Morgunblaðið - 01.03.2021, Page 35

Morgunblaðið - 01.03.2021, Page 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 hefur ekki tapað leik á heimavelli eftir 26:22-sigur á KA. Tapið var það fyrsta hjá KA eftir sex leiki í röð án þess að bíða ósigur. Eftir erfiða byrjun voru Framarar hins vegar sterkari aðilinn og var sigurinn verð- skuldaður. Fram er í hörðum slag um sæti í úrslitakeppninni á meðan KA féll úr þriðja sæti niður í það fjórða með tapinu. Þorgrímur Smári Ólafsson var markahæstur heimamanna með átta mörk og þá var Lárus Helgi Ólafsson frábær í marki Fram, varði 17 skot, þar af eitt vítakast. Fær- eyingurinn Áki Egilsnes skoraði sjö mörk fyrir KA. Fram hefur aðeins unnið einn leik af sex á útivöllum, en takist liðinu að laga útivallarárangurinn gæti það komið á óvart þegar líða tekur á tímabilið. KA verður að vinna lið eins og Fram, ætli liðið að berjast um efstu sætin á næstu vikum og mánuðum. Hákon fór á kostum Hákon Daði Styrmisson, marka- hæsti leikmaður deildarinnar, bætti heldur betur í markasafnið í gær. Eyjamaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði 15 mörk úr 16 skotum í 32:23-heimasigri ÍBV á ÍR. Hákon hefur nú skorað 91 mark í 12 leikj- um. Petar Jokanovic átti einnig öfl- ugan leik fyrir ÍBV og varði 17 skot og var með 43 prósenta markvörslu. Gunnar Valdimar Johnsen var markahæstur hjá ÍR með sex mörk. Jafnræði var með liðunum framan af en Eyjamenn stungu af í seinni hálf- leik og unnu öruggan sigur. ÍBV er með 13 stig og í baráttu um heima- vallarrétt í úrslitakeppninni en ÍR er sem fyrr límt við botninn, án stiga og með 93 mörk í mínus í markatölu. ÍR missti nánast alla leikmennina sína undir lok síðasta tímabils og hefur leikmannahópurinn hans Kristins Björgúlfssonar lítið erindi í efstu deild. Sigurinn var kærkominn fyrir ÍBV eftir einn sigur í sex leikj- um þar á undan. Líkt og Stjörnuna vantar Eyjamenn meiri stöðugleika til að berjast um efstu sætin. Lokasóknin ekki fyrir hjartveika  Fram tapar ekki á heimavelli  Þægilegt hjá ÍBV gegn botnliðinu Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Öflugur Þorgrímur Smári Ólafsson lék vel í gær og skoraði 8 mörk. HANDBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Selfoss fór upp í þriðja sæti Ol- ísdeildar karla í handbolta með naumum 29:28-sigri á Stjörnunni á heimavelli í gærkvöldi. Ragnar Jóhannsson skoraði sjö mörk fyrir Selfoss og hefur hann leikið virkilega vel síðan hann kom til félagsins frá Þýskalandi á dög- unum. Starri Friðriksson skoraði sjö fyrir Stjörnuna. Selfoss hefur brugðist vel við því mótlæti sem fylgdi að tapa þremur leikjum í röð um miðjan febrúar, en Selfoss vann ÍBV í síðustu umferð og er því með tvo sigra í röð. „Lokamínútan var ekki fyrir hjartveika, Selfyssingar voru skref- inu á undan og tóku leikhlé þegar 28 sekúndur voru eftir í stöðunni 28:28. Ragnar Jóhannsson skoraði frábært mark þegar níu sekúndur voru eftir og Selfyssingum tókst að verjast lokasókn Stjörnunnar,“ skrifaði Guðmundur Karl Sigurdórsson m.a. um leikinn á mbl.is. Fram ósigrað á heimavelli Fram er enn eina liðið sem enn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, besti spretthlaupari Íslands, var hálfri sekúndu frá Íslandsmeti Silju Úlf- arsdóttur í 200 metra hlaupi innan- húss er hún hljóp á 24,29 sek- úndum og bar sigur úr býtum í greininni á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í gær á nýju mótsmeti. Besti tími Guðbjargar er 23,98 sek- úndur. Hún hljóp á 24,42 sek- úndum á Reykjavíkurleikunum í byrjun febrúar og færist hún því nær sínum besta tíma eftir langt hlé á keppni vegna kórónuveir- unnar. Guðbjörg á Íslandsmetið í 100 og 200 metra hlaupum utan- húss og 60 metra hlaupi innanhúss. Þórdís Eva Steinsdóttir varð önnur í hlaupinu á 24,85 sek- úndum. Júlía Kristín Jóhannesdóttir setti nýtt mótsmet í flokki 16-17 ára er hún hljóp 60 metra grindahlaup á 8,70 sekúndum. Birna Kristín Kristjánsdóttir setti mótsmet í sömu grein í flokki 18-19 ára er hún hljóp á 8,76 sekúndum. Þá setti Birna Kristín Kristjánsdóttir nýtt mótsmet í 18-19 ára flokki í lang- stökki er hún stökk 6,08 metra. Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Spretthörð Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir einbeitt fyrir hlaupið í gær. Guðbjörg hálfri sek- úndu frá metinu Fram og KA/Þór styrktu stöðu sína á toppi Olísdeildar kvenna í hand- bolta með stórsigrum á laugardag. Valur og Stjarnan misstigu sig hins vegar. Fram vann sinn fjórða sigur í röð er deildarmeistararnir heimsóttu Hauka á Ásvelli. Framarar voru með völdin frá fyrstu mínútu og var sigurinn aldrei í hættu, þrátt fyrir að Haukar hafi minnkað muninn í tvö mörk í seinni hálfleik, en loka- tölur urðu 32:24. Steinunn Björns- dóttir hefur verið lygilega snögg að jafna sig á því að hafa misst sjón á öðru auga tímabundið en landsliðs- konan skoraði átta mörk fyrir Fram. KA/Þór er á enn meira flugi en 34:17-sigurinn á FH á heimavelli var sjötti sigur norðankvenna í röð. FH er án stiga á botninum og er mikill getumunur á liðunum. Hulda Bryndís Tryggvasdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir KA/Þór. Fram og KA/ Þór mætast í stórleik í Safamýri annað kvöld klukkan 19:30. Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals léku sinn fjórða leik í röð án sigurs er ÍBV mætti á Hlíðarenda og vann 21:20. ÍBV var yfir nánast allan tím- ann og var sigurinn verðskuldaður, þrátt fyrir að Valur hafi farið illa með fín tækifæri til að jafna í lokin. Sigurinn var kærkominn fyrir ÍBV eftir tvö töp í röð. Birna Berg Ha- ralsdóttir skoraði sjö mörk fyrir ÍBV, flest með neglum fyrir utan. HK vann ekki síður kærkominn 28:26-sigur á Stjörnunni eftir fjóra leiki í röð án sigurs. HK er nú að- eins tveimur stigum frá Haukum í sjöunda sæti. Sigríður Hauksdóttir og Elna Ólöf Guðjónsdóttir gerðu fimm mörk hvor fyrir HK. Efstu liðin styrktu stöðuna á toppnum Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Eyjar Sunna Jónsdóttir rífur sig lausa frá Huldu Dís Þrastardóttur. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: IG-höllin: Þór Þ. – Njarðvík ................ 18.15 Blue-höllin: Keflavík – Höttur ............ 19.15 HS Orkuhöllin: Grindavík – Valur ...... 19.15 MG-höllin: Stjarnan – Tindastóll ........ 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Ásvellir: Haukar – Grótta......................... 18 Höllin Ak.: Þór – Afturelding................... 19 Origo-höllin: Valur – FH...................... 19.40 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Hertz-höllin: Grótta – Valur U................. 20 KNATTSPYRNA Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Origo-völlur: Valur – Keflavík.................. 19 Í KVÖLD! Dominos-deild karla ÍR – KR ................................................. 84:91 Staðan: Keflavík 10 8 2 914:815 16 Þór Þ. 10 7 3 984:876 14 KR 11 7 4 1006:1013 14 Stjarnan 10 7 3 952:879 14 Njarðvík 10 5 5 862:872 10 ÍR 11 5 6 970:987 10 Tindastóll 10 5 5 922:926 10 Grindavík 10 5 5 874:911 10 Valur 10 4 6 813:839 8 Höttur 10 3 7 888:941 6 Þór Ak. 10 3 7 876:934 6 Haukar 10 2 8 833:901 4 Dominos-deild kvenna Valur – KR ............................................ 73:46 Skallagrímur – Keflavík ...................... 67:71 Staðan: Keflavík 9 9 0 758:646 18 Valur 11 9 2 813:658 18 Haukar 11 7 4 735:705 14 Fjölnir 11 6 5 800:786 12 Skallagrímur 11 5 6 734:785 10 Breiðablik 10 3 7 595:620 6 Snæfell 10 2 8 706:768 4 KR 11 1 10 722:895 2 Spánn Andorra – Valencia............................. 84:72  Haukur Helgi Pálsson skoraði 5 stig, tók 5 fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 18 mín- útum með Andorra.  Martin Hermannsson skoraði 4 stig, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar með Val- encia á 13 mínútum. B-deild: Girona – Real Canoe ........................... 87:62  Kári Jónsson skoraði 7 stig, tók 1 frákast og gaf 1 stoðsendingu á 16 mínútum með Girona.  Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 7 stig, tók 4 fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 23 mínútum með Canoe. Þýskaland Bamberg – Fraport Skyliners ........... 78:62  Jón Axel Guðmundsson skoraði 7 stig og tók 3 fráköst á 29 mínútum með Fraport.  Olísdeild karla ÍBV – ÍR................................................ 32:23 Fram – KA ............................................ 26:22 Þór – Afturelding .............................. frestað Selfoss – Stjarnan................................. 29:28 Staðan: Haukar 11 8 1 2 315:275 17 FH 11 7 2 2 327:294 16 Selfoss 12 7 1 4 312:297 15 ÍBV 13 7 1 5 384:355 15 KA 12 5 4 3 312:295 14 Valur 11 6 1 4 318:301 13 Afturelding 11 6 1 4 276:286 13 Stjarnan 12 5 2 5 328:322 12 Fram 12 5 2 5 299:302 12 Grótta 11 3 3 5 270:269 9 Þór Ak. 11 2 0 9 243:286 4 ÍR 13 0 0 13 302:404 0 Olísdeild kvenna HK – Stjarnan ...................................... 28:26 Valur – ÍBV........................................... 20:21 KA/Þór – FH ........................................ 34:17 Haukar – Fram..................................... 24:32 Staðan: KA/Þór 10 7 2 1 250:214 16 Fram 10 8 0 2 298:241 16 ÍBV 10 5 1 4 245:226 11 Valur 10 4 3 3 262:231 11 Stjarnan 10 5 0 5 265:257 10 Haukar 10 4 1 5 248:259 9 HK 10 3 1 6 243:266 7 FH 10 0 0 10 193:310 0 Þýskaland B-deild: Werder Bremen – Sachsen Zwickau 24:27 Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Sachsen Zwickau. Svíþjóð Kristianstad – Redbergslid ................ 32:29  Teitur Einarsson skoraði 7 mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Guðmundsson 2. . Alingsås – Ystad IF ............................. 33:27  Aron Dagur Pálsson skoraði 4 mörk fyr- ir Alingsås.  endaði í 5. sæti og fékk 74,44 FIS-stig. Fríða Kristín Jónsdóttir endaði í 46. sæti.  Íslandsmótið í knattspyrnu mun haldast óbreytt eftir að tvær tillögur um lagabreytingu sem sneru að leng- ingu tímabilsins í efstu deild karla voru felldar á 75. ársþingi Knatt- spyrnusambands Íslands á laugardag.  Knattspyrnumaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson, leikmaður Vík- ings í Reykjavík, kinnbeinsbrotnaði um leið og hann skoraði fyrsta mark liðs- ins í 3:1-sigri á Kórdrengjum í Lengju- bikarnum á föstudaginn var. Auk þess að kinnbeinsbrotna er Halldór með sprungu í höfuðkúpu upp að öðru aug- anu. Fótbolti.net greindi frá.  Markvörðurinn Rúnar Alex Rún- arsson meiddist á hné á æfingu með enska knattspyrnuliðinu Arsenal á dögunum og er frá keppni vegna þessa. Ekki er víst hve alvarleg meiðsl- in eru og hve lengi Rúnar verður frá keppni en samkvæmt frétt á heima- síðu félagsins á eftir að skoða meiðslin frekar.  Oliver Stefánsson og Finnur Tóm- as Pálmason léku báðir sinn fyrsta leik fyrir sænska liðið Norrköping í 4:1-sigri á Sandviken í sænska bik- arnum í fótbolta í gær. Finnur lék fyrri hálfleikinn og Oliver kom inn á sem varamaður á 84. mínútu. Ísak Bergmann Jóhannesson lék fyrstu 80 mínúturnar. Þá lék Aron Bjarna- son sinn fyrsta leik fyrir Sirius er hann kom inn á sem varamaður á 59. mínútu er liðið gerði 1:1-jafntefli við Trelleborg í sömu keppni.  Jón Guðni Fjóluson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hammarby er liðið vann öruggan 3:0-sigur á Oskarhamn í sænska bikarnum í fótbolta í gær. Hann gerði fyrsta mark liðsins á 6. mínútu. Jón Guðni kom til Hammarby frá Brann á dögunum.  Ómar Ingi Magnússon skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg og var marka- hæstur í 27:24-sigri á Melsungen í ís- lendingaslag í þýsku 1. deildinni í handbolta í gær. Gísli Þorgeir Krist- jánsson skoraði 4 mörk. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá Mel- sungen, sem Guðmundur Guðmunds- son þjálfar. Bjarki Már Elísson var markahæstur með 7 mörk fyrir Lemgo í 26:33-tapi fyrir Bergischer á útivelli. Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Bergischer. Aron Bjarnason Rúnar Alex Rúnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.