Morgunblaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021
40 ára Hafdís er Vopn-
firðingur en býr í
Reykjavík. Hún er með
BA-gráðu í sálfræði og
er að klára ritgerð fyrir
MS-gráðu í mannauðs-
stjórnun, hvort tveggja
frá HÍ. Hafdís vinnur
sem ráðgjafi hjá Intellecta. Hún æfir blak
með Þrótti og situr í stjórn blakdeild-
arinnar.
Maki: Sveinbjörn Jónsson, f. 1981, verk-
fræðingur hjá Isavia.
Börn: Sævar Daði, f. 2007, Klara Hlín, f.
2010, og Dagur Kári, f. 2013.
Foreldrar: Pétur Hafsteinn Ísleifsson, f.
1957, verkstjóri hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyrar, búsettur á Laugum í Reykjadal, og
Sigríður Karlsdóttir, f. 1957, vinnur hjá Mo-
mentum gjaldheimtu, búsett í Reykjavík.
Hafdís Ósk
Pétursdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er óvenjuhætt við að hugmyndir
þínar verði kveðnar í kútinn í dag. Allt sem
þér leiðist drepur niður frumkvæði þitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þær aðstæður hafa skapast að þú ert í
óvenjuvaldamikilli aðstöðu og því skiptir
miklu máli að þú kunnir með vald þitt að
fara. Gömul tækifæri munu reynast þér best
þessa dagana.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það skiptir öllu máli að vera sann-
ur gagnvart sjálfum sér og öðrum. Ekki trúa
því sem þú vilt trúa varðandi maka eða náin
vin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Stundum er tímanum með
ókunnugum vel varið, en stundum er betra
heima setið en af stað farið. Aðrir sjá ekki öll
mál í sama ljósi og þú.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Öllu gríni fylgir einhver alvara svo þú
skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í nær-
veru sálar. Sýndu öðrum tillitssemi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft á öllu þínu að halda til þess
að verja skoðanir þínar fyrir aðgangs-
hörðum andmælendum. Þér tekst flest það
sem þú leggur áherslu á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Umburðarlyndi og þolinmæði er nokk-
uð sem stundum er af skornum skammti hjá
þér og það á við þessa dagana. Gefðu þér
tíma til að finna hana svo þú fáir frið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki nóg að geta sett
mál sitt fram með skemmtilegum hætti ef
þú gætir þess ekki að ræðan sé líka fræð-
andi. Reyndu að sjá ólíkar hliðar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hafðu augun hjá þér og láttu
einskis ófreistað til þess að komast til botns
í þeim málum sem þú hefur tekið að þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver samskiptavandi ríkir milli
þín og vinnufélaga þíns. Hlustaðu á þína
innri rödd, áður en ytri röddin fær að
hljóma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Spennan sem þú finnur til vegna
yfirvofandi fundar með nýju fólki er til komin
vegna ímyndaðs mikilvægis þess. Sýndu
öðrum nærgætni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Viðskipti geta verið varasöm, þegar
ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Atorka þín
mun skila sér í betri starfskjörum eða nýjum
atvinnumöguleikum.
Staatstheater Wiesbaden. Hann var
þar á mála til 1991 en síðan þá hefur
hann verið sjálfstætt starfandi söngv-
ari. Hann hefur sungið nokkuð á ann-
að hundrað óperuhlutverka víðs veg-
ar um heim, t.d. í New York,
Vínarborg, París, London, Mílanó,
San Francisco, Los Angeles, Tókýó,
Beijing og víðar í helstu óperuhúsum
heims.
„Það hefur kosti og galla að vera í
lausamennsku. Maður sér meira af
heiminum og fær betur borgað en að
vera fastráðinn einhvers staðar. En á
móti er atvinnuöryggið ekkert og það
er mikil samkeppni og svo er maður
minna heima hjá sér.“
Uppáhaldshlutverkin
Aðspurður segist Kristinn syngja
mest Wagner í seinni tíð en líka Ross-
ini. „Það er kannski svolítið skrítið
því þeir eru mjög ólíkir. Ég hef t.d.
mikið sungið hlutverk Gurnemanz í
óperunni Parsifal. Það er hlutverk
sem mér þykir mjög vænt um og er
eitt af stærstu bassahlutverkunum
enda tók það mig um tvö ár að læra
það. Svo er annað hlutverk, Ochs bar-
ón í Rósariddaranum eftir Richard
Strauss, ég hef sungið það nokkuð oft
kórstjórn í Grindavík og var í Ís-
lensku óperunni frá 1981 til 1982 og
síðan 1985-1989. „Ég var í alls konar
vinnu á þessum tíma, en allt í sam-
bandi við söng, var til dæmis með
þætti í útvarpinu um klassíska tónlist
og söng í jarðarförum og á árs-
hátíðum.“
Árið 1989 hófst síðan alþjóðlegur
ferill þegar Kristinn var fastráðinn
sem óperusöngvari við Hessisches
K
ristinn Sigmundsson er
fæddur 1. mars 1951 í
Reykjavík og ólst upp á
Holtsgötu og í Gnoð-
arvogi. Hann var í sveit
í tvö sumur hjá afabróður sínum,
Guðmundi Benónýssyni, á Gerð-
hömrum í Dýrafirði og síðan tvö sum-
ur á Litla-Ármóti í Flóa.
Kristinn gekk í Vogaskóla og varð
stúdent frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1971. „Það voru mikil
mótunarár, ég var í Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð og kynntist
þar klassískri tónlist en áður hafði ég
mest verið að hlusta á popp, Bítlana
og Rolling Stones. Svo vaknaði mikill
áhugi á bæði líffræði og íslensku og
ég vissi ekki hvort ég ætti að velja
þegar ég fór í háskólann.“ Líffræðin
varð fyrir valinu og lauk Kristinn BS-
prófi í því fagi 1977. Kristinn kenndi
líffræði við Menntaskólann við Tjörn-
ina og síðan Menntaskólann við Sund
þar til hann fór út í söngnám.
Söngferillinn
Kristinn hóf söngferilinn frekar
seint, en hann lauk söngprófi þrítug-
ur að aldri og ferill hans á al-
þjóðavettvangi hefst ekki fyrr en
hann fer að nálgast fertugt „Ég var
alltaf að syngja í kórum, bæði í Söng-
sveitinni Fílharmóníu og Pólýfón-
kórnum. Svo tók ég þátt í konsert-
uppfærslu á La Traviata og var með
þrjú minnstu hlutverkin í óperunni.
Guðmundur Jónsson sem söng eitt af
aðalhlutverkunum fór að hæla rödd-
inni minni og sagði að ég þyrfti að
gera eitthvað í þessu og ég fór að
læra hjá honum í Söngskólanum í
Reykjavík. Fyrst kitlaði þetta bara
egóið að vera að læra hjá honum og
svo leiddist maður út í þetta hægt og
rólega. Svo sagði konan mín að ég
þyrfti að fara til útlanda. Það tæki
enginn maður mig alvarlega nema ég
myndi fara út og læra og ég hlýddi
því bara.“ Kristinn lauk 8. stigs prófi í
Söngskólanum 1981 og var svo í söng-
námi í Vínarborg 1982-1983 og Wash-
ington DC 1984-1985.
Eftir námið var Kristinn við
kennslustörf í Nýja tónlistarskól-
anum, Söngskólanum í Reykjavík og
Tónlistarskólanum í Grindavík, sá um
og er eitt af uppáhaldshlutverkunum.
Síðan er annað Wagner-hlutverk sem
er mér mjög hjartfólgið og hef sungið
oft en það er Marke konungur í Trist-
an og Ísold.“
Það hefur ekkert verið að gera í
söngnum á liðnu ári enda hefur tón-
listarlíf fallið niður vegna Covid en til
stendur að Kristinn syngi á tónlist-
arhátíð í Búkarest í september nk. og
síðan fylgja tónleikar í Atlanta, Mün-
chen og Tókýó í kjölfarið. Kristinn er
því hvergi nærri hættur að syngja
„Það fer eftir röddunum hversu söng-
ferillinn getur orðið langur. Hjá hærri
röddum eins og sópran og tenór þá er
ferillinn oft búinn um fimmtugt. Ég
syng samt mun minna núna en áður.
Þegar var sem mest að gera var ég
bara heima yfir sumarmánuðina og ég
hefði getað verið að vinna allt árið, en
ég vildi vera með fjölskyldunni yfir
sumarið. En núna er ég að verða með
elstu mönnum á sviðinu.“
Kristinn hefur verið duglegur að
syngja hér heima og hefur oft sungið
með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í
Íslensku óperunni. Hann hefur einnig
haldið fjölmarga sjálfstæða tónleika,
með Jónasi Ingimundarsyni píanó-
leikara og fleirum. Hann hefur sungið
inn á fjölmargar hljómplötur með inn-
lendum og erlendum útgáfum, óp-
erur, í hljómsveitarverkum og ljóða-
söng. Frá 2013 hefur Kristinn verið
gestaprófessor við Listaháskóla Ís-
lands.
Kristinn hefur hlotið margvísleg
verðlaun og viðurkenningar fyrir
söng sinn. Hann hlaut verðlaun í
Belvedere-óperukeppninni 1983,
Stämgaffeln 1991, sem eru sænsk
verðlaun, fyrir upptöku á Don Gio-
vanni. Hann hlaut Riddarakross
Hinnar íslensku fálkaorðu 1994, var
bæjarlistamaður Kópavogs 2005 og
fékk Íslensku tónlistarverðlaunin
1996, 2011, 2012, 2013, fyrir söng og/
eða hljómplötu ársins. Hann hlaut
menningarverðlaun DV 2010, útflutn-
ingsverðlaun forseta Íslands 2011 og
Grímuverðlaunin 2015, þar sem hann
var valinn söngvari ársins fyrir hlut-
verk sitt í óperunni Don Carlo. Hann
hefur hlotið Grammy-verðlaun, en
hann söng í uppfærslu með Los Ang-
eles-óperunni á The Ghosts of Versa-
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari – 70 ára
Fjölskyldan Jóhann, Ásgerður, Kristinn, Mikael Bjarni og Gunnar.
Glæstur ferill víða um heim
Veiðimaðurinn Kristinn er forfall-
inn fluguveiðimaður.
30 ára Anna er Reyk-
víkingur og ólst upp í
Breiðholti og Graf-
arvogi en býr í Mos-
fellsbæ. Hún er lög-
fræðingur að mennt
frá Háskólanum í
Reykjavík og vinnur
hjá Dignu lögmannsstofu.
Maki: Jóhannes Brynjólfsson, f. 1989,
rafvirki hjá Rásinni.
Börn: Anton Einar, f. 2010, og Re-
bekka Rún, f. 2016.
Foreldrar: Rebekka Ingvarsdóttir, f.
1951, d. 2008, mannauðsstjóri hjá
Skeljungi, og Einar Ágúst Kristinsson,
f. 1945, húsgagnasmiður og fyrrver-
andi sýningarstjóri í Smárabíói og
Laugarásbíói. Hann er búsettur í
Reykjavík.
Anna Kristrún
Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
SÉRBLAÐ
Fermingarblaðið hefur
verið eitt af vinsælustu
sérblöðum Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 8. mars.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
12. mars
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is