Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.03.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,- Klettar 80 –Grunnverð kr. 10.807.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Framtíðin er ný ferja, sem þjónar betur þörfum atvinnustarfseminnar fyrir vestan og svæðinu í heild,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, spurður um við- brögð vegna vélarbilunar um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri í fyrra- dag. Ráðherra sagði jafnframt að um gamalt skip væri að ræða og þetta væri í annað skipti sem alvar- leg vélarbilun yrði í skipinu. Í því ljósi vildi hann skoða hvort hægt væri að gera meiri kröfur innan gild- andi samnings um að Sæferðir kæmu með nýtt skip til að sinna sigl- ingum yfir Breiðafjörð. Bilun varð í aðalvél Baldurs eftir hádegi á fimmtudag og drógu rann- sóknaskipið Árni Friðriksson og varðskipið Þór ferjuna til Stykkis- hólms. Baldur var síðan bundinn við bryggju í Stykkishólmi upp úr há- degi í gær, tæpum sólarhring á eftir áætlun, og dró dráttarbáturinn Fön- ix ferjuna síðasta spölinn inn í höfn- ina. 20 farþegar voru um borð í Baldri og átta manns í áhöfn. Sigurður Ingi segir að stjórnvöld hafi verið með áform um að fara í orkuskipti í ferjum þegar komi að endurnýjun þeirra. Það hafi verið gert með nýjum Herjólfi og einnig hafi verið horft til Baldurs og Hrís- eyjarferjunnar. Fyrir einhverjum árum hafi stjórnvöld ráðgert að hætta sigling- um yfir Breiðafjörð þegar vegir væru orðnir góðir. Hann segir að Vegagerðin hefði verið að skoða þennan möguleika, en þó svo að lokaskýrsla um málið liggi ekki fyr- ir, væri þetta ekki talið raunhæft. Ráðherra segist vera sammála þeirri niðurstöðu. „Það verður að endurnýja þessa ferju til að mæta þörfum framtíðarinnar, ekki síst í atvinnulífinu, en líka þjónustu við Flatey og þarna yfir,“ sagði Sigurð- ur Ingi. Um tímasetningar segir ráðherra að samningurinn við Sæferðir renni út 2022. Menn séu að undirbúa sig til að vera búnir að taka ákvörðun á þeim tímapunkti, en mögulega mætti framlengja samninginn um eitt ár. Í stöðunni sem nú er komin upp sagði hann eðlilegt að taka upp viðræður við fyrirtækið sem gerði skipið út um hvort hægt væri að gera úrbætur innan fyrirliggjandi samnings. Afskaplega óheppilegt „Það segir sig sjálft að það er af- skaplega óheppilegt að koma ekki ferskum matvælum af svæðinu og á áfangastað á réttum tíma,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax. Fyrirtækið átti tæp 100 tonn af laxi um borð í Baldri og varð sólarhrings seinkun á því að varan kæmist á suðvesturhornið. Slátrun á Bíldudal og flutningar suður eru stillt inn á flug og skip og segir Kjartan afleitt að geta ekki af- hent samkvæmt samkomulagi. Hann sagði í gær að verið væri að vinna úr stöðunni, sem upp væri komin vegna tafanna, en laxinn er seldur til Bandaríkjanna og Evrópu. Kjartan segir að tímaþátturinn skipti miklu máli hvað varði ferska vöru, en einnig afhendingaröryggi. Hjá erlendum verslanakeðjum sem geti valið úr þúsundum vöruflokka hafi menn ekki nokkurn áhuga á að heyra um vélarbilun um borð í ferj- unni Baldri eða ófærð á Klettshálsi. Á vegum Arnarlax eru flutt suður um 500 tonn af laxi á viku hverri og einnig eru miklir flutningar á vegum Arctic Fish og Odda. Verðmætið sé mikið og skipti þjóðarbúið miklu máli. Veikburða innviðir „Við erum að reyna að koma þess- ari vöru í efsta gæðaflokk þar sem ferskleiki og afhendingaröryggi eru lykilþættir,“ segir Kjartan. „Við byggjum á því að samgöngukerfið haldi, hvort sem það á við ferjuna eða vegakerfið. Núna er staðan sú að Gufudalur er nánast ófær vegna vegaskemmda og hálsarnir lokaðir vegna ófærðar sem fylgir árstíman- um. Þegar svo kemur í ljós að skipið er bara með eina vél blasir við að ástandið er afskaplega slæmt og sýnir hversu veikburða þessir inn- viðir eru.“ Hann tók sérstaklega fram að fyrirtækið Akstur og köfun, sem annast flutninga fyrir Arnarlax, hefði staðið sig einstaklega vel við erfiðar aðstæður undanfarin miss- eri, en þeir fengju ekki við allt ráðið. Framtíðin ný ferja - Baldur dreginn til Stykkishólms - Ráðherra vill skoða hvort hægt sé að gera kröfur um nýtt skip innan gildandi samnings Ljósmynd/Viktor Björnsson Stykkishólmur Dráttarbáturinn Fönix ýtir Baldri í lægi ferjunnar í höfninni, minni bátar voru einnig til aðstoðar. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Bókanir í ferðir Ferðafélags Íslands fyrir sumarið ganga vel. Félagið hefur þegar fjölgað ferðum um allt að 30% frá því sem lagt var upp með vegna áhugans, sem kemur einkum frá Íslendingum. Páll Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Ferðafélagsins, segir í samtali við Morgunblaðið að fé- lagsmenn séu ánægðir með að sjá þann aukna áhuga landsmanna til að ferðast um landið, sem komið hefur fram í kórónuveirufaraldr- inum meðan fólk ferðast síður til út- landa. Vonandi verði áhrifin var- anleg. „Það er náttúrulega okkar mark- mið að hvetja landsmenn til að ferðast um Ísland og því gaman að sjá þessa fjölgun,“ segir Páll. Hann segir aðsókn í skála félagsins einnig töluverða, en félagið á um 40 skála um allt land. Ferðafélagið hefur ekki farið var- hluta af samkomutakmörkunum frekar en aðrar stofnanir sam- félagsins en gistipláss í skálum fé- lagsins eru takmörkuð við 50 í sam- ræmi við reglur um fjöldatakmark- anir og stærri skálum skipt upp í sérstök sóttvarnahólf. Mikið um dagsferðir Skálinn í Landmannalaugum var opnaður í lok janúar og er þar skála- vörður á staðnum mestallan tímann. „Það hefur verið töluverð umferð af ferðafólki bæði á jeppum og sleðum og eins gönguskíðum í Land- mannalaugum,“ segir Páll en bætir við að það sé mikið til fólk í dags- ferðum sem gisti ekki í skálum fé- lagsins. Þessa helgina er skálinn þó vel nýttur því um tuttugu flugbjörg- unarsveitarmenn gista skálann. Ferðum fjölgað hjá Ferðafélaginu - Framkvæmdastjóri Ferðafélagsins ánægður með aukinn áhuga - Vonast eftir varanlegum áhrifum - Markmiðið að hvetja fólk til að ferðast um landið Morgunblaðið/Árni Sæberg Landmannalaugar Mikil aðsókn er í ferðir sumarsins hjá Ferðafélaginu. Lúpína er að taka yfir mosabreið- una á nýja hrauninu í Vest- mannaeyjum. Umhverfisstofnun segir nauðsynlegt að uppræta lúp- ínuna sem fyrst og hindra frekari útbreiðslu hennar á Eldfellshrauni. Þetta kemur fram í umsögn stofnunarinnar um þingsályktun- artillögu um að stofnaður verði starfshópur til að vinna að hug- myndum um minnisvarða í tilefni 60 ára afmælis eldgossins í Surtsey og 50 ára afmælis eldgossins í Heimaey árið 2023. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Hraun Eldfjöllin í Vestmannaeyjum. Lúpína breiðist út á Eldfellshrauni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.