Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 8

Morgunblaðið - 13.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 GEFÐU STARFSFÓLKINU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is Enginn vill fara óvarlega þegarlyf eða bóluefni eru annars veg- ar. Fólk vill að slíkt sé prófað með fullnægjandi hætti áður en byrjað er að nota það og að hætt sé að nota það ef í ljós kemur, þrátt fyrir prófanir, að eitthvað er að. - - - Nú hefur veriðákveðið að hætta að nota Astra- Zeneca-bóluefnið hér á landi, í bili að minnsta kosti. - - - Ástæðan mun verablóðtappi sem kom upp erlendis og að þess vegna verði að skoða málið betur áður en haldið verði áfram að bólusetja með þessu efni. - - - AstraZeneca segir að rannsókn á10 milljónum gagna sýni enga aukningu blóðtappa, frekar að bólu- efnið dragi úr líkum á slíkum. - - - Nú kann að vera að einhverjirtrúi ekki AstraZeneca þó að búið sé að bólusetja milljónir og tölu- verð reynsla því komin á efnið, en hvað með Lyfjastofnun Evrópu eða Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina? Báðar þessar stofnanir segja bólu- efnið í lagi. - - - Varkárni er góð, en það er líkahægt að ganga of langt. Það má ekki gleyma því að tafir í bólusetn- ingu hafa líka hættu í för með sér. Það að grafa undan bólusetningum getur líka verið skaðlegt. - - - Var of varlega farið hér? Ýmislegtbendir til að svo hafi verið. Og sé það rétt hjá forsætisráðherra að þetta geti tafið bólusetningar um fjórar vikur er það ekki léttvægt. Þórólfur Guðnason Er ekki hægt að vera of varkár? STAKSTEINAR Katrín Jakobsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ragnar Þór Ingólfsson var endur- kjörinn formaður VR til næstu tveggja ára í atkvæðagreiðslu um formann félagsins meðal fé- lagsmanna. Ragnar Þór fékk 6.526 atkvæði eða 63,08% af greiddum at- kvæðum þeirra sem tóku afstöðu. Helga Guðrún Jónasdóttir, sem einnig bauð sig fram til formanns, fékk 3.549 atkvæði eða 34,3%. 271 fé- lagsmaður tók ekki afstöðu.Á kjör- skrá voru alls 35.919 fé- lagsmenn. Kosn- ingaþátttaka var því 28,8%. „Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi en þeg- ar kosningar eru annars vegar tek- ur maður engu sem gefnu,“ sagði Ragnar í samtali við mbl.is. í gær. Hann sagðist þó hafa verið vongóður um að hann hlyti eitthvað af atkvæðum og bætti við: „Það að fá góðan meirihluta er bara ákaflega jákvætt og gefur mér færi á að halda áfram með þau verk- efni sem við erum að vinna,“ sagði Ragnar Þór. Helga Guðrún sagðist við mbl.is vera óskaplega þakklát fyrir allan stuðninginn „og þakklát mínu stuðn- ingsfólki fyrir frábæra baráttu, en þetta bara hafðist ekki,“ sagði hún. „Svo bara óska ég Ragnari góðs gengis og áfram VR.“ Eftirtalin voru kjörin í stjórn VR: Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Jón Steinar Brynjarsson, Helga Ingólfs- dóttir, Sigurður Sigfússon, Krist- jana Þ. Jónsdóttir, Þórir Hilmarsson og Harpa Sævarsdóttir. Ragnar Þór endurkjörinn formaður Ragnar Þór Ingólfsson - 10.346 félagsmenn í VR greiddu atkvæði í kosningu formanns og stjórnar VR Úthlutað hefur verið úr húsafrið- unarsjóði og nema úthlutanir ársins 305 milljónum króna, en sótt var um rétt ríflega 1,5 milljarða króna. Fjöldi umsókna var 361 og aldrei hafa borist fleiri umsóknir. Nefna má að til verkefna við friðlýstar kirkjur eru veittar 79 milljónir, 66,7 milljónir til friðlýstra húsa og til friðaðra húsa var úthlutað 134,7 milljónum. Af einstökum úthlutunum var hæstu upphæðinni, sex milljónum króna, úthlutað vegna Grænavatns- bæjarins í Mývatnssveit. Fimm milljónir króna fara til Akranes- kirkju, Silfrastaðakirkju og vegna hússins að Laxabakka við Sogið. Fjórum milljónum er úthlutað vegna verkefna við Hljómskálann í Reykjavík og sömu upphæð til Bakkaeyrar í Borgarfirði eystri. Þá er þremur milljónum úthlutað til Fífilbrekku við Reyki í Ölfusi og 3,5 milljónum vegna gróðurhúss á sama stað. aij@mbl.is Aldrei fleiri umsóknir í húsafriðunarsjóð Morgunblaðið/Ómar Úthlutun Fimm milljónir fara til kirkjunnar að Silfrastöðum í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.