í
gegnum tárin með þakklæti að
vopni. Áslaug, Ingibjörg og Þóra
fengu að vera þátttakendur í lífi
þínu fram á síðustu mínútu og fyr-
ir það erum við öll þakklát.
Nú hef ég fengið nýtt hlutverk í
þínu lífi, elsku Rannveig. Þú ert
nú farin en ég mun halda minn-
ingu þinni á lofti með Sverri og
stelpunum. Hjálpa þeim að rækta
það sem þú hefur lagt inn í þessar
fallegu manneskjur.
Kristinn Þorvaldsson.
Elskuleg tengdadóttir mín er
fallin frá ung að árum. Hún skilur
eftir sig eiginmann og þrjár ungar
dætur. Það er okkur sem eftir lif-
um óskiljanlegt að svona ung
kona, sem ætti að eiga langt líf
fram undan, þurfi að lúta í lægra
haldi fyrir krabbameini.
Rannveig var glæsileg ung
kona, dugleg og skynsöm. Hún
var róleg og yfirveguð og fyrir-
myndarmamma. Gat föndrað,
bakað og leikið með stelpunum
sínum tímunum saman. Rannveig
var mjög góður kokkur og sérstak-
lega flink í bakstri. Það var alltaf
spennandi að koma í barnaafmæl-
in og sjá hvernig afmælistertan
var skreytt í það og það skiptið.
Hún kenndi unglingum í Öldu-
túnsskóla stærðfræði og gekk það
vel. Þar hefur yfirvegun og ljúf-
mennska ábyggilega hjálpað henni
mikið við að ná til unglinganna.
Sverrir og Rannveig kynntust
ung að árum, þau æfðu körfubolta
sem unglingar hjá KR og þar í
KR-húsinu hófust kynni þeirra.
Hef stundum sagt að þau hafi alið
hvort annað upp, því þau voru svo
ung, og hafa fetað veginn saman
síðan. Hafa alltaf verið mjög sam-
rýnd og haft sameiginlegan áhuga
á landinu okkar og ferðast saman
um allt land, fyrst tvö ein og síðan
með dæturnar frá því þær voru
smábörn. Nú kveður hún þetta líf
á afmælisdegi Sverris.
Elsku Sverrir minn og ömmu-
stelpurnar þrjár, foreldrar og
systkini, mínar dýpstu samúðar-
kveðjur. Við hjálpumst öll að.
Málfríður I. Vilhjálmsdóttir.
Ég sit hér við stofuborðið mitt,
horfi út um gluggann og finnst
eins og allt sé að birta til eftir
þennan erfiða vetur hjá okkur öll-
um. Angan af vori í loftinu og
fuglasöngur. Þess vegna er eitt-
hvað svo fjarlægt að vera að skrifa
minningargrein um Rannveigu
bróðurdóttur mína. Hún átti
heima í þessari vaxandi birtu,
brosandi, glaðlynd og hógvær.
Með brosi á vör, hvort sem það var
þegar við hittumst í fjölskylduboð-
um eða á fallega heimili fjölskyld-
unnar á Sogaveginum, líka í veik-
indunum.
Þetta er myndin sem ég hef af
Rannveigu frænku minni sem var
alltaf svo þakklát fyrir allt og hafði
þessa yndislegu rólegu nærveru í
hlédrægni sinni.
Ég heyrði oft af skemmtilegum
ferðalögum sem þau Sverrir fóru
með stelpurnar sínar og skruppu
þá á bílnum sínum í ævintýralegar
fjallaferðir með veiðistöng í skott-
inu. Þessar og aðrar minningar
eru veganesti fyrir fjölskylduna
sem verður fyrir þessum mikla
missi, fyrir Sverri og dæturnar,
fyrir foreldrana, þau Þorvald
bróður og Þóru, og fyrir systkini
Rannveigar, Ingu, Helgu og Krist-
in. Samúð okkar og hugur er hjá
þeim öllum.
Við sem stöndum eilítið fjær
geymum myndina af yndislegri
ungri frænku og finnum samhljóm
í þessu fallega ljóði Ingibjargar
Sigurðardóttur:
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki er gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þóra Elín Helgadóttir.
Almættið minnir á sig og jörðin
skelfur, við finnum fyrir vanmætti
okkar. Síðan skellur myrkrið á en
þá dansa norðurljósin og það birtir
aðeins til í hjörtum okkar. Lífið
færir okkur alls kyns verkefni og
að fylgjast með Rannveigu takast
á við veikindi sín af auðmýkt og
ákveðni hefur sannarlega verið
lærdómsríkt fyrir okkur öll. Það
að geta tekist á við illvígan sjúk-
dóm rétt eins og hvert annað verk-
efni er ekki sjálfgefið heldur ber
þess vitni hversu vel Rannveig var
gerð.
