Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða víðsvegar um landið briet. is Leigufélagið Bríet Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti. Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir föstudaginn 9. apríl 2021. Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna. Upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson (elmar.erlendsson@hms.is). Nánari upplýsingar eru að finna á briet.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tvö kórónuveirusmit greindust við seinni sýnatöku á landamærunum á fimmtudag en ekkert smit greindist innanlands. Alls eru nú 20 manns með virk kórónuveirusmit og í Covid-eftirliti á Landspítalanum, 19 fullorðnir og eitt barn. Samkvæmt upplýsingum frá Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, að- stoðarmanni forstjóra Landspítal- ans, er hér bæði um að ræða fólk sem greinst hefur innanlands og fólk sem greinst hefur á landamærunum. Enginn er með virkt Covid-smit á Landspítalanum. „Hins vegar eru þrír inniliggjandi sem voru smitaðir en eru hjá okkur núna af öðrum ástæðum. Þetta er einkum fólk sem var á Landakoti,“ segir Anna Sigrún. Þótt kórónuveirusmitum hafi fækkað mjög að undanförnu eru enn tvær deildir á spítalanum sem taka við Covid-sjúklingum. Annars vegar göngudeild, en þar er til dæmis símaþjónusta við fólk sem smitast, og hins vegar legudeildin sem er hluti af smitsjúkdómadeildinni, A7. Engin áform eru um að loka þessum tveimur deildum að sögn Önnu Sig- rúnar. „Enda verður kórónuveirunni að líkindum aldrei útrýmt og þess vegna viljum við hafa þessa þjónustu virka. Deildirnar munu hins vegar minnka og stækka eftir þörfum hverju sinni. Við erum alltaf tilbúin með rúm fyrir Covid-sjúklinga.“ Fólkið sem greindist með kórón- uveiruna um síðustu helgi og í vik- unni var með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar. Anna Sigrún seg- ir aðspurð að ekki þurfi að með- höndla það afbrigði með öðrum hætti. „Nei, það skilst mér ekki. Það gildir sama um það afbrigði og önnur að ef fólk þarf á innlögn að halda þá gerist það átta til 12 dögum eftir smit. Þetta fólk hefur ekki enn þurft að leggjast inn á spítalann en það er í yngri kantinum og það gefur okkur betri væntingar um bata.“ Ekki sérstök meðferð við breska afbrigðinu - 20 manns með virk kórónuveirusmit - Covid-deildir opnar Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Landspítali Kórónuveiran hefur sett svip sinn á starfsemi Landspítala síðasta árið. Hér er starfsfólk á gjörgæsludeild í október á síðasta ári. Alls hafa 28 tilkynningar borist til Lyfjastofnunar um alvarleg tilvik í kjölfar bólusetninga við kór- ónuveirunni. Þar af eru 12 andlát. „Þau eru öll úr þessum elsta hópi. Flestar tilkynningar eru vegna bólusetningar með bóluefni Pfizer enda hafa flestir verið bólusettir með því,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofn- unar. Rúna upplýsir að alls hafi 19 til- kynningar borist vegna Pfizer- bóluefnisins. Þar af eru öll andlát- in 12. Fjórar tilkynningar hafa bor- ist vegna bóluefnis AstraZenece og fimm vegna Moderna. Í vikunni var upplýst að þrjár til- kynningar hafi borist vegna þess að fólk hafi fengið blóðtappa í kjölfar bólu- setningar og eru þær nú til skoðunar hjá landlækn- isembættinu. Tilkynningarnar voru vegna allra bóluefnanna þriggja sem gefin hafa verið hér. Rúna segir að aðrar tilkynningar séu vegna bráðaofnæm- isviðbragða eða andþyngsla sem gengið hafi til baka. Tólf tilkynningar um andlát 28 TILKYNNINGAR UM ALVARLEG ATVIK TIL LYFJASTOFNUNAR Rúna Hauksdóttir Hvannberg Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íbúar