Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.03.2021, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2021 Dregið í fyrsta sinn Fyrstu blaðaauglýsingarnar með vinningaskránni tóku að birtast í október 1933. Voru þær lausar við öll slagorð eða myndskreytingar, heldur fólu þær í sér þurra upp- talningu á fjölda vinninga og þeim vinningsupp- hæðum sem dregnar yrðu út í hverjum mánuði. Þá birtust nokkr- ar auglýsingar um nöfn og heim- ilisföng umboðs- manna, einkum þó í Reykjavík og Hafnarfirði. Sú stefna var mörkuð strax í upphafi að auglýsa einkum í dag- blöðum, vikublöðum og kvik- myndahúsum, auk fyrrnefndra fjölpóstsendinga. Vekur nokkra at- hygli að bíóauglýsingar hafi verið svo ofarlega á blaði en því miður hefur ekkert varðveist um hvernig þeim auglýsingum hefur verið háttað. Þá er fróðlegt að stjórn- endur hins nýja fyrirtækis litu ekki á útvarpið sem mikilvægan auglýsingamiðil í upphafi. Sala happdrættismiða hófst 2. janúar 1934. Umboðsmenn voru þó farnir að taka niður miðapantanir fyrir þann tíma. Mesti þunginn í kynningu í blöðum var í lok febr- úar og allt fram á síðasta söludag þann 9. mars. Daginn eftir var svo dregið í fyrsta sinn í Iðnó. 42.641 fjórðungsmiði seldist fyrir fyrsta útdrátt eða rúmlega einn á hverja þrjá landsmenn. Fyrir- komulag dráttarins var með þeim hætti að tvö börn voru fengin til að draga hvort úr sinni tromlunni. Dró annað út vinningsnúmer en hitt vinningsupphæð á sama tíma. Las Pétur Sigurðsson svo númerin í heyranda hljóði. Þrír menn sátu og færðu núm- erin samviskusamlega í bók. Einn fulltrúi stjórnar happdrættisins, einn starfsmaður og sá þriðji úr sérstöku happdrættisráði sem skipað var af ráðherra til að hafa yfireftirlit með framkvæmdinni. Var happdrættisráðið talið hin virðulegasta stofnun, en í fyrsta ráðinu áttu sæti þeir Páll Eggert Ólason, Eggert Claessen, Gunnar Viðar, Ragnar E. Kvaran og Sig- urður Ólafsson. Almenningi var boðið að fylgjast með drættinum meðan húsrúm leyfði og var mæting prýðileg í fyrstu, þótt drægi úr henni með tímanum eftir að nýjabrumið fór af happdrættinu. Útdrátturinn tók rúmar tvær klukkustundir, enda þurfti að fara að öllu með gát. Blaðamaður Alþýðublaðsins, sem prentað var síðdegis, gat ekki beð- ið til loka og birti blaðið því ekki nema hluta vinningsnúmeranna þennan sama dag. Flest dagblöð birtu lista yfir vinningsnúmerin og hengdu vinn- ingaskrána út í glugga afgreiðslu sinnar. Númerin voru jafnframt send umboðsmönnum og lesin upp í Ríkisútvarpinu samdægurs eða daginn eftir. Þá var útdrættinum sjálfum stundum útvarpað. Ef marka má auglýsta útvarps- dagskrá dagblaðanna voru þær útsendingar stopular fyrsta árið en urðu svo nokkuð reglulegar á næstu misserum. Fyrsta útvarps- sendingin frá útdrætti Háskóla- happdrættisins var þegar í apríl 1934. Þótt blaðamaður Alþýðublaðsins hafi orðið að hlaupa heim á rit- stjórnarskrifstofu fyrir lok fyrsta útdráttarins gátu kollegar hans á hinum blöðunum setið rólegir. Þau fóru fyrr í prentun og biðu því til morguns með að fjalla um útdrátt- inn. Fulltrúi Morgunblaðsins virt- ist hafa skemmt sér ágætlega en sá þó ástæðu til að róa lesendur sína með því að vinningum ætti eftir að fjölga og þeir hækka þegar liði á árið. Í marsútdrættinum voru dregnir út 200 vinningar, sá hæsti að verð- mæti 5.000 krónur, en í loka- útdrættinum í desember hafði bæði vinningafjöldinn og verðmæti hæsta vinnings tífaldast. Eða eins og fréttaritarinn orðaði það: „Happdrættið sjálft er byrjað, en öll stærstu höppin eru eftir. Menn mega því ekki örvænta um gæf- una, þótt þeir hafi ekki hept neitt að þessu sinni. Það er um að gera að halda áfram og taka þátt í öll- um dráttunum.“ Sem vænta mátti þurftu lands- menn að læra á hið nýja spilaform, flokkahappdrættið. Morgunblaðið minnti á að ekki mætti henda gömlu miðunum þótt útdrætti væri lokið, því þeim þyrfti að framvísa við endurnýjun. Dregið var á mán- aðarfresti frá mars og til ársloka þann tíunda hvers mánaðar, þó ekki á sunnudögum eða stórhátíð- um. Unnt var að greiða fyrir fram fyrir miða alls ársins, en fæstir kusu að fara þá leið heldur mættu mánaðarlega til síns umboðs- manns. Flokkahappdrættisformið krefst þess að þátttakendur taki þátt í sérhverjum útdrætti, þar sem vinningspotturinn safnast upp allt árið. Þannig þurfti miðaeigandi sem hlaut vinning í fyrsta flokki að endurnýja miða sinn alla þá mán- uði sem eftir voru á happdrættis- árinu. Á sama hátt var ekki í boði að byrja á miðju ári, nema með því að greiða fyrir þá útdráttarflokka sem liðnir voru. Þótti mörgum það súrt í broti og áttu bágt