Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. L 206 cm Áklæði ct. 70 Verð 609.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 749.000,- STAN Model 3035 rafmagn Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið lögðum upp með að skapa stemningu hér inni sem við kunnum sjálf að meta, stemningu sem við fundum gjarnan í Berlín þar sem við bjuggum, en þar er mikið um litla staði þar sem ýmsu ægir sam- an á einum og sama staðnum, kaffi- hús sem eru líka tónleikastaðir, plötubúðir og fatabúðir,“ segja þau Guðrún Lárusdóttir fatahönnuður og Pan Thorarensen tónlistar- maður og tónleikahaldari, sem opnuðu í síðustu viku tilraunakennt rými við Laugaveg 2. Staðurinn þeirra heitir Space Odyssey og er hluti af verkefninu Sköpum líf í lok- un, en því er ætlað að gæða miðbæ- inn lífi með því að aðstoða skapandi fólk með góðar hugmyndir við að nýta tóm rými. „Þetta er tónleikastaður og viðburðastaður, hér er líka hægt að kaupa sjaldgæfar vínilplötur, notuð föt og fylgihluti. Hér geta rúmlega þrjátíu manns verið á tónleikum,“ segir Pan sem er liðsmaður í nokkrum hljómsveitum og sá sem er á bak við alþjóðlegu raftónlist- arhátíðina Extreme Chill, sem haldin er árlega á Íslandi. „Þessi staður hér verður í beinum tengslum við þá tónlistar- hátíð og viðburði tengda henni. Þar fyrir utan ætla ég að halda tónleika hér í hverri viku og fókusera á raf- tónlist og hvers konar hughrifa- tónlist. Fyrstu tónleikarnir verða næstkomandi miðvikudag, þá ætlar tónlistarmaðurinn Mikael Lind að spila hér,“ segir Pan sem selur líka torfengnar og stundum númeraðar vínilplötur, jafnvel safngripi. „Ég panta að utan beint frá listamönnum sem gefa út örfá ein- tök og það er greinilega markaður fyrir slíkt, því þegar við opnuðum þá runnu þessar plötur út.“ Nóg til í fataskápum fólks Guðrún segist spennt yfir nýju rými þeirra hjóna og þeim hluta þess sem hún sér um. „Hér sel ég einvörðungu notuð föt og þetta er hugsað sem eins konar skiptimarkaður. Hingað get- ur fólk komið með notuð föt og ég vel úr það sem mér líst á og vil selja hér. Ég vel gæðavöru, sérstök og falleg föt, hreinsa þau, gufu- pressa, geri fín og verðlegg. Fólk fær svo innleggsnótu í búðinni, fimmtíu prósent af söluandvirði flíkanna sem það kemur með,“ seg- ir Guðrún og tekur fram að fólk geti líka komið inn af götunni og verslað, án þess að koma með föt. „Ég geri ráð fyrir að nóg sé til af fötum í skápum hjá fólki sem hafa legið lengi óhreyfð, og ég hvet fólk til að koma með þau til mín og fá inneign á móti. Ég vil eldgömul föt, ný föt og allt þar á milli,“ segir Guðrún sem er menntuð í umhverf- isvænni fatahönnun frá Berlín. „Ég hef unnið við fatahönnun og framleiðslu í fimmtán ár hjá ýmsum fyrirtækjum, en nú langar mig að borga til baka til umhverf- isins. Mér finnst æðislegt að fara í gegnum fatapoka og sjá hvað kem- ur upp. Þetta er innlegg mitt í hringrásarhagkerfið; að draga úr kolefnissporunum með því að end- urnýta. Til að sýna samfélagslega ábyrgð langar mig líka til að bjóða fólki að halda eftir því sem eftir er í fatapokunum sem það kemur með og ég vel ekki til að hengja upp í búðinni. Mig langar að hafa einu sinni í mánuði sölu á því í kössum og selja ódýrt, fimm hundruð eða þúsund krónur stykkið, og gefa ágóðann til góðgerðarmála. Hugsað í stóra samhenginu Ég veit að Íslendingar kaupa sér oft dýr föt sem kannski hafa lengi hangið inni í skáp eða hafa lokið hlutverki sínu hjá viðkomandi manneskju. Mig langar að ná í þessi fínu föt og hvet fólk til að koma og fá innleggsnótu á móti. Ég vil líka fá gömul föt sem eru gersemar, til dæmis úr dánar- búum, bæði kvenföt og karlaföt. Ég vil hafa breidd í þessu hjá mér, bjóða upp á fín föt og vintage, street-föt, flotta merkjavöru sem var tískuvara fyrir tíu tuttugu ár- um og allt þar á milli. Ég er mjög hrifin af fötum frá áttunda ára- tugnum,“ segir Guðrún sem einnig tekur á móti notuðum skóm og fylgihlutum. „Það getur verið gaman að koma með fatapoka hingað og fara í staðinn út með tösku eða skó. Ég er alltaf að taka upp eitthvað nýtt og því er mikil endurnýjun á slán- um hér,“ segir Guðrún og bætir við að hver og ein flík sem hún hengir upp til sölu í búðinni fái mikið nost- ur. „Ég legg mikla vinnu í að gera fötin fín. Við eigum að setja sem mest af notuðum fötum inn í hring- rásina, það þarf ekki að framleiða meira af fötum. Margir hafa áttað sig á því í Covid að þessi fast- fashion-stefna mun líða undir lok. Við verðum að hugsa um umhverfið og framtíðina og nota öll þessi föt sem til eru, frekar en að framleiða stöðugt meira og kaupa alltaf nýtt.“ Notuð föt en flott Guðrún er vandlát á valið, hvað hún selur. Bekkir Guðrún og Pan láta fara vel um sig í tónleikarýminu. Sjaldgæfar plötur Í plötuhorni eru gersemar til sölu. Afskipt föt lifna við á tónleikastað Þau opnuðu tilraunaými í síðustu viku, Space Odyssey, í miðbæ Reykja- víkur. Þar mun tónleika- staður og skiptimarkaður með notuð föt verða á einum og sama stað. Guðrún og Pan horfa bjartsýn til framtíðar. Morgunblaðið/Eggert Spennt Það er hugur í Guðrúnu og Pan, þau hlakka til að blása nýju lífi í miðbæinn með tilraunarými sínu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.