Kæru mágkonu minni féll aldrei
verk úr hendi, allt gert með bros á
vör og hún kunni svo vel að nota
hláturinn til að lífga upp á hvers-
dagsleikann. Hún virðist hafa
fengið hæfnina að leiðbeina öðrum
í vöggugjöf og ég ímynda mér að
val um starfsframa hafi verið
henni auðvelt og sjálfgefið. Hún
ljómaði þegar hún talaði um
kennsluna, þar hefur léttleikinn
komið henni langt í kringum ung-
lingana sem eflaust hafa stundum
verið krefjandi eins og fylgir því
aldursskeiði. Þessi vöggugjöf
hennar nýttist vel í uppeldinu og
hæfileiki hennar til að sinna móð-
urhlutverkinu af bæði festu og
hlýju var henni eðlislægur, allt svo
áreynslulaust. Enda bera dæturn-
ar þess vitni hversu góð móðir
Rannveig var, í mínum huga eru
þær fullmótaðir einstaklingar og
klárar að takast á við lífið.
Nóttina sem Rannveig kvaddi
jarðlífið dreymdi mig hana. Við
Kristinn stóðum með henni í óskil-
greindu anddyri, hárið var glans-
andi og hún var í fallegum svörtum
kjól. Umræðuefnið var dætur okk-
ar eins og svo oft áður en við vor-
um að reyna að skipuleggja við-
burð fyrir þær. Hún hafði ekki
tíma, var á hraðferð, sagði bros-
andi að við myndum sjá um þetta.
Síðan kvaddi hún okkur hlæjandi
og við horfðum á eftir henni út um
dyrnar. Hún virtist tilbúin að
kveðja en það vorum við ekki,
samt gátum við ekki annað en
brosað með henni. Með þakklæti í
huga, tár á hvarmi og bros í hjarta
minnumst við góðrar konu sem
kom með hlýju og gleði í líf okkar
allra.
Elsku Sverrir, Áslaug, Ingi-
björg og Þóra, við samhryggjumst
ykkur, fjölskyldunni og vinum
innilega. Megi ljós og hlýja fylgja
ykkur um alla tíð.
Fríður Skeggjadóttir
Þormar.
Rannveig var alltaf svo hlý og
góð. Þeir sem kynntust henni
segja allir það sama, „hún var allt-
af brosandi“, ljósið í herberginu.
Rannveig er systir mömmu minn-
ar en ég leit á hana sem stóru syst-
ur mína. Ef ég lenti í erfiðleikum
með námið gat ég leitað til hennar,
hún var alltaf til í að hjálpa. Þegar
ég þurfti að fara í pössun vildi ég
alltaf vera hjá henni og Sverri. Ár-
ið 2009 eignuðust þau hana Ás-
laugu, næst Ingibjörgu og svo
Þóru. Þetta eru litlu frænkur mín-
ar sem ég mun ávallt passa upp á
og vera til staðar fyrir. Ég elskaði
Rannveigu svo mikið og er þakklát
fyrir þann tíma sem ég fékk með
henni. Hún kenndi mörgum
krökkum sem eru núna með mér í
skóla. Þau tala öll svo vel um hana.
Ég leit alltaf upp til hennar, var
fyrirmynd í svo mörgu. Alltaf í
góðu skapi og góð við alla, þannig
ætla ég að vera.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Sólveig frænka.
Fimm dögum eftir að þú varðst
mamma gat ég ekki beðið lengur
og tilkynnti þér að ég kæmi daginn
eftir til að hitta ykkur mæðgur.
Daginn eftir þótti frumburði mín-
um hins vegar tilvalið að koma í
heiminn og við urðum því
mömmur í sömu vikunni. Þú varst
svo fegin að ég hefði ekki náð að
koma því þá þurftir þú ekki að
segja mér hvað þetta hefði verið
vont. Í staðinn hittumst við með
ungana okkar, báðar reynslunni
ríkari, og gátum látið allt flakka
um þennan merkilega viðburð,
fæðingu frumburða okkar. Þetta
var þó ekki verra en svo að við
eignuðumst báðar tvö börn í við-
bót, þau yngstu árið 2014 og aðeins
ár er á milli miðjubarnanna okkar.
Þú varst og ert mín besta vin-
kona. Heimurinn verður aldrei
eins án þín og það er undarlegt að
hugsa til þess að það er tíminn sem
ég mun aldrei fá með þér sem mun
hjálpa mér að sefa sorgina sem
býr í hjarta mínu. En það er svo
margt að þakka fyrir og ég ætla að
einblína á tímann sem við fengum
saman í stað tímans sem hefur ver-
ið tekinn af okkur. Ég ætla að
þakka fyrir allar minningarnar
sem ég á í stað þess að syrgja
minningarnar sem ég mun aldrei
fá. Ég ætla að vera þakklát frekar
en reið, og glöð frekar en leið.
Ég kom heim sama dag og þú
lagðist inn á spítalann í janúar.
Verandi hér tókst mér að gleðja
þig nokkrum sinnum og stytta þér
stundir en það sem þú gerðir fyrir
mig er ólýsanlegt. Þú leyfðir mér
að vera þér til halds og trausts og
ég er þér óendanlega þakklát fyrir
að hafa treyst mér fyrir þessu
mikilvæga hlutverki. Kannski
gerðirðu það af því að við vorum
alltaf frekar léttar á því, vorum
ekki mikið að gráta yfir ástandinu
eða eyða dýrmætum tíma í að sitja
saman með kvíðahnút í maganum
heldur lyftum við hvor annarri
upp. Það var bara ekkert drama
hjá okkur en það er einmitt það
síðasta sem þú sagðir við mig á
líknardeildinni, „bara ekkert
drama“, og svo hlógum við saman í
síðasta sinn.
Þú sagðir líka við mig í vor að
þú vildir ekki fresta neinu sem þú
þyrftir ekki að fresta. Þannig að
við frestuðum engu og að launum
hlaut ég yndislegar minningar
sem ég mun lifa á um aldur og ævi.
Þú gafst mér nefnilega það dýr-
mætasta sem þú gast gefið – tím-
ann þinn – en hann er það eina
sem við eigum sannanlega tak-
markað af í þessu lífi.
Þú lifir áfram í yndislegu stelp-
unum þínum og ég hlakka svo til
að sjá þær vaxa úr grasi í faðmi
pabba síns sem passar þær svo
vel. Þetta verður allt í lagi elsku
Rannveig, þú stóðst þig svo vel og
þú verður alltaf með okkur öllum.
Hafðu engar áhyggjur, þú getur
hvílt þig núna.
Elsku Sverrir, Áslaug, Ingi-
björg og Þóra. Þið eigið alla mína
samúð og ég er algjör forréttinda-
pési að fá að vera vinkona ykkar.
Þín
Guðrún.
Elsku Rannveig vinkona er far-
in. Við Rannveig kynntumst fyrst
10 ára gamlar þegar ég flutti til
Njarðvíkur og urðum við fljótt
bestu vinkonur. Þar með hófst yfir
30 ára vinátta sem lýkur nú, allt of
snemma, en eftir standa ótalmarg-
ar góðar og skemmtilegar minn-
ingar. Það var ekki annað hægt en
að laðast að Rannveigu þar sem
hún var með einstaklega jákvæða
nærveru og var alltaf brosandi.
Við Rannveig náðum að verða
samferða í gegnum marga mikil-
væga kafla í lífinu. Við fórum báð-
ar í Menntaskólann í Reykjavík
þar sem við vörðum nánast öllum
fjórum árunum okkar saman, í
sama bekk og bjuggum í næstu
götu við hvor aðra. Samgangurinn
var því mikill og var ýmislegt
skemmtilegt brasað á þessum ár-
um. Við deildum saman herbergi í
útskriftarferðinni okkar úr MR en
Rannveig skaðbrann í ferðinni eft-
ir of langa sólstrandarlegu og ég
bar á hana öll smyrsl sem til voru
til að reyna að draga úr brunan-
um. Það sem við höfum hlegið að
þessari ferð og því hvað okkur datt
í hug að bera á þessi brunasár. Við
eignuðumst síðan fyrstu börnin
okkar með nokkurra mánaða
millibili og náðum að verja góðum
tíma saman í fæðingarorlofunum
okkar, Rannveig og Sverrir með
þrjár stelpur og við Gummi með
þrjá stráka. Rannveig var nokkr-
um mánuðum á undan mér með
fyrsta barn og var ómetanlegt að
eiga svona góða vinkonu sem var
nýbúin að ganga í gegnum allt það
sem ég var að ganga í gegnum.
Sem mamma var Rannveig með
allt á hreinu, róleg og yfirveguð.
Stelpurnar hennar eru til fyrir-
myndar og allt á sínum stað á
heimilinu. Ég veit ekki hvernig
hún fór að þessu en þetta var í
mínum huga einstakt. Síðustu árin
stendur upp úr minningabunkan-
um þegar Rannveig kom að heim-
sækja mig þar sem ég var búsett í
Svíþjóð og við töluðum og hlógum
saman í fjóra daga samfleytt. Við
hefðum örugglega getað talað
saman í 40 daga í viðbót án þess að
skorta umræðuefni. Við náðum
svo að fara í eina ómetanlega ferð í
viðbót saman til Stokkhólms með
MR-saumaklúbbnum þar sem við
vorum aftur herbergisfélagar, rifj-
uðum upp gamla tíma og bættum
Rannveig
Þorvaldsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Hvað sem hver segir
er fegurðin ekki skraut
heldur kjarni lífsins
(Sigurður Pálsson)
Sorgin hefur barið að
dyrum, en minningarnar
lifa. Rannveig bar með sér
geisla.
Elsku vinir.
Innilegar samúðarkveðj-
ur.
Þorlákur Helgi og
Kristjana.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar