Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 St. 36-42 Verð: 27.995.- Vnr. GAB6697350 St. 36-41 / 3 litir Verð: 19.995.- Vnr. GAB6333414 NÝIR GÖTUSKÓR FRÁ GABOR St. 36-42 Verð: 19.995.- Vnr. GAB6607294 St. 36-41 Verð: 29.995.- Vnr. GAB6348021 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE Undanfarið hefur verið unnið að því að fella tré á nýjum byggingarlóðum við Brekkuhvarf 1a-1g í Kópavogi. Ástæðan fyrir trjáfellingunum er sú að fyrirhugað er að reisa þrjú parhús á tveimur hæðum á lóðunum. Þær eru staðsettar vestan Elliðavatns. Breytt deiliskipulag á lóðunum var sam- þykkt á fundum í skipulagsráði og bæjarstjórn Kópavogsbæjar í desember og janúar síðastliðnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tré víkja fyrir parhúsum við Vatnsenda Jóhann Ólafsson Þór Steinarsson „Hugsunin er sú að við séum að koma þeim sem hafi verið án atvinnu í lengri tíma út á vinnumarkaðinn,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra í samtali við blaðamann. Hún og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynntu atvinnuátakið „Hefjum störf“ á blaðamannafundi í húsnæði Vinnumálastofnunar í gær. Markmiðið með átakinu er að skapa allt að sjö þúsund tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, op- inberar stofnanir, sveitarfélög og fé- lagasamtök. Ráðgert er að verja um 4,5 til 5 milljörðum króna í átakið. Hverjum nýjum starfsmanni mun fylgja allt að 472 þúsund króna stuðningur á mánuði, auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði. Fyrirtæki geta ráðið eins marga starfsmenn og þau þurfa þangað til heildarfjöldi starfsmanna hefur náð 70. Ráðningartímabilið er sex mánuðir, frá apríl til desember. Katrín segir að með þessu séu stjórnvöld í raun og veru að borga fyrirtækjum, stofnunum, sveitar- félögum og frjálsum félagasamtök- um til að ráða fólk og á sama tíma minnka atvinnuleysi. „Markmiðið er að draga úr þessu langtímaatvinnuleysi. Þetta er hugs- að til sex mánaða svo verðum við að meta stöðuna að því loknu,“ segir Katrín. Hún segist sjá verkefnið fyrir sér sem viðspyrnu nú þegar sífellt fleiri Íslendingar eru bólusettir þótt tíð- alstórum fyrirtækjum auðveldara að ráða starfsmenn og búa sig þannig undir bjartari framtíð. Fyrirtæki sem hafa færri en 70 starfsmenn geta ráðið atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur með ríflegum stuðningi. Þá geta fyrirtæki af öllum stærð- um og gerðum nýtt sér ráðningar- styrki sem eiga að auðvelda atvinnu- rekendum að ráða starfsfólk og fjölga atvinnutækifærum þeirra sem eru án atvinnu. Ekkert þak er á fjölda starfs- manna sem fyrirtæki geta ráðið með þessu úrræði. Þá er félagasamtökum, sem rekin eru til almannaheilla og án hagnaðar- sjónarmiða, gert kleift með átakinu að stofna til tímabundinna átaks- verkefna í vor og sumar með ráðn- ingarstyrk sem nemur fullum laun- um samkvæmt kjarasamningum, að hámarki 472.835 krónum á mánuði, sem er hámark tekjutengdra bóta, auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð. Átakinu „Hefjum störf“ ýtt úr vör - Stefna á að skapa um sjö þúsund störf með átakinu - Allt að 472 þúsund krónur fylgja hverjum starfsmanni, auk framlags í lífeyrissjóð - Sex mánaða ráðningartímabil - Kostar 4,5 til 5 milljarða Morgunblaðið/Eggert Störf Katrín og Ásmundur á fundinum í gær þar sem þau kynntu átakið. indi af tímabundinni stöðvun notkun- ar bóluefnis AstraZeneca séu ekki góð. „Ég hef væntingar til þess og trú á að ferðaþjónustan muni fara hægt og bítandi af stað með sumrinu og þá styðja þessar aðgerðir hver við aðra,“ segir Katrín. „Nú hefst viðspyrnan“ Ásmundur Einar segir að nú stytt- ist í annan enda faraldursins. „Daginn er tekið að lengja, sífellt fleiri Íslendingar fá bólusetningu og nú hefst viðspyrnan. Við erum hér að kynna gríðarlega stórar aðgerðir fyrir bæði atvinnuleitendur og at- vinnulífið sem hjálpa okkur í öflugri viðspyrnu að loknum faraldri,“ er haft eftir Ásmundi í fréttatilkynn- ingu. „Ég hvet fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök til að nýta þetta úrræði og ráða fólk. Við mætum óvissunni með krafti og bjartsýni og saman keyrum við þetta í gang.“ Átakið á að gera litlum og með- Framsóknarflokkurinn yrði þriðji stærsti flokkurinn á þingi og fengi um 12,7% atkvæða ef boðað væri til kosn- inga nú, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR. Fylgi flokksins eykst um rúmt pró- sentustig milli mánaða en það hefur aukist nokkuð frá því flokkurinn hlaut sína verstu mælingu í október, um 6,7%. Litlar breytingar eru annars á fylgi flokka milli mánaða. Sjálfstæðisflokk- urinn er sem fyrr stærstur í könn- uninni, en 21,0% segjast myndu kjósa flokkinn. Samfylkingin er næststærst með 13,8% fylgi og eykst það lítillega milli mánaða. Þar á eftir koma Vinstri-græn með 11,7%, Píratar með 11,5% og Viðreisn með 10,0%. Miðflokkurinn nýtur stuðnings 9,3% kjósenda og Flokkur fólksins 5,1%. Þá fengi Sósíalista- flokkurinn atkvæði 3,8% kjósenda, en það myndi að öllum líkindum ekki nægja til þingsætis. Stuðningur við ríkisstjórnina er 53,7% eða nokkru hærri en samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja, líkt og hefur verið raunin allt kjör- tímabilið. Samanlagt myndu um 45,4% kjósenda greiða ríkisstjórnar- flokkunum þremur atkvæði sitt. Framsókn nær vopn- um sínum - Þriðji stærsti flokkurinn á þingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.