Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 14

Morgunblaðið - 13.03.2021, Side 14
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsgreinasamband Íslands telur að krafa stjórnvalda um að starfs- fólki hjúkrunarheimilanna í Fjarða- byggð og Vestmannaeyjum verði sagt upp vegna yfirfærslu rekstr- arins til heilbrigðisstofnana virðist hafa það markmið að ráða það aftur til starfa á öðrum kjarasamningi og á lakari kjörum. Deila heilbrigðisráðu- neytis og sveitarfélaga er óleyst en velferðarnefnd Alþingis hefur sam- þykkt að taka hana til umfjöllunar. Deilan virðist snúast um það hvort lög frá árinu 2002 um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyr- irtækjum gildi við yfirtöku heilbrigð- isstofnana ríkisins á rekstri hjúkr- unarheimila frá sveitarfélögum. Heilbrigðisráðuneytið telur að um- rædd lög gildi eingöngu um að- ilaskipti að fyrirtækjum. Þau gildi hvorki um breytingar á skipulagi eða starfsháttum stjórnvalds né tilfærslu á verkefnum milli stjórnvalda. Hvergi í lögunum sé að finna heimild til handa ráðherra til að ákveða að þau skuli gilda í tilvikum eins og rætt er um í Eyjum og Fjarðabyggð. Tek- ur ráðuneytið fram í tilkynningu að forstjórum heilbrigðisstofnana beri lögum samkvæmt að ráða til sín starfsfólk á grundvelli auglýsingar. Fjarðabyggð og Vestmannaeyja- bær telja að þessi afstaða feli það í sér að sveitarfélögin verði að segja starfsfólki heimilanna upp störfum, um 140 manns, með tilheyrandi óvissu fyrir þá og heimilisfólk. Gildir þegar hentar Fjarðabyggð og Vestmanna- eyjabær segja á móti að umrædd lög hafi verið látin gilda um tilflutning verkefna milli ríkis og sveitarfélaga. Nefna bæjarstjórarnir flutning mál- efna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Þau hafi einnig verið látin gilda þeg- ar hluti starfsfólks hjúkrunarheimilis á Hornafirði fluttust frá sveitarfé- laginu til Heilbrigðisstofnunar Suð- urlands, sömu stofnunar og nú á að taka við rekstri hjúkrunarheimilis í Eyjum. Þá hafi staðið til að rétt- arstaða starfsfólks yrði tryggð við tilflutning hjúkrunarheimila á Ak- ureyri til Heilbrigðisstofnunar Norð- urlands á síðasta ári. „Það virðist því auðvelt að beita umræddum lögum þegar það hentar ríkinu en bera svo við heimildarleysi þegar það hentar ekki,“ segja bæj- arstjórarnir í athugasemd. Það hefðu verið ólíkt ábyrgari og faglegri við- brögð ráðuneytisins við uppsögn sveitarfélaganna, að þeirra sögn, að vinna í samstarfi að farsælli yf- irfærslu þessarar viðkvæmu starf- semi. Þannig hefði verið hægt að koma í veg fyrir að mál væru komin í þennan hnút. Á því beri heilbrigð- isráðuneytið eitt ábyrgð. Í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um það af hverju umrædd lög gildi um yf- irfærslu hjúkrunarheimila á Ak- ureyri og Hornafirði en ekki Eyjum og Fjarðabyggð segir að í fyrrnefndu tilvikunum séu fyrirtæki að taka við rekstrinum jafnvel þótt í einu tilviki sé það fyrirtæki í eigu ríkisins. Ráðið aftur með lakari kjörum Sveitarfélögin hafa leitað liðsinnis velferðarnefndar Alþingis í þessu máli og hafa fengið svör um að nefnd- in muni fjalla um það. Yfirfærslan átti að fara fram 1. apríl næstkomandi en Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabær óskuðu eftir framlengingu eldri samninga um mánuð, vegna þessa máls, og hafa Sjúkratryggingar orðið við því. Starfsgreinasamband Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem boðuðum uppsögnum á um- ræddum hjúkrunarheimilum er harðlega mótmælt, þess krafist að hætt verði við þær og starfsfólkið haldi vinnu sinni og kjörum. „Það eru algerlega forkastanleg vinnubrögð hjá heilbrigðisráðuneytinu að krefj- ast þess að allt að 150 starfsmönnum verði sagt upp [...] að því að virðist með það að markmiði að ráða [það] aftur til starfa undir öðrum kjara- samningi og á lægri kjörum.“ Tekið er fram að starfsfólkið sé flest konur í láglaunastörfum. Markmiðið sagt að lækka laun fólksins - SGS mótmælir uppsögnum - Deilan við ríkið er óleyst Vestmannaeyjar Um eða rúmlega sextíu starfsmenn eru á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum og 35 heimilismenn. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2021 EPLAEDIK HEFUR ALDREI SMAKKAST BETUR! Apple Cider Gummies eru ný og bragðgóð hlaup frá New Nordic sem innihalda hreint eplaedik. Eplaedik hlaupin eru fullkomin fyrir alla sem vilja njóta góðs af heilsueflandi eiginleikum þess án súra bragðsins. NÝTTInniheldur 400mg af gæða eplaediki í hverjum skammti. Hámarks virkni 100% hrein og náttúruleg vara unnin úr eplum. Ljúffengt eplabragÐÁn gelatíns og allra gervi litar- og bragðefna. SYKURLAUST 2 hlaup á dag. MÁNAÐAR- SKAMMTUR Útsölustaðir: Apótek og heilsuhillur stórmarkaða. Alls hófu 268 atvinnuleitendur nám um seinustu áramót í framhalds- skóla eða háskóla og aðfaranám í há- skóla sem einnig hefur verið nefnt háskólabrú. Þar af hófu 164 nám á framhaldsskólastigi, 62 hófu há- skólanám og 37 aðfaranám. Þetta kemur fram í svari Ásmund- ar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á Alþingi við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árna- dóttur þingmanni Miðflokksins um átakið Nám er tækifæri. Fram kemur í svari ráðherra að samkvæmt fjárlögum fyrir yfir- standandi ár er gert ráð fyrir 1.728 milljónum króna vegna náms at- vinnuleitenda á framhaldsskólastigi sem og 971 milljón kr. vegna náms á háskólastigi. Þar af er gert ráð fyrir um 100 milljónum kr. vegna aðfara- náms atvinnuleitenda. Verður hverjum skóla greitt fyrir hvern atvinnuleitanda sem skólinn veitir skólavist í tengslum við átakið, að því er segir í svarinu. 560 skráðir í lengra nám Í nýlegri skýrslu Vinnumálastofn- unar (VMST) um atvinnuástandið kemur fram að í febrúarmánuði voru 560 einstaklingar skráðir í lengra nám á framhalds- eða háskólastigi og 301 einstaklingur var skráður í úrræðið Nám er tækifæri þar sem atvinnuleitendum býðst að stunda nám á atvinnuleysisbótum í eina önn. Í seinasta mánuði febrúar tóku 2.780 einstaklingar þátt í hinum ýmsu vinnumarkaðsúrræðum. Um 405 einstaklingar fóru í ýmiss konar grunnúrræði. „Grunnúrræði eru stutt úrræði sem standa öllum atvinnuleitendum til boða. Þar má nefna starfsleitar- námskeið, ferilskrárgerð, markmið- asetningu og sjálfsstyrkingu. Þá fóru 913 einstaklingar á ýmiss konar námskeið. Í flestum tilvikum var þar um að ræða íslenskunámskeið fyrir útlendinga en einnig fóru margir á önnur starfstengd námskeið,“ segir í skýrslu VMST. 268 atvinnuleit- endur hófu nám - 164 í framhalds- skólanámi og 62 á há- skólastigi um áramót Morgunblaðið/Golli Þjóðarbókhlaðan Boðið er upp á námsleiðir í átakinu Nám er tækifæri. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Viðtökurnar hafa klárlega farið langt fram úr okkar væntingum. Það er alveg ljóst að þarna var til staðar mjög mikil eftirspurn,“ segir Óli Rún- ar Jónsson hjá Borg brugghúsi. Athygli hefur vakið að úrval af áfengislausum bjór og svokölluðum léttbjór hefur aukist hratt í mat- vöruverslunum að undanförnu. Hinn íslenski Pilsner og sams konar 2,25% léttbjórar hafa lengi notið vinsælda en síðustu mánuði hefur bæst við áhugavert úrval af metnaðarfullum íslenskum bjórum sem flokkast flest- ir sem áfengislausir. Borg reið á vaðið með áfengislausum Bríó síðasta sum- ar og hefur hann selst afar vel að sögn Óla. „Við áætlum að sala áfengislausra og áfengissnauðra bjóra á seinasta ári hafi verið á bilinu 1,6-1,8 milljónir lítra hér á landi. Við eigum von á auk- inni sölu þarna, jafnvel að hún fari yf- ir tvær milljónir lítra í ár. Þar munar mest um vöxt í sölu á áfengislausum bjór. Við teljum að sá flokkur muni margfaldast á næstu misserum,“ seg- ir Óli Rúnar. Aðspurður segir Óli að auknar vin- sældir áfengislausra bjóra megi rekja til gæða þeirra. „Þetta er bara eins og annar bjór, þetta er ferskvara. Það urðu tímamót þegar Íslendingar fóru í fyrsta skipti að geta nálgast nokk- urra daga eða vikna gamlan áfeng- islausan bjór. Fólk kann greinilega að meta þetta.“ Borg fylgdi Bríó eftir með áfeng- islausum jólabjór, Froðusleiki, og á dögunum kom svo þorrabjórinn Hrymur. Þessa dagana er svo Sunna að koma í verslanir. Hún er að sögn Óla gerð eftir sömu uppskrift og nafna hennar sem fæst í Vínbúðinni. „Hún er bara brugguð með minna af öllu, minna af malti og minna af huml- um. Svo eru fleiri áfengislausir bjórar á teikniborðinu sem líta dagsins ljós á næstu vikum,“ segir Óli Rúnar. Fleiri íslensk brugghús hafa kynnt til sögunnar áfengislausa eða áfeng- issnauða bjóra. Víking setti í sölu Hvít jól fyrir jólin og Einstök býður upp á Arctic Pale Ale. Einstök setti líka á markað kókoshnetu-stout á dögunum sem er 0,5 að styrkleika og gerður í samstarfi við breska fyrir- tækið Big Drop. Þá blandaði brugghúsið Ölverk í Hveragerði sér í þennan leik með Litlahver sem seldur er í Melabúð- inni og í ýmsum verslunum á Suður- landi. „Þetta hefur gengið mjög vel. Við erum búin að selja heilan tank og meira er á leiðinni,“ segir Elvar Þrastarson, einn eigenda Ölverks. „Það er mikið um þetta úti í heimi. Brugghús eru með 1-2 létta bjóra á krana meðfram hinum og ég hugsa að þetta sé framtíðin. Við á Ölverki höf- um alltaf verið með einn léttan bíl- stjórabjór á krana svo fólk geti fengið sér bjór og pítsu og keyrt eftir það,“ segir Elvar. Litlihver er að sögn Elvars ekki hefðbundinn léttbjór, hann er dökkur og bragðmeiri en slíkir bjórar eru oft- ast. „Þetta er aðeins meiri kraftbjór,“ segir bruggarinn. Úrval Áfengislausir og áfengissnauðir bjórar frá Einstakri, Borg og Ölverki. Salan gæti farið yfir tvær milljónir lítra - Áfengislausir bjórar í mikilli sókn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.