með að skilja sanngirnina í því að þurfa að kaupa miða í útdrætti sem liðinn væri. Afleiðingin varð sú að nær allir miðaeigendur – 95% fyrsta starfsárið – tóku þátt frá byrjun. Þetta þýddi að drjúgan hluta ársins miðaði öll auglýsinga- starfsemi Háskólahappdrættisins að því að minna miðaeigendur á að endurnýja miða sína, en frá því um miðjan desember og fram í mars var áherslan lögð á að næla í nýja þátttakendur og freista þeirra gömlu á nýjan leik með því að aug- lýsa heildarupphæð vinninga árs- ins. Skipulag vinningaskrárinnar studdi við þetta en 42% af heildar- vinningsfjárhæð ársins var dregin út í desember. Það hafði bæði þann tilgang að halda viðskiptavin- unum út árið og auðveldaði sölu næsta árs að stóri útdrátturinn væri fólki í fersku minni. Stjórnendur happdrættisins renndu blint í sjóinn með viðtök- urnar og fóru því varlega fyrsta árið. 25 þúsund númer voru á boð- stólum, en fyrsta starfsárið var ákveðið að gefa aðeins út tvo fjórð- unga af hverju númeri. Fyrir vikið var vinningaskráin fyrir 1934 strangt til tekið villandi, þar sem viðskiptavinir gátu í raun aldrei unnið nema helming vinnings- upphæðarinnar. Eftir á að hyggja reyndist þetta óþarflega mikil var- kárni. Um 90% miðanna seldust og ef haft er í huga að þeim var dreift á fjölda umboðsmanna sem voru misiðnir við kolann má ætla að unnt hefði verið að selja fleiri miða strax í byrjun. Þegar um sumarið var ákveðið að fullnýta miðaupplagið fyrir árið 1935. Skyldu 10% númeranna vera heilmiðar, 20% hálfmiðar og það sem eftir stæði gefið út sem fjórð- ungsmiðar. Leitað var tilboða er- lendis í miðaprentunina og varð þýsk prentsmiðja, Willy Kahn í Hannover, hlutskörpust. Vakti sú ráðstöfun litla kátínu íslenskra prentara sem mótmæltu harðlega. Árið eftir var íslenskum prent- smiðjum gefinn kostur á að bjóða í verkið og hreppti Steindórsprent hnossið. Varð það upphafið að langvinnum tengslum happdrætt- isins og prentsmiðjunnar. Fleiri breytingar þurfti að gera frá upphaflegum áætlunum um reksturinn. Umboðsmönnum hafði í upphafi verið heitið 5% af and- virði seldra miða í sölulaun. Fljót- lega eftir að sala hófst kom í ljós að sú þóknun væri of lág miðað við umstang og var ákveðið strax eftir fyrsta drátt að hækka hana aftur- virkt í 7%. Höfðu umboðsmenn í Reykjavík og Hafnarfirði farið fram á að upphæðin yrði 10%, en eftir fundarhöld með þeim var ákveðið að mætast á miðri leið. Ágætisbyrjun Brúttótekjur fyrsta starfsársins voru góðar eða nærri 117 þúsund krónur. Þegar búið var að draga frá einkaleyfisgjaldið í ríkissjóð stóðu eftir rúmar 93 þúsund krón- ur eða 1/6 hluti þess sem lögin áætluðu að háskólabyggingin myndi kosta. Háskólaráð gat því óhikað hafið undirbúning að byggingarframkvæmdum. Fjöldi miða í boði tvöfaldaðist milli fyrsta og annars starfsárs og veitti því ekki af rækilegu kynn- ingarátaki. Er líka rökrétt að ætla að stjórnendum og starfsfólki hafi gefist tími til að huga betur að markaðsmálum þegar festa var að komast á skipulag útdrátta. Útbú- in voru auglýsingaspjöld til notk- unar í þéttbýli og Pétri Sigurðs- syni falið að hafa uppi á auglýsingum fyrir erlend happ- drætti sem hafa mætti til hlið- sjónar. Viðtökur Reykvíkinga við happ- drættinu voru góðar frá fyrsta degi, en ljóst var að gera mætti betur úti á landi, einkum til sveita. Var það algengt umræðuefni á fundum stjórnar, þar sem tókust á tvö andstæð sjónarmið: hvort rétt væri að stofna ný umboð í hinum dreifðari byggðum eða reyna að halda fjöldanum í skefjum til að umboðin yrðu ekki of mörg og smá í sniðum. „... öll stærstu höppin eru eftir“ Bókakafli | Fyrsti útdráttur Happdrættis Há- skóla Íslands fór fram í Iðnó þann 10. mars árið 1934 að viðstöddu fjölmenni. Fljótlega urðu miða- kaup í Háskólahappdrættinu fastur liður í heim- ilishaldi stórs hluta Íslendinga, eins og Stefán Pálsson sagnfræðingur rekur í sögu Happdrættis Háskóla Íslands, Gleymið ekki að endurnýja. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Happdrættis Háskóla Íslands Útdráttur Fyrsti útdráttur Háskólahappdrættisins fór fram í Iðnó. Ingigerður Jónsdóttir og Jónas Guðbrandsson draga hvort úr sinni tromlunni. Aftast á sviðinu, talið frá vinstri: Helgi Zöega, Pétur Sigurðsson, Ragnar Kvaran, Eggert Claessen, Sigurður Ólason, Ármann Jakobsson og Sigurður Jónsson. Fremst á myndinni eru blaðamennirnir Vilhjálmur S. Vilhjálmsson og Árni Óla. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Happdrættis Háskóla Íslands Spenna Mannfjöldi les vinningaskrá Háskólahappdrættisins í glugga ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.