Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 ✝ Ástþór Hlöð-versson fæddist í Vestmannaeyjum 20. mars árið 1966. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 17. febrúar 2021 eftir fjögurra ára bar- áttu við krabba- mein. Foreldrar Ástþórs eru Hlöð- ver Pálsson, f. 15. apríl 1938 og Sonja Margrét Gränz, f. 24. ágúst 1939. Ástþór var einn af sjö systk- inum, hin eru: Ólafur Ómar, f. 1959, Geir Sigurpáll, f. 1964, Vignir Þröstur, f. 1967, Hlöðver, f. 1972, Róbert Karl, f. 1978 og Víóletta Ósk, f. 1979. Hinn 9. október 1993 kvæntist Ástþór Helgu Guðmundsdóttur, f. 11. ágúst 1967. Foreldrar hennar eru Guðmundur Tr. Ólafsson, f. 9. janúar 1946 og störfuðu saman á veitingastað í miðbæ Óslóar. Eftir að komið var heim frá Noregi hóf hann störf á Smur- stöðinni Vogum, sem seinna sameinaðist Max1. Samhliða vinnu þar lagði Ástþór stund á nám í rafvirkjun og lauk bóklega hluta þess árið 1999. Ástþór hætti störfum hjá Max1 seinni hluta árs 2015 og færði sig yfir til Trefja í Hafnarfirði, þar sem hann starfaði sem rafvirki og lauk samhliða sveinsprófi í raf- virkjun í febrúar 2017. Ástþór hafði alla tíð mikla un- un af tónlist. Síðustu 25 ár spil- aði hann á bassa, söng og samdi lög og texta í hljómsveitinni Strákarnir hans Sævars. Helstu áhugamál Ástþórs fyrir utan hljómsveitastússið voru gít- arsmíði, golf, ljósmyndun, íþrótt- ir og spilaði hann einnig blak til margra ára með Stjörnunni ásamt bræðrum sínum. Útför Ástþórs fer fram í Víði- staðakirkju 1. mars 2021 kl. 15. Allir velkomnir á meðan hús- rúm leyfir. Athöfninni verður streymt og hægt er að nálgast virkan hlekk á https://youtu.be/ Fe1VgBI9Jlo Alda Hauksdóttir, f. 21. september 1945. Börn Ástþórs og Helgu eru: 1) Hilm- ar Ástþórsson, f. 31. mars 1991, sam- býliskona Rakel Svala Gísladóttir, f. 21. desember 1994. 2) Elva Björk Ást- þórsdóttir, f. 23. júlí 1995, eiginmaður Wade Barrett Lee, f. 3. desember 1992. 3) Berglind Alda Ástþórsdóttir, f. 9. apríl 1999, unnusti Styr Orrason, f. 11. janúar 2000. Ástþór ólst upp í Garðabæ og gekk þar í Flataskóla og Garða- skóla. Að loknu grunnskólanámi lagði hann stund á matreiðsl- unám í Skútunni í Hafnarfirði og útskrifaðist sem kokkur frá Hót- el- og veitingaskóla Íslands árið 1987. Eftir útskrift fluttu Ástþór og Helga til Noregs þar sem þau Það er ótrúlega erfitt að þurfa að kveðja þig í hinsta sinn í dag, elsku Ástþór minn. Við kynntumst árið 1984 í gegn- um sameiginlegan vin og byrjuð- um fljótlega að vera saman. Við byrjuðum að búa saman þremur árum síðar þegar við héldum á vit ævintýranna og fluttum til Nor- egs, þar sem þú vannst sem kokk- ur og ég þjónaði á Fregatten, veit- ingastað niðri við höfnina í Ósló. Þetta var skemmtilegur og lær- dómsríkur tími fyrir okkur og töl- uðum við oft um að fara aftur þangað í heimsókn, en gerðum það því miður aldrei. Við giftum okkur 9. október 1993 í Garðakirkju og saman eig- um við þrjú yndisleg börn sem þú varst svo óendanlega stoltur af. Þú varst þeim góð fyrirmynd og alltaf til staðar fyrir þau, kenndir þeim að standa alltaf á sínu, vera dugleg og leggja sig fram í því sem þau tækju sér fyrir hendur, þá yrði uppskeran góð. Þú varst mikill námsmaður og hafðir ótrúlega gaman af því að læra eitthvað nýtt. Naust þess að sitja á kvöldin í rólegheitum við tölvuna og læra nýja hluti eins og forritun, tónlist, ljósmyndun eða hvað sem þér datt í hug. Ég á eftir að sakna þess að heyra í þér þar sem þú situr inni í herberginu þínu og hlustar á uppáhaldstónlistina þína, spilar undir á bassann og syngur með. Ég á eftir sakna húmorsins, ég á eftir að sakna þess að taka golf- hring saman, ég á eftir að sakna þess að kúra uppi í sófa og horfa á mynd, ég á eftir að sakna þess að fara í göngutúra og taka ljós- myndir … ég á eftir að sakna svo mikils. Við vorum mjög samrýnd og okkur leið vel saman og hlökkuð- um til þess að eldast saman, ferðast og njóta lífsins enn frekar. Hlökkuðum til að fá titilinn afi og amma en Hilmar okkar og Rakel unnusta hans eiga von á litlum prinsi í sumar, þú varst svo glaður og spenntur yfir því að verða afi. Ég mun ekki þreytast á því að segja litla peyjanum frá afa sínum og hversu yndislegur hann var. Minningarnar sem orðið hafa til á lífsleið okkar eru óteljandi. Hvort sem um var að ræða helg- arferðir okkar, útilegur með stór- fjölskyldunni, sumarbústaðaferð- ir, golfferðir með vinum eða notalegar kvöldstundir með vin- um og ættingjum. Dýrmætustu minningarnar hafa þó orðið til við samverustundir með börnunum okkar, bæði hér heima og á ferða- lögum okkar erlendis. Síðasta ferðin sem við tvö fórum í saman var til Tenerife í des. 2019. Á þeim tíma leið þér vel og nutum við þess að fara út að borða, ganga um á ströndinni, hlusta á músík og slaka á, minningin um þá ferð er mér afar dýrmæt. Í erfiðum veikindum undanfar- in ár sýndir þú mikið æðruleysi og baráttuvilja. Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þér fara frá okkur svona snemma. Þú varst mín stoð og stytta. Söknuðurinn er ólýsanlegur, elsku Ástþór minn. Hvíldu í friði. Þín Helga. Elsku besti pabbi okkar. Tilhugsunin um framtíð án þín er hræðilega erfið. Að missa nær- veru þína, væntumþykjuna, þolin- mæðina, viskuna, úrlausnasemina, góðu ráðleggingarnar, kímnigáf- una, dugnaðinn, kaldhæðnina, brandarana, sönginn og hljóðfæra- spilið úr herbergi þínu er eitthvað sem ekkert kemur í staðinn fyrir. Kveðjustundin er uppfull af söknuði og sorg, að ógleymdu þakklætinu í þinn garð. Þegar hugsað er til baka til bæði upp- vaxtaráranna og síðari ára er stuðningur þinn og mömmu ómet- anlegur. Þolinmæðin til þess að leiðbeina, kenna og verja tíman- um með okkur krökkunum er óborganleg. Það skiptir ekki máli hvað átti að fara að læra eða leysa úr, þú varst alltaf tilbúinn að setj- ast niður og verja tímanum í að kenna okkur. Ef þú kunnir það ekki þá fórstu einfaldlega og lærðir það í einrúmi og komst svo aftur til að kenna okkur, „Hey, ég er búinn að finna út úr þessu.“ Allir sem til þín tala minnast þess hversu mikið gæðablóð og toppeintak af manneskju þú varst og þar tökum við krakkarnir vel undir, enda höfum við alltaf verið svo montin af töffaranum pabba okkar. Þú varst kannski ekki mik- ið að monta þig af ágætum þínum sjálfur enda hógvær með ein- dæmum, það lýsir þér og per- sónuleika þínum vel. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur var gert eins vel og nokkur möguleiki var á, og helst örlítið betur en full- komlega. Þú ert okkur krökkunum mikil fyrirmynd. Persónuleiki þinn og nálgun á lífið sjálft og hindranir þess voru aðdáunarverð og til eft- irbreytni. Við komum til með að lifa eftir því sem þú stóðst fyrir og kenndir okkur í gegnum tíðina. Það er líka öruggt að væntanlegi afastrákurinn þinn fær að vita allt um þig og hversu ótrúlegur þú varst. Allar minningarnar sem við fjölskyldan höfum skapað í gegn- um tíðina eru gersemi sem munu lifa áfram með okkur og lýsa upp daginn. Hvort svo sem horft sé til utanlandsferðanna, ferðalaganna innanlands eða til hins daglega lífs með þér. Það var alltaf gott að vera hjá þér og við gátum spjallað um allt á milli himins og jarðar, því að þú varst ekki aðeins frábær pabbi heldur líka traustur vinur. Orð fá því ekki lýst hvað við söknum þín mikið pabbi. Við vit- um þó að þú munt fylgja okkur áfram hvert fótspor. Þegar eitt- hvað verður erfitt eða þörf er á hjálp munt þú án efa verða fyrst- ur á staðinn og styðja okkur í anda. Við elskum þig endalaust. Minning þín er ljós í lífi okkar. Hvíldu í friði elsku pabbi. Hilmar, Elva Björk og Berglind Alda. Það er erfitt að kveðja dreng- inn okkar tæplega 55 árum eftir að hann kom í heiminn. Hann háði hetjulega baráttu við erfið veik- indi áður en hann kvaddi okkur á líknardeildinni í Kópavogi 17. febrúar síðastliðinn. Ástþór er úr sjö systkina hópi þar sem mikil vinátta ríkir, gleðin ávallt til stað- ar og pabbi og mamma alltaf vel- komin með. Hann gaf mikið af sér, var einstaklega hlýr og góður drengur og traustur vinur. Ástþór og Helga með gullmolana sína þrjá hafa alla tíð verið okkur stoð og stytta. Elsku Helga, Hilmar, Elva, Berglind og tengdabörn, minning- in um góðan dreng lifir. Mamma og pabbi Elskulegi tengdafaðir okkar. Mikið sem við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og þínu fólki, öll yndisleg. Það var alltaf jafn notalegt að koma í heimsókn til ykkar Helgu þar sem þið tókuð alltaf vel á móti okkur með gleði, húmor og skemmtileg- heitum. Við munum sakna þess að hafa þig ekki með okkur, en þú verður alltaf í hjarta okkar allra um ókomna tíð. Þín tengdabörn, Wade Lee, Styr Orrason og Rakel Svala Gísladóttir. Við kveðjum með sorg í hjarta bróður, mág og frænda okkar Ást- þór sem lést á líknardeildinni í Kópavogi eftir tæplega fjögurra ára baráttu við erfið veikindi. Ást- þór fór alla tíð sínar eigin leiðir og var mjög úrræðagóður. Þetta byrjaði strax í æsku en þegar hann var lítill gutti og sá að eitt- hvað var í matinn sem hann kann- aðist ekki við þá spurði hann mömmu: „Mamma, finnst mér þetta gott?“ Svarið var iðulega já- kvætt og þá borðaði hann matinn með bestu lyst. Allt lék í höndunum á Ástþóri og ef hann tók eitthvað að sér þá var allt í toppmálum og öruggt að útkoman yrði góð, sama hvort það var í vinnu eða frístundum. Smíð- ar, rafmagn, tölvur, tækni, gítar- smíði, tónlist, blak og viðgerðir voru áhugasviðin og svo fjölskyld- an. Samband Helgu, Ástþórs og barnanna einkenndist af sam- heldni, hlýju og kærleika. Ástþór var ekki mikið að hafa sig frammi og lítið fyrir að bera til- finningar sínar á borð. Það var því mjög skemmtilegt að sjá rokkar- ann kominn upp á svið og fronta hljómsveitina Strákarnir hans Sævars með söng, bassaleik og lagasmíðum sem hann gerði í 24 ár. Bassinn góði sem var ómiss- andi hluti af honum var að sjálf- sögðu með á brúðkaupsmyndun- um. Hann var mjög mikill húmoristi og alltaf snöggur til svara og fljótur að sjá spaugilegu hliðina á öllum málum. Hann var blakari og lék með bræðrum sínum í áratugi í Stjörn- unni. Það var alveg sama hvað gekk á, hversu mikið mótlætið var á vellinum og spennustigið hátt, Ástþór tæklaði allar aðstæður með stóískri ró, var algjör klettur og var til fyrirmyndar á vellinum og kláraði sín verkefni með miklum sóma. Meira að segja, nokkrum dögum áður en hann greindist af krabbameininu þá spilaði hann með bræðrum og vinum á öld- ungamóti í blaki þar sem hann var sárþjáður af verkjum allan tímann en eins og alltaf þá gaf hann allt í þetta og lagði sig 100% fram fyrir liðsfélagana. Hann lét ekki heldur sitt eftir liggja utan vallar, því hann var hrókur alls fagnaðar í blakpartíunum og alltaf með gít- arinn í för og sá til þess að mikið væri sungið og trallað. Ástþór var ekkert mikið að væflast með hlutina né að búa til eitthvert vesen, orðið vesen var líklega ekki til í orðabókinni hans. Sjálfur vildi hann aldrei láta hafa fyrir sér. Þegar systkinin tóku sig saman og skelltu sér í óvissuferð til þess að gera sér dagamun í veikindunum, þá var Ástþór að sjálfsögðu klár í þetta. Hann var ekkert að flækja málin með að spyrja hvert förinni væri heitið, hvað stæði til eða hversu löng ferð- in yrði. Áfangastaðurinn var Berl- ín – og áttu systkinin frábæra ferð saman sem er uppfull af dásam- legum og dýrmætum minningum. Samferðafólk Ástþórs er til vitnis um að hann var algjörlega óumdeildur sem afskaplega góður gæi. Hvíl í friði, elsku Ástþór. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Elsku fjölskylda, við sendum ykkur okkar dýpstu samúðar- og baráttukveðjur. Hlöðver Perla og fjölskylda. Elsku Ástþór bróðir minn er látinn. Að tala um að hann sé farinn frá okkur er skrýtið. Það var bara eitt ár á milli okk- ar þannig að ég fékk oft að vera með honum þegar við vorum krakkar og var aldrei mikið vesen að hafa yngri bróðurinn með. Við vorum mikið saman, í leikj- um, æfðum fótbolta og blak og fór- um báðir á námssamning í mat- reiðslu hjá frændum okkar í Skútunni. Við áttum margt sameiginlegt, eins og íþróttirnar, matreiðsluna og tónlistina sem við hlustuðum á. Við vorum sagðir mjög líkir í útliti og það var nú ekki sjaldan sem fólk ruglaði okkur saman, meira að segja gamlir bekkjarfélagar hans héldu stundum að þeir væru að tala við Ástþór þegar þeir voru að spjalla við mig. Við vorum oft spurðir hvort við værum tvíburar og er eitt af þeim skiptum minnisstæðara en önnur. Þá vorum við báðir að vinna sem matreiðslumenn. Ástþór vann á Lækjarbrekku og ég á veitinga- staðnum við hliðina. Við vorum báðir á vakt eitt kvöldið og þá kom starfskona frá Lækjarbrekku yfir til okkar til að fá eitthvað lánað, sér mig í eldhúsinu og segir: „Hva, ert þú að vinna líka hér?“ Ég sagð- ist þá bara vera að vinna smá aukavinnu og hún mætti ekki segja eiganda Lækjarbrekku frá því. Hún sagði að það væri ekkert Ástþór Hlöðversson ✝ Ingibjörg Þor-valdsdóttir fæddist á Akureyri þann 22. desember 1938. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð þann 18. febrúar 2021. Foreldrar Ingibjargar voru hjónin Sigurlaug Benediktsdóttir, f. 7.7. 1903, d. 22.8. 1995, og Þorvaldur Kr. Jónsson, f. 30.10. 1902, d. 1.4. 1965. Ingi- björg átti einn bróður, Ragnar Þorvaldsson, f. 25.2.1947, d. 11.8. 1996. esi Gunnari Bjarnasyni. Börn: Arndís og Bjarney Hilma. Áður átti Hilmar Guðveigu Jónu, f. 19.6. 1962. Eiginmaður hennar er Stefán Örn Ástvaldsson og eru þeirra börn Brynja og Hlynur. Ingibjörg ólst upp á Akureyri en fór í Húsmæðraskólann í Reykjavík veturinn 1957-58, eftir það starfaði hún meðal annars hjá Landssímanum og í móttöku á Heilsugæslustöðinni á Ak- ureyri. Útförin fer fram frá Akureyr- arkirkju 1. mars klukkan 13.30. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. At- höfninni verður streymt á fa- cebook-síðunni Jarðarfarir í Ak- ureyrarkirkju – beinar útsendingar. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/mj3w8kut. Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat. Hún giftist Hilm- ari H. Gíslasyni, f. 29.2. 1936, bæj- arverkstjóra á Ak- ureyri og eignuðust þau þrjú börn. 1) Þorvaldur Kristinn, f. 2.4. 1965, í sam- búð með Öldu Óm- arsdóttur. Börn: Ingibjörg Íris, Sara og Rannveig Tinna. 2) Ólafur Gísli, f. 12.2. 1967, kvæntur Evu Sif Heimisdóttur. Börn: Eva Kristín og Emma Guðrún. Eva Sif á einn- ig Ölmu Karen og Daníel Þór. 3) Kristín, f. 10.7. 1969, gift Jóhann- Mamma var einstök kona. Hún hugsaði alla tíð mest um aðra, var góður vinur, þolinmóð og hjálp- söm. Það var ábyggilega oft krefjandi að vera móðir okkar en það var fátt sem haggaði mömmu. Hún skipti aldrei skapi, vann sín verk í hljóði og gekk allt- af hreint til verks án nokkurs asa. Handverk lék í höndunum á henni. Hún var alltaf með eitt- hvað á prjónunum, langoftast var það eitthvað handa öðrum. Hand- bragð og frágangur var alltaf til fyrirmyndar. Mamma var dugleg að rækta fjölskylduböndin og sinna fólkinu sínu. Afi lést tiltölulega ungur eftir erfið veikindi. Mamma var kletturinn hennar ömmu og að- stoðaði hana alla tíð og reyndist Ragnari bróður sínum afar vel. Það var henni mikið áfall þegar hann lést rétt fyrir fimmtugt. Eftir að við systkinin fluttum að heiman skapaðist skemmtileg hefð. Á hverju sunnudagskvöldi hittumst við öll saman í Jörva- byggðinni. Þar voru allir ávallt velkomnir og oftar en ekki ein- hver sem bættist óvænt í hópinn. Mamma eldaði alltaf meira en nóg. Það voru líka haldnar mynd- arlegar veislur þegar eitthvað stóð til. Það var sama hvert til- efnið var, matarboð, sauma- klúbbur eða afmæli, borðin svign- uðu undan kræsingum. Mamma átti alltaf að minnsta kosti eina fermingarveislu í frystinum. Barnabörnin elskuðu ömmu. Það var auðvelt því reglurnar voru fáar og nóg af ís og súkku- laði. Hún hafði endalausa þolin- mæði til að leiðbeina þeim og kenna. Var þá gjarnan tekið í spil en mamma var alltaf með spilin nálæg. Ósjaldan sátu þær vinkon- ur, mamma og Hulda, og spiluðu rommý í eldhúsinu. Það var að sjálfsögðu alltaf talið og öll úrslit skráð í bók. Mamma og pabbi voru dugleg að ferðast til útlanda en pabbi vildi helst fara í ferðir með golf- settið í farangrinum. Kom það fyrir að mamma sat í golfbílnum og prjónaði meðan pabbi spilaði á golfvöllum, m.a. í Flórída. Mamma hafði mjög gaman af því að versla þegar hún fór utan. Það skipti ekki máli hvort ferðin var einn dagur eða einn mánuður. Það fengu allir gjafir við heim- komu. Mamma og pabbi hafa alltaf átt frábæra vini. Vinahópurinn hefur ræktað vinskapinn og deilt sorgum og gleðistundum. Mamma fékk sinn skerf af veik- indum á lífsleiðinni og það hefur svo sannarlega sýnt sig í veikind- um, bæði mömmu og pabba, hve mikilvægt það er að eiga rækt- arsama vini. Fyrir það viljum við fjölskyldan þakka. Síðustu árin naut mamma frábærrar aðhlynn- ingar á Dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Hlíð og eru starfsfólki þar færðar hlýjar kveðjur. Takk fyrir allt elsku mamma, Þorvaldur, Ólafur og Kristín. Mig langar með nokkrum orð- um að minnast elskulegrar tengdamóður minnar, Ingibjarg- ar Þorvaldsdóttur. Allt frá því ég kom fyrst til þeirra Ingibjargar og Marra, haustið 2005, mætti mér afslapp- að og hlýtt viðmót. Allar götur síðan, þegar við Óli komum norð- ur, beið Ingibjörg eftir okkur með heitt kaffi á könnunni og norðlenskar smurbrauðstertur á borðum, sama hversu seint við vorum á ferðinni, „hringdu í mig þegar þið rennið fram hjá Þela- mörk, þá set ég á könnuna“. Síð- an voru uppábúin rúm klár, fyrir okkur fjölskylduna, hvort sem það vorum við Óli tvö, Alma og Daníel með eða öll hersingin eftir að Eva Kristín og Emma Guðrún bættust í hópinn, alltaf pláss í Víðilundinum. Mikið þótti mér líka vænt um hvað þau tóku Ölmu mína og Daníel minn inn í fjöl- skylduna eins og þeirra eigin og þegar þau voru með í för brást ekki að Ingibjörg bauð upp á Greifapizzu kvöldið fyrir brott- för. Við Ingibjörg áttum margar góðar stundir við eldhúsborðið í Víðilundinum, spjalla með kaffi eða kók í bolla og smá kruðerí og ósjaldan tókum við spilastokkinn upp og spiluðum rommý og þar var Ingibjörg í essinu sínu. Yndisleg kona sem ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst, traust, ósérhlífin og æðrulaus. Hún var búin að fá sinn skammt af þrautum en er núna komin í sumarlandið – ótal dýrmætar minningar um einstaka konu lifa eftir hjá okkur. Blessuð sé minning hennar Eva Sif Heimisdóttir. Ingibjörg Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.