Suðurnesja hafa ekki haft mikið samband við heilsugæslu- stöðvar Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja vegna áhrifa jarðskjálfta- hrinunnar á líðan og heilsu þeirra. Alma María Rögnvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar, segir þó að þegar fólk mæti í viðtöl við lækni eða hjúkrunarfræðing láti sumir þess getið að jarðskjálftarnir hafi slæm áhrif. Það á mest við um íbúa Grindavíkur. Mörgum íbúum Grindavíkur hef- ur ekki orðið svefnsamt í þeirri öfl- ugu jarðskjálftahringu sem nú hef- ur staðið á þriðju viku. Svefnleysið hefur áhrif á líðan fólks og getur haft áhrif á vinnu. Alma segir að einnig finni hluti fólks til óróleika og kvíða vegna ástandsins. Ljóst er að sumir ná að laga sig að aðstæðum en aðrir eigi erfiðara með að venjast stöðugum hristingi. Segir Alma að hugræn meðferð sé helsta hjálpin við kvíða. Óttar G. Birgisson, sálfræðingur hjá HSS, hefur tekið saman leiðbeiningar um kvíðaviðbrögð sem starfsfólk stofn- unarinnar afhendir þeim sem á þurfa að halda. Hann bendir á að þótt kvíði sé eðlileg tilfinning í aðstæðum eins og þeim sem Suðurnesjamenn eru nú að upplifa geti hann verið óþægilegur en aldrei hættulegur. Hvetur hann fólk til að ræða við vini og vandamenn um líðan sína. Hins vegar sé ekki ráðlegt að sökkva sér um of í fréttir og upp- lýsingar um jarðskjálfta. Minnir hann á að kvíði sé eðlileg tilfinning sem gangi yfirleitt yfir um leið og athyglin fer á eitthvað annað. Ekki búist við neðansjávargosi Kvikugangurinn upp af dalnum Nátthaga suður af Fagradalsfjalli heldur áfram að stækka, sam- kvæmt upplýsingum vísindaráðs al- mannavarna, en nokkur óvissa er talin um hversu hratt kvikan flæðir. Nú telja vísindamenn ólík- legt að gossprunga sem kynni að opnast suður af Fagradalsfjalli nái til sjávar og því ólíklegt að gos verði neðansjávar með tilheyrandi öskugosi. Morgunblaðið/Eggert Fagradalsfjall Kvikugangurinn hefur ekki færst suður fyrir Nátthaga. Svefnleysi og kvíði hrjáir fólk - Fólk hvatt til að hugsa um annað Bólusetningardagatal íslenskra stjórnvalda mun taka breytingum eftir að ljóst varð að tafir verða á afhendingu bóluefnis frá AstraZe- neca til allra landa í samstarfi Evrópuþjóða um kaup á bóluefni. „Við erum að horfa á það að okkar tímaáætlanir gætu hliðrast aftur um fjórar vikur en AstraZeneca er stór liður í okkar bóluefnisöflun,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra. Stjórnvöld hafa áður greint frá því að meirihluti þjóðarinnar verði bólusettur við Covid-19 fyrir lok annars ársfjórðungs; fyrir júnílok. Katrín segir hins vegar að bólu- efni belgíska lyfjafyrirtækisins Janssen, sem er í eigu Johnson & Johnson, sé ekki inni í núverandi áætlunum stjórnvalda en samið hefur verið um 235.000 skammta frá fyrirtækinu. Bóluefni Janssen fékk markaðs- leyfi á Íslandi á fimmtudag og beð- ið er eftir afhendingaráætlun frá fyrirtækinu. Vonir standa til að hægt verði að hefja bólusetningu með efninu í næsta mánuði en ólíkt þeim efnum sem hafa fengið markaðsleyfi hér á landi hingað til þarf einungis eina sprautu; ekki tvær. „Auðvitað vonar maður að það geti flýtt fyrir á móti en við viljum líka horfast í augu við það að þarna er komin töf,“ segir Katrín. Spurð segist forsætisráðherra vitanlega hafa orðið fyrir von- brigðum með fregnirnar af bólu- efni AstraZeneca. „Þetta er graut- fúlt en svona er þetta og svona er þessi veira.“ johann@mbl.is Tefur áætlanir um fjórar vikur - Grautfúlt, segir forsætisráðherra Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Tafir verða á áætl- unum stjórnvalda